Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Page 4
Hafþór Ólafsson og
Gunnar Örn Jónsson
skipa dúettinn
Súkkat. Þeir verða
með tónleika í Iðnó
annað kvöld.
Reykjavíkurpakk!
Nú getiði
farið á ekta
vestfirska
tónieika
Nyjasta hljómsveitin í geisladiskaflóðinu
heitir Hundslappadrífa. Frumlegt nafn.
en það sem er enn skemmtilegra er að
systir Bjarkar Guðmundsdóttur er
söngkonan i gruppunni. Hun heitir
Inga Hrönn Guðmundsdottír og þykir
hafa oaðfinnaidega rödd. Inga spjallaði
við Fókus um Hundslappadrifu, geisla-
diskinn og bara allt annað en að vera
systir hennar Bjarkar.
Inga Hrönn Guömundsdóttir er ekki bara systir Bjarkar. Hún er einnig tveggja barna móöir og söngkona í Sveitasveitinni Hundslappadrífu.
NEI NEI, MEÐ VM(/M MÍNOM
Þeir félagar Hafþór Ólafsson
og Gunnar Örn Jónsson mæta í
Iðnó kl. 22 annað kvöld ásamt
öllu liðinu. Allt liðið er fólkið á
bak við plötuna þeirra. Því þó
strákarnir séu óvenju hæfileika-
ríkir og skemmtilegir þá voru
þeir ekki aleinir á nýju plötunni,
UU. Ó, nei. Með þeim voru Meg-
as, Botnleðja, kontrabassinn
Birgir Bragason, trommarinn
Gunnar Erlingsson, sólógitar-
leikarinn Guðlaugur Kr. Óttars-
son, þverflautuleikarinn Lárus
Grímsson, fiðluleikarinn Eyjólf-
ur Bj. Alfreðsson, saxófónblás-
arinn Jens Hansson, úararnir
Linda og Drífa og margir fleiri.
Það er allt þetta fólk, fyrir utan
Botnleðju því hún er í Loftkastal-
anum, sem ætlar að mæta í út-
gáfugiUið hjá Súkkat-tvíburunum
alræmdu. ÖU munu þau stiga á
svið og prjóna utan um fagrar
melódíur og meitlaða texta
Súkkats. En þetta er örugglega
með frumlegri hljómsveitum,
dúettum, á íslandi. Þessir pUtar
eru orginal og hafa Megas-stimp-
ilinn á sér. Og ef það er ekki
gæðastimpill þá er ekki tU neitt
sem heitir gæðastimpiU.
Iðnó opnar annars kl. 22 og
ekki vit í öðru fyrir almennilega
íslendinga en drífa sig til að sjá
hljómsveitina sem á flottasta
plötuumslag ársins. Það er prjón-
að umslag og Fókus tekur ofan
fyrir þeirri yngismey sem lagði í
að prjóna umslagið og aUt inn-
volsið sem í þvi er.
Nauðganir, ei
ar, sjálfS'
morð og einn ýtukarl
Inga Hrönn Guðmundsdótt-
ir á systur sem heitir Björk
Guðmundsdóttir. Inga Hrönn á
tvo stráka og einn mann. Inga er
söngkona í hljómsveit sem á sér
enga aðra líka.
Ertu búin aö vera lengi í
Hundslappadrífu?
„Nei. Ég er bara búin að vera í
rúmt ár en þessi hljómsveit hef-
ur verið starfandi í um fjögur ár.
Þá var hún að vísu fyrir vestan,
þeir eru þrír í bandinu sem eru
þaðan,“ segir Inga Hrönn og bæt-
ir því við að aUs séu þau sex í
hljómsveitinni.
Hvernig kom til aö húsmóöirin
fór aö rokka?
„Ég hef nú verið að syngja með
hinum ýmsu böndum frá því ég
var tólf ára og er líka búin að
vera I söngnámi í fjögur ár. En
ég kynntist þessum strákum
bara í gegnum sameiginlega
kunningja og eitt leiddi af öðru.“
Með Ingu í hljómsveitinni eru
bræðurnir Þorri og Keli. Þorri
er í Sniglunum og Keli semur öU
lögin. Brynja, vinkona Ingu,
Það er hann Keli
sem semur öll
iögin og textana
við þau en hann
er frekar svart-
sýnn ýtukarl.
Eitt lagið fjaiiar
einmitt um ýtu-
kari og annað er
um mann sem
ákveður að drepa
sig þegar Ladan
fer ekki í gang
einn morguninn.
spilar á harmónikku. Það var
Inga sjálf sem fékk hana í bandið
og þá átti hún ekki einu sinni
harmónikku og kunni lítið sem
ekkert að spUa heldur. Brynja er
í Sniglunum og Eyþór gítarleik-
ari líka. Helgi bassaleikari er
hins vegar ekki í Sniglunum.
Hann er bara af Skaganum.
Hafiö þiö veriö eitthvaö aö
spila?
„Já. Við vorum með út-
gáfupartí á Fógetanum á mið-
vikudaginn. Annars höfum við
bara verið svona hér og þar. Það
er náttúrlega frekar erfitt fyrir
mig að komast með hljómsveit-
inni tU að spUa úti á landi þar
sem ég á tvo stráka og mann sem
vinnur mikið eins og kannski
flestir karlmenn á íslandi."
Um hvaö eruö þiö annars aö
syngja?
„Nauðganir, einstæðar mæður
og triUukarla sem konurnar hafa
hent út. Það er hann Keli sem
semur öU lögin og textana við
þau en hann er frekar svartsýnn
ýtukarl. Eitt lagið fjallar einmitt
um ýtukarl og annað er um
mann sem ákveður að drepa sig
þegar Ladan fer ekki í gang einn
morguninn."
Eruö þiö pólitísk?
„Nei. Við erum úr öllum áttum
og þótt Hundslappadrífa heiti
Sveitasveitin þá er ég nú úr
Kópavogi. Við erum sem sagt
andstæður og erfltt að festa okk-
ur við einhverja pólitik."
Hvernig líst þér á viötökurnar
sem nýi diskurinn ykkar hefur
fengiö?
„Dómarnir eru fínir en út-
varpsstöðvarnar vilja ekki spila
okkur.“
Afhverju ekki?
„Ætli það sé ekki af því að
textamir em svo raunverulegir."
Og textamir hitta svo sannar-
lega beint í mark. Það er því um
að gera fyrir unnendur tónlistar-
manna sem fara sínar eigin leið-
ir að fjárfesta i nýja disknum.
Takið mark á gagnrýnendum en
ekki misvel gefnum útvarps-
mönnum.
-MT
... OG HVAR, VEROUR |>Ú UM 30UN ?
BARA H E
f Ó k U S 18. desember 1998