Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 Fréttir Byggingarleyfi Laugavegar 53b fellt úr gildi: Upplífgandi úrskurður - vekur von um lausn málsins, segja nágrannar Rangárvallaprófastsdæmi: Kona nýr prófastur „Þetta er auðvitað upplifgandi úr- skurður fyrir okkur að því leyti að í honum kemur afdráttarlaust fram að nýbyggingin er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag borgarinnar. Hún er einfaldlega 30% of stór. Úr- skurðurinn vekur vonir um að lausn finnist sem er viðunandi fyrir aba málsaðila, okkur íbúana og ekki síður byggingaraðilann," segja þau Jon Kjell Seljeseth og Elín Ebba Ásmunds- dóttir, íbúar að Laugavegi 53a. Úrskurðarnefnd skipulagsmála felldi íyrir helgi úr gildi byggingar- leyfi fyrir nýju stórhýsi sem verið er að byggja á lóðinni Laugavegur 53b í Reykjavík. Þau Elin Ebba og Jon Kjell mótmæltu byggingu hússins fyrr á ár- inu, m.a. á þeim forsendum að það væri of stórt og myndi fyrirsjáanlega gnæfa yflr þeirra eigið hús, byrgja þeim sólarsýn og setja þau eftirleiðis í skugga stórhýsisins. Byggingarmagn stórhýsisins væri langt umfram öll mörk og myndi hafa eyðileggjandi áhrif á nánasta umhverfi þess. Þau Elín Ebba og Jon segja að þeim komi á óvart það sem fram kom hjá formanni byggingamefndar borgar- innar í fyrrakvöld að nú yrði hraðað vinnu við deiliskipulag fyrir svæðið eftir úrskurð nefndarinnar. Sjálf hefðu þau kraflst þess fýrir rúmu ári að deiliskipulag fyrir svæðið yrði gert áður en nýbyggingin yrði leyfð. Því hafl borgaryflrvöld hins vegar synjað. Þau segjast óttast að eigi að fara að vinna að deiliskipulagi nú í einhverju flaustri til þess að bjarga málum sé hætta á að eitthvað geti misfarist. Elín Ebba gagnrýnir slíkan starfs- máta harðlega og kveðst draga stór- lega í efa að borgaryfirvöld hefðu gert slíkt fyrir venjulegan einstakling eins og t.d. hana sjálfa. Bjami Þór Jónsson, lögfræðingur byggingafulltrúaembættisins í Reykjavík, sagði í samtali við DV í gær að byggingarleyfið hefði verið fellt úr gÚdi á skipulagslegum for- sendum og væri þvi á ný í höndum skipulagsnefndar borgarinnar sem yrði að búa það enn á ný í hendur byggingamefndar. Hann sagði að embætti byggingarfulltrúa hefði feng- Gerðahreppur: Fýrsta skóflustunga að nýjum leikskóla DV, Suðurnesjum: Fyrsta skóflustungan að nýjum leikskóla í Garðinum var tekin 10. nóvember. Þetta verður tveggja deilda leik- skóli sem rúmar 43 böm og mun það bæta úr þeirri þörf sem nú er fyrir hendi. Leikskólinn verður 330 fm og er byggður á sömu lóð og sá sem fyrir er. Að sögn Sigurðar Jónssonar sveitarstjóra var ákveðið að láta byggja nýjan skóla þar sem það yrði of kostnaðarsamt að fella hinn að nútímakröfum. Hann verður rifmn þegar sá nýi verður tekin í notkun. Gert er ráð fyrir að það verði 15. ágúst á næsta ári. Leikskólinn mun heita Gefnar- borg eins og sá sem fyrir er en nafn- ið er þannig til komið að kvenfélag- ið Gefn var fyrst til að reka leik- skóla í Garðinum. Byggingin var boðin út og átti Húsagerðin I Reykjanesbæ lægsta tilboð sem er tæpar 36 milljónir króna. -AG Karl Sigurbjörnsson og Halldóra J. Þorvaröardóttir fyrir utan Skaröskirkju. Leikskólabörn tóku fyrstu skóflustungur að nýjum leikskóla í Garðinum. í bak- grunni má sjá hluta sveitarstjórnarmanna í Gerðahreppi. DV-mynd Arnheiður DV Suöurlandi: Biskup íslands, herra Karl Sigur- bjömsson, setti sr. Halldóru J. Þor- varðardóttur, sóknarprest í Fells- múla, í embætti prófasts í Rangár- vallaprófastsdæmi við athöfn í Skarðskirkju á Landi í gær. Hall- dóra tekur við prófastsembætti af sr. Sváfni Sveinbjarnarsyni á Breiðabólstað sem lét af embætti í haust fyrir aldurssakir eftir farsælt starf. Við guðsþjónustuna i Skarðs- kirkju söng sameinaður kór Fells- múlaprestakalls. Undirleik önnuð- ust Anna Magnúsdóttir og Nína Morávek. Halldóra J. Þorvarðar- dóttir er önnur konan sem tekur við prófastsembætti á íslandi. Hin er sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur í Skagafjarðarprófastsdæmi. -NH Jon Kjell Seljeseth og Elín Ebba Ásmundsdóttir á svölum húss síns að Laugavegi 53b. Sökklar nýbyggingarinnar, sem nú hefur verið stöðvuð, eru að baki þeim. DV-mynd Pjetur ið þetta byggingarmál frá skipulags- og umferðamefnd með útreikningi á nýtingartölu. Nýtingarhlutfall lóðar- innar hefði verið 2,42 en mátti hins vegar fara í 2,45. Þessi tala hefði mið- ast við að kjallarinn yrði notaður sem bílageymsla og væri skilgreindur sem opið rými og undanskilið frá nýting- artölunni. Skipulagsstofnun og úrskurðar- nefnd hefðu ekki verið sammála þessu og talið bílageymsluna lokað rými sem telja skyldi með í nýting- artölunni. „Þar með er húsið kom- ið í 3,2 eða um 30% yflr nýtingar- hlutfallið. í aðalskipulaginu segir að ef nýtingarhlutfrdl fer verulega umfram það sem mælt er fyrir um þá þarf að gera nýja deiliskipulags- tillögu fyrir viðkomandi svæði þar sem kemur skýrt fram að verið sé að fara fram úr nýtingartölunni. Með því að deiliskipuleggja þetta svæði, reikna bílakjallarann sem lokað rými og leggja hann við nýt- ingartöluna þannig að nýtingar- með komið samþykkt deiliskipu- hlutfallið verði þar með 3,2, og fara lag,“ sagði Bjami Þór Jónsson. með það í gegnum kerfið, þá er þar -SÁ Þorsteinn til London Samkvæmt óstaðfestum heimildum sandkorna er Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- og dómsmálaráðherra, á leið úr landi til nýrra starfa. Ráðherr- ann, sem þegar er búinn að stimpla sig út úr pólitík, mun taka við stöðu sendi- herra í London. Ekki er að fullu ljóst hvenær það verður en líklega verður það í sumar eða haust. Þorsteinn hefur að undan- fórnu verið orðað- ur við stöðu rit- Moggans og seðlabankastjóra en það er, samkvæmt þessu, út af borðinu. Málið hefur farið mjög hljóð- lega og er aðeins á vitoröi örfárra að- ila innan stjórnarflokkanna... Nýbúabarn Það er alveg merkilegt hvað hægt er að rífast um Leif heppna. Endalaust nenna Norðmenn að eigna sér karl- skömmina og endalaust nenna íslend- ingar að rífast við þá. Það virðist í raun vera sama hversu mikið og oft Jón Bald- vin Hannibalsson, sendiherra í Was- hington, skrifar í bæjarblöðin þar, alltaf dúkkar upp sama gamla tuggan. Hann er norskur, hann er íslenskur, hann er grænlenskur. Málið er þó hið augljósasta þegar lit- ið er á söguna. Eirikur rauði kom frá Noregi og settist að á íslandi, gerði hitt með konu sinni og eignaðist snáðann Leif á íslenskri grundu. Það liggur því i augum uppi að strákskömmin Leifur er nýbúabam ... Óskastaða Svo sem sandkorn hefur greint ítar- lega frá hefur verið tröppugangur á mætingu á fundi alþingismannsins og trúbadorsins Árna Johnsens vítt og breitt um Suðurland. Á hamingjufund- inn í Hveragerði mættu aðeins sjö manns og sömuleiðis vom Stokkseyringar lítt uppnæmir við komu þingmannsins. Á þessum stöðum varð því litið um fundar- höld og þingmaður- inn hafði eins kon- ar sögustund. Betur gekk að trekkja að á fund þar sem Dav- íð Oddsson forsætisráðherra var meðal frummælenda og mættu tugir manna þar. Það er sögð óskastaða margra frambjóðenda í Reykjanesi að Ámi verði í fyrsta sæti á Suðurlandi. Þannig verði ekki mikU fyrirstaöa tU áhrifa þegar kjördæmin sameinist á næstu árum eins og aUt bendi tU ... Bankakoníak Síðastliðið sumar fóra nokkrir Skag- fn-ðingar um vestfirsk hérað i fylgd Birgis Bjarnasonar í Miðdal og Jóns Guðna Guðmundssonar i Bolungar- vík. Ferðalangarnir sættu lagi og heimsóttu frægasta sparisjóð landsins á Flateyri. Sá sparisjóð- ur vann sér hylli með því að feUa niður þjónustugjöld á sín- um tíma. Skagfirð- ingarnir komu í kalsaveðri í spari- sjóðinn og taldi Ei- rikur Finnur Greipsson spari- sjóðsstjóri rétt að hressa aðeins upp á skagfirska mál- og söngbeinið þeirra með því að bjóða þeim upp á koníaks- og bjórdreggjar frá síðasta aðalfundi. Skagfirðingurinn og hagyrðingurinn Jóhann Guðmundsson frá Stapa gladdist óskaplega yfir veitingunum sem losuðu um málbein hans svo úr varð þessi vísa: Um firðina hef ég ferðast gáður og fundist reynslan góð. Komið hef ég aldrei áður i annan eins sparisjóð. Umsjón: Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.