Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Qupperneq 26
26
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998
Afmæli_____________________
Sigurður Sveinbjömsson
Sigurður Kr. Sveinbjömsson, fyrrv.
forstjóri, Gullteigi 12, Reykjavík, er
níræður í dag.
Starfsferill
Sigurður er fæddur í Reykjavík og
ólst upp þar og í Þingvallasveit. Hann
lærði vélvirkjun í Hamri 1925-28, fór
til framhaldsnáms hjá Burmeister og
Waine í Kaupmannahöfn 1929 og út-
skrifaðist þaðan sem vélsmiður 1930.
Sigurður starfaði í Landssmiðjunni
í eitt ár, síðan nokkur ár í Hamri og
var hjá Kveldúlfi hf. við uppsetningu
á síldarverksmiðjunni á Hjalteyri
1937-39.
Sigurður hóf snemma sjálfstæðan
atvinnurekstur og stofnaði Vélaverk-
stæði Sig. Sveinbjörnssonar hf. 1946.
Upphaflega störfuðu tveir menn hjá
fyrirtækinu en er það flutti í stærra
húsnæði við Skúlatún 1942, störfuðu
þar fimm manns. Fyrirtæki Sigurðar
fékk framleiðslurétt frá A/S Hydra-
vinsj í Noregi á olíudrifhum línu- og
dekkvindum 1955 en á næstu árum
framleiddi fyrirtækið svo á annað
hundrað slíkar vindur með góðum ár-
angri. Fyrirtækið flutti í nýtt og stórt
verksmiöjuhúsnæði í Garðabæ 1969
en þá störfuðu á milli þrjátíu og fjöru-
tíu manns þar. Sigurður
varstofnandi skipasmíða-
stöðvarinnar Nökkva hf. í
Garðabæ 1960 og skipa-
smíðastöðvarinnar Stál-
víkur hf. í Garðabæ 1961.
Sigurður starfaði í
Meistarafélagi járniðnað-
armanna, sat í stjóm þar í
tiu ár og var prófdómari í
vélvirkjun.
Fjölskylda
Kona Sigurðar var Ingi-
björg Ingimundardóttir, f. 16.2.1908, d.
26.11.1989, húsmóðir. Foreldrar henn-
ar voru Ingimundur Pétursson, fisk-
verkunarmaður i Reykjavík, og k.h.,
Jórunn Magnúsdóttir húsmóðir.
Böm Sigurðar og Ingibjargar: Karl,
f. 28.2.1930, d. 13.9.1947; Sveinbjörg, f.
23.3.1938, húsmóðir í Reykjavík, og á
hún fimm böm; Guðmundur Már, f.
27.4. 1951 (kjörsonur), vélsmiður á
Seyðisfirði, kvæntur Nílu Sigurðsson
og eiga þau tvö böm; Karl Frank, f.
28.11. 1955 (kjörsonur), framkvæmda-
stjóri, búsettur í Reykjavík, kvæntur
Svölu B. Jónsdóttur húsmóður og eiga
þau þijá syni.
Systkini Sigm-ðar: Ingi-
berg, f. 19.6. 1907, d. 28.6.
1907; Sveinbjörn H., f. 30.1.
1911, d. 5.4. 1912; Óskar, f.
22.8.1915, d. 1997, forstjóri í
Reykjavík, var kvæntur
Jónu Ágústsdóttur; Júlíus
Hafstein, f. 8.12. 1921, nú
látinn, framkvæmdastjóri í
Reykjavík, var kvæntur
Þóru Kristjánsdóttur; Erla
Maria, f. 3.12.1930, ekkja í
Garðabæ eftir Ingólf Jóns-
son sem lést 16.5. 1987.
Foreldrar Sigurðar: Svein-
bjöm Kristjánsson, byggingameistari
í Reykjavík, og k.h., Sigríður Sigurð-
ardóttir húsmóðir.
Ætt
Sveinbjöm var sonur Kristjáns,
söðlasmiðs á Kárastöðum í Þingvaila-
sveit, Ámundasonar, b. á Sandlæk í
Gnúpveyjahreppi Guðmundssonar.
Móðir Ámunda var Guðríður Guð-
mundsdóttir, b. á Sandlæk, Ámunda-
sonar. Móðir Sveinbjamar var Gréta
María Sveinbjömsdóttir, pr. og rit-
stjóra Þjóðólfs, Hallgrímssonar, pr. í
Görðum á Akranesi, Jónssonar, pr. á
Staðastað, Magnússonar, bróður
Skúla fógeta. Móðir Sveinbjamar var
Guðrún Egilsdóttir, systir Sveinbjarn-
ar rektors.
Sigríður var dóttir Sigurðar, út-
vegsb. á Byggðarenda í Reykjavík,
Jónssonar, prentara og bæjarfulltrúa
í Reykjavík, Jónssonar, gestgjafa í
Reykjavík, Jónssonar, verslunarstjóra
á Húsavík, Péturssonar. Móðir Sig-
urðar var Ingibjörg Sigurðardóttir, b.
á Hjallalandi á Álftanesi, Sigurðsson-
ar, b. á Mógilsá, Sigurðssonar, b. á
Englandi í Lundarreykjadal, bróður
Jóns, ættfoöur Fremra-Hálsættarinn-
ar. Annar bróðir Sigurðar var Hákon,
faðir Helgu, ættmóður Deildartungu-
ættarinnar. Þriðji bróðir Sigurðar var
Vigfús, lrm. á Leirá, og hefur niðjatal
hans einnig verið gefið út. Sigurður
var sonur Árna, yfirbryta í Skálholti,
Ketilssonar og Ragnhildar Þórðardótt-
ur, sýslumanns á Ingjaldshóli, Stein-
þórssonar. Móðir Ingibjargar var
Guðrún Jónsdóttir, ættfoður Bílds-
fellsættarinnar, Sigurðssonar.
Sigurður tekur á móti gestum að
heimili sínu að Gullteigi 12 í dag,
milli kl. 16.00 og 19.00.
~f
si
Sigurður
Sveinbjörnsson.
Sigríður S. Thorlacius
Sigríður Stefánsdóttir
Thorlacius húsfreyja, Ból-
staðarhlíð 16, Reykjavík,
er áttatiu og fimm ára í
dag.
Starfsferill
Sigríður fæddist að Völl-
um í Svarfaðardal og ólst
upp í Svarfaðardalnum.
Hún naut almenns barna-
skólanáms og heimanáms
og stundaði siðar nám við
efri deild Samvinnuskólans
í Reykjavík 1931-32.
Sigríður stundaði verslunar- og
skrifstofustörf 1933-42, m.a. hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins 1936-42 og sinnti
jafnframt þingskriftum á nokkram
þingum. Þá samdi hún viðtöl og grein-
ar fyrir dagblaðið Tímann frá 1956 og
fleiri aðila um árabil og hafði umsjón
með útvarpsþáttunum Við sem heima
sitjum 1962-64.
Sigríður hefur sinnt ýmsum félags-
málum á vegum Styrktarfélags van-
gefmna, Kvenfélagasambands íslands
og Framsóknarflokksins. Hún var for-
maður Kvenfélagasambands íslands
1971-79, varaformaður Nordens
Husmorforbund 1972-76 og
formaður 1976-80, fulltrúi
Kvenfélagasambands ís-
lands á alþjóðaþingum The
Associated Country
Women of the World í
Nairobi 1976 og í Hamborg
1980, var fulltrúi í sendi-
nefndum ríkisstjórnarinn-
ar á ráðstefnum SÞ í
Mexíkó og Kaupmanna-
höfn um réttindamál
kvenna, sat í stjóm Styrkt-
arfélags vangefinna um
árabfi og vararformaður
þess um skeið, stjórnarfor-
maður dagheimilisins Lyngáss
1961-70 og síðan í stjóm þar og vinnu-
heimilisins Bjarkaráss.
Sigríður var varaborgarfulltrúi í
Reykjavík 1966-70, sat í Félagsmála-
ráði Reykjavíkur frá stofnun 1967-74,
í Fræðsluráði 1966-70, sat í miðstjóm
Framsóknarflokksins, i fulltrúaráði
framsóknarfélaganna í Reykjavík og í
blaðstjóm Tímans á árunum 1960-70,
sat í stjóm Félags framsóknarkvenna
í Reykjavík 1961-69 og var formaður
þess 1966-69.
Rit Sigríðar eru Ferðabók (ásamt
Birgi Thorlacius), útg. 1962; María
Markan, Minningar, útg. 1965; Margar
hlýjar hendur - Ágrip af sögu Kvenfé-
lagasambands íslands og aðildarfélaga
þess, útg. 1981; Saga Bandalags
kvenna í Reykjavík 1917-1977, útg.
1983. Þá hefúr hún ritað kafla í ritin
Faöir minn, presturinn; Því gleymi ég
aldrei; Konur skrifa til heiðurs Önnu
Sigm-ðardóttur; Gull í lófa framtíðar
(minningargrein um Svöfu Þórleifs-
dóttur);og Gestir í græna trénu. Þá
hefur Sigríður þýtt fjölda rita, einkum
bamabækur, s.s. eftir Enid Blyton og
fleiri, og þýtt leikrit.
Sigríður var ritstjóri Húsfreyjunn-
ar og tímarits Geðvemdar.
Fjölskylda
Sigríður giftist 13.5. 1939 Birgi
Thorlaciusi, f. 28.7. 1913, fyrrv. ráðu-
neytisstjóra. Hann er sonur Ólafs
Jóns Thorlaciusar, f. 1 Saurbæ í Eyja-
firði 11.3. 1869, d. 28.2. 1953, læknis í
Búlandsnesi, og k.h., Ragnhildar Pét-
ursdóttur Eggerz, f. 31.10.1879, d. 14.6.
1963, húsfreyju.
Systkini Sigríðar em öll látin. Þau
vom: Pétur Eggerz, f. 10.8. 1900, um-
boðssali i Reykjavík; Kristinn
Tryggvi, f. 8.10.1903, prófessor í lækn-
isfræði við HÍ; Sæmundur, f. 16.8.
1905, forstjóri í Kópavogi; Ingibjörg, f.
31.12. 1908, húsmóðir í Hrísey og í
Reykjavík; Jón Christinn, f. 29.7.1911;
Kristín, f. 9.7. 1916.
Foreldrar Sigríðar voru Stefán
Baldvin Kristinsson, f. 9.12. 1870, d.
7.12.1951, prestur að Völlum, og k.h.,
Solveig Pétursdóttir, f. 1.4. 1876, d.
22.6.1966, húsfreyja að Völlum.
Ætt
Stefán var sonur Kristins Tryggva,
b. í Ystabæ í Hrísey, Stefánssonar, b.
á Kjama í Eyjafirði, Baldvinssonar.
Móðir Stefáns var Kristín Hólm-
fríður Þorvaldsdóttir, b. á Krossum á
Árskógsströnd, Gunnlaugssonar.
Solveig var dóttir Péturs Eggerz,
kaupmanns í Akm-eyjum á Breiða-
flrði, Friðrikssonar Eggerz, pr. í Ak-
ureyjum, Eggertssonar. Móðir Frið-
riks í Akureyjum var Guðrún Magn-
úsdóttir, sýslumanns í Búðardal, Ket-
ilssonar. Móðir Péturs kaupmanns
var Amdís Pétursdóttir, pr. í Staf-
holti, Péturssonar.
Sigríður verður að heiman.
Sigríður S.
Thorlacius.
Hermann Jónsson
Hermann Jónsson, bóndi og fyrrv.
hreppstjóri á Lambanesi í Fljótum, er
sextugur í dag.
Starfsferill
Hermann fæddist á Móskógum í
Haganeshreppi og ólst upp á Mola-
stöðum í Fljótum. Hann vann ýmis
störf til sjós og lands 1954-60, var
bóndi á Merkigili í Eyjafirði 1960-65,
en hefur veriö bóndi á Lambanesi frá
1965.
Hermann hefur leikið á harmóníku
fyrir dansi og við ýmis tækifæri frá
því á unglingsárunum. Hann sat í
sóknamefnd Barðskirkju um árabil,
situr í stjóm Veiðifélags Miklavatns
og Fljótár, sat hreppsnefnd Holts-
hrepps 1970-82 og sat í hreppsnefnd
Fljótahrepps 1994-98, var hreppstjóri
Holtshrepps 1982-89 og fyrsti og síð-
asti hreppstjóri Fljótahrepps frá
1989-98 er hreppamir í Skagafirði
sameinuðust.
Fjölskylda
Hermann kvæntist 1.12. 1959 Auði
Ketilsdóttur, f. 19.10. 1937, húsfreyju.
Foreldrar hennar voru Ketill S. Guð-
jónsson, bóndi á Finnastöðum í
Hrafnagilshreppi, og k.h., Hólmfríður
Pálsdóttir húsfreyja.
Sonur Hermanns og Auðar er Haf-
þór, f. 19.4. 1960, bifvélavirki á Akur-
eyri, kvæntur Agnesi Amaldsdóttur
og eiga þau þrjú böm, Bryndísi, f. 3.2.
1980, Hermann, f. 13.8.1981, og Auði, f.
5.3. 1990.
Systkini Hermanns vora þrettán og
er einn bróðir látinn, Ásmundur, f.
1928, d. 1958. Þau sem era á lífi era Al-
freð, f. 1921, fyrrv. vegaverkstjóri á
Sauðárkróki; Guðmundur, f. 1923,
stofhandi og fyrrv. framkvæmdastjóri
BYKO í Kópavogi; Aðalbjörg, f. 1926,
húsfreyja i Varmahlíð í Skagafirði;
Sigríður, f. 1930, húsfreyja á Steins-
stöðum í Skagafirði; Svavar, f. 1931,
umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á
Húsavík; Kristinn, f. 1932, fyrrv.
strætisvagnastjóri í Reykjavík; Bald-
vin, f. 1934, verkamaður á Sauðár-
króki; Halldóra, f. 1935, kjötvinnslu-
kona á Selfossi; Pálmi, f. 1937, verka-
maður í Danmörku; Lúð-
vík, f. 1940, verkamaður á
Akureyri; Svala, f. 1945,
húsmóðir á Sauðárkróki.
Foreldrar Hermanns
vora Jón Guðmundsson, f.
3.9. 1900, d. 30.1. 1988,
bóndi og hreppstjóri á
Molastöðum, og k.h„ Helga
Guðrún Jósefsdóttir, f.
12.7.1901, d. 22.5.1971, hús-
freyja.
Ætt
Jón var sonur Guðmundar, b. á
Neðra-Haganesi, bróður Jóns, afa
Jóns Sveinssonar lögmanns. Guð-
mundur var sonur Halldórs, b. á
Stóra-Grindli, Guðmundssonar, b. á
Kjarvalsstöðum, Einarssonar. Móðir
Halldórs var Kristín, systir Margrét-
ar, langömmu Kristínar Jónsdóttur
listmálara. Kristín var dóttir Gísla,
konrektors á Hólum, Jónssonar, bisk-
ups á Hólum, Teitssonar. Móðir Gísla
var Margrét Finnsdóttir, biskups í
Skálholti, Jónssonar. Móð-
ir Kristínar var Ingiríður
Halldórsdóttir, konrektors
á Hólum, Hjálmarssonar.
Móðir Halldórs var Fil-
ippía Pálsdóttir, systir
Bjama landlæknis. Móðir
Guðmundar Halldórssonar
var Kristín Anna Filippus-
dóttir, b. á Illugastöðum,
bróður Guðmundar, b. á
Kjarvalsstöðum. Móðir
Kristínar var Anna Jóns-
dóttir, systir Guðrúnar,
ömmu Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi. Móðir Jóns var Aðalbjörg
Anna Pétursdóttir, b. á Sléttu, Jóns-
sonar, b. á Utanverðunesi, Ólafssonar.
Helga Guðrún var dóttir Jósefs, b. á
Stóra-Reykjum í Flókadal, Björnsson-
ar, sem fórst með Haffrúnni við Skaga
1864, b. í Hvanndölum, Gíslasonar, b.
i Saurbæ í Siglufirði, Hinrikssonar.
Hermann tekur á móti gestum í fé-
lagsheimilinu Ketilási í kvöld frá kl.
20.30.
Hermann Jónsson.
DV
Tll hamingju með afmælið 13. nóvember
90 ára
Astrid Þorsteinsson, Hrafiiistu, Hafnarfiröi.
80 ára
Helga Egilson, Þórsgötu 21 A, Reykjavík. Sigríður Þórðardóttir, Brekkubæ 42, Reykjavík. Hjalta Sigríður Júlíusdóttir, Víkurbraut 26, Höfn.
75 ára
Hermína Sigurðardóttir, Árskógum 6, Reykjavík. Guðbjörg Þórólfsdóttir, Háholti 31, Akranesi.
70 ára
Magdalena M. Kristjánsdóttir, Grundarbraut 6, Ólafsvík. Hún tekur á móti ættingjum og vinum að Árskógiun 6-8, Reykjavík, laugardaginn 14.11. milli kl. 16.00 og 19.00. Sigríður Aðalbjörg Jónsdóttir, Mávahrauni 14, Hafnarfirði. Hún er að heiman. Hreiðar Sigfússon, Ytra-Hóli n, Akureyri. Sveinbjöm Báröarson, Arnarvatni H, Reykjahlíð.
60 ára
Kristín Andrésdóttir, Norðurási 2, Reykjavík. Jóhanna Ragnarsdóttir, Laufengi 60, Reykjavík. Hjörtur Sigurðsson, Höfðavegi 1, Húsavík.
50 ára
Sigríöur Kristinsdóttir, Huldulandi 9, Reykjavík. Þorgerður Baldursdóttir, Hesthömrum 16 A, Reykjavík. Sigrún Finnjónsdóttir, Nýbýlavegi 62, Kópavogi. Margrét Kolka Haraldsdóttir, Asparlundi 9, Garðabæ. Guðrún E. Magnúsdóttir, Breiövangi 10, Hafnarfirði. Ólafur Sigurpálsson, Baðsvölliun 8, Grindavík. Kristín Thorberg, Bergvík, Mosfellsbæ. Ámi Sigurðsson, Reykjabyggð 8, Mosfellsbæ. Lidia Plociszko, Gilsbakka 4, Bíldudal. Stefán Hermansson, Brálundi 2, Akureyri. Margrét Sölvadóttir, Huldugili 3, Akureyri. Áslaug Helga Alfreðsdóttir, Grand, Grímsey. Jón Þ. Guðmundsson, Lónabraut 32, Vopnafirði.
40 ára
Ágúst Jörgensson, Otrateigi 28, Reykjavík. Jón Viðar Gunnarsson, Sigtúni 25, Reykjavík. Ragnhildur Guðjónsdóttir, Dúfnahólum 4, Reykjavík. Stefán Stefánsson, Hverafold 14, Reykjavík. Ólafur Þór Ævarsson, Stórahjalla 9, Kópavogi. Steingerður Matthíasdóttir, Öldugötu 46, Hafnarfirði. Guðmundur Hjörleifúr Antonsson, Klapparbraut 10, Garöi. Sveinbjöm Rúnar Helgason, Aöalstræti 37, Patreksfirði. Kolbrún Tómasdóttir, Brekkugötu 31, Akureyri. Ari Bjöm Fossdal, Fögrusíðu 9 B, Akureyri.