Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Nýstárlegt smygl:
Mótorhjól í fimm
ferðatöskum
- áhöld um hvort um var að ræða varahlutasmygl eða smygl á mótorhjóli
Tilraun til aö smygla mótorhjóli í
ferðatöskum til landsins var gerð ný-
lega á Keflavíkurflugvelli. Reynt var
að hafa hálfa milljón króna af ríkis-
sjóði. Árvekni tollvarða kom upp um
smyglarana, en talið er líklegt aö slíkt
smygl kunni að hafa átt sér stað áður
í nokkrum mæli. Tollgæslan vill að
dómstólar skeri úr í þessu máli, sem
virðist einfalt við fyrstu sýn en er þó
furðuflókið. Var verið að smygla inn
mótorhjóli eða bara nokkrum vara-
hlutum? Hvers virði var gaffallinn,
gjarðir og aðaldempari, sem framvís-
að var réttilega við rauða hliðið? Eðli
vörunnar sem reynt var að smygla
hefur breyst þegar splunkunýju hjóli
sem keypt er erlendis er slátrað í
varahluti. Á að kæra smyglarana fyr-
ir smygltilraun á varahlutum - eöa
mótorhjóli? Tollurinn lagði hald á
hluti sem framvísað var „löglega" í
rauða hliðinu og telur að sá gjöming-
ur hafi verið í blekkingarskyni gerð-
ur.
Tveir menn komu saman til lands-
ins í Leifsstöð. Þeir tóku sitt haf-
urtask af færibandinu, margar töskur
og vaming. Annar fór í rauða hliðið
eins og löghlýðinn borgari með gaffal,
gjörö og framstell af Suzuki-mótor-
hjóli og óskaði eftir að það færi á
aukafarmskrá til Reykjavíkur og
borgaö yrði af því þar. Ekki kvaðst
hann hafa annað tollskylt og var því
vísað á græna hliðið.
Vísir.is ræður
framkvæmda-
stjóra
Netmiðillinn Vísir.is, sem er aö
meirihluta í eigu Frjálsrar fiölmiðl-
unar, hefur ráðið Þorvald Jacobsen
sem framkvæmdastjóra. Vísir, sem
er að finna á netslóðinni www.vis-
ir.is, hefur á aðeins örfáum mánuð-
um náð yfirburðastöðu á Intemet-
markaðinum og er stærsti íslenski
netmiðillinn með 12-17.000 heim-
sóknir daglega.
Þorvaldur, sem er 34 ára, starfaði
áður sem sölu- og markaðsstjóri hjá
Teymi og þar á undan starfaði hann
hjá Opnum kerfum. Þorvaldur lauk
prófi í rafmagnsverkfræði frá HÍ Í87,
tölvunarfræði frá HÍ Í88 og masters-
námi í raönagnsverkfræði frá Uni-
versity of Texas í Austin árið 1990.
Á Vísi.is em saman komnir yfir
20 vefir úr ólíkum áttum og mynda
þeir miðpunkt upplýsinga, frétta, af-
þreyingar og viðskipta. Vísir.is er
m.a. í samstarfi við ritstjómir DV,
Dags og Viðskiptablaðsins ásamt því
að reka eigin fréttastofu. Á næstu
mánuðum má búast við hraðri þró-
un á Intemetinu, sérstaklega á sviði
viðskipta (e-commerce), og hyggst
Vísir.is vera í fararbroddi þeirrar
þróunar aö þvi er kemur fram í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Árvekni tollvarfia kom upp um smygl þegar reynt var að smygla hellu mótorhjóli f fimm
ferðatÖSkum. DV-mynd Arnhelöur
Félagi hans var þá ekki í sjónmáli
og hélt sá úr rauða hliðinu að hann
væri kominn í gegn og út með góssið.
Svo var ekki. Sævin Bjamason yfirtoll-
vörður hafði grunsemdir og bað mann-
inn að koma inn í leitarklefa. Hann
spurði hvort einhver væri með honum
i för. Hann viðurkenndi það en kvaðst
halda að félaginn væri farinn út. Sæv-
in taldi ólíklegt að svo væri.
„Ég sá að það var maður að fara
á rautt, tók manninn aðeins út fyr-
ir klefann og benti á hann og
spurði hvort þetta væri félagi
hans. Hann viðurkenndi það,“
sagði Sævin, þegar DV spurði
hann um þessa einstæðu smygltil-
rami í gær.
Sævin segir að leitað hafi verið í
ferðatöskum mannanna í græna hlið-
inu, fimm töskum minn-
ir hann. Þar var allt fullt
af mótorhjólahlutum,
meðal annars mótor og
aragrúi af smádóti inn-
an mn fot og annað haf-
urtask, sem ferðamenn
hafa með sér.
Mótorhjól eins og
þessi eru talsvert þung,
en mesti þunginn er í
gafflinum með. Hjólið
kostaði rúma 5.400 doll-
ara í Bandaríkjunum.
Kolbeinn Pálsson hjá
Suzuki-umboðinu fyrir
mótorhjól sagði í gær
að í mótorhjólaheimin-
um væri talað um all-
mörg lukkuð smygl á
motocross-hjólum.
Götuhjólin væru erfiö-
ari viðfangs því þau
þarf að skrá og þá þarf
að framvísa innflutn-
ingspappírum. Kol-
beinn sagði aö fyrir umboðsmenn
þýddi ekki að ergja sig yfir ástand-
inu, smygli á eflaust nokknnn tug-
um mótorhjóla.
„Um leið og gjöld fjármálaráðu-
neytisins lækka, þá hætta menn að
taka svona sénsa,“ sagði Kolbeinn.
Gjöld af innflutningi mótorhjóla
rúmlega tvöfalda verðið á hjólun-
um. -JBP
Þing smábátaeigenda:
Aflahlutfall smábáta
verður ekki aukið
- segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra sagði í ávarpi sínu á þingi
Landssambands smábátaeigenda að
ekki kæmi til greina að fjölga sóknar-
dögum ef það hefði í fór með sér auk-
inn afla bátanna. Það myndi brjóta
gegn því grundvallaratriði að veiði-
stjórnun snerist um það fyrst og
fremst aö halda afla innan ákveðinna
marka. Útilokaö sé að samþykkja
ákveðinn fjölda sóknareininga án til-
lits til þess hve mikið veiðist. Fram
kom hjá ráðherra aö afli á sóknardag
hefði á þremur undanfómum árum
vaxið hjá handfærabátum úr 560 kíló-
mn á dag í nærri 1.300 kg á dag.
Sjávarútvegsráðherra lýsti aðdrag-
anda núgildandi veiðireglna sem
gilda fyrir smábáta og sagði að síðan
sú niðurstaða fékkst um miðjan ára-
tuginn að ætla krókabátunum fasta
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra flytur ávarp sitt á þinginu.
DV-mynd Teitur
veiðiheimild út frá veiðireynslu
þeirra upp á 20.170 þorskígildislestir
hefði afli þeirra aukist um 60% eða í
34 þúsund lestir af þorski. Þetta hefði
gerst þrátt fyrir að krókabátakerfið
byggi við fast hlutfall af heildarafla
þorsks til ffambúöar sem var eitt
Þing Landssambands smábátaeigenda:
Kvótakerfið kúgunartæki
- segir formaðurinn og varar við útflutningi á því
Arthur Bogason, formaður Lands-
sambands smábátaeigenda, skoraði
í setningarræðu sinni á þingi sam-
bandsins sem hófst í gær á Þorstein
Pálsson sjávarútvegsráðherra að
enda stjómmálaferil sinn meö því
að rétta hlut þeirra trillukarla sem
lengst hafa beðið leiðréttingar og
þeirra sem nú er nánast bannað að
róa til fiskjar. Slíkt yrði honum til
mikils sóma. Hann gagnrýndi
kvótakerfið og sagði þaö kerfi
einkakvæðingar til að afmarka
ákveðnum hópi í þjóðfélaginu rétt-
indi til nýtingar á auðlindum sem
áður vom almenningur.
Arthúr varaði við markaðssetn-
ingu þessa kerfis erlendis. Hann
sagði að fiskveiðistjómunarkerfi í
löndum þar sem stjómvöld beita
þegna sína miskunnarlausu harð-
ræði yrði þeim þetta enn eitt kúgun-
arvopnið í hendi. Slík stjómvöld
tækju kvótakerfinu fegins hendi til
að geta enn frekar fiármagnað spill-
inguna heima fyrir en fórnarlömb-
in, íbúar strandsamfélaganna, yrðu
vart jafnþakklát íslendingum. -SÁ
þeirra skilyrða sem sett vom fyrir
auknum hámarksafla á gmndvefli
veiðireynslu. Varanlegar breytingar
verði því ekki gerðar á mögulegum
heildarafla þeirra nema þá þannig að
hlutfallinu sé um leið breytt og aðrir
dragi þá úr sínum veiðum á móti.
“Þrátt fyrir þessa niðurstöðu varð
fljótlega orðið ljóst að afli ykist svo
fljótt og mikið að sóknareiningum
yrði að fækka verulega," sagði Þor-
steinn. Hann sagði að í viðræðum um
málefni smábáta hefði ráðuneytið
komið til móts við nánast allar óskir
smábátaeigenda aðrar en þær um lág-
marksfiölda sóknardaga án tillits tfl
aflabragða.
Þorsteinn sagði að enn stæðu yfir
viðræður milli sjávarútvegsráðuneyt-
isins og landssambandsins um að auð-
velda dagabátum að laga sig að hlut-
deild krókabáta í heildarþorskaflan-
um. Hann kvaðst vonast enn til þess að
slíka fleti mætti finna þótt segja verði
eins og er að enn hafi mikil vinna að
því marki ekki náð niðurstöðu.
Hann gagnrýndi loks harðlega um-
ræðu og kröfur um að undanskilja
smábáta aflahámarki og setja einung-
is á þá sóknarhámark. Hann sagði
það kalla á óskynsamlegar fiárfesting-
ar sem ekkert stjómvald gæti dregið
að landi með því að breyta leikregl-
um. Þá stangaðist slíkt á við jafnræð-
isreglur og jafnvel stjómarskrá. Þessi
umræða hefði verið í skötulíki og
engu likara en ákveðin öfl hefðu vflj-
að halda henni á því plani til þess
eins að gera út á þær tilfmningaöldur
sem magnaðar hefðu verið upp með
margvíslegum rangfærslum og ein-
hliða áróðri. -SÁ
Stuttar fréttir i>v
Hænra þingfararkaup
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, mælti i gær fyr-
ir tæplega 70 prósenta hækkun á
þingfararkaupi alþingismanna
sem ekki ynnu önnur störf.
Ekki stofnaðilar
íslendingar verða ekki stofhaðil-
ar Kyoto-samkomulagsins sem
Bandaríkjamenn undirrituðu í
gær. Sighvatur Björgvinsson segir
það vitnisburð um almenna ein-
angrunarstefhu ríkisstjómarinnar
í utanríkismálum. RÚV sagði frá.
Guðjón vill hvalveiðar
Guðjón Guð-
mundsson þing-
maður mælti í
gær á þingi fyr-
ir árlegri þings-
ályktunartil-
lögu sinni um
að íslendingar
hefii hvalveiðar
á ný á næsta ári. Hann sagði að
þingið ætti ekki að „lúffa“ fyrir
sjávarútvegsráðherra í málinu held-
ur sýna kjark. RÚV sagði frá.
Útlánatap banka
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maöur Þjóðvaka, mælti í gær fyrir
þingsályktunartillögu á Alþingi
um að gerð verði úttekt á út-
lánatapi Landsbankans árin
1993-1997. Viðskiptaráöherra telur
slíka könnun spilla tiltrú á bank-
anum.
Græningjar í gang
Vinstrihreyfmgin Grænt fram-
boð ætlar að halda sína fyrstu
landsráðstefnu dagana 4. og 5. des-
ember á Hótel Sögu. Bylgjan sagði
frá.
Dæmdir til að borga
Héraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur dæmt tryggingafelagið Sjóvá-Al-
mennar til að greiða sextán ára
stúlku 2,2 milljónir í skaöabætur
vegna áverka sem hún hlaut í júlí
1991. Bylgjan sagði frá.
Annar hver ósofinn
Annar hver
skólanemí fer
of seint að sofa
og er vansvefta
í skólanum og
hefur misst af
hinum mikil-
væga draum-
svefiii eða
REM-svefiii, segir Þórólfur Þór-
lindsson prófessor við Dag.
Naumt Akureyrarfylgi
Vinstrihreyfmgin Grænt fram-
boð fengi 3% fylgi á Akureyri og
flokkur Sverris Hermannssonar
4% samkvæmt könnun sem gerð
var í bænum. Sjálfstæöisflokkur
fengi 41% og Framsókn 28%. Dag-
ur sagði frá.
Útlánaaukning
Seðlabankinn varar við stöðugri
útlánaaukningu og miklum við-
skiptahalla. Reiknað er með að
hann verði 40 mifljarðar á árinu.
Prófkjör á morgun
Prófkjör sjálfstæðismanna í
Reykjaneskjördæmi fer fram á
morgun frá kl. 10-21. Kosið verður
á 11 stöðum í kjördæminu og raö-
að á framboðslista eftir úrslitum
kjörsins. Framsóknarmenn halda
aukakjördæmisþing á morgun í
Kaplakrika þar sem efstu menn
verða kosnir á lista flokksins.
Langar til íslands
Helmut
Kohl, fyrrv.
kanslari Þýska-
lands, kemur
trúlega til ís-
lands næsta
vor, að sögn
Davíðs Odds-
sonar forsætis-
ráðherra sem heimsótti hann í
gær. Morgunblaðið sagði frá.
Fingraför skoðuð
Tölvunefnd ætlar að athuga sér-
staklega búnað hjá líkamsræktar-
stöð sem opnar dyr fyrir viðskipta-
vinum með því að lesa fingrafór
þeirra. Kannað verður hvort bún-
aðurinn sé í blóra við lög um per-
sónuvemd. Morgunblaðið sagði
frá. -SÁ