Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Page 7
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 7 Áhugi á deCode Deilan um gagnagrunninn hefur vakið mikla eftirtekt vestanhafs. Mörg blöð og tímarit hafa birt langar grein- ar um deCode og Kára Stefánsson. Áhuginn hefur ekki minnkað eftir að Em- ir Snorrason, einn af upphafsmönnum deCode með Kára, gagnrýndi gagna- grunninn opinber- lega. Erlend blöð sjá í þessu safaríkt drama í uppsigl- ingu og sum þeirra eru nú að senda blaðamenn hingað til lands til að taka stöðuna. Á vegum Science, sem hefur reglulega skrifað um málið, er von á blaðamanni innan skamms. Þá munu bæði ritið New Yor- ker og hið fræga viðskiptablað Wall Street Journal senda hingað frétta- menn í næstu viku ... Átónleikum? Sú ákvörðun Páls Péturssonar fé- lagsmálaráðherra að flytja inn- heimtusvið íbúðalánasjóðs til Sauðár- króks hefur vakið verðskuldaða at- hygli, og ekki síður þau orð ráðherrans aö Sauðkrækingar eigi ekki að gjaida þess að vera í kjör- dæmi hans. Fyrir- tækið Element Skynjaratækni á Króknum á að sjá um innheimtu- sviðið ásamt Búnað- arbankanum. Kaupfélag Skagfirðinga á stærstan hlut i Element Skynjara- tækni en í kaupfélaginu ræður Þórólfur Gíslason, flokksbróðir Páls, ríkjum. Pálmi Jónsson frá Akri er formaður stjómar Búnaðarbank- ans. Hann er auðvitað úr kjördæm- inu. Svo er Gunnar Bjömsson, for- maður stjórnar íbúðalánasjóðs, ættað- ur úr Skagafirði. Varð mönnum að orði að sennilega hafi menn bara hist á tónleikum Skagfirsku söngsveitar- innar og „plottað" dálítið ... Ekkert skrum í deilu Ástþórs Magnússonar fyrir hönd sjálfs síns og Friðar 2000 við Norðurpólsmenn á Akureyri féllu mörg þung orð og sagði Ragnar Sverrisson, formaður Kaupmannafélags Ak- ureyrar, að hann og hans menn ætluðu ekki að sigra heim- inn með auglýsinga- skrumi eins og Ást- þór hafi staðið fyrir. Þess í stað munu Akureyringarnir ætla sér að sigra ís- land með jólagarðinum Norðurpóln- um. Munu þeir hafa náð einhverju samkomulagi við Stöð 2 og Bylgjuna um daglegar fréttir af gangi mála frá 20. nóvember til jóla. Einhverjar frétt- ir eru lika á kreiki um samkomulag Kaupmannafélagsins og Dags. Þetta verður að sjálfsögðu ekkert skrum, og það eru nú ekki alltaf jólin ... Smellur Steins Sú plata sem um þessar mundir selst einna mest hér á landi er Heim- urinn og ég sem eru lög við ýmis Ijóð Steins Steinarr. Raunar seldist eng- in plata jafn vel í sið- ustu viku nema nýjasta plata írsku hljómsveitarinnar U2. Það eru einkum tvö lög við ljóð skáldsins fræga sem taka hug land- ans fanginn. Ann- að er hið þekkta ljóö Steins, Passíusálmur nr. sem er sungið af Ellen Kristjáns- dóttur. Hitt er við ljóðiö Barn, sem sá frægi Raggi Bjarna gerði enn frægara með söng sínum fyrr á árum en er nú í meistaralegum flutningi Páls Rósinkranz. Steinn Steinarr er því að verða þekktur á meðal nýrri kynslóða... Umsjón: Haukur L. Hauksson Netfang: sandkorn @Ef. is Fréttir Ráðuneytið tekur Iðnskólann í gegn: Verðunt að trúa að þetta gangi - segir formaður starfsmannafélagsins „Við fógnum þessu. Við væntum þess að þetta gangi í gegn og að umbót- unum verði fylgt eftir. Við verðum að trúa því að þetta gangi upp,“ sagði Guðni Kolbeinsson, formaður stjómar kennarafélagsins í Iðnskólanum í Reykjavík, vegna afskipta mennta- málaráðuneytisins af skólastarfmu í Iðnskólanum í Reykjavík. Menntamálaráðuneytið hefúr ákveðið að ráða utanaðkomandi aðila DV-mynd Kristjana Sleðagata á Tálknafirði til að taka þátt í sjálfsmatsverkefni Iðnskólans í Reykjavík vegna langvar- andi samstarfsörðugleika skólameist- ara og kennara skólans. Þessi ákvörð- un var kynnt á fúndi sem formaður skólanefndar, fúlltrúar starfsmannafe- lags skólans og skólameistari sátu í ráðuneytinu í fyrradag. Fyrr í haust hafði ráðuneytið skipað annan utanaðkomandi aðila til að gera úttekt á ýmsum þáttum i innra starfi skólans í kjölfar þess að bæði kennar- ar og nemendur höfðu leitað til ráðu- neytisins vegna ósættisins í skólanum. Hlutverk þessa aðila, sem skipaður verður nú, verður að draga upp heild- armynd af stjómunarferli í skólanum m.a. með viðtölum við skólanefiid, stjómendur og starfsmenn, auk athug- imar á fyrirliggjandi gögnum um stjómskipulag og samskiptaferli innan skólans. Markmiðið með þessum hluta sjálfs- matsins er að fá skýra mynd af stjóm- un skólans og samskiptum manna inn- byrðis og við stjómendur til að ráða bót á þeim vanda sem uppi er í Iðn- skólanum. -JSS Dalshraun 6, Hafnarfirði • Sfini 555 0397 Gæðarúm á góðu verði Ragnar Bjömsson á RB-rúmi DV Tálknafirði: Á Tálknafirði hefur það viljað bera við og er reyndar vandamál að þegar snjór kemur úr lofti og sest á götur bæjarins verða oft til hinar bestu sleðabrautir. En þetta er stór- hættulegur leikur sem bæjaryfir- völd og lögreglan hafa verið að kljást við undanfarin ár, þvi erfitt hefur verið að koma bömunum í skilning um hversu hættulegur leik- ur þetta er. Það var svo nú þegar fyrsti snjór- inn kom i haust að þetta vandamál skaut upp kollinum einu sinni enn. Þá brugðu bæjaryfirvöld á það ráð að loka einni götu bæjarins fyrir bílaumferð svo bömin gætu rennt sér áhættulaust á sleðum sínum og áhyggjur foreldranna voru á bak og burt. En það var skammgóður vermir því strax daginn eftir gerði hláku og allur snjór er horfinn, í bili að minnsta kosti. -KA Bragi Michaelsson: Gunnar úr bæj- arstjórn nái hann þingsæti „Ég get ekki krafist þess aö Gunn- ar I. Birgisson víki úr bæjarstjóm nái hann kjöri á þing. Hins vegar er það mín skoðun að ekki fari saman að þingmenn sitji einnig í bæjar- og sveitarstjómum, allra síst í bæjarfé- lögum á höfúðborgarsvæðinu. Þing- mennska er einfaldlega fullt starf og Gunnar á ekki að sitja áfram í bæj- arstjórn komist hann á þing,“ segir Bragi Michaelsson, annar maður á lista sjálfstæðismanna í Kópavogi. Gunnar I. Birgisson, oddviti sjálf- stæðismanna í bænum, gefur kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjaneskjör- dæmi fyrir kosningamar í vor. Prófkjörið er um helgina. Sjálfstæð- isflokkurinn á nú fimm þingmenn úr Reykaneskjördæmi. -hlh Kópavogur: Rætt um að hækka í áföngum Tillögu um hækkun leikskólagjalda í Kópavogi var frestað á bæjarráðs- fundi í gær. Tillagan verður væntan- lega afgreidd á bæjarstjómarfundi 24. nóvember. Hækkun gjaldanna, sér- staklega hjá forgangshópum, hefur verið umdeild. I því sambandi hefur það verið rætt sem eins konar mála- miðlun að hækkunin komi til fram- kvæmda í áfóngum. -hlh Áður en kvótakerfið var sett á höfðu menn áhyggjur af stöðu fiskistofna við fsland, sérstaklega af þorskstofninum. Síðustu árin fyrir kvótakerfið voru 1981, 1982 og 1983. Á þessum þremur árum fiskuðum við fslendingar samtals eina milljón og eitt- hundrað þúsund tonn af þorski. i. Sjómenn hafa lítil réttindi. Þau eru öll hjá útgeröinni. Sjómaðurinn sem oft þarf aö vinna langan vinnudag viö erfiðar aöstæöur býr við óöryggi, þar sem útgerðinni getur kosiö að selja eða leigja frá sér kvótann. Á síðustu þremur árum hefur reyndin orðið allt önnur hvað varðar þorskveiðar við fsland. f stað þess að aflinn hafi verið á aðra milljón tonna af þorski á þremur árum er aflinn talsvert minni eða í s CT> fimmhundruð og fimmtíu þúsund tonn, VÍSIR félag samjóRN/mmm ÁSUÐURNESJUM sem nær ekki helmingi af þeim afla sem fékkst á íslandsmiðum á síðustu þremur árunum fyrir lögleiðingu kvótakerfisins. Fræðsluátak á ári hafsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.