Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Blaðsíða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 JJV
nn
Ummæli
1
Læt ekki hrekja
mig úr starfi
Vitaskuld vilja einhverjir
losna við mig en
aðrir síður. Ég
nefni engin nöfn
' en skoði hver
, sig og sitt
hjarta. En ég <
læt ekki hrekja
mig úr starfi á
þennan hátt.
Ég læt ekki brenna húsið
ofan af mér án þess að reyna
að bjarga innbúinu."
Kristinn Hugason hrossa-
ræktarráðunautur, í DV.
Öflug líkræða
„Ég get ekki annað séð en
hann hafi flutt mjög öfluga lík-
ræðu yfir sjálfum sér sem
hrossaræktarráðunautur. Þeg-
ar hrossaræktarráðunautur er
búinn að fá nóg af hestamönn-
um er orðið lítið fyrir hann að
gera.“
Kristinn Guðnason, form. Fé-
lags hrossabænda, í Morg-
unblaðinu.
Kvennamóment
„Þetta er „kvennamóment"
þar sem forysta
, flokkanna reynir
með heilsíðum (
að fá fólk til þess
aö kjósa konur,
bara af því að
þær eru konur.
Ég segi að það
voru konur og
Kópavogur sem aðrir
gátu ekki ráðið við.“
Kristján Pálsson þingmaður,
ÍDV.
Þrælastétt nútímans
„Nú er góðæri í landinu,
sem fært hefur fólki hækkandi
laun og batnandi lífskjör. Sú er
þó undantekningin að á meðan
það gerist þá lækka laun
bænda og standa þeir nú allra
stétta næst því að geta kallast
þrælastétt nútímans."
Vigfús B. Jonsson bóndi, i
Morgunblaðinu.
Markaðsvæðing
og bókhald
„Markaðsvæðing allra hluta
og þá sálarlífsins
einnig er svo rót-
tæk aö það þýðir;
ekki lengur að
hreyfa rökum
sem ekki falla
aö bókhaldi."
Árni Bergmann
rithöfundur,
ÍDV.
Veiðileyfi veitt
„Hver hefur leyfi til að gefa
út veiðileyfi á sum íþróttafélög
en önnur ekki?“
Guðlaugur Magnússon, FH,
um rukkun skattyfirvalda,
f Degi.
Jarðskjálftahætíusvæði
■’Mm
Svæði þar sem vænta
má vægra skjátfta
Svæði þar sem vænta
má öflugra skjálfta
Guðrún Sigríður Gísladóttir, forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Vesturlands:
Ekki eingöngu
fyrir atvinnulausa
DV, Akranesi
„Mér líst mjög vel á starfið, alla
vega enn sem komið er - það er
skemmtilegt, krefjandi og spenn-
andi. Ég hef verið á ferðinni um um-
dæmið ásamt ráðgjafa og rætt við
atvinnuleitendur. En áhersla er
lögð á að aðstoða atvinnuleitendur
út frá þeirra forsendu, þeir eru boð-
aðir í viðtal þar sem stefna þeirra út
á vinnumarkaðinn er mörkuð út frá
menntun, starfsreynslu og aðstæð-
um hvers og eins,“ segir Guðrún
Sigríður Gísladóttir, forstööumaður
Svæðisvinnumiðlrmar Vesturlands
sem tók nýverið til starfa.
„Svæðisvinnumiðlunin er til
húsa að Stillholti 18, 2. hæð, á Akra-
nesi. Umdæmi okkar er frá Akra-
nesi vestur í Reykhólahrepp." Hlut-
verk Svæðisvinnumiðlunar er m.a.
að aðstoða einstaklinga við atvinnu-
leit og vinnuveitendur við að útvega
starfsfólk. Að veita atvinnuleitend-
um upplýsingar og ráðgjöf um
starfsval og starfsmenntun og sjá til
þess að þeir eigi kost á ráðgjöf og
úrræðum sem hafa það að mark-
miði að auka starfsgetu og starfs-
möguleika þeirra. Miðla upplýsing-
um um laus störf og umsóknum um
störf til annarra svæðisvinnumiðl-
ana. Annast skráningu atvinnu-
lausra og útborgun atvinnuleysis-
bóta. Taka saman og miðla upplýs-
ingum um atvinnuástand, atvinnu-
leysi og atvinnuhorfur til svæðis-
Guðrún Sigríður Gísladóttir.
ráðs og Vinnumálastofnunar og að
hafa eftirlit með því að umsækjend-
ur um atvinnuleysisbætur fullnægi
skilyrðum laga um atvinnuleysis-
tryggingar."
Maður dagsins
Guðrún segir að talsvert sé um
að vinnuveitendur leiti eft-
ir aðstoð vanti þá starfs-
menn. „Það er stefha j
okkar að reka virka
vinnumiðlun en það
getum við ekki gert
nema að vinnuveit-
endur viti af okkur
og leiti eftir þjón-
ustu okkar. Það er
því mikilvægt að
við kynnum starf-
semi okkar vel fyr-
ir vinnuveitend-
um. Svæðis-
vinnumiðl-
ekki eingöngu fyrir þá sem eru at-
vinnulausir heldur einnig fyrir þá
sem t.d. hafa áhuga á að skipta um
starf og vilja vera á skrá ef eitthvað
kæmi inn sem hentaði þeim.“
Guðrún segist eyða frítíma sínum
með fjölskyldunni. „Við fórum eins
oft og kostur er í sumarbústaðinn
okkar en þangað er alltaf gott að
koma hvort sem er að sumarlagi
eða að vetri til. Hvað varð-
ar íþróttir þá hef ég af-
skaplega gaman af að
spila bæði badmint-
on og blak. Guð-
rún Sigríður er
gift Guðmundi
S. Jónssyni, raf-
virkja hjá Norð-
uráli. Þau eiga
tvö böm, Mar-
inó Rafn, sem
verður 7 ára á
jóladag, og
Ragnheiði
Evu, 2 ára.
-DVÓ
Megasukk á
Fógetanum
í kvöld kl. 22 mun hljóm-
sveitin Súkkat troða upp
ásamt Megasi á Fógetanum
við Aðalstræti. Við slíkar
kringumstæður hafa menn-
imir kallað sig Megasukk
og hvarvetna vakið mikla
Skemmtanir
athygli. Á dagskránni verða
löngu sígild lög Megasar og
nýrri í bland en hljómsveit-
in Súkkat gefur út hljóm-
diskinn Ull um þessar
mundir og flytur vitaskuld
lög af honum meö eldra efni
saman við.
Fólk er hvatt til aö mæta
tímanlega.
Megas og Súkkat.
Myndgátan
Hefur spilað rassinn úr buxunum
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi.
Sólrún
Braga-
dóttir
óperu-
söng-
kona
og
Margar-
et Sin-
ger pí-
anó-
leikari.
Á ferð um landið
Sólrún Bragadóttir ópemsöng-
kona heldur einsöngstónleika í
Félagsheimilinu í Bolungarvík á
morgun kl. 20.30. Tónleikamir eru
liður í ferð Sólrúnar um landið og
er tilefnið útgáfa á geislaplötu þar
sem Sólrún syngur íslenskar ein-
söngsperlur eftir Sigvalda Kalda-
lóns, Þorkel Sigurbjömsson, Atla
Heimi Sveinsson, Tryggva Bald-
ursson, Karl O. Runólfsson, Jón
Ásgeirsson og Sveinbjöm Svein-
björnsson. Syngur hún lög af plöt-
unni ásamt lögum eftir Brahms,
Bernstein og Mozart og er undir-
leikari hjá henni bandaríski pí-
anóleikarinn Margaret Singer.
Sólrún Bragadóttir hefur komið
Tónleikar
fram í mörgum af helstu aðalhlut-
verkum óperubókmenntanna.
Hafa óperuhús á meginlandi Evr-
ópu, Bretlandi og Japan sóst eftir
samstarfi við hana. Auk þess hef-
ur hún sungið fjölda ljóðatónleika
hér á landi sem og erlendis og
margoft komið fram með Sinfón-
íuhljómsveit íslands. Næstu tón-
leikar Sólrúnar verða á Akureyri
næstkomandi laugardag.
Skemmst er að minnast frammi-
stöðu hennar í Cose fan Tutte í
uppfærslu íslensku óperunnar í
fyrra.
Bridge
Slemma i tígli er rökrænn kostur
í þessu spili og á mjög góða vinn-
ingsmöguleika ef vömin byrjar ekki
á því að spila út spaða. Spilið kom
fyrir í stórmóti Bridgefélagsins
Munins og Samvinnuferöa-Land-
sýnar um síðustu helgi. Þrátt fyrir
að slemman sé góð þá náðist hún að-
eins á 5 borðum af 20 í keppninni.
Toppinn í AV fengu Gísli Torfason
og Jóhannes Sigurðsson sem fengu
samninginn doblaðan. Ragnar
Magnússon og Júlíus Sigurjónsson
leystu þetta sagnvandamál á snyrti-
legan hátt. Sagnir gengu þannig,
vestur gjafari og allir á hættu:
♦ D32
*» G1098753
♦ 8
* 92
* Á9854
** -
* Á65
* ÁD1084
♦ KG7
«* K642
♦ K9
* K753
Vestur Norður Austur Suður
1 é pass 3 ♦ pass
6 ♦ p/h
Kerfi Ragnars og Júlíusar var
Precision og þriggja tígla sögnin var
áskorun í game með langan tigullit.
Júlíus, sem sat í vestur, sá að hönd
hans var gulls ígildi og verðskuld-
aði slemmutilraun. Þremur pörum i
AV mistókst að
segja sig upp í
game á hendum-
ar en botninn
fengu þeir sem
spiluðu 4 hjörtu
á 2-0 samleguna.
Þar varð slæmur
misskilningur í
sögnum. Vestur
opnaði á einum
spaða, austur
sagði tvo tígla og
vestur stökk í fjögur hjörtu til aö
sýna eyðu í þeim lit og stuðning í
tígli. Austur taldi hins vegar að
vestur væri að sýna mikla lengd í
báðum hálitum og ákvað að passa
fjögur hjörtu. Sá samningur fór 5
niður en einn niður hefði nægt í
toppskorið fyrir NS.
ísak Örn Sigurðsson
Ragnar
Magnússon.
♦ 106
«* ÁD
♦ DG107432
* G6