Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Side 32
 (» FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 Fjölbraut í Breiðholti: Brottvísun eftir ræðukeppni Tveimur nemendum Fjölbrauta- skólans í Breiðholti hefur verið vísað "^tímabundið úr skóla í kjölfar ummæla og meintra hótana sem fram komu eft- ir að lið skólans tapaði fyrir liði Menntaskólans á Akureyri í ræðu- keppni Morfls. „Ég lít svo á að hér sé um innan- skólamál að ræða. Við erum enn að vinna í því,“ sagöi Kristín Arnalds, skólameistari FB, í samtali við DV. Skólaráðsfundur var haldinn í FB vegna málsins í gær. Guðfinnur Sigurvinsson, inspector scholae í MA, sagðist harma þau eftir- mál sem urðu af keppni skólanna. Fulltrúar FB voru ósáttir við úrslit keppninnar og óskuðu m.a. eftir að fá gögn dómara. Síðan var lögð fram kæra til framkvæmdanefndar Morfís. 'tr „Þetta var samt góð keppni. Ég vona að þetta eigi ekki eftir að hafa nein neikvæð áhrif á samskipti FB og MA í framtíðinni," sagði Guðftnnur. Gunnlaugur Bjarki Snædal, tals- maður Morfis, sagði að „Réttur Mor- fís“ hefði fjallað um kæru FB. „Niður- staðan varð sú að henni var vísað frá,“ sagði Gunnlaugur. -Ótt Fyndni er fíkn! Á JSfe*;,. «r vL te^ * Helgarblað DV: Skemmtana- fíkillinn í Helgarblaði DV er að þessu sinni rætt við einn vinsælasta leikara Is- lands, Örn Árnason, en hann leikur einmitt í farsanum Tveir tvöfaldir sem frumsýndur verður í kvöld. Örn ræðir um verkið, vanda þess og veg- semd að vera fyndinn og fiknina i að vera fyndinn. Meðal annars efnis er viðtal við Hlín Agnarsdóttur leikritahöfund um Svannasöng og leikhúsheiminn. Einnig er rætt við Gerði Kristnýju í tilefni af útkomu bókar hennar, Eitr- ' *uð epli. í fréttaljósum er fjallað um varaformannsslag í Sjálfstæðisflokkn- um og Newt Gingrich. -sm/-þhs Kópavogsbúi dæmdur eftir að hafa lagst hjá sofandi stúlku á heimili sínu: Kynferðisbrot gegn kærustu stjúpsonar - kvaðst ekki geta kallað tilburðina samfarir vegna getuleysis undir áhrifum Hálfflmmtugur Kópavogsbúi hef- ur verið dæmdur í 9 mánaða fang- elsi, þar af 6 skilorðsbundið, fyrir kynferðisbrot á heimili sínu gagn- vart unnustu stjúpsonar síns - stúlku sem ekki gat spomað við verknaði mannsins sökum ölvunar- svefns. Maðurinn er jafnframt dæmdur til að greiða stúlkunni 350 þúsund krónur í miskabætur og 220 þúsund krónur vegna máls- og lög- mannskostnaðar. Aðfaranótt 24. október 1997 sat stúlkan við drykkju með kærasta sínum á heimili stjúpfóður hans. Þau sofnuðu bæði ölvunarsvefni, hvort á sínum staðnum í íbúðinni, áður en ákærði kom heim af öldur- húsi. Stjúpfaðirinn kvaðst hafa þurft að hagræða stúlkunni á sófa er hann kom heim. í framhaldi af því hefði hann klætt hana úr öllum fótum. Þá fór hann að strjúka henni og þukla og bar olíu á allan líkama hennar og lagðist ofan á hana. Hann kvaðst ekki geta kallað kynferðis- lega tilburði sína gagnvart stúlkunni samfarir af þeim sökum að hann hefði ekki haft getu til slíks þar sem hefði neytt áfengis. Ákærði viðurkenndi að stúlkan hefði hins vegar hvorki tjáð sig með orðum né hefði hún verið með augun opin. Stúlkan bar að þegar hún vakn- aði af ölvunarsvefninum hefði hún talið kærastann vera ofan á sér. Henni hefði síðan brugðið mjög er hún „heyrði“ að þetta var stjúpi kærastans. Stúlkan sagðist síðan þurfa að fara á klósettið og sagði kærasta sínum svo frá því sem hafði gerst. Hann trúði henni ekki fyrst. í fjölskipuðum dómi Héraðsdóms Reykjaness segir eftirfarandi i nið- urstöðum: „Ákærði hafði enga ástæðu til að ætla að X vildi þýðast hann eða eiga við hann kynferðislegt samneyti og sú staðreynd að hann vissi að hún átti vingott við og var kærasta stjúpsonar hans styður þá ályktun. Ekkert hefur fram komið í fram- burði ákærða sem réttlætt getur eða skýrt með nokkrum skynsamlegum hætti þá ákvörðun hans að afklæða X sem svaf ölvunarsvefhi og leggja hana allsnakta á sófann þar sem hann lagðist síðan allsnakinn." Samkvæmt þessu taldist sönnun komin fram um að ákærði hefði not- fært sér stúlkuna til að hafa við hana mök sem hún gat ekki sporn- að við vegna ölvunarsvefns. Héraðs- dómararnir Sveinn Sigurkarlsson, Jónas Jóhannsson og Þorgeir Ingi Njálsson kváðu upp dóminn. -Ótt Líðan eftir atvikum 38 ára Reykvíkingur lét lífið og rúmlega fimmtugur Rangæingur slas- aðist lífshættulega þegar bílar þeirra skullu mjög harkalega á stórum flutn- ingabíl sem hafði farið þversum á brúnni yfir Gljúfurholtsá í Ölfusi í gærmorgun. Að sögn yfirlæknis á Landspítalanum í morgun gekkst Rangæingurinn undir aðgerð í gær- kvöld og var „líðan eftir atvikum". Slæm aksturskilyrði voru á þjóð- veginum sem er skammt austan Hveragerðis. Ökumaður flutningabils- ins, sem var á leiðinni til Selfoss, missti stjórn á honum þannig að hann rann í veg fyrir fólksbíl Reykvíkings- ins og jeppa Rangæingsins sem komu úr gagnstæðri átt. Þyrlan TF-LÍF flutti hinn slasaða til Reykjavíkur. Flutn- ingabílstjórinn slapp að mestu við meiðsl. -Ótt DV-myndir Sunnlenska fréttablaöið Tobliromi' 'ífdtindur ánæg,jimnar Veðrið á morgun: Bjart sunn- an- og vest- anlands Á morgun er gert ráð fyrir norðaustankalda. Á Austfjörðum verður norðan stinningskaldi eða allhvasst. Dálítil él verða um landið norðan- og austanvert en víða bjart sunnan- og vestan- lands. Frost verður á bilinu 0 til 5 stig, kaldast norðaustan til. Veðriö í dag er á bls. 29. T'Vl.V SYLVANIA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.