Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Blaðsíða 3
meömæli
e f n i
Slllcon er löngu hætt aö vera algjort
tabú. Sumir vilja jafnvel meina að þaö
séu bara til tvær tegundir af konum; þær
sem eru með silicon og þær sem láta sig
dreyma um silicon. Jólagjöfin I ár er sem
sagt gjafakort I silicon-aðgerö til þinnar
heittelskuðu.
Gervineglur fyrir kven-
persónuna. Það er að
vlsu hallærislegt að ;
vera ekki með ekta
og þvl er um að gera j
að líma draslið á og |
Ijúga svo að þetta
séu ekki gervineglur.
Þetta er bara svo
praktískt, þú kaupir j
þér hræódýran
pakka I næstu snyrtivörubúð
og getur klóraö karlinn þinn til blóðs yfir
hátlðirnar og já, nýtur þln betur út á við.
Síðustu glgg Sálarinnar um ókominn
tíma er eitthvað sem óhætt er að mæia
meö. Þeir veröa á Astró I kvöld og I Sjall-
anum annað kvöld. Sálin er bara svo ynd-
isleg hljómsveit. Hún er Skítamórall gær-
dagsins og I gær voru allir blindfullir á
sveitaballi. Það er lika óhætt að mæla
meö nýja diskinum sem er „Best of" og
þrusuvirkar I hvaöa partíi sem er.
Rassanuddarlnn
er akkúrat það
sem þarf yfir jól-
in. Það er bók-
að að við mun-
um þjást af |
harðsperrum |
eftir nokkra '
daga. Fyrst göng-
um við úr okkur í
vit I leit að jólagjöfum og
svo sitjum við yfir kræsingum og gerum
ekki neitt. Þess vegna er pottþétt að
nudda rassinn aðeins á slðkvöldum.
Stelllng jólahátíðarlnnar er að konan
liggur á bakinu (meltunni) og karlinn er á
hnjánum. Maður étur svo mikið yfir jólin
að I kynllfinu verður að forðast þær stell-
ingar sem kviðirnir snertast
. Annars ælir annar aðilinn
og allt fer í tómt rugl.
Stelling vikunnar
, er þvl sú sem
sýnd er hér viö
hliðina á.
Rokk og jólaról í Loftkastalanum annað kvöld. Það er árviss atburður að
skella sér á alvöru tónleika fyrir jólin. Hljómsveitirnar hamast allavega við
að halda þá og dæla í okkur nýjum geisladiskum. Það er eins með
þessar blessaðar bækur sem flæða yfir okkur úr öllum áttum.
Allir eru að gefa út bók fyrir jólin en aðeins tveir þeirra allra rokkuðustu
munu mæta annað kvöld. Þeir eru rapparinn
MC Grim (Hallgrímur Helgason) og Mikki Þönk (Mikael Torfason).
Gefðu mér
rokk í skóinn
Þær hljómsveitir sem mæta eiga
það allar sameiginlegt að tengjast
landsliði meiks í útlöndum með
einum eða öðrum hætti. Þar fara
fremstar meðal jafningja þær Bell-
atrixur sem eru víst að fá frábæra
dóma í útlöndum. Þessi hljómsveit
hét Kolrassa krók-ríðandi en
breytti nafninu sínu í útlenskara
nafn því Kolrassinn fór ekki vel í
framburði útlendinga. Síðan eru
það að sjálfsögðu rokkararnir í
Unun með þau dr. Gunna og
Heiðu í broddi fylkingar. Þau eru
ferskir og rammíslenskir meikar-
ar. Munu alveg örugglega meika
það á endanum vegna þess hversu
íslensk þau eru. Botnleðjan verður
þarna líka og mun pönka og öskra
úr sér líftóruna. Þeir kalla sig Silt
á útlensku og þykja það fínir að
Damon og félaga hans í Blur
drógu þá með sér í tónleikaferð og
nöppuðu einu lagi af þeim.
Það fyrirgafst og Damon er hleypt
inn á bari landsins þrátt fyrir
þjófnaðinn. Ekki má gleyma henni
Möggu Stínu sem rúllaði Bretan-
um upp fyrir stuttu. Fór í tónleika-
ferð sem var alveg „geðfríkuð".
Magga Stína rokkar feitt læf, eins
og sagt er í bransanum. Siðan eru
það nýliðarnir í meikinu, 200 þús-
und naglbítar. Þeir verða á staðn-
um og þykja mjög efnilegir meik-
arar. Villi söngvari bjó árum sam-
an í Skotlandi og talar víst ensku
eins og Ewan Mcgregor. Eini ís-
lenski söngvarinn sem er ekki með
Bjarkarhreiminn. Að lokum eru
það Þröstur og Palli í Súrefni.
Þeir eru fulltrúar teknósins sem
breyttist í rauninni í alvöru rokk
fyrir nokkrum árum. Ekkert nema
gott um það að segja og óhætt að
fullyrða að Súrefni er með þéttari
grúppunum sem enn eru ekki
farnir að meika það í útlöndum.
Villi í 200 þúsund naglbítum er
ekta norðlenskur öskrari.
Já, þeir eru
ekki famir að
horfa út fyrir
landsteinanna
þrátt fyrir að
enskuslettum
bregði fyrir í
þeim texta
sem gólaður
er í lögunum
þeirra. En
það er ann-
að en hægt
er að segja
um allar
hinar hljóm
sveitirnar. Þær eiga það allar sam-
eiginlegt að syngja á íslensku fyrir
íslendinga.
Það er þvi um að gera fyrir allt
alvöru rokkáhugafólk að skella sér
í næstu Japis búð eða í Loftkastal-
ann og fjárfesta í miðum í forsölu.
Annars verða miðar seldir í af-
greiðslunni fyrir slóðana. En hús-
ið verður opnað klukkan niu ann-
að kvöld og ekkert vit í öðru en
vera mættur tímalega.
Þorsteinn Hreggviös-
son „Þossi“ les Top
10 lista.
Hjartsláttarkvöld #8 er um helgina í boði Bjarkar, Gus gus og
hr. Örlygs. Sá sem mætir er Bretinn Edward Upton og ætlar
kauði að Dj-a norðan heiða og sunnan.
Big-bít er málið
Edward Upton er betur
þekktur sem DMX Krew.
Hann er á landinu.
Hefuróu komiö til íslands áður?
„Nei. Það eina sem ég veit um ís-
land er að dagurinn stendur bara í
þrjá tíma á vetuma. Það verður
gaman að sjá það,“ segir Edward
Upton úr síma frá London og bæt-
ir þvi við að hann viti ekki alveg
við hverju hann eigi að búast á ís-
landi svo hann stefnir á að láta sig
bara fjóta með Gus gus og umsjón-
arfólki Hjartsláttarkvöldanna.
Verður Krew-iö með þér?
„Nei. Ég verð einn í þetta skipt-
ið. Stundum er ég Krew en nú ætla
ég bara að Dj-a.“
Hvað á að spila?
„House, Techno, Brandance og
eitthvað eighties. Reyni bara að
hafa gott flæði. Það ættu allir tón-
listarunnendur að heyra eitthvað
við sitt hæfi.“
Edward, eða DMX án Krew-
sins, spilar á Ráðhúskaffi Akur-
eyri annað kvöld og á sunnudag-
inn verður Kaffl Thomsen her-
tekið. En þessi tímaröðun og
þetta staðarval er einmitt regla
þeirra Hjartsláttarmanna.
Hvernig tónlist eruð þiö í DMX-
Krew aó semja og spila?
„Aðallega eighties popp-slag-
ara í bland við elektrónískt
Popp.“
Eruði mikiö að túra um heim-
inn?
„Já, eitthvað. Við vorum að
koma frá Japan með Aphex
Twin. Það var virkilega brjálað-
ur túr. Skemmtilegt að upplifa
þessa rokkstjömustæla. Fólk var
að reyna að príla upp á svið og
einhverjir úr Krew-inu að
stökkva út í skarann. Þar áður
var það Spánn og um helgina er
það ísland.“
Hvaó er annars svona í gangi í
klúbbunum þarna í London?
„Ekkert. Eini góði klúbburinn
heitir Reflex. Allir hinir em út-
úrhæpað drasl. Teknóið er búið
hér í London. Big-bít er málið.“
Aó lokum; ertu kominn í jóla-
skap?
„Mig langar að vera í jólafíl-
ingnum en það virðist vera erfitt.
Það er svo mikið að gera en ég er
annars að vona að ég komist
kannski í að kaupa einhverjar
jólagjaflr á íslandi."
Og þjóðin vonar að sjálfsögðu
að hann flnni þá eitthvað ís-
lenskt til að gleðja vini og fjöl-
skyldu með á jólum. -MT
Inga Hrönn Guðmundsdóttir:
Syngur og er
systir Bjarkar 4
Sigfús Bjartmarsson:
Maðurínn er
snarbrjálað dýr 6
Eiríkur Jónsson
kannar jólaskreytingar:
Ljósið í myrkrinu
7
Felix Bergsson:
Hvernig er að
vera hommi í
Reykjavík?
Jólaskapið:
Hvað á að gefa óvini
sínum í jólagjöf? 10-11
Dr. Gunni um Stuðmenn:
Stuðið er ekki hér 14
Ari Eldon:
Móa er
meikdolla
Tvíhöfðar um jól og áramót:
Á jólunum átti
maður alltaf nóg
af sígarettum 18-19
Hvað er hægt að gefa
þeim sem maður elskar?
Ilmvatn eftir
3 mánuði -
undirföt eftir 6 20
Hallgrímur um
gagnrýnendur:
Það eru
blókajól 25
Gunnar Smári Egilsson:
Okkur finnst Jesús
vera leiðindagaur 26
Hvað er að gerast?
Veitingahús ..............6
Leikhús ..................8
Klassík..................10
Myndlist.................10
Popp................... 12
Sjónvarp..............21-24
Bíó..................26-27
Hverjir voru hvar.......30
Fókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók
Hilmar Þór af Tvíhöfða.
18. desember 1998 f Ókus
3