Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 Fréttir Einkavæðing kynbóta 1 laxarækt: Eins og að einkavæða hrossakynbætur - segir forstjóri Veiðimálastofnunar „Mér virðist það afskaplega vandasöm aðgerð að einkavæða kynbætur í búgrein eins og laxeldiö er og í fljótu bragði veröur ekki séð hverjir gætu átt þær. Ég býst við að það yrði uppi fótur og fit ef ætti að einkavæða hrossa- eða nautgripa- kynbætur," segir Siguröur Guðjóns- son, forstjóri Veiðimálastofnunar, í samtali við DV. Sigurður hefur gagnrýnt þær hugmyndir sem felast í einkavæð- ingu ríkisfyrirtækisins Stofnfisks, arftaka Laxeldisstöðvar ríkisins í Kollafirði. Eins og DV hefur greint frá áður gagnrýndi Ríkisendurskoð- un harðlega ýmsa vankanta í bók- haldi fyrirtækisins, m.a. misvísandi birgðabókhald og vantaldar tekjur af útflutningi til Chile. Þá gerði landbúnaðarráðuneytið samning við fyrirtækið um kynbætur á laxi til ársins 2007 sem gefur fyrirtæk- inu nálægt tveimur milljónum króna á mánuði út samningstím- ann. Þessi samningur átti að fylgja með í einkavæðingunni og er sá þáttur hennar sem laxeldismenn hafa gagnrýnt harðast og telja vera hreinan ríkisstyrk. Þessi styrkur gefi fyrirtækinu upp undir fimm þúsund króna tekjur á mánuði af hverjum þeirra 400 kynbótalaxa sem eiga að vera á fóðrum hjá Stofn- fiski samkvæmt samningnum. Til samanburðar fái laxabóndi um 1.400 kr. fyrir hvern sláturlax - en aðeins einu sinni. Það er þessi kynbótasamningur, eða einokun kynbóta sem forstjóri Veiðimálastofnunar gagnrýnir: „Ég sé tvo kosti, annaðhvort að ríkið haldi utan um kynbæturnar, eða að láta eldismenn sjálfa halda utan um þær á nokkurs konar breiðum grundvelli þannig að sem flestir og þá líka nýir aðilar geti komi að rnálurn." Bændaskólinn á Hólum hóf kynbætur á bleikju fyr- ir nokkrum árum og allar líkur eru á að því starfi verði haldið áfram. Sigurður Guðjónsson segir að um sömu starfsemi sé að ræða hvort sem dýrið heitir bleikja eða lax og kannski hefði mátt huga að því að ná fram hagræðingu með því að sameina bæði aðstöðu og fagþekkingu á Hólum. Eftir að DV hóf að skrifa um fyr- irhugaða einkavæðingu Stofnfisks tók einkavæðingamefnd málið upp á ný. Nefndin hefur nú gert ákveðn- ar breytingartillögur við fyrri einkavæðingartillögur og hefur landbúnaðarráðuneytið þær nú til umfjöllunar. Hreinn Loftsson, for- maður nefndarinnar, vildi i gær ekki greina frá því hvað fælist í nýju tillögunum, en samkvæmt heimildum blaðsins lúta þær að þeim athugasemdum sem Ríkisend- urskoðun gerði á sínum tíma en ráðuneytið hefur ekki viljað opin- bera. Það þýði að endurmeta þurfi verðmæti fyrirtækisins upp á nýtt. -SÁ Hildarleikur á Óshlíðarvegi DV| ísafirði: „Ég varð var við mikinn skugga við hliðina á bílnum. Þetta gerðist allt mjög hratt og ég gaf í undan skriðunni. Bíllinn skalf allur og nötraði undan grjótinu sem hrundi á hann,“ sagði Jón Bjami Geirsson, lögreglumaður á ísafirði, sem lenti í miklum lífsháska þegar grjótskriða féll á bíl hans á Ós- hlíðarvegi snemma í gærmorgun eins og sagt var frá í DV í gær. Þar voru að- eins sentímetrar milli lífs og dauða. Jón Bjami slapp þó ómeiddur og var mjög heppinn. Bíllinn er mikið skemmdur, bæði á þeirri hlið sem að hlíðinni sneri, sem og á toppi og vinstra framhomi sem vissi frá hlíðinni. Skriðan kom úr háum bakka fyrir ofan veginn og fylltist djúp vatns- rás, sem þar er, af aur og grjóti. Grjót í aftursæti bílsins. . HKr. Foreldrar og lögregla ráöast að unglingavandamáli: Landadrykkja í sjoppunni - skemmdir á verömætum, áreitni og ólæti í Bústaðahverfi Talsvert hefur kveðið að tiltölu- lega litlum hópi unglinga við versl- unarmiðstöðina Grímsbæ á kvöldin í haust. Þar hefur borið á skemmdar- verkum, neyslu áfengis, áreitni við fólk og ólátum. Ástæða þótti til að halda sérstakan fund um málið í fyrrakvöld. Þar mættu fulltrúar hverfislögreglu og Réttarholtsskóla, stjóm Foreldra- og kennarafélags skólans, foreldrar og forráðamenn 10. bekkinga, forstöðumaður æsku- lýðsmiðstöðvarinnar Bústaðir, auk kaupmannsins í Toppmyndum, sem hvað mest hefur orðiö fyrir baröinu á krakkaskaranum. Sjoppur verða félagsmiö- stöðvar Bjami Sverrisson í Toppmyndum rekur vídeóleigur á fimm stöðum i borginni, þar af þrjár í Breiðholti. Ástandið er verst í Grímsbæ. „Þama eru örfá rotin epli og það verður að vara foreldra við aö hleypa börnum sínum í svoleiðis hóp. Það er fjarri því að það séu margir slæmir krakk- ar þarna. Þeir safnast fyrir hjá okk- ur, þetta gerðist þegar félagsmið- stöðvarnar fóru að loka fyrr á kvöld- in um helgar. Þá tóku sjoppurnar við. Þær eru orðnar félagsmiðstöðv- ar milli hálftíu og hálftólf á kvöldin. Loks tekur miðbærinn við þeim sem mega og geta verið úti eftir þann tíma,“ sagði Bjarni. Bjami segir að mikið beri á landa- drykkju og bjór. Komin er hverfis- lögregla á svæðið. Bjarni segir að eft- ir að lögreglan fór að koma út úr bíl- unum og lét sjá sig innan um fólkið hafi ástandið stórbatnað. Enginn veit hvaðan landinn kemur. Bjarni segir að talað sé um allt að 70% aukningu á landadrykkju hjá ung- lingum á einu ári, könnun á ástand- inu sýni það. Landasali var hand- samaður við Grimsbæ um síöustu helgi sögðu okkur íbúar. Þar var á ferð komungur piltur, nánast jafn- aldri hinna ungu kaupenda. Skemmdir á bílum og rólu- velli Meira en helmingur foreldra og forráðamanna 10. bekkinga í Réttar- holtsskóla mætti til fundarins sem boðað var til vegna ástandsins í Fossvogs- og Bústaðahverfi. Skólayf- irvöld Réttarholtsskóla hafa fengið ábendingar frá íbúum, nemendum, lögreglu og fleirum þar sem vakin er athygli á vímuefnaneyslu, áreiti og eyðileggingu eigna í hverfinu. Ekki er vitaö hverjir eiga sökina, það þurfa ekki að vera 10. bekkingar og ekki heldur unglingar úr hverfmu, enda þótt foreldrar þeirra hafi verið boðaðir til fundarins. „Við verðum ekkert vör við fikni- efnaneyslu eða annað slíkt hér í skólanum, svona hlutir gerast yfir- leitt í tíma foreldranna," sagði Ása Kristín, aðstoðarskólastjóri Réttar- holtsskóla, í gær. Hún sagði að fund- urinn hefði verið mjög gagnlegur og nefnd kosin til að huga að málum í framhaldinu. Guðríður Stefánsdóttir, formaður Foreldrafélags Réttarholtsskóla, sagði í gær að vart hefði orðið við vandamál sem rétt hefði þótt að ræða á fundi með foreldrum nem- enda 10. bekkjar, enda þótt ljóst væri að skemmdarvargar og óeirðabelgir væru ekki endilega allir úr þeim ár- gangi. Skemmdir hafa verið unnar á bíl- um og gæsluvellinum fyrir neðan Grímsbæ auk þess sem rúður hafa verið brotnar í einhverjum tilvikum. „Við erum sannfærö um að þetta er blandaður hópur, krakkar sem koma víða að. En við viljum að hverfið okkar sé öruggt og hér líöi öllum vel,“ sagði Guðríður. -JBP Stuttar fréttir i>v Nýtt starfsumhverfi Á sunnudag- inn verður fræðslumorg- unn í Hall- grímskirkju kl. 10 árdegis. Guð- mimdur Þór Guðmundsson lögfræðingur mun fjalla um ný lög um stöðu, stjóm og starfshætti kirKjunnar. Lögin gefa kirkjunni mun meira sjálfstæði en áður hefur verið. Lætur til sín taka Ríkisútvarpiö skýrði frá því að menntamálaráðuneytið ætlaði að láta til sín taka í hörðum deilum skólameistara og kennara við Iðn- skólann í Reykjavík sem lengi hafa staðið yfir. Utanaðkomandi aðili framkvæmir sjálfsmatsverk- efiii sem er heildarmynd af stjóm- unarferli i skólanum. Markmiðið er að fá skýra mynd af stjórnun skólans og samskiptum starfs- manna innbyrðis. Nýir viðskiptavinir í næstu viku kemur fyrsta skip nýrra viöskiptavina vamarhðsins til hafnar í Njarðvik. Trans Atlant- ic Line og Atlant-skip tóku nýlega við vöruflutningiun vamarliðsins af Eimskipi og Van Ormen. Fyrir- tækin hafa ákveðið að skipa öllum vörum upp fyrir vamarliðið í Njarðvíkurhöfh en áður fór aðeins tæpur þriðjungur flutninganna um Njarðvik. Reiknað er með þijá- tíu ferðum á ári og fimm milljóna króna tekjuaukningu árlega. Sjón- varpið greindi frá. Er rangt Vegna fréttar í Morgunblað- inu i gærmorg- un, þar sem fram kom að samkvæmt heimildum Morgunblaðsins frá Kína hefði umsókn frá Atlanta borist kín- verskum yfirvöldum of seint, 3. nóvember, vill félagið koma því á framfæri að þaö sé alrangt. í frétta- tilkynningu frá Atlanta segir að fyrst hafi verið beðið um af- greiðslu á fluginu til tengiskrif- stofú erlendra flugfélaga í Peking 5. maí og formleg umsókn um flug- ið send sömu skrifstofu 17. júlí. í mál Ríkisútvarpið greindi frá því aö ferðaskrifstofúr í Þýskalandi ætl- uðu í skaðabótamál viö flugfélagið Atlanta vegna þess að það hefur hætt við fyrirhugað flug til Þýska- lands næsta sumar. Hækka vísitölu Vísitala neysluverðs miðað við verðlag í nóvemberbyrjun hækk- aði um 0,3% frá því í október. Mest munar um verðhækkanir á fótum og skóm eða að meðaltali um 4,4%. Rikisútvarpið greindi frá. Þarf aö endurgreiöa Ríkið oftók stimpilgjöld af fyrir- tæki i Njarðvík og samkvæmt hér- aðsdómi þarf það að endurgreiða féð með dráttarvöxtum. Lögmaður fyrirtækisins telur að rikið geti fengiö á sig endurkröfúr upp á hundruð milljóna í framhaldi af dómnum. Rikisútvarpið greindi frá. Finni sigraði Ríkisútvarpið greindi frá því að fmnski hljómsveitarstjórinn Leif Segerstam hlyti tónlistarverðlaun Noröurlandaráðs fyrir næsta ár. Styrkir Svein Loga Eimskip hef- ur gert styrktar- samning við Svein Loga Sölvason bad- mintonmann til næstu tveggja ára. Sveinn Logi er einn af fimm íslenskum íþróttamönnum sem eru á styrk frá Alþjóða Ólympíusambandinu og eygir hann möguleika á að komast á Ólympíuleikana í Sydney árið 2000. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.