Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 Sviðsljós George Michael á leið í hjónaband Söngvarinn George Michael ætlar aö kvænast kærastanum sínum, Kenny Goss, i desember næstkomandi. George og Kenny hafa verið saman í um tvö ár, að því er erlend slúðurblöð greina frá. Fullyrt er að athöfnin i desember eigi að fara fram í einkaveislu í London. Þar sem ekki eru til nein lög um hjónabönd samkynhneigðra í Englandi fá George og Kenny engin sérstök réttindi þó þeir gifti sig. Samkvæmt frásögnum erlendra blaða vill George Michael staðfesta samband sitt við Kenny með sérstakri athöfn til þess að sýna hversu heit ást þeirra er. George Michael. Símamynd Reuter I apríl síðastiiðnum var George gripinn er hann fróaði sér fyrir framan borgaralega klæddan lögreglumann á almenningssalerni í Beverly Hills. George var handtekinn og færður af staðnum í handjárnum. Hann þurfti að sæta lögregluyfirheyrslu og var gert að greiða um sem svarar 40 þúsund íslenskum krónum i sekt. George fann ekki jafnmikið fyrir þvi eins og hversu leiður og æstur Kenny varð. I nýlegu viðtali lýsti George því yfir að hann og Kenny elskuðu hvor annan og Kenny hefði fyrirgefið sér atvikið á almenningssalerninu. Celine Dion tekur sér langt hlé KærastiViktoríu gengur í leiklistarskóla Stóra ástin i lííl Viktoríu Svía- prinsessu, Daniel Collert, gengur i leiklistarskóla í New York. Vikt- oría er sjálf við nám í stórborg- inni og hefúr náð sér af lystarstol- inu sem hún þjáðist af fyrr á þessu ári og í fyrra. Sagt er að endumýjað samband hennar og Daniels eigi stóran þátt í því hversu vel henni líður nú. Nú velta menn þvi fyrir sér hvort Viktoría og Daniel eigi eftir að veröa hjón og jafnframt hvort Daniel eigi þá eftir að standa á leiksviði. Það þætti ef til vill sumum skrítið. Poppsöngkonan Celine Dion vill lifa eðlilegi-a lífi en hún gerir nú og ætlar að taka sér langt frí frá tón- listinni þegar tónleikaferðalagi hennar á næsta ári lýkur. Þetta sagði eiginmaður stjörnunnar, René Angelil, nýlega í viðtali á kanadískri sjónvarpsstöð. Celine hefur selt milljónir platna undanfarin ár en nú vill hún slappa af og snúa sér meira að einkalífinu. „Við höfum ákveðið að taka okk- ur hlé. Lífið sem við lifum núna er ekki eðlilegt. Það er gervilíf," sagði Angelil í sjónvarpsviðtalinu. Celine hefur viðurkennt að mikill aldursmunur þeirra hjóna valdi henni áhyggjum. „Ég er bara 30 ára en bý með manni sem er 56 ára. Ég vil ekki lifa eins og ég hef gert næstu 10 árin því René er þvi mið- ur ekki ódauölegur," segir hún. Búist er við að Celine taki sér jafnvel 2 ára hlé frá söngnum. Brad Pitt og Marcia Gay Harden eru aðalleikararnir í kvikmyndinni Meet Joe Black sem frumsýnd var í Los Angeles í vikunni. Símamynd Reuter n 2. desember mun hin árlega jólagjafahandbók fylgja DV í 18. sinn. Jólagjafahandbók DV er fyrir löngu búin aö festa sér sess í jólaundirbúningi landsmanna enda er þar aö finna hundruð hugmynda aö gjöfum fyrirjólin. í fyrsta sinn veröur jólagjafahandbókin prentuð á hvítari og vandaðri pappír sem verður til þess aö allar auglýsingar og myndir skila sér mun betur. Lögö veröur áhersla á skemmtilega umfjöllun um jólaundirbúning, hugmyndir aö föndri, uppskriftir og margt fleira. Auglýsendur, athugið að skilafrestur auglýsinga er tii 20. nóvember en meö tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent á að hafa samband viö Selmu Rut Magnúsdóttur í síma 550 5720 eöa Ásu Arnaldsdóttur í síma 550 5729, sem allra fyrst, svo unnt reynist aö veita öllum sem besta þjónustu. Ath. Bréfsími auglvsingadeildarKiZ3i er 550 5727.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.