Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 JLlV
18 *
kvikmyndir
Háskólabíó - Stelpnakvöld:
Gottað
Breskar mágkonur skreppa til Las Vegas. Julie Waiter og Brenda
Blythen í hlutverkum sínum.
gráta
★★ í Ameríku unguðu þeir út til skamms
tima - og gera kannski enn - svokölluðum
„disease-of-the-week“ myndum og sýna í
sjónvarpinu við allnokkrar vinsældir. Þar
gefúr gjaman að líta hugrakka persónu
sem fær þau válegu tíðindi að hún sé
haldin illkynja sjúkdómi sem brátt muni
leiöa hana til dauða. Persóna þessi tekur
tíðindunum oftast af fáheyrðu æðruleysi, ver restinni
af myndinni í að hughreysta sína nánustu og deyr
síðan drottni sínum eftir hetjulega baráttu. Góður
markaður er fyrir svona myndir því mörgum þykir
gott að gráta svolítið af og til. Bretar hafa lítið gert
af svona myndum enda minna fyrir tilfinningasemi
en frændfólk þeirra vestanhafs. Stelpnakvöld sver sig
þó óneitanlega í ættina og gæti hluti af skýringunni
falist i þvi að tvær sjónvarpsstöðvar, Granada í Bret-
landi og Showtime-kapalstöðin i Bandaríkjunum,
deila kostnaðinum í bróðemi.
Hér er flest eftir bókinni.
Tvær stólpaleikkonur, þær
Julie Walters (Educating Rita)
og Brenda Blethyn (Secrets
and Lies), seilast í koffort sín
og draga upp gömul trix. Þær
leika mágkonur á fimmtugs-
aldri í smábæ i norðurhluta
Bretlands. Lífið í færibandaverksmiðjunni byggist á
föstum liðum eins og venjulega, Julie er kjaftfor og
kræf i karlamálum en Brenda er ekkert nema gæðin.
Á fostudagskvöldum skreppa stelpumar í verksmiðj-
unni á bingókvöld og á einu slíku vinnur Brenda um-
talsverða fjárhæð, sem hún deilir með Julie. Þær
stelpumar em vart byrjaðar að spá í hvað þær ætli
að gera við peningana þegar Brenda hnígur skjálf-
andi niður í verksmiðjunni og fréttir í framhaldi af
því af ólæknandi sjúkdómi sínum. Þetta er auðvitað
hið versta mál fmnst henni og öðmm hlutaðeigandi
en úr verður að stelpurnar ákveða að slá þessu upp i
kæruleysi og skreppa til Las Vegas. Þar rekast þær á
Kris Kristofferson sem ber sig karlmannlega og lóðs-
ar þær um. Þær snúa svo aftur heim í grámygluna,
Brenda deyr, Julie iðrast og ákveður að vitja um Kris
á ný og freista gæfunnar.
Því er ég að rekja alla sólarsöguna að ekki skiptir
máli í svona myndum hvað gerist, enda má það
nokkurn veginn ljóst vera frá upphafi, heldur hvern-
ig það gerist. Og víst gera þær
þetta vel stelpumar, einnig aðr-
ir leikarar. Persónur allar
dregnar skýrum, einfoldum
dráttum og lifna ágætlega á
fjaldinu. En þetta er ekki
merkileg kvikmyndagerð, hér
er málað á tjaldið eftir númer-
um og satt að segja tilheyrir
þessi mynd síðdegisdagskrám sjónvarpsstöðvanna,
enda gmnar mig að henni hafi verið ætlað það hlut-
verk svona fyrst og fremst.
Leikstjóri: Nick Hurran. Handrit Kay Mellor. Aðalhlut-
verk: Julie Walters, Brenda Blethyn og Kris
Kristofferson. Ásgrímur Sverrisson
Kvikmyiyda
GAGNRYNI
IOM 2 •
í Bandaríkjunum
- aösókn dagana 13. tll 15. nóvember. Tekjur í milljónum dollara og heildartekjur
Adam Sandler hélt velli
Nýju myndirnar sem frumsýnd-
ar voru um síöustu helgi náðu
ekki að ógna The Waterboy sem
aðra vikuna I röö var langvin-
saslasta kvikmyndin T Bandarikj-
unum. Af nýju myndunum náðu
tvær dágóöri aðsókn, I Still
Know What You Did Last Sum-
mer, sem er framhald sum-
arsmellisins frá því í fýrra og
fjallar um ungmenni sem lenda
t miklum raunum á eyju t kar-
abíska hafinu og Meet Joe
Black, sem þrátt fyrir frekar nei-
kvæða dóma hlaut góða aö-
sókn. Þessa aðsókn má þakka
fyrst og fremst vinsældum Brad
Pitts. Þriöja nýja kvikmyndin,
l'll Be Home Por Christmas,
fékk ekki mikla aösókn en
reikna má meö aö hún haldi stnu þar sem um jólamynd er að ræöa. Þaö
sem aftur á móti aögreinir þessa jólamynd frá heföbundnum Jólamyndum
er að veriö er aö sttla inn á unglingamarkaöinn og sá hópur er ekki enn far-
inn aö hugsa um jólin, þaö eru eins og flestir vita aöeins kaupmenn og
kaupsýslumenn sem eru farnir aö hlakka til jólanna. -HK
Hremmingar ungmennanna halda áfram f
I Still Know What You Dld Last Summer.
Tekjur Heildartekjur
l(-) The Waterboy 24.431 16.520
2 (-) 1 Stfll Know What You Did Last ... 16.530 16.520
3 (-) Meet Joe Black 15.017 15.017
4(2) The Siege 8.101 26.370
5(4) Antz 4.016 81.102
6 (-) l'M Be Home For Christmas 3.898 3.898
7 (3) Pleasantville 3.657 31.647
8(5) The Wizard of Oz 3.269 10.581
9(6) Living Out Loud 2.606 8.565
10 (7) Practical Magic 1.919 42.910
11 (10) Rush Hour 1.866 129.829
12 (8) John Carpenter's Vampires 1.665 18.457
13 (9) Belly 1.470 7.271
14 (16) Life Is Beautlful 0.852 2.933
15 (13) What Dreams May Come 0.710 54.146
16 (11) Brlde of Chucky 0.696 30.931
17 (20) Everest 0.671 50.607
18 (15) There's Something about Mary 0.597 170.502
19 (12) Beloved 0.530 22.227
20 (-) The Mask of Zorro 0.377 92.689
Eca
Miðvikudaginn 2. desember mun hin árlega
jólagjafahandbók fylgja DV í 18. sinn.
Jólagjafahandbók DV er fyrir löngu búin aö festa sér sess í
jólaundirbúningi landsmanna enda er þar aö finna hundruö hugmynda
aö gjöfum fyrirjólin.
í fyrsta sinn veröur jólagjafahandbókin prentuð á hvítari og vandaðri
pappír sem veröur til þess aö allar auglýsingar og myndir skila sér
mun betur. Lögö verður áhersla á skemmtilega umfjöllun um
jólaundirbúning, hugmyndir aö föndri, uppskriftir og margt fleira.
Auglýsendur, athugið aö skilafrestur auglýsinga ertil 20. nóvember
en meö tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent á
aö hafa samband viö Selmu Rut Magnúsdóttur í síma 550 5720
eöa Ásu Arnaldsdóttur í síma 550 5729, sem allra fyrst, svo unnt
reynist aö veita öllum sem besta þjónustu.
Ath. Bréfsími auglýsingadeildar
er 550 5727.