Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Qupperneq 17
16 MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 33% íþróttir íþróttir f£Í< ENGIAMP Newcastle United hefur fariö fram á þaö við enska knatt- spymusambandið að það fari ofan í saumana á úrskurði dóm- arans í leik Newcastle og West Ham er hann sýndi Stuart Pe- arce rauða spjaldið fyrir vægast sagt vægt brot á Trevor Sinclair. Pearce á yfir höföi sér þriggja leikja bann fyrir vikið. Guy Whittingham, leikmaður Sheffield Wednesday, hefur ver- ið lánaður i einn mánuö til Wolves. Whittingham, sem er 33 ára, lék með Úlfunum gegn Ipswich í gærkvöld. Baráttan um Dion Dublin, leik- mann Coventry, heldur áfram. Aston Villa hefur boðið 5,1 millj- ón punda í Dublin en Coventry hefur þvemeitað því tilboði. Ástœöan fyrir þessu boði Villa er að í samningi Dublins er klausa þar sem segir að hann megi fara frá félaginu ef tilboð komi í hann sem nemi 5 milljón- um punda eða meira. Coventry vill fá 6,75 milljónir punda fyrir Dublin, það sama og Blackbum bauð á dögunum en þá neitaði Dublin að fara til Ewood Park. Þrir leikir voru í ensku B-deildinni i knattspymu í gær- kvöld. Crewe tapaði fyrir Sund- erland, 1-4, Ipswich sigraði Wolves, 2-0, Watford og Norwich gerðu jafntefli, 1-1, og W.B.A. sigraði Crystal Palace, 3-2. Sund- erland er i efsta sæti með 34 stig, Ipswich hefur 31 stig og Birmingham 29 stig. í D-deildinni töpuöu Hermann Hreiðarsson og samheijar hans i Brentford fyrir Plymouth, 3-0. Rotherham, Scunthorpe og Brentford, Cambridge, Plymouth og Cardiff era efst og jöfn með 27 stig. Gunnleifur Gunnleifsson, Sig- uröur Örn Jónsson og Bjarni Þorsteinsson em allir famir frá Wimbledon eftir að hafa verið þar við æfingar. Sigurður Öm Jónsson og Brynjar Þorsteinsson fóru til Watford og munu leika með varaliði félagsins i kvöld. -JKS/SK Þýska knattspyrnan: Jafntefli hjá Schalke og Freiburg Schalke og Freiburg gerðu jafn- tefli, 1-1, í þýsku A-deildinni í knattspymu í gærkvöld. Tékkinn Jiri Nemec kom Schalke yfir á 25. mínútu en Steffen Korell jafnaði fyr- ir gestina á 71. mínútu. Freiburg er í 7. sæti með 15 stig og Schalke er í 14. sæti með 10 stig. -JKS NBA-deildin í körfuknattleik: Gæti hafist eftir áramót - engin lausn í sjónmáli í launadeilunni Enn situr allt fast í launadeilu leikmanna í NBA-deildinni í körfuknattleik og eig- enda félaganna. Keppnin í NBA-deild- inni átti að hefjast í gær. Fyrir nokkrum dög- um var keppninni enn frestað og því lýst yfir að ekkert yrði leikið í nóvember. Nú hafa forráða- menn deildarinnar lýst því yfir að eins og staðan sé í dag geti það hæglega gerst að ekkert verði leikið í NBA fyrr en í janúar. Þær fréttir spurðust út í gær að samkomu- lag væri í augsýn og líklega yrði skrifað undir samkomulag í þessari viku. Borið til baka Strax og þessar fféttir birtust komu fulltrúar eigenda og leikmanna fram í fjöl- miðlum og bám allar þessar fréttir til baka. Staðreyndin í deil- unni er sú að ná- kvæmlega ekkert er að gerast. Varla er hægt að segja aö deiluaðilar talist við og margir dagar líða á milli funda. Einn af frammá- mönnum sambands leikmanna sagði í gær að deiluaðilar hefðu fjarlægst undanfamar vikur. Það bæri mun meira á milli en áður en samningaviðræður hófust. Mun styttra tímabil en venjulega Einn hlutur liggur alveg ljós fyrir varð- andi launadeilu leik- manna og eigenda lið- anna. Keppnistímabil- ið, sem ekki er enn hafið, verður mun styttra en áður ef af því verður yfirhöfuð. í gær vom menn að velta því fyrir sér að ef keppnin hæfist ekki fyrr en í janúar myndu liðin vart leika fleiri en 50 leiki í stað 82 leikja þegar um venjubundið tímabil er að ræða fyrir utan úrslitakeppni. Spurning um greiðslu skatta Skattamál er sá þátt- ur sem allt strandar á, ekki eiginlegar kröfur um launahækkun. Talað hefur verið um sérstaka „lúxus“- skattaprósentu næstu árin en leikmenn vilja hafa á hreinu hvað þá tekur við. Þessar deilur hafa þegar kostað deiluað- ila mikla peninga. Talið er að leikmenn hafi tapað 28 milljörð- um króna vegna tap- aðra launa og tap eig- enda er engu minna. -SK Arngeir lagði alla Fyrsta landsglíman var haldin að Laugum í Reykjadal á dögunum og þar með hófst keppnistímabil glímumanna. Úrslit urðu þessi: Karlar 1. Amgeir Friöriksson, HSÞ .... 4 v 2. Ólafur H. Kristjánsson, HSÞ . . 3 v 2. Helgi Kjartansson, HSK......2 v 4.-5. Sigmundur Þorsteinsson, UMF Víkverja.....................1/2 v 4.-5. Pétur Eyþórsson, UMF Víkverja ............................1/2 v Konur 1. Inga Gerða Pétursdóttir, HSÞ, 3 v 2. Soöla Bjömsdóttir, HSÞ.....2 v 3. Brynja Hjörleifsdóttir, HSÞ, .. 1 v 4. Hildigunnur Káradóttir, HSÞ, . 0 v Arngeir Friðriksson sýndi gamalkunna takta og steinlagði menn þegar þeir duttu inn í brögðin og sigraði alla ömgglega. Hafði hann nokkra yfirburði í glímunni. Ólafur Helgi er vaxandi ungur maður sem á framtíðina fyrir sér. Helgi Kjartansson náöi sér ekki á strik en lagði alla aðra en Amgeir sem er lífsreyndari á svellinu. -SK TBA er í efsta sætinu Fyrsti hluti deildarkeppni Badmintonsambands íslands fór fram um síðustu helgi. Á Akureyri léku TBA, Víkingur og TBS. Úrslit leikja voru eftirfarandi: TBA-Vikingur................7-0 TBA-TBS .....................7-0 TBS-Vikingur ...............0-7, Á Flúðum léku ÍA, UMFH og BH. Úrslit leikja vom eftirfarandi: BH-UMFH ...................3-4, ÍA-BH...................2-5 UMFH-ÍA.................6-1 Lið Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur sat þessi: yfir. Staðan i TBA 2 2 14-0 4 UMFH 2 2 104 4 BH 2 1 8-6 2 Víkingur 2 1 7-7 2 ÍA 2 0 3-11 0 TBS 2 0 0-14 0 Patrik Berger kom mikið við sögu í leiknum gegn Valencia í gærkvöld. Berger skoraði síðara mark Liverpool sem reyndist þegar upp var staðið mjög mikilvægt. Það kom liðinu áfram í 3. umferð keppninnar. Hér sækir Berger, sá rauðklæddi, að Júgóslavanum Miroslav Djukic í liði Valencia. Símamynd-Reuter UEFA-keppnin í knattspyrnu- 2. umferð: Liverpool áfram - önnur ensk lið úr leik og Fiorentina í slæmum málum Liverpool hélt uppi heiðri ensku lið- anna í 2. umferð UEFA-keppninnar í knattspymu í gærkvöld en þá fóm fram síðari leikimir. Aston Villa og Leeds vom bæði slegin út og sömu- leiðis skosku meistaramir í Celtic. Viðureign Valencia og Liverpool var æsispennandi í meira lagi. Heima- menn komust yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks og útlitið var ekki bjart hjá Liverpool en fyrri leiknum á Anfield Road lauk með markalausu jafntefli. Það var síðan á fimm mínútna kafla sem enska liðið skoraði tvívegis, fyrst McManaman og síðan Berger fimm mínútum fyrir leikslok. Spánverjamir jöfhuðu undir lokin og þar við sat. Liverpool komst því áfram á fleiri mörkum skoraðum á útivelli. Þrír leikmenn fengu að sjá rauða spjaldið á 90. mínútu leiksins. Paul Ince og Steve Mcmanaman og Amedo hjá Valencia. Aston Villa olli áhangendum sínum vonbrigðum gegn Celta frá Vigo og þeir vom famir að yfirgefa Villa Park löngu áður en leiknum lauk. Þeir sáu í hvað stefndi og fóru að streyma heim á leið. Aston Villa var með góða stöðu frá fyrri leiknum á Spáni, vann þar, 1-2, en í gærkvöld gekk ekkert upp hjá liðinu. Úrslitin voru félaginu mikiö áfall sem ætlaði sér að fara langt í keppninni. Celta lék á köfhim góða knattspyrnu. Leeds náði ekki að færa sér liðsmuninn í nyt Leeds náði ekki að færa sér liðs- muninn í nyt gegn Roma á Elland Road. ítalska liðið missti leikmann út af undir lok fyrri hálfleiks og lék eftir það einum fleiri. Roma varðist vel og komst áfram á meðan Leeds sat eftir með sárt ennið. Skosku meistaramir í Celtic fóm enga frægðarfór til Sviss þar sem þeir vom teknir í bakaríiö af FC Zúrich. Knattspymustjóri Celtic, Josef Venglos, er valtur í sessi eftir þessi úr- slit. Fiorentina er í slæmum málum eft- ir að flugeldur úr hópi áhangenda liðs- ins lenti á aðstoðardómaranum. Fior- entina var yfir, 2-1, þegar leikurinn var flautaður af á 45. mínútu. Knatt- spymusamband Evrópu tekur málið tU umfjöllunar strax í dag og getur far- ið svo að Fiorentina verði dæmt úr keppni. -JKS „Mistök að selja Blake" - segir Arnar Gunnlaugsson hjá Bolton „Þrátt fyrir slæmt gengi að undan- fömu hefur liðið verið að leika ágætlega. Heppnin hefur bara ein- faldlega ekki veriö með okkur. Því er ekki að neita að þaö er komin nokkur pressa á mannskapinn. Við erum staðráðnir í því að koma liðinu inn á réttar brautir," sagði Amar Gunnlaugsson, leikmað- ur Bolton, í samtali viö DV í gærkvöld. Bolton átti góðu gengi að fagna framan af og var I hópi efstu liða en á síð- ustu tveimur vikum hef- ur hallað undan fæti. Bolton leik- ur á heimavelli gegn PortVale í kvöld og sagði Arnar að sá leikur yrði tafarlaust að vinnast. „Það voru að mínu mati mikil mistök að selja Nathan Blake til Black- bum. Brotthvarf tekur mikið frá mínum leik og ég sakna hans mikið en við unnum mjög vel sam- an. Hann var liðinu mik- ill styrkur og gat á eigin spýtur hreinlega unnið leik fyrir okkur,“ sagði Amar. -JKS Árni Gautur í byrjunarliðinu - Rosenborg leikur gegn Istanbúl í kvöld DV, Noregur: Ámi Gautur Arason stendur í marki norska liðsins Rosenborg sem mætir tyrkneska liðinu Galatasaray í meistaradeild Evrópu í kvöld. Þetta kom fram í norska sjónvarpinu í gærkvöld. Ámi Gaut- ur varði reyndar mark Rosenborg gegn tyrkneska liðinu fyrir hálfum mánuði vegna meiðsla Jöm Jamt- fall sem hefur verið aðalmarkvörð- ur liðsins. Um síðustu helgi í úrslitaleik bik- arkeppninnar gegn Stabæk kom Jamtfall á ný inn í liðið en gerði þar afdrifarík mistök. Þau urðu til þess að þjálfari Rosenborgar ákvað í gær að tefla fram Áma Gauta í markinu í kvöld. í norskum fjölmiðlum hafa und- anfama daga verið miklar vanga- veltur um markverðina hjá Rosen- borg. í sumum þeirra hefur komið fram að Ámi Gautur verði jafhvel aðalmarkvöröur liðsins á næsta tímabili. Rosenborg stendur vel að vígi í B- riöli meistaradeildar Evrópu, er þar í efsta sæti með fimm stig og er leik- urinn i Istanbúl því mjög mikilvæg- ur norska liðinu. -JKS/GK Andri Sigþórsson fékk tilboð frá Le Havre: Skynsamlegast að fá ökklann í lag - býst við að gefa franska liðinu afsvar „Tilboð franska liðsins er gott en eins og málin standa tel ég líklegast að ég verði áfram hér á landi og leiki með KR næsta sumar. Ég hef áætl- un í huga þar sem ég ætla að styrkja ökklann vel í vetur og mæta sterk- ur til leiks næsta sumar. Eftir það er ég reiðbúinn að skoða málin,“ sagði KR-ingurinn Andri Sigþórsson í samtali við DV í gærkvöldi. Hann varð pabbi sl. fostudag, eignaðist dreng. Le Havre vill fá Andra út strax og að hann leiki með liðinu fram á vor en Andri telur langlíklegast að hann hafni tilboðinu. „Ökklinn er bara ekki tilbúinn i mikil átök og því tel ég skynsamleg- ast að fá hann í lag í eitt skipti fyrir öll.“ sagði Andri við DV. Sambandsráðsfundur Ungmennafélags Islands, haldinn í Vík í Mýrdal: Ungmennahreyfingin stendur styrkum fótum Sambandsráðsfundur UMFÍ var hald- inn í Vik í Mýrdal fyrir nokkru. Á sam- bandsráðsfundum eiga sæti fulltrúar frá öllum héraðssamböndum innan UMFÍ og fulltrúar þeirra félaga sem eiga beina að- ild að UMFÍ. ÐV hitti þá Þóri Jónsson, formann UMFÍ, og Bjöm B. Jónsson varaformann, sem einnig er formaður NSU, Norrænna samtaka um ungmennastarf, og ræddi við þá um ungmennahreyfinguna í dag. „Ungmennahreyfmgin stendur nokk- uð vel, víða er mjög gott starf í gangi en það má segja að hreyfingin endurspegli það umhverfi sem hún starfar í. Það er fækkun á landsbyggðinni og það hefur al- veg sömu áhrif á félagsstarf. Færri taka þátt í starfmu en víðast hvar er það nokk- uð öflugt og kannski mun öflugra en kem- ur fram,“ sagði Þórir Jónsson, forseti UMFÍ. Forvarnir stór þáttur „Starfsemi ungmennafélaga hefur í gegnum tíðina verið á mörgum sviðum, forvarnir hafa ávallt skipað stóran sess í starfi ungmennafélaga og ekki er lögð minni áhersla á þær nú en áður. Við höf- um alltaf verið að vinna að þessu forvarn- arstarfi. Þó nú sé búið að afnema að menn þurfi að heita bindindi til að ganga í ung- mennafélögin reynum við að berjast gegn vímuefnunum. Við erum meö öflugt fræðslustarf. Víða um hinar dreifðu byggðir hafa ungmennafélögin staðið fyr- ir blómlegu menningarstarfi, leiklist og fleiru. Og síðast en ekki síst eru íþróttir mikill hluti af þessu starfi og landsmótin hafa verið fjöregg þessarar hreyfmgar frá upphafi," sagði Þórir. Mikill breytileiki „Ég held að það sé líka skýring á því af hveiju ungmennafélagshreyfingin hefur lifað alla öldina hvað þessi breytileiki í starfinu er mikill, það er sama hvort menn hafa áhuga á umhverfismálum, al- mennum menningarmálum eða íþrótta- starfsemi, við spönnum allt þetta ferli og raunverulega er okkar barátta í dag for- varnir í gegnum allt okkar starf þannig að unga fólkið skili sér út í þjóðfélagiö heilt í gegnum æskuna. Ég held að for- vamarstarf hjá UMFÍ hafi allt eins verið í gegnum menningar- og umhverfismálin eins og beint í íþróttum. Það er alveg ör- uggt að fyrir unga manneskju sem kemur í leikstarfsemi er það alveg jafnmikið for- varnarstarf og hjá þeim sem fara á körfu- boltamót eða sundmót og ég held kannski að viö höfum vanmetið það að þetta breiða starf sem við erum með nær til svo breiðs hóps sem við höfum hjálpað,“ sagði Björn B. Jónsson, varaformaður UMFÍ. „Stærstu málin hverju sinni eru lands- mótin. Næsta landsmót verður haldið á Egilsstöðum, árið 2000 verður unglinga- landsmót hjá Hrafna-Flóka á Vestfjörðum og nú hefúr bæst við skrifstofa NSU. Þar er Bjöm B. Jónsson formaður og með því bætist við starf á skrifstofúnni hjá okk- ur,“ sagði Þórir. „Ég tók við formennsku í NSU í aprfl og skrifstofan fluttist þar með frá Ósló til Reykjavíkur. NSU eru samtök 16 landssamtaka á Norðurlöndum sem vinna með ungmennum og UMFÍ er sá íslenski aðfli sem er þátttakandi í NSU. Við erum með ýmsar uppákomur á hveiju ári sem skiptast á mflli landanna og innan okkar vébanda er eitthvað á þriðju mflljón ungmenna. Það eru margir sem koma að þessu, nú erum við að und- irbúa ýmsar nýimgar, m.a. menningar- mót hér á íslandi árið 2000 sem samtökin hafa falið UMFÍ að sjá um framkvæmd á,“ sagði Bjöm. Hann sagði aö þetta norræna samstarf kæmi íslenskum ungmennum ekki síst til góða vegna fjarlægðar frá Norðurlöndunum. -NH Björn B. Jónsson og Þórir Jónsson, til hægri. DV-mynd NH Handknattleikur: ÍBV áfram í bikarnum ÍBV vann stórsigur á Breiðabliki, 19-31, í 32-liöa úrslitum bikar- keppni karla í handknattleik í Smáranum í gærkvöld. í hálfleik var staðan 8-16 fyrir gestina. Eins og úrslitin gefa til kynna höfðu Eyjamenn frumkvæðið frá byrjun og átti Breiðablik aldrei möguleika í leiknum. Bragi Jónsson og Bjami Hólm- þórsson skomðu fjögur mörk hvor fyrir Breiðablik. Hjá ÍBV var Val- garð Thoroddsen mcirkahæstur með sjö mörk og Giedreus Cesnauskas gerði sex mörk. -BB Blcsnd i poka Fjórðungur finnsku þjóðarinnar fylgdist með sínum -x manni, Mika Hakkinen, í úrslitakeppni Formula 1 í Japan um síðustu helgi. Lengi vel vom 950 þúsund Finnar við sjónvarpstækin en síðasta hálftíma keppninnar fóm áhorfendur upp í 1,3 milljónir. í Finnlandi búa 5,15 milljónir manna. Roger Lemerre, landsliðs- þjátfara Frakka í knattspymu, sagði í gær að David Ginola ætti möguleika eins og hver annar á að komast í landslið heims- meistaranna. „Ginola er frábær leikmaður og hefur ótrúlegt ímyndunarafl. Hann skapar mikið af fæmm og er alveg inni í myndinni hjá mér,“ sagði Lamerre. Ginola var ekki í náðinni hjá fyrirrennara hans. Vitor Oliveira, þjátfari Braga í portúgölsku knattspymunni, var rekinn í gær. Brottreksturinn kom á óvart svo skömmu áður en Braga mætir Lokomotiv frá Moskvu í Evrópukeppni bikarhafa en liðin mætast á morgun. Lið Braga verður þjátfaralaust í leiknum. nr Kappaksturshetjur era nú sem óðast að prófa nýja bíla og hjólbarða í Japan. Nokkrar breytingar verða á hjólbörðum keppninnar og verða þeir með meira mynstri en áður að framan. Þetta er gert til að draga úr hraða bílanna. Michael Schumacher mun hafa Bridgestone-dekk undir Ferrari- bíl sínum á næsta keppnis- timabili. Hann prófaði „græj- umar“ í gær og var yfir sig ánægður. -SK m UEFABIKARINN 2. umferð - síðari umferð: (samanlögð úrslit aftast) Parma-Wisla Krakow . 2-1 (3-2) 1- 0 Fiore (20.), 2-0 Zajác (46. sjálfsm.), 2- 1 Zajac. Slavia Prag-Bologna ... 0-2 (1-4) 0-1 Signori (80.), 0-2 Cappioli (85.) Lyon-Rauöa Stjarnan . . 3-2 (5-3) 1-0 Caveglia (17.), 1-1 Bunjevcevic (37.), 2-1 Caveglia (42.), 3-1 Cocard (40.), 3-2 Ogndenovic (90.) Mónakó-GAK Graz .... 4-0 (7-3) 1-0 Gava (9.), 2-0 Spehar (16.), 3-0 Diawara (55.), 4-0 Gava (66.) Sociedad-Dinamo .... 3-0 (6-2) 1-0 Kovacevic (55.), 2-0 Paula (69.), 3- 0 Kovacevic (75.) Club Brúgge-Stuttgart . 3-2 (4-3) 1-0 Cock (60.), 1-1 Verlaat (76.), 2-1 Claessens (105.), 2-2 Bobic (110.), 3-2 flic (115.) Fiorentina-Grasshoppers ... 2-1 1- 0 Olivera (12.), 1-1 Gren (31.), 2-1 Olivera (39.) Bordeaux-Vitesse.......2-1 (3-1) 0-1 Jochemsen (8.), 1-1 Micoud (9.), 2- 1 Wiltord (65.) Atletico -CSKA Moskva 1-0 (5-2) 1-0 Juninho (45. vítasp.) Real Betis-WUlem II . . . 3-0 (4-1) 1-0 George (30.), 2-0 Zarandona (56.), 3- 0 Sanchez (89.) Valencia-Liverpool .... 2-2 (2-2) 1-0 Lopez (45.), 1-1 McManaman (80.), 1-2 Berger (85.), 2-2 Lopez (90.) Leeds-Roma.............0-0 (0-1) Marseille-Bremen........3-2 (4-3) 1-0 Maurice (36.), 1-1 Eilts (48.), 2-1 Issa (52.), 3-1 Dugarry (77.), 3-2 Herzog (82.) Aston Villa-Celta Vigo . 1-3 (2-3) 0-1 Sanchez (26.), 1-1 Collymore (30. vítasp.), 1-2 Mostovoi (34.), 1-3 Penev (48.) FC Ziirich-Celtic......4-2 (5-3) 1-0 Signore (51.), 2-0 Chassot (55.), 2-1 O’DonneU (58.), 3-1 Bartlett (61.), 3-2 Larsson (72.), 4-2 Cesar (75.) Rangers-Leverkusen á fimmtudag t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.