Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Síða 10
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 13 V -1 menning *★ ★----- Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Örlagasaga Dagur Eggertsson fjötrar karakter stjóm- málamannsins Steingríms Hermannssonar svo vel í texta ævisögu hans að stundum er engu líkara en hann stígi sjálfur af blöðun- um fram á stofugólfið. Steingrímur var um margt sérstakur stjómmálamaður. Hann Skrásetjari í skugga söguefnis. birtist þjóöinni sem einlægur og góðviljaður maður, stundum bamslegur, refur ef á þurfti að halda og heppilega gleyminn ef svo bar undir. Menn veltu stimdum fyrir sér hvort þessi mynd væri að hluta tilbúið gervi stjómmálcimanns en bókin staðfestir ekki aðeins þessa þætti í lyndiseinkunn Stein- gríms heldur dýpkar þá. Steingrímur hélt til haga hvers kyns gögn- um um sjálfan sig. Dagur styðst við dagbæk- ur hans og hefur auk þess komist í bréf til og frá vinum hans og ættingjum. Þetta ljær frá- sögninni lit og trúverðugleika. Það er gaman að skyggnast í hugarheim ungs manns sem er glaöur þegar honum gengur vel í skóla, stoltur Eif að vera sterkur eins og pabbi og nægilega hégómagjam til að mæla reglulega á sér vöðvana með málbandi og skrá niður- stöðumar. Hann eignast vini á ungum aldri, stofnar með þeim félag í skóla og heldur við þá tryggö alla ævi. Það segir margt um hann að þeir sleppa heldur aldrei hendinni af hon- um. Sumir em annálaðir gleðimenn og stundum vildi lesandinn fá safaríkari sögur af uppátækjum þeirra. Það hefði til dæmis verið gaman að fá meira að heyra af Clausen-bræðrum og Gunnari Huseby í keppnisferðinni miklu þegar þeir lögðu Evr- ópu að fótum sér um daga en sátu allar næt- ur öls við pel. Steingrímur segir af mikilli væntumþykju af fólkinu sem stendur að honum og dregur Bókmenntir Össur Skarphéflinsson upp næmar mannlýsingar af öfum sínum og ömmum. Hermanni Jónassyni, föður hans, em gerð góð skil og bréfaskriftir þeirra í tengslum við fyrri giftingu Steingríms em áhugaverð viðbót við fyrri vitneskju um hann. Það er hins vegar galli að móðir Stein- gríms verður að huldukonu. Hún elskar son sinn en hann skrifar foður sínum frá Ameríku og skammar hann vegna framtaksleysis vinstri stjómarinnar tekur hún sig til og ávítar hann fyrir að leggja slíkar byrðar á föðurinn sem hún segir að eigi nógu erfitt fyrir. Lesandann langar að vita meira um þessa merku konu sem gleðst þegar maður- inn hennar lendir utan ríkis- stjómar af því þá á hún meiri tíma með honum. Steingrímur birtist sem hamingjusamur maður. Hann talar af einlægni um bömin sín og Eddu og birtir ástarbréf sem sýnir hvernig fjarlægð milli elskenda getur orð- ið að líkamlegri kvöl. Þó dylst ekki að á fyrri hluta ævinnar átti hann ákaflega erfitt í einkalífi sínu. Hjónaband hans og Dollýjar, fyrri konu hans, var gríðarlega erfitt og Steingrímur dregur ekkert undan. Sam- bandið leggst svo þungt á hann að hann verður líkam- lega veikur og gömul dagbók- arbrot frá Ameríku gefa til kynna að lífið hafi um stund orðið honum einskis virði. Hér hikstar frásögnin, lesand- inn getur í eyður dagbókarbrota og kemst að þeirri niðurstöðu að um stund hafi þessi lífs- glaði maður sokkið svo í hyldýpi örvænting- ar að hann hafi líklega íhugað drastískar að- gerðir. Steingrímur segir hreinskilnislega frá því þegar hann ætlar að flýja með tvö bamanna frá Ameríku til Kúbu og verður að ráði lögfræðinga að skiija elsta drenginn eft- ir. „Eðlilega er engin leið fyrir átta ára bam að skilja slíkt. Jón grét sárt...“ Dagur og Steingrímur færa lesandanum mikla skemmtan. Bókin heldur spennu og flugi út í gegn og lesandinn kemst að þeirri niðurstöðu að Steingrímur sé í veruleikan- um jafngeðfelldur og hann virtist vera sem daglegur gestur á skjám landsmanna. Ég verð að segja það. Dagur B. Eggertsson: Steingrímur Hermannsson. Ævisaga Vaka-Helgafell 1998 DV-mynd Pjetur Hraði og styrkur Blásið í Garðabæ Blásarakvintett Reykja- vikur og Gerrit Schuil pí- anóleikari halda tónleika í Kirkjuhvoli við Vídalíns- kirkju í Garðabæ á morgun kl. 17. Þar verður fluttur kvintett fyrir biásara eftir Franz Danzi, samtímamann Beethovens, píanókvintett eftir Beethoven sjálf- an og verk eftir tónskáld 20. aldar: „The Picasso Set“ eftir Möltubúann Charles Camilleri, „Trois piéces bréves" eftir Frakkann Jacques Ibert og „Mississippi Five“ eftir breska tónskáldið Jim Parker frá árinu 1993. Það er eins konar kveðja til hinna hæfileikaríku, frumlegu og lífsglöðu tónlistarmanna sem skópu djassinn og störfúðu í New Orleans og á ffjótabátum Missisippi í byijun 20. aldar. Blásarakvintett Reykjavíkur skipa Bemharð- ur Wilkinson, Daði Kolbeinsson, Einar Jóhann- esson, Jósef Ognibene og Hafsteinn Guðmunds- son. Beðið eftir Beckett Á sunnudagskvöldið kl. 20.30 verða sýndir þrír einþáttungar eftir nóbelskáldið Samuel Beckett í Iðnó: Eintal, Ohio impromptu og Vögguvísa, sem allir vom skrifaðir á árinum 1979-1981. Eintalið er hljóðritun, sem flutt var í Útvarpsleikhúsi Ríkis- útvarpsins fyrir sjö árum, af Ró- bert Amftnnssyni leikara. Leik- stjóri var Árni Ibsen. Þessi hljóðritun verksins verður leik- in í Iðnó, og Róbert leikur á ný Mælandann sem talar ekki leng- ur heldur situr og hlustar á sín eigin orð af segulbandi. í Ohio impromptu er Ásta Amardóttir leikkona í hlut- verki Lesarans, og konan í ruggustólnum i Vögguvisu er leikin af Mariu Ellingsen. Uppsetningin er samvinnuverkefni leikfélags- ins Annað svið, Iðnós og Útvarpsleikhússins. Leikstjóri er Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Athug- ið: Aöeins þessi eina sýning! Kammennúsík Þriðju tónleikar Kamm- ermúsíkklúbbsins á starfs- árinu verða í Bústaða- kirkju á sunnudagskvöld- ið og hefjast kl. 20.30. Leikin verða tvö verk eft- ir hvom höfuðsnilling, Serenata í D-dúr op. 25 og píanótríó í B-dúr WoO. 39 eftir Beet- hoven og Kvartett í D- dúr, K. 285 og Kvartett í Es-dús, 493 eftir Mozart. Flytjendur em: Guðrún Birgis- dóttir á flautu, Auður Hafsteinsdóttir á fiðlu, Svava Bemharðsdóttir á lágfiðlu, Bryndís Halla Gylfadóttir á knéfiðlu og Anna Guðný Guð- mundsdóttir á pianó. Á tónleikunum býðst gestum að kaupa útgáfú Máls og menningar á tónleikum afmælisárs klúbbsins á nýrri tveggja diska samstæðu. Þetta em góðar upptökur á minnisstæðum tónleikum og hinn eigulegasti gripur. Meðal flytjenda era Sigrún Eðvaldsdóttir, Bemadel kvartettinn, Blásarakvintett Reykjavíkur, Alina Dubik og Einar Jóhannesson. Minningarrit íslenska stærðfræðifélag- ið og Raunvísindastofiiun Háskólans standa að út- gáfu minningarrits um Leif Ásgeirsson stærð- fræðing sem lést árið 1990. Þar skrifar Jón Ragnar Stefánsson ævisögu Leifs, og nær sögusvið hennar ofan úr Borgar- fjarðardölum suður til Þýskalands, norðan frá Laugum í Reykjadal suður til Reykjavíkur og einnig vestur um haf. Sagt er frá samfélagi þýskra stærðffæðinga í Göttingen sem Leifur mótaöist af og samfélagi íslenskra stærðfræð- inga sem hann átti sjálfur þátt í að móta. Auk ævisögunnar era í ritinu fyrirlestrar frá málstofu í minningu Leifs Ásgeirssonar eftir sex fræðimenn, stærðfræðigreinar Leifs sjálfs, ritgerðir um stærðfræði hans og nokkrar grein- ar Leifs um önnur efiii en stærðfræði auk blaða- viötals um uppruna og æskuár bróður hans, Magnúsar Ásgeirssonar skálds. Loks era nokk- ur eftirmæli eftir Leif látinn. Ritstjórar bókarinnar era Bjöm Bfrnir, Jón Ragnar Stefánsson, Ottó J. Bjömsson og Reynir Axelsson. Fjöldi ljósmynda prýðir ritið sem gef- ið er út af Háskólaútgáfunni. Það þarf alltaf áræði og sjálftraust til þess að halda einleikstónleika. Ólafsfirð- ingurinn Öm Magnússon stóð vel undir hvoru tveggja á píanótónleikum á vegum Tónlistarfélags Akureyrar í Safnaðarheim- ili Akureyrarkirkju síðastliðið sunnudags- kvöld. Á efnisskránni voru verk eftir Beet- hoven, píanósónötur nr. 13 í Es-dúr og nr. 14 í cís-moll, (Tungskinssónatan) og Images 1 eða Myndir 1 eftir Debussy ásamt L’isle joyeuse (Eyju gleðinnar) eftir síðamefnda tónskáldið. öm hélt stutta tölu áður en hann hóf leik- inn og kynnti verkin. Þar kom m.a. fram að Beethoven-sónötumar vora samdar á árun- um 1801-1802 þegar tónskáldiö var oft miður sín út af vaxandi heyrnarleysi og bjóst jafn- vel við dauða sínum. Honum þótti ekki seinna vænna en að skrifa erfðaskrána sem hann gerði í Heiligenstadt fyrir utan Vinar- borg þar sem hann dvaldi sér til heilsubótar. í erfðaskránni segir m.a: Ó, þið menn sem ásakið mig um illgimi, þrjósku og mannfyr- irlitningu. Hve rangt þið gerið mér til! Þiö þekkið ekki hina leyndu ástæðu. í sex ár hef ég verið veikur og örvæntingarfullur, svikulir skottulæknar hafa vakið mér fals- vonir þar til að lokum ég var tilneyddur að horfast í augu við varanlegt mein. Ég var misskilinn og mér var raddalega hafnað af því ég gat ekki sagt við fólk: „Talið hærra, hrópið, því ég er heymarlaus." Með gleði tek ég á móti dauðanum, hann mun losa mig við stöðugar þjáningar. Örn Magnússon píanóleikari. Tónlist ívar Aðalsteinsson Sónöturnar nr 13. og 14. bera undirtitil- inn „Sonata quasi una fantasia" eða „sónata, næstum því fantasía". Þessi undir- titill á sérstaklega við um fyrri sónötuna þar sem miklar hraðabreytingar eru innan kaflanna og venja er að stoppa mjög stutt á milli kafla þannig að verkið rennur saman í eina heild. Öm lék þetta verk vel og vand- lega þó ég hefði kosið að heyra hröðu lot- umar enn hraðari til að fá meiri andstæðu við þær hægari. Fyrsti kaflinn i Tunglskins- sónötunni er alltaf erfiður þvi allir þekkja hann og fólk viO fá að heyra hann eins og hann hefur greipst í tónminniö þegar hann hefur verið best fluttur. Öm spilaði hann vel og reyndar alla sónötuna en spyrja má hvort dvelja eigi lengi á fyrsta slagi eins og Örn gerði stundum í fyrsta kaflanum. Enn fremur hefði ég kosið að heyra hann enn veikari en ekki er víst að auðvelt sé að ná fram veikari tóni úr flygli safnaðarheimilis- ins í því hljómrými sem þar er. „Myndir 1“ er eitt af þekktustu verkum Debussys, sérstaklega fyrsti kaflinn „End- urskin á vatni“. í túlkun Debussy-verk- anna tókst Emi víöa mjög vel upp en stundum mátti hann passa sig á því að reyna ekki að spila of hægt og skýrt hraðar tónfléttur þar sem hver nóta á eins og að rúlla á eftir hinni svo úr verði im- pressionískur ómur. Annars voru þetta í heild góðir tónleikar og greinilegt að Öm Magnússon er í fram- för sem píanóleikari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.