Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 Fréttir Samfylkingarmál félagshyggjufólks: Uppnám á vinstri kanti - Margrét Frímannsdóttir hótar að fara fram í Reykjavík og setja Svavar á Suðurland Vinstra samfylkingarframboðið er í uppnámi þessa dagana. Krafa Kvennalistans sem samþykkt var á aukalandsfundinum í Reykholti í Borgarfirði á dögunum um að skil- yrða þátttöku sína við það að listinn fengi eitt af þremur efstu sætum væntanlegra framboðslista virkaði eins og sprengja inn í samfylkingar- viðræðumar. Þeim kröfum hefur nú verið vísað á bug af A-flokkunum. Fulltrúar beggja A-flokkanna voru þeirrar skoðunar í gær í samtölum við DV að standa skyldi fast við það að hafna kröfúnni, enda væri ekki eftir miklu fylgi að slægjast hjá Kvennalistanum. Aðstandendur list- ans yrðu síðan að gera það upp við sig hvort þeir drægju sig út úr sam- starfmu. En krafa Kvennalistans er vissu- lega ekki eini vandinn við að koma saman samfylkingarframboðinu: A- flokkana greinir í grundvallaratrið- umáum aðferð við að raða á listana. Ágreiningurinn er um hvort fara eigi fram prófkjör eða einhvers konar for- val í stíl Alþýðubandalagsins. Að hluta til er skýringar á skyndilegum hörðum við- brögðum A- flokkanna, ekki síst þó Sighvats Björgvinssonar, formanns Al- þýðuflokksins, gegn Reykholts- kröfú Kvenna- ____________________ listans um örugg sæti að leita í þessum ágrein- ingi A-flokkanna. En þessi ágreining- ur er þó ekki bundinn við flokkana heldur er hann líka innan þeirra hvors um sig. Meginreglan sveigð Alþýðuflokkuriim stendur að stór- um hluta einhuga og fast á þeirri skoðun að halda eigi opið prófkjör með girðingum. Alþýðubandalagið aðhyllist uppröðun að undangengnu einhvers konar forvali en er klofið í málinu eins og sést af tillögu sem einn fúlltrúa Alþýðubandalagsins i samstarfsnefndinni um samframboð, Gísli Gunnarsson prófessor, lagði fram fyrir nokkrum vikum. Sú til- laga var um að valið yrði á lista í sameiginlegu prófkjöri og var hún samhljóða hugmyndum alþýðu- flokksmanna. Tillagan byggist á sam- þykktum Alþýðubandalagsfélaganna Birtingar og Framsýnar sem hafa bæði ályktað um prófkjör. Önnur Össur Skarphéð- insson. Flokkseig- endur Alþýðu- bandalags óttast að prófkjör muni skila honum upp fyrir Svavar Gests- son. Bryndís Hlöðvers- dóttir. Gamlir al- þýðubandalags- menn hafa jafnvel meiri beyg af henni en Óssuri. Fréttaljós Stefán Ásgrímsspn flokksfélög og stofnanir Alþýðu- bandalagsins hafa hins vegar aldrei tekið afstöðu til prófkjörs, að því er Gísli Gunnarsson sagði í samtali við DV í gærkvöldi. Þessar prófkjörshugmyndir eru sem eitur í bein- um forystu Al- þýðubandalags- ins sem verið hefur að missa hvem gamla jaxl- inn af öðrum fyr- ir borð vegna óá- nægju þeirra með samfylking- una. Ótta við prófkjörshug- myndimar er að líkindum að rekja til þess að þegar em þau farin, Hjör- leifur, Steingrímur, Ögmundur, sem raunar var laustengdur við þingflokk Alþýðubandalagsins sem óháður, Kristinn H. Gunnarsson og Guðrún Helgadóttir varaþingmaður. Forystu- mennimir telja að tengingin við for- tíðina sé að roflia. Til að hún rofni ekki að fullu telur forystusveitin nauðsynlegt að Svavar Gestsson verði einhvers konar leiðarmerki í hinu pólitíska landslagi sem villuráf- andi sauðir Alþýðubandalagsins hvar sem er á landinu geti horft til og séð að þeim sé óhætt að kjósa sam- fylkinguna í næstu kosningum. Allt tal um prófkjör stefni þessu mark- miði í voða. Teknir á beinið DV hefur heimildir fyrir því að Margrét Frímannsdóttir hafi kallað prófkjörssinna i eigin flokki á sinn fund i fyrradag til að leiða þeim þess- * *£*>' A Margrét Frímanns- Svavar Gestsson. dóttir. Hún hótaði Erfiðleikarnir með prófkjörssinnum i aö ákveöa prófkjör Reykjavík því að eða ekki prófkjör taka opið prófkjör snúast í raun um Reykjavík með hann og pólitíska trompi en senda framtíö hans. Svavar í efsta sæt- ið á Suðurlandi. R Æbb\: ,4b- j B fl •§«, IW iK Wsi ■ Sighvatur Björg- Guðný Guöbjörns- vinsson. Bendir á dóttir. Óviss póli- Kvennalistann í tísk framtíð. vandanum. ar hugmyndir fyrir sjónir. Hún hafi jafnframt hótað því að létu þeir sér ekki segjast myndi hún leggja til að í Reykjavík færi fram galopið próf- kjör. Sjálf myndi hún gefa kost á sér í efsta sætið í Reykjavík en Svavar Gestsson færi í efsta sætið í Suður- landskjördæmi. Þannig gæti Alþýðu- bandalagið náð bæði fyrsta og öðm sætinu í Reykjavík og kratar og ekki síður aðrir frambjóðendur lent neðar en þeir myndu sætta sig við. Margrét neitaði þessu í gær í sam- tali við DV þrátt fyrir að blaðið hafi traustar heimildir fyrir því að hún hafr rætt þetta við einstaka flokks- menn, þeirra á meðal alþingismenn, en einnig viðrað hugmyndimar í samstarfsnefndinni um samfylking- una og við alþýðubandalagsmenn á Suðurlandi. DV innti Bryndísi Hlöðversdóttur eftir málinu i gær en hún baðst eindregiö undan því að svara. Prófkjörssinnar eru á hinn bóg- inn ekki ókátir yfir þessari galopnu prófkjörshugmynd og telja hana raunar mjög góða en segja að í raun hangi allt annað á spýtunni. Opið prófkjör muni skapa mikla stemningu fyrir samfylkingarfram- boðinu. Þá fengist með því mun vænlegri og sigurstranglegri listi auk þess sem lýðræðissjónarmið yrðu betur í heiðri höfð við val á listann og á því sé ekki vanþörf. Ótti við Össur og Ágúst Það kann að virðast mótsagna- kennt að forysta Alþýðubandalags- ins skuli á sama tíma bæði vilja prófkjör og vilja það samt ekki, en á þessu er skýring: Heimildarmenn innan beggja A-flokkanna segja að í raun snúist málið um tengslin við fortíðina sem áður hafa verið nefnd, persónu Svavars Gestssonar og framtíð Alþýðubandalagsins. Hagsmunir hvors tveggja, Svavars Gestssonar og flokksins, verði best tryggðir með því að ekki verði hald- ið prófkjör í Reykjavík og Svavar fái fyrsta sætið án prófkjörs. Hann verði sá Hallgrímskirkjutum sem alþýðubandalagsmenn sjái fyrir sér hvar á landinu sem þeir eru stadd- ir og kjósi rétt og forðað frá þeirri hættu að Össur Skarphéðinsson sigri í prófkjöri og hreppi efsta sæt- ið eða að Bryndís Hlöðversdóttir verði kjörin i sæti fyrir ofan Svav- ar sem margan cdþýðubandalags- manninn hryllir jafnvel enn meira við og muni marka endalok Alþýðu- bandalagsins sem flokks. Hluti alþýðuflokksmanna hefur fallist á þetta þrátt fyrir þá megin- skoðun sína að velja skuli á lista með prófkjöri. Ástæðan er sú að þau Guðmundur Árni Stefánsson og Rannveig Guðmundsdóttir í Reykjaneskjördæmi vilja helst upp- stillingu í Reykjanesi af ótta við að Ágúst Einarsson skjóti þeim ref fyr- ir rass í prófkjöri. Það standa því mörg spjót á Sighvati Björgvins- syni, formanni krata, og í því ljósi vilja margir skoða skyndileg við- brögð hans við löngu fram kominni kröfu Kvennalistans um „góð“ sæti á listum samframboðsins. í raun- inni sé verið að bæta eigið böl með því að benda á eitthvað annað. Kennitala með barnslegt andlit Ríkisvaldið hefur verið iðið við þaö að undanfórnu að selja undan sér eignirnar. Enda ekki vanþörf á. Einhvem veginn þarf ríkissjóður að standa undir útgjöidunum og afborg- ununum og til þess þarf að selja eignir til að eiga fyrir skuldum. Það er heldur enginn skortur á kaupend- um eins og við urðum vitni að þegar hlutabréf í Landsbankanum voru seld og þarna komu menn með bamsleg andlit og keyptu og sögðust vera að kaupa fyrir almenning. Almenningurinn sem keypti í Landsbankanum voru starfsmenn bankans, sem vom ginntir til fjár- festingarinnar og verða svo rukkað- ir um gróðann af kaupunum þegar- upp verður staðið. Og svo náttúrlega maðurinn með barnslega andlitið, sem kom í Ijós að keypti fyrir Bmnabótaforstjórann sem hefur það að atvinnu að leika sér með fjár- muni annarra en hefur ekki nægi- lega bamslegt andlit til að svara sjálfur fyrir kaupin. Nú er verið að selja hlutabréf í Fjárfestingar- bankanum sem var settur á stofn til að selja hann og starfsfólkið fær ekki að kaupa bréf en þess í stað hafa verðbréfamarkaðsfyrirtæki tekið að sér að safna kennitölum hjá fólki út í bæ til að geta keypt bréfin fyrir sjálfan sig. Nú eða þá Branabót, sem enn þá á nóg af peningum eftir aö hafa selt Vátryggingarfélagið og keypt í Landsbankanum. Söfnun á kennitölum er þannig orðin að sjálf- stæðri atvinnugrein til að safna hlutabréfum og arði, til að mæta þeim kröfum ríkisvaldsins að al- menningur eignist bankana. Ríkisstjórnin má ekki til þess vita að bankamir seljist öðmvisi en að almenningur kaupi og forsætisráöherra vill til að mynda selja útgerðina til almenn- ings og þannig getur almenningur orðið eigandi að öllum fyrrverandi eigum ríkisins, með því að verð- bréfasalar safni kennitölum almenn- ings, enda þótt almenningur í sjálfu sér eignist ekkert af þessum bréfum, vegna þess að kennitölumar era bara til notkunar meðan keypt er. Svo era kennitölumar þurrkaðar út og áður en ríkisvaldið getur snúið sér við eru komnir nýir eigendur að bréfunum sem kennitölumar keyptu. Þeir eigendur era ekki með bamslegar andslitsgrímur og þurfa ekki lengur að villa á sér heimildir. Enda geta menn sýnt á sér hið rétta andlit þegar kaupin eru í höfn. Trikkið er að hafa nógu margar kennitölur og finna menn með bams- leg andlit til að kaupa, til að þeir með réttu andlitin eignist bréfrn þegar öll kurl eru til grafar komin. Enda mundi ríkissjóður aldrei geta selt bank- ana sina nema þeir sem eiga peningana og hin réttu andlit reiddu fram féð fyrir almenning, sem lánar kennitölur sínar, svo bankarnir komist I réttar hendur. Dagfari Stuttar fréttir :dv Telur ósannað Vísirsegirfráþví að Ragnar H. Hall telji með öllu ósann- að að Böðvar Braga- son hafi fengið vit- neskju um þær grunsemdir Þor- steins Hraundal að einn starfsmaður hafi tekið nokkrum sinnum amfetamin úr tæplega 500 g pakka sem geymdur var i skúöú á skrifstofu Bjöms Halldórssonar, þá- verandi fulltrúa i ÁFD. Hann telur þar af leiðandi ekki ástæðu til frekari aðgerða af hálfu lögreglu í málinu. Gagnrýnir vinnubrögð Félagsfundur Dýralæknafélags ís- lands, sem haldinn var 14. nóvember, gagnrýnir harðlega slæleg vinnu- brögð landbúnaðarráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins við undirbún- ing að framkvæmd nýrra laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu viö dýr sem taka eiga gildi 1. janúar. Lög- in eru sett í þeim tilgangi að færa dýralæknaþjónustu að kröfúm nútím- ans m.a. með aöskilnaði eftirlitsþátt- ar dýralækna og almennrar dýra- læknisþjónustu. Lögin hafa þær breytingar í fór með sér að embættum héraðsdýralækna fækkar úr 31 í 17. Yrði ekki tekinn upp Bylgjan greindi frá því að Guð- mundur Bjömsson, formaður Læknafé- lagsins, hafi beðið Pál Þórðarson, framkvæmdasflóra félagsins, að segja lögfræðingi íslenskrar erfðagrein- ingar að hinn sögufrægi fundur Kára Stefánssonar og Læknafélags- ins yrði ekki tekinn upp. DV íjaliaði ítarlega um þetta mál fyrir stuttu. Nánari upplýsingar er að finna á www.visir.is Þarf að skilja á milli Þorkell Jóhannsson, prófessor í lyflafræði við Háskóla íslands, segir að auðvitað sé nikótín baneitrað. Hann segir að hitt sé annað mál að efhið hafi sitthvað sér til ágætis. „Gallinn við nikótín, eins og koffrn, er sá að fólk neyðist til að taka það inn meö mörgum öðrum efnum. Það er mitt mat að skilja þurfi á milli nikótíns annars vegar og tóbaks hins vegar.“ Dagur greindi frá. Niðurrifi frestað Bylgjan greindi frá því að fresta eigi fyrirhuguðu niðurrifi Nýja-bíós við Lækjargötu þar til eftir jóL Ástæð- an em hávær mótmæh kaupmanna í nágrenninu sem segja að fram- kvæmdimar myndu trufla umferð um miðbæinn í jólamánuðinum. Siv með heimasíðu Siv Friðleifs- dóttir, þingmaður Framsóknar- flokksins, er kom- in með heimasíðu. Slóðin er www.siv.is Umferðarátak á SV-landi Dagana 17. til 23. nóvember mun lögreglulið á Suðvesturlandi gangast fyrir umferðarátaki. Að þessu sinni munu lögregluliðin beina athygli sinni að akstri við gatnamót, notkun stefiiuljósa, ljósabúnaði ökutækja, dekkjabúnaði stórra ökutækja, notk- un rauðra skráningarmerkja, gang- andi vegfarendum og notkun endur- skinsmerkja. Nýtt Evrópuráðsverkefni Fyrirtækið Skref fyrir skref ehf. hefúr fengið styrk frá Evrópuráðinu - ijórðu rammaáætlun í jafiiréttis- málum, til að vinna að rannsókn undir heitinu „Gæði og jafhræði í ákvarðanatöku á stjórnarstigum". Markmið fyrsta hluta rannsóknar- innar er að skoða hlut kynja í sveit- arstjómum og hvaða hindranir er að fmna fyrir jafhri þátttöku kvenna og karla til ákvarðanatöku. Boðnir styrkir Bændablaðið greinir frá því að stjóm Landssambands kúabænda hafi nýlega samþykkt að bjóða slát- urleyfishöfum sem meðhöndla nautakjöt styrki til að úrbeina og frysta kýrkjöt. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.