Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Orkumiöill fékk fangelsisdóm í gær fyrir að nudda 15 ára stúlku á viðkvæmum stöðum:
Kynhvataráhrif „Ramusar"
- voru skýringar mannsins þegar hann viðurkenndi verknaðinn fyrir móður stúlkunnar
Sextugur Hafnfirðingur var í gær
dæmdur í þriggja mánaða fangelsi
skilorðsbundið fyrir að hafa sem
orkumiðill nuddað 15 ára stúlku á
lostugan hátt á „öðrum og við-
kvæmari stöðum líkamans en til
hafði verið ætlast, svo sem brjóst-
um, maga, lífbeini og lærum“.
Maðurinn viðurkenndi verknað
sinn fyrir móður stúlkunnar fjórum
dögum eftir að hann átti sér stað. Þá
kvaðst hann „hafa grátið alla helg-
ina“. Siðan hefði hann leitað sér
hjálpar hjá tveimur miðlum. Annar
þeirra hefði sagt sér að það væri
andi yfir honum, „Ramus“, sem
fengi hann til að „gera þessa hluti“.
Orkumiðillinn, sem kvaðst vera
menntaður bæði hér á landi og hjá
rússneskum miðli, var að sögn móð-
urinnar mjög skömmustulegur þeg-
ar hann skýldi sér á bak við vald
framangreinds Ramusar sem mað-
urinn sagði stjóma kynhvöt. Mað-
urinn hafði reyndar sagt í símtali
við móðurina að „hann hefði ekki
vitað hvað kom yfir hann“.
Höfuðbeina- og spjaldhryggsnudd
átti meðferð mannsins að heita þeg-
ar hann meðhöndlaði stúlkuna.
Hann lét hana þá afklæðast öllu
nema nærfötum og að áliti dómsins
kom hann síðan fram við hana með
lostugum hætti. Stúlkan varð
hrædd og kom sér út. Hún lét móð-
ur sína vita og fékk hún fljótlega
fram viðurkenningar hjá orkumiðl-
inum sem nýttust dóminum mjög
við sönnunarfærslur.
Maðurinn kvaðst vera lærður
svæðanuddari en áður en hann lauk
því námi hefði hann „lært fag orku-
miðla“ hjá rússneskum orkumiðli,
Jósefinu Straemeister, sem hefði
verið hér á landi árið 1994.
Hann kvaðst hafa verið undir
hennar handleiðslu í 3 mánuði. í
framhaldi af því hefði hann verið í
þjálfun „hjá ýmsum öðrum". Þá
hafi hann lært „rollving" sem út-
leggist sem ofanafvinding - sérstök
tækni til að losa um spennu í líkam-
anum.
Aðspurður um merkingu starfs-
heitis þess sem ákærði notaði svar-
aði hann:
„Orkumiðill er sá sem getur tengt
sig við alheimsorkuna og miðlað
henni í lækningaskyni út um hend-
umar.“
Þegar ákærði lauk námi í svæða-
nuddi í Nuddskóla Reykjavíkur árið
1996 opnaði hann stofu að Strand-
götu 28 í Hafharfirði. Umræddur at-
burður átti sér stað í nóvember í
fyrra. Orkumiðillinn sagðist nýlega
fyrir dómi vera hættur starfsemi.
-Ótt
Open Dutch Championship 1998:
íslendingar
fengu silfur og
brons í Hollandi
Tvö af sterkustu danspömm ís-
lands tóku þátt í opinni
danskeppni, „Dutch open“, sem
haldin var í Slageren f Hollandi
dagana 13. og 14. nóvember. Það
voru þau ísak Halldórsson og Hall-
dóra Ósk Reynisdóttir frá dansfé-
laginu Hvönn og Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnús-
dóttir frá dansfélaginu Gulltoppi.
Á föstudag var keppt í standard-
dönsum og lentu þau ísak og Hall-
dóra Ósk í 3. sæti og Gunnar Hrafn
og Sigrún Ýr í 4. sæti. Þetta er at-
hyglisverður árangur þar sem ís-
lensku danspörin hafa verið sterk-
ari í suður-amerískum dönsunum.
Á laugardag var svo keppt í suð-
ur-amerískum dönsum og gerðu
þau ísak og Halldóra Ósk sér lítið
fyrir og kræktu sér í silfurverð-
laun en Gunnar Hrafn og Sigrún
Ýr höfhuðu í 7. sæti. Þessi tvö pör
hafa verið að ná mjög góðum ár-
angri bæði hér heima og erlendis.
-Lára
Festist
undir brú
Flutningabfli með farm
festist undir brúnnl
undir Reykjanesbraut i
Garðabæ um hádegisbil
í gær. Bíllinn komst
ekkert áleiðis heldur sat
þarna fastur undir
brúnni. Eftir nokkra
stund tókst að losa
kassa á palli bílsins og
þá tókst að losa bflinn.
Litlar skemmdir urðu á
kössum en brúin
skemmdist ekkert að
sögn lögreglu. Bflstjóra
bílsins sakaði ekki.
DV-mynd Erling
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra tók í gær fyrstu skóflustunguna að
nýjum álmum við sjúkrahúsið Vog. í annarri álmunni verður göngudeild en í
hinni verður sérstök meöferðardeild fyrir ungt fólk. Áætlað er að
framkvæmdirnar taki 10 mánuöi. Byggingarkostnaður við nýju álmurnar er
áætlaður um 200 milljónir króna. DV mynd E.ÓI.
íslensk húsmóöir heim í lögreglufylgd frá Bandaríkjunum:
Reif kjaft en beit engan
- sagði yfirmann vera lítt niöurvaxinn, segir konan
Konan, sem vísað var úr landi í
Bandaríkjunum fyrir helgina, mót-
mælir því að hún hafi bitið tollvörð og
sparkað milli fóta á öðrum eins og
samferðakonur ytra héldu fram í sam-
tali við DV á mánudag. „Það sem gerð-
ist var að ég móðgaði opinberan starfs-
mann, yfirmann, ég var að rífa kjaft,“
sagði konan í gær. Hún segist hafa orð-
ið ergileg yfir grænum eyöublöðum
sem átti að útfylla um borð. Konan seg-
ist hafa verið drukkin og ergileg eftir
það sem hún taldi óréttláta meðferð á
sér af hálfu fararstjórans. Sagði hún
sem svo að sér þætti embættismaður-
inn litt niðurvaxinn svo notað sé orða-
lag formæðra konunnar í Grettissögu.
En á ensku mun það hafa hljómað:
„You have small balls". Konan segist
ekki hafa gert sér grein fyrir því hvað
svona kjaftbrúk gæti umtumað öllu í
Bandaríkjunum, þetta hefði verið
meira sagt i galsa.
Hún segir að fararstjórinn hafi
neitað að afhenda brottfararspjöld í
því skyni að takmarka tímann í frí-
höfninni við eina klukkustund. Farið
hefði verið með orlofskonumar 114
eins og leikskólakrakka. Henni og
vinkonu hennar tókst hins vegar að
ná brottfararspjöldum sínum í rút-
unni í Garðabænum, tóku leigubU
þaðan á flugvöllinn og höfðu þar með
rýmri tíma til innkaupa í Leifsstöð.
Meðal annars þurftu þær að garfa í
punktum sem þær áttu eftir mikið
flug með Flugleiðum og fengu út á það
sæti á Saga Class vestur.
í fangelsi fyrir móðgun
Konan segir það ósatt að hún hafi
bitið tollvörð og sparkað í annan
millifótasparki. En hún var eigi að
síður handtekin á vellinum og þurfti
að dúsa í fangelsi yfir nóttina.
„Ég er ekki vön að drekka í flug-
vél, sérstaklega vegna þess að ég
nenni ekki að drekka þegar ég get
ekki fengið mér smók, en þama sát-
um við tvær á Saga Class, komnar í
orlof og fengum okkur í glas. Ég við-
urkenni það alveg að ég drakk of
mikið. En ég er ekki vön að ráðast á
fólk og bíta í það eða sparka," sagði
konan. Hvergi væri slíkt að finna á
lögregluskýrslu.
„Ég var tU fyrirmyndar og mér var
leyft að versla áður en ég fór héim,
það er ekki venjan með stórglæpa-
menn,“ sagði konan. Hún segist ekki
vera á sakaskrá og henni hafi verið
ijáð að hún væri ævinlega velkomin
tU Bandaríkjanna.
Tveir lögreglumenn frá íslandi
komu og sótti konuna. Konan segir
að lögreglan fari margar ferðir í
mánuði tU útlanda til aö sækja eða
fara með fólk sem Útlendingaeftirlit
vill gjarnan losna við. Henni hafi
síðan verið sagt eftir nóttina í fang-
elsinu að íslensku konumar hefðu
margar verið ærið skrautlegar við
komuna, en þær hefðu hins vegar
ekki móðgað neinn.
„Það voru allir óskaplega leiðir
yfir því aö ég yrði send heim en það
var of seint að breyta því. Þetta
gerðist allt á stuttum tíma, ég
móðgaði yfirmann, og hann sagði
bara „heim með hana“, og því varð
ekki breytt," sagði konan i samtal-
inu við DV. Konumar 113 úr hús-
mæðraorlofinu komu heim í gær-
morgun. -JBP
Stuttar fréttir i>v
Stefán
Stefán Guð-
mundsson, þing-
maður Framsókn-
arflokksins á
Norðurlandi
vestra, hefur tU-
kyxmt að hann
standi við fyrri yf-
irlýsingu sína að
hætta þingmennsku. Vangaveltur
hafa verið uppi um að hann hafi
„hætt við að hætta". Bylgjan sagði
frá.
Fjögurra ára fangelsi
Sólrún Elídóttir, 42 ára, hefúr
verið dæmd í fjögurra ára fangelsi
fyrir að stinga fyrrum sambýlis-
mann sinn meö hnifi í brjósthol 1.
mars sl. Hún hefúr fengið 15 refsi-
dóma frá árinu 1973.
Auðveldara á Landspítala
Kransæðasjúklingar sem leggjast
inn á Landspítala fara þrisvar sinn-
um oftar í kransceðavíkkun innan
eins árs frá kransæðastíftu en sjúk-
lingar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Að-
gangur að aðgerðunum virðist greið-
ari en á Landspítala. Stöð 2 sagði frá.
Parkinsonlyf bannað
Lyfið Tazmar, sem um eitt hundrað
Parkinsonsjúklingar á íslandi hafa tek-
ið reglulega undanfarið, hefúr verið
bannað hér á landi vegna tilmæla frá
Evrópusambandinu. RÚV sagði frá.
Hjálp til Mið-Ameríku
Ríkisstjómin
hefúr ákveðið
að veita tvær
milljónir króna
tU hjálparstarfs
í Mið-Ameríku,
samkvæmt tU-
lögu Halldórs
Ásgrímssonar
utanrUdsráðherra. Bylgjan sagði
frá.
Netviðskiptamiðstöð
Hópur bandarískra fyrirtækja
Uiugar að setja upp viðskiptamið-
stöð hér á landi sem sérhæfir sig í
viðskiptum á Netinu. Eyjafjörður
og Reykjanes em óskastaðsetningar
fyrirtækjanna, samkvæmt heimUd-
um Stöðvar 2
Tölvutilboð Vísis
TölvutUboði Vísis is. og Lands-
bankans, „Greið leið á Intemetið“
hefúr verið vel tekið. Tugir tölva
hafa þegar selst og hundruð fyrir-
spuma borist. Tölvumar sem í boði
em era tU sýnis í mörgmn útibúa
Landsbankans, á síðum DV og á
heimasíðu Vísis is.
Sjóli til Afríku
Sjólaskip hf. í Hafharfirði hafa
gert samning um endurbyggingu og
útgerð tveggja risatogara frá Lit-
háen. Skipin verða gerð út tU mak-
rUveiða við Afrikustrendur.
Hærri afnotagjöld RÚV
Ríkisstjómin
hefur heimilað
Rikisútvarpinu
að hækka af-
notagjöldin um
5%, úr 1754 kr á
mánuði í 1841
kr. Markús Öm
Antonsson út-
varpsstjóri segir
hækkimina tU að vega upp á móti
verulegum kostnaðarhækkunum
síðan 1993 þegar gjaldið hækkaði
síðast.
Fyrirskipaði lygar
Samkvæmt heimUdum Bylgjunn-
ar fyrirskipaði Guðmundur Bjöms-
son, formaður læknafélagsins, fram-
kvæmdastjóra læknafélagsins, Páli
Þórðarsyni, að segja lögfræðingi ís-
lenskrar erfðagreiningar að hinn
sögufrægi fundur Kára Stefánsson-
ar og læknafélagsins yrði ekki tek-
inn upp. DV fjaUaði ítarlega um
málið fyrir stuttu.
Var ekki í FG
Skólameistari Fiölbrautaskól-
ans í Garðabæ hefur óskað eftir
að fram komi aö í frétt DV í gær
um dreng sem missti tvær tenn-
ur eftir hnefahögg hefði veriö
sagt að árásarmaðurinn hefði
verið nemandi i FG en svo hafi
ekki verið. Um var að ræða 16
ára pilt. -SÁ