Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 19 V Fréttir Aðhaldsaðgerðir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri: Reksturinn samkvæmt fjár hagsáæt I u nu m DV, Akureyri: „Rekstur og starfsemi sjúkra- hússins samkvæmt þeim tölum sem við höfum fyrir fyrstu 9 mán- uði ársins hefur verið i samræmi viö þær áætlanir sem við gerðum fyrir árið. Þær helguðust auðvitað af fjárlögum og því fjármagni sem við höfum til ráðstöfunar og við erum samkvæmt þvi á réttu róli,“ segir Halldór Jónsson, forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri. Mikið aðhald hefur verið í rekstri sjúkrahússins á árinu eftir aö rekstur þess fór talsvert fram úr áætlunum og fjárveitingum á síð- asta ári. Sjúkrahúsinu voru af fjárlögum ætlaðar 1,492 milljarðar króna og síðan komu aukafjárveitingar, m.a. vegna launahækkana kjarasamn- inga og bæklunaraðgerða, samtals um 100 milljónir króna. Sértekjur sjúkrahússins eru tæplega 200 milljónir króna þannig að heildar- kostnaður er á bilinu 1,7-1,8 millj- arðar króna. Heildarlegudögum á sjúkrahús- inu hefur fækkað frá fyrra ári en þó hefur aukning orðið á einstaka deildum, s.s. á lyflækningadeild þar sem sjúklingum hefúr einnig fjölgað. Almennt segir Halldór Jónsson að um færri sjúklinga sé vísað frá sem þurfi á þjónustu að halda. Halldór segir ýmsar skýringar hugsanleg- ar á fækkun innlagna, m.a. sé mjög vaxandi þjónusta við sjúklinga án innlagna sem sé ánægjuleg þróun þar sem það geti aldrei verið markmið í sjálfu sér að leggja sjúklinga inn. Halldór segir einnig að það sé „skoðun sumra“ að betra árferði í þjóðfé- laginu komi fram í betri heilsu fólks. Með hærri fjárveit- ingum getur Fjórð- ungssjúki-ahúsið á Akureyri sinnt mun fleiri þáttum en nú og HaEdór segir að sjúk- lingar á svæði FSA þurfi að sækja ýmsa þjónustu til Reykja- víkur sem hægt sé að sinna á Akureyri. TU Halldór Jónsson, forstjóri Fjórðungssjúkrahúss- þess þyrfti aukinn ins á Akureyri. DV-mynd gk mannafla og búnað en það myndi spara íbú- um á svæðinu bæði að ræða, einnig færri legudaga en óþægindi og kostnað. „Þetta er það hann leggur áherslu á að engum sé sem við vUjum leggja megináherslu á tU þess að styrkja uppbyggingu þessarar þjónustu fyrir svæðiö í heUd. Þetta kaUar á fleiri starfs- menn og bættan tækjabúnað til jafns við spítalana fyrir sunnan. Það hefur verið talað um uppbygg- ingu á þremur stórum sjúkrahús- um. Þetta er brýnt mál fyrir Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri sem er eitt þeirra sjúkrahúsa, við höfum húsnæði tU þess sem þó er reyndar ekki að fuUu frágengið," segir HaU- dór. Þótt stórbygging hafi risið við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri fyrir nokkrum árum hefrn' sú bygg- ing ekki verið tekin í notkun að neinu leyti. BarnadeUd mun flytja þangað á næsta ári en frekari ákvarðanir hafa enn ekki verið teknar um nýtingu byggingarinnar. „Það hlýtur að vera markmiðið að koma því í notkun sem menn hafa byggt, ekki síst þegar þörf er fyrir það og spítalinn getur styrkt og bætt þjónustu á svæðinu fáist tU þess fjármagn. Við teljum okkur hafa aUan gnmn til þess og frekari uppbygging heUbrigðisþjónusta hér á svæðinu veröur að gerast í kring um Fjórðungssjúkrahúsið," segir HaUdór. -gk Netto FATASKÁPAR A fínu verði I I Hæð: 206 cm Dýpt: 60 cm Breiddir: 40 cm 6.980,- 50 cm 7.500,- 60 cm 7.980,- 80 cm 9.990,- 100 cm 11.500,- Aukalega fæst milliþil og 1 3 hillur á 3.100,- FYRSTA FLOKKS FRÁ /rOniX HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SlMI 552 4420 Kúplingshlutir Viðurkenndir bílavarahlutir. 'iUS-AJ 't m i i r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.