Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1998, Side 32
Sfréttaskotið
hHsíminn sem aldrei sefur
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
Kvennalistinn ákvað á samráðsfundi í gær að halda áfram samstarfi við A-flokkana um að reyna að koma saman sameiginlegu kosningabandalagi. Myndin er tekin áður en fundurinn hófst f gær-
kvöld og er ekki að sjá að konurnar séu sérlega þungbúnar yfir málum.
DV-mynd Teitur
Kvennalistinn
áfram með
Deilur meðal A-flokkanna um fram-
boðsaðferðir til lista sameiginlegs
framboðs, sérstaklega hér í Reykjavík
og að hluta í Reykjaneskjördæmi,
hafa raunar háldið öllu ferlinu í gísl-
ingu. Reynt hefur verið að fá Kvenna-
listann til að leggjast á sveif með öðr-
um hvorum flokknum," sagði Guðný
Guðbjömsdóttir í samtali við DV í
morgun.
Samráð Kvennalistans ákvað í gær-
kvöldi að halda áfram samstarfi um
sameiginlegt framboð félagshyggju-
afla þrátt fyrir að kröfu um tiltekin
sæti á framboðslistum hefði verið
hafnað. Guðný sagði að Reykholts-
samþykkt landsfundar listans hefði
verið mistúlkuð. Uppnámið vegna
hennar væri í raun sprottið af því að
Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur
gætu enn ekki komið sér saman um
aðferð við að raða á lista. Sjá nánar
fréttaljós á bls. 4. -SÁ
Alusuisse og Viag:
Ekki komiö
* til okkar
- segir ráðherra
„Þetta hefur ekki
sagði Finnur Ing-
ólfsson viðskipta-
og iðnaðarráð-
herra þegar DV
spurði hann í
morgun um við-
ræður Alusuisse
Lonsa og þýsku
fyrirtækjasam-
steypunnar Viag.
Viðræðurnar
hafa snúist um yfirtöku Viag á rekstri
Alusuisse Lonsa en hið síðarnefnda á
sem kunnugt er álverið í Straumsvík.
«* -JSS
komið til okkar,
Finnur Ingólfsson.
Tímamótaúrskurður sem skyldar netfyrirtæki að þjónusta lögregluna:
Löggan inn á Netið
Hæstiréttur segir að tölvufyrir-
tæki sem annast um netþjónustu
skuli opna upp á gátt fyrir lögregl-
unni og liðsinna henni við ýmsar
rannsóknir á tölvuafbrotum og veita
þeim allar nauðsynlegar upplýsingar
og gögn sem óskað er eftir við rann-
sókn mála. Lögregluyfirvöld fá meðal
annars kærkomið tækifæri til að
upplýsa tölvuinnbrot, eða tölvuhökk-
un eins og netverjar kalla það. Fyrir
stuttu greindi DV frá tölvuhökkun,
skemmdarverki á heimasiðu Garða-
skóla í Garðabæ. Skólastjórinn kærði
þann verknað til lögreglunnar.
Síðan er stutt liðið en atburðarás-
in hefur verið hröð. Rikislögreglan
óskaði eftir úrskurði héraðsdóms
sem gekk lögreglunni í óhag. Dóm-
urinn taldi ekki lagaskilyrði til að
veita lögreglunni heimildina. Ríkis-
lögreglan áfrýjaði. Hæstiréttur
sneri málinu við og taldi að al-
mannahagsmunir og ríkir einka-
hagsmunir væru fyrir hendi. Á
þeim forsendum væri grundvöllur
til að heimila lögreglunni óheftan
aðgang að netupplýsingum. í ljósi
þess úrskurðaði Hæstiréttur á föstu-
daginn þveröfugt við héraðsdóm og
gaf lögreglunni heimild til að kom-
ast inn í leyndardóma netfyrirtækj-
anna. Þess skal getið að úrskurðar-
mál af þessu tagi fá sérstaka flýti-
meðferð í dómskerfinu.
Jón Snorrason hjá Ríkislögregl-
unni sagði í gær að hér væri vissu-
lega um tímamótadóm að ræða,
lögreglan stæði nú til muna betur
að vígi við að upplýsa tölvuafbrot.
„Á grundvelli laga um fjarskipti
er viss skylda á netfyrirtækjunum
að fara með allar upplýsingar sem
trúnaðarupplýsingar. Fyrirtækin
voru því í klemmu en núna eru
þau með heimild til að veita lög-
reglunni umbeðnar upplýsingar,“
sagði Jón Snorrason.
Jón sagði að alltaf væru einhver
mál í rannsókn sem varða tölvur og
tölvunotkun. Hjá tölvufyrirtækjun-
um væru símatengingar í sam-
skiptanetinu sem væru alltaf finn-
anlegar og gætu upplýst mál eins og
til dæmis innbrotið á heimasíðu
Garðaskóla nýlega. Það mál kann að
verða fyrsta kærumálið af þessu
tagi sem leysist á grundvelli dóms
Hæstaréttar. -JBP
Reiði innan logreglunnar
Landssamband lögreglumanna
heldur blaðamannafund í dag þar
sem m.a. verður greint frá því að
dómsmálaráðherra hafi fyrir
nokkrum vikum „ítrekað“ að engu
skipulagi yrði breytt nema í nánu
samstarfi við starfsmenn lögreglunn-
ar í Reykjavík. Þrátt fyrir þessi um-
mæli sé búið að framkvæma breyt-
ingar. Ráðuneytið var „þrábeðið"
um fund sem loks var veittur og
mönnum gefinn kostur á að spyrja.
Á blaðamannafundinum verður
einnig rætt um það hvað lagt var tfl
grundvallar skipulagsbreytingunum
og lögð fram greinargerð. Lögreglu-
menn telja að svör hafi ekki fengist
við ýmsum fullyrðingum.
„Ég hitti ekki lögreglumann i gær
öðruvísi en svo að menn væru undr-
andi eða verulega reiöir vegna fram-
göngu dómsmálaráðherra á Alþingi í
gærsagði Óskar Bjartmarz, formað-
ur Lögreglufélags Reykjavíkur og
stjórnarmaður í Landssambandi lög-
reglumanna. Óskar sagði að lögreglu-
mönnum fyndist að rangt hefði að
flestum hlutum verið staðið og á litlu
byggt varðandi vinnubrögð um
breytt skipurit lögreglunnar í
Reykjavík.
-Ótt/JBP
Drengskapur minn aö veöi
„Já, ég legg drengskap minn og
þingmannsheiður að veði - hann
sagði þetta. Við Þórhallur stóðum í
anddyri Alþingis þegar ég spurði
hann hver afstaða Landssambands
lögreglumanna væri tfl skipulags-
breytinganna. Þá sagði hann að
þeim kæmi þetta ekki við. Þetta
væru bara launþegasamtök. Þannig
var þetta,“ sagði ísólfur Gylfi
Pálmason alþingismaður viö DV í
morgun þegar hann var spurður
náið um samskipti sín og Þórhalls
Ólafssonar, aðstoðarmanns
málaráðherra,
um breytingar
hjá lögreglunni í
Reykjavik.
„Ég segi
blákalt: Lygi er
mönnum aldrei
til framdráttar,
hvorki mér né
öðrum. Þegar ég
horfði á sjónvarp-
ið í gærkvöld og
dóms-
Isólfur
Pálmason.
Gylfi
sá aðstoðarmann ráðherra segja
ósatt, þá skil ég betur óánægju lög-
reglumanna með skipuritið," sagði
ísólfur.
Ekki náðist samband við Þórhall
Ólafsson í morgun en hann sagði í
sjónvarpsfréttum í gærkvöld að
hann krefðist þess að fá að svara
fyrir sig úr ræðustól á Alþingi.
Hann sagði reyndar á Bylgjunni í
morgun að honum væri kunnugt
um að þar töluðu engir aðrir en
kjörnir alþingismenn. -Ótt
Veðrið á morgun:
Úrkoma
víðast hvar
Á morgun verður suðaustan-
og austanátt, stinningskaldi allra
austast en annars kaldi. Skýjað
verður á Norðurlandi, rigning
suðaustanlands og á Austfiörð-
um en skúrir vestan til. Hiti
verður á bilinu 3 til 8 stig.
Veðrið í dag er á bls. 29.
SYLVANIA
1
g
oa
Toblirone'
Irfátíndur
ánægjunnar