Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 Neytendur Innkaup á Netinu: Gifurlegt úrval íslendingar eru með netvæddustu þjóðum í heimi, ef svo má að orði komast. Verslun á Netinu er eitt af þvi sem íslenskir netverjar sækja æ meira í vegna mikils úrvals ýmissa vara og þægindanna sem fylgja þessum verslunarmáta. íslenska þjóðin titlar sig gjarnan sem bókaþjóð og þvi eru ekki úr vegi að kynna hér til sögunnar tvær af stærstu bókaverslunum Netsins. Amazon á slóðinni www.amazon.com og Barnes and Noble á slóðinni www.bames- andnoble.com. Auk þess kynnti Neytendasíðan sér lítillega geisla- diskaverslunina Cdnow á slóðinni www.cdnow.com. Gífurlegt úrval Fyrst var farið inn á slóð banda- rísku Amazonverslunarinnar þar sem tilkynnt var að Amazon væri hvorki meira né minna en stærsta val beggja netbóka- verslananna. Var m.a. leitað að bókum eftir Halldór Lax- ness og reyndist úr- valið nokkuð gott á báðum stöðum. Verðið var það sama hjá Amazon og Bames and Noble og var t.d. hægt að fá Atómstöðina á ensku á um 2241 krónu með sending- arkostnaði og virðis- aukaskatti og Sjálf- stætt fólk í kilju- formi á 1391 krónu með sendingarkostn- aði og virðisauka- skatti. Á metsölulistum netbókabúðanna tveggja má finna Sífellt fleiri nýta sér þann kost að kaupa alls kyns hluti á Netinu því netviðskipti eru orðin þægileg og örugg. bókaverslun veraldar. Amazon hef- ur í sinum fórum um 3 milljónir bóka, geisladiska, hljóðbóka og tölvuleikja, svo eitthvað sé nefnt. Viðskiptavinir Amazon eru frá 160 löndum og nú þegar hafa 4,5 millj- ónir manna verslað við Amazon. Þar næst var farið inn á slóð Bames and Noble sem státar af um 300 000 bókartitlum. Slagorð Barnes and Noble er að „ef þú finnur ekki bók- ina hjá okkur er hún ekki til“. Til að sannreyna þetta gifúrlega úr- margar áhugaverðar bækur. Þar má m.a. nefna „A Man in Full“ eftir Tom Wolfe á 1929 krónur með sendingar- kostnaði og virðisaukaskatti og „When the Wind Blows“ eftir James Patterson á 1941 krónu með sending- arkostnað og virðisaukaskatti. Geisladiskar Þriðja verslunin sem var heim- sótt er geisladiskasalan Cdnow á slóðinni www.cdnow.com. Úrvalið var gott en verðið þar reyndist ekki alveg það sama og hjá Amazon sem einnig selur geisladiska. Hjá Cdnow kostar nýjasti diskur hljómsveitarinnar R.E.M., Up, 1118 krónur með sendingarkostnaði, virðisaukaskatti og tolli eins og hjá Amazon en nýjasti diskur U2 kostar 1691 krónu hjá Cdnow með öllum gjöldum en aðeins 1183 krónur hjá Amazon. Sömu diskar kosta um 2000 krónur á mörgum stöðum hér- lendis. Börn jafnt sem fullorðnir geta fundið bæk- ur og geisladiska við sitt hæfi á Netinu. Aukagjöld Að sjálfsögðu er ekki nóg að líta eirrfaldlega á verð bókarinnar eða geisladisksins þegar kaupa á slíkt af Netinu. Taka verður sendingar- kostnað og önnur gjöld með í reikn- inginn eins og gert er í útreikning- unum hér á síðunni. Samkvæmt upplýsingum frá Toll- stjóraembættinu í Reykjavík bera allar bækur og geisladiskar 24,5% virðisaukaskatt. Auk þess bera geisladiskarnir 10% toll. Skatturinn og tollurinn eru greiddir við afhend- ingu pakkans á pósthúsi. Auk þessara gjalda hérlendis þarf að sjálfsögðu að greiða sendingar- kostnað fyrir vöruna. Bæði Amazon og Barnes and Noble bjóða upp á nokkrar gerðir af sendingum. Ódýr- ast er að senda bækurnar með skipi. Þá er afhendingartími um 2-12 vikur og sendingarkostnaðurinn 416 krón- ur fyrir hverja bók en fer lækkandi ef um fleiri en eina bók er að ræða. Fyrir þá óþolinmóðu er hægt að fá bækumar með flugi fyrir 906 krón- ur. Þá er afhendingartíminn 7-21 dagur. Fyrir þá sem alls ekki geta beðið er svo hægt að fá bækurnar í hraðpósti. Það tekur 1-4 daga og sendingarkostnaður er 2516 krónur. Hjá Amazon er geisladiskar ein- ungis sendir með flugi. Þá er send- ingarkostnaður 416 krónur og bið- tími 7-21 dagur. Þeir óþolinmóðu geta fengið diskinn á 1-4 dögum og greiða þá 1505 krónur í sendingar- kostnað. Hjá Cdnow eru diskar sendir með skipum og er sendingarkostnaður- inn 487 krónur. Afhendingartími er sagður vera nokkrir dagar. -GLM Eplahraunið er sígildur og vinsæll eftirréttur ættaður frá Italíu. Eplahraun Eplahraun er sígildur og sívin- sæll eftirréttur frá Ítalíu. Ýmist er stráð yfir hann sykri eða borið fram ávaxtasalat með. Uppskrift: 2 sæt og safarík epli, afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin í litla bita 125 ml appelsínusafi 1/2 dl marsalavín (eða sérrí eða madeira) 220 g sigtað hveiti 1/2 tsk. lyftiduft 2 msk. malaðar möndlur 125 ml mjólk 2 eggjarauður 2 msk. sykur olía til að steikja í. Aðferð: 1) Blandið saman appelsínusafan- um og marsalavíninu og látið epla- bitana liggja í blöndunni í 15 mínút- ur. 2) Hrærið saman hveitið, lyfti- duftið og malaðar möndlumar. 3) Þeytið saman eggjarauðurnar og sykurinn þar til það er orðið þykkt og ljóst. 4) Pískið hveitiblönduna saman við eggjahræruna, síðan mjólkina og þeytið vel. 5) Takið nú eplin og löginn sem þau hafa legið í og blandið þessu saman við deigið. Gætið þess að hræra vel svo deigið verði jafnt. Látið síðan standa í 10 mínútur. 6) Hitið oliuna. Setjið hræruna með teskeið í olíuna og steikið þar til hver biti er orðinn ljósbrúnn, þá er hann veiddur upp úr olíunni með gatasleif eða fiskispaða. 7) Sett á eldhúspappír, þar sem feitin rennur af. Borið fram heitt eða kalt. -GLM Veggfóður og tréverk Að losa veggfóður Notið helmingsblöndu af ediki og vatni. Dýfið málningarrúllu eða svampi í blönduna og bleytið vegg- fóðrið í gegn. Eftir tvær yfirferðir ætti veggfóðrið að losna af í heilum hlutum. Notið frekar málningar- rúllu en pensil til verksins. Bað og eldhús Eftir að hafa veggfóðr- að baðherbergið eða eld- húsið skaltu mála öll samskeyti með glæru Ilakki til að vama því að samskeytin losni upp. m Veggfóðursbót Þegar þú rífúr niður (ekki klippa) bót til að bæta veggfóður skaltu alltaf rífa að bakhliðinni. Þá verða sam- skeytin allt að því ósýnileg. Bungur Skerðu i bunguna með rakvélar- blaði. Settu síðan lím undir hana með hníf og sléttu úr með rökum svampi. Fitublettir Búið til deig úr komsterkju og vami. Látið bíða á blettinum þar til það er þurrt. Burstið þá af. Ef bletturinn er enn á reynið þá aftur. Einnig má leggja þerripappír á fitublettinn og fara yfír með heitu straujárni. Endurtakið nokkrum sinnum með nýjum þerripappír. Fjarlægið síðan leifamar, ef ein- hverjar em, með klút vættum í bór- vaxi. Vaxlitir Nota má sömu aðferðir tO að ná vaxlitum af veggfóðri og fitublett- um. Einnig má nudda létt með sápufylltri stálull sem ekki hefur verið bleytt. Annað ráð er að strá matarsóda á raka tusku og nudda lauslega yfir blettina. Vaxliti á vinylveggfóðri má fiar- læga með silfúrfægilegi. Hversdagsóhreinindi Nuddið létta bletti, t.d. fmgrafór, mold eða blýantsstrik, með strokleðri. Sparsl Ef múrhúðin losnar úr loftinu skaltu reyna eftirfarandi: Gerðu deig úr trélimi og matarsóda og settu í sprunguna með fingrunum. Ef loftið er málað er gott að setja matarlit samlitan loftinu í blönd- una. Þessi viðgerð getur frestað fullnaðarviðgerð um einhvem tíma. Sprungufyllir Fylltu í sprungur með stálull eða dagblöðum áður en sparslið er sett á. -GLM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.