Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Qupperneq 6
matur AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333. „Erfitt er aö spá fyrirfram I matreiösluna, sem er upp og ofan. Ostgrilluð guesadilla var vel bökuö og hörö." Opiö í hédeginu virka daga 11.30-14.00, kvöldin mán.-fim. 17.30-22.30, fös-sun 17.30-23.30. Barínn er opinn til 1 á virkum dögum en til 3 um helgar. ARGENTÍNA ★★ Barónsstíg lla, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað.“ Opiö 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499. CARPE DIEM Rauðarárstíg 18, s. 552 4555. CREOLE MEX ★★★★ Laugavegl 178, s. 553 4020. „Formúlan er líkleg til árangurs, tveir eigendur, annar f eldhúsi og hinn í sal, og fókusinn á matreiðsluhefðum skilgreinds svæðis, í þessu tilviki suðurstrandar Banda- rfkjanna, Louisiana, Texas og Nýju-Mexfkó." Opiö 11.30-14 og 18-22 á virkum dögum en 18-23 um heigat. EINAR BEN Veltusundl 1. 5115 090. Opiö 18-22. HARD ROCK CAFÉ ★★ Krlnglunni, s. 568 9888. HÓTELHOLT ★★★★★ Bergstaðastrætl 37, s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber í mat- argerðarlist af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og nærfærin mat- reiðsla, sem gerirjafnvel baunir að Ijúfmeti." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga. HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óðlnstorg, s. 552 5224. „Stundum góður matur og stundum ekki, jafnvel f einni og sömu máltíð." Opiö 12-15 og 18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og laugardaga. IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700. „Matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóð- ir, en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnis- stæðir." Opiö frá 12-14.30 og 18-23. ÍTALÍA ★★ Laugavegl 11, s. 552 4630. KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551 1014. „Margt er það, sem dregur, matreiðsla, verðlag og andrúmsloft, sem samanlagt gera Kínahúsið að einni af helztu matarvinjum miö- bæjarins." Opiö 11.30-14.00 og 17.30-22.00 virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22 á sunnudögum. KÍNAMÚRINN ★★★ Laugavegl 126, s. 562 2258 LAUGA-ÁS ★★★★★ Laugarásvegl 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að íslenskum hætti sem dregur til sfn hverfisbúa, sem nenna ekki að elda f kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferðamenn utan af landi og frá útlöndum." Opiö llr22 og 11-21 um helgar. LÆKJARBREKKA ★ Bankastræti 2, s. 551 4430. MADONNA ★★★ Rauðarárstíg 27-29, s. 893 4523 „Notaleg og næstum rómantfsk veitingastofa með góðri þjónustu og frambæri- legum ítalfumat fyrir iægsta verð, sem þekkist hér á landi." Opiö virka daga 11.30-14.00 og 18.00- 23.00 og 17-23.30 um helgar. MIRABELLE ★★★ Smlðjustíg 6, s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir f profiteroles og créme brulée." Opiö 18-22.30. PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561 3131. „Ljúfir hrisgrjónaréttir og óteljandi til- brigði af góðum pöstum en Iftt skólað og of upp- áþrengjandi þjónustufólk." Opiö 11.30-23 virka daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka daga og til 3 um helgar. LA PRIMAVERA ★★★★ Austurstrætl 9, s. 5618555. „Sjálfstraust hússins er gott og næg innistæða fyrir þvf." Opiö 12.00-14.30 og 18.00-22.30 virka daga og um helgar frá 18.00-23.30. RAUÐARÁ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766. REX ★★★★ Austurstrætl 9, s. 511 9111 „Rex kom mér á óvart með góðri, fjölbreyttri og oftast vandaðri matreiðslu, með áherzlu á ein- föld og falleg salöt, misjafnt eldaðar pöstur og hæfilega eldaöa fiskrétti." Opiö 11.30-22.30. SKÓLABRÚ ★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en dálítið frosin. Þjónustan er kurteis og hófsöm." Opiö frá kl. 18 alla daga. TILVERAN ★★★★★ Llnnetsstíg 1, s. 565 5250. „Það eru einmitt svona staðir, sem við þurfum fleiri af til að fá almenning til að lyfta smekk sfnum af skyndibitaplani yfir á fyrstu þrep almennilegs mataræðis." Opiö 12-22 sunnudag til fimmtudags og 12-23 föstudag og laugardag. VIÐ TJÖRNINA ★ ★★★ Templara- sundl 3, s. 551 8666. „Nú virðist Tjörnin endan- lega hafa gefið forystuna eftir og raunar annað sætiö líka, gerir oftast vel, en ekki alltaf og mis- tekst raunar stundum." Opiö 12-23. ÞRÍR FRAKKAR ★★★★★ Baldursgötu 14, s. 552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum fs- lenskrar matargerðarlistar og fiskhús landsins númer eitt." Opiö 12-14.30 og 18-20 virka daga og 18-22 um helgar en til 23 föstu- og laugardag. |meira á. www.visir.is Mað Sigfús Bjartmarsson hefur verið að stúdera rándýrin í öllu sínu veldi. Hann er með bók fyrir jólin sem heitir einmitt Vargatal og er ítarlega skáldleg útlistun á íslenskum í>* ’???• '- • *.. '.V vörgum. Þetta er rétta bókin fyrir svo lengi sem bjöminn er að bryðja hausinn aílt að því bros- andi.“ veiðimanninn og önnur náttúrufrík. Hvftabjöminn „Og einmitt í sama bili líður aflangur skuggi aftan að honum og stækkar upp undir öndunar- opið og hrammurinn þá eldsnöggt á loft og klærnar í hausinn á blöðmsel og hann upp í kjaftinn. Og svo slengist skrokkurinn á isinn og svamlar Haförninn „Að vísu gæti hent sig að hann þyrfti fyrst að henglast um stund, og þá er nú ekki reisnin yfír kon- ungi fuglanna, líkastur manni sem búinn er að fá sig fullsáddan af því að standa svona í stað þó alltaf sé hann að staulast upp biðlist- ann eftir mjaðmaað gerðinni." Brún- rottan „Þær hverfa um leið og ég öskra. Og svo finn ég lengi vel v veitingahús Siglt með löndum Því meira sem hlutimir breyt- ast, því meira em þeir eins. Sömu veitingahús tróna nú á tindi íslenzkrar matargerðarlist- ar og fyrir tveimur áratugmn, Holtið og GriIIið. Aðrir staðir hafa risið og hnigið og Grillið verið brokkgengt á köflum síð- ustu árin, en i góðu formi síð- ustu vikur. Grillið hefur árum saman ver- ið í sama hefðarhamnum, glæsi- legur útsýnissalur milliklassa- hótels með virðulegri og alúð- legri þjónustu, samfara einum allra dýrasta matseðli landsins. Þríréttað með kaffi kostar 4.600 krónur á mann áður en kemur að borðvíni. Slíkt verðlag gefur ekki kost á neinum mistökum. Villusvigrúmið er takmarkað enn frekar með þvi að hafa fáa rétti á boðstólum, alla fasta og aðeins þrjá fiskrétti. Þetta má hafa til marks um, að við erum í hótelsal, en ekki ævintýrasal matargerðarlistar. Matseðillinn rambar raunar á barmi faglegrar fátæktar. Það er ekki spennandi að borða oft í Grillinu. Með smjöri og þrenns konar brauði var borið fram svokallað papenade, ágætur grautur úr ansjósum, olífum og sólþurrkuð- um tómötum. Fiðluleikari kom upp í salinn úr jólahlaðborðinu á jarðhæðinni og spilaði svo vel fyrir gesti, að messufall varð í borðhaldi um sinn. Þetta var falf- ega hugsað, en út úr stif. Forréttir voru undantekning- arlaust minnisstæðir. Risa- hörpufiskur í sitrónukrydduðu hvítasmjöri var meyr og fínn. Næfurþunnar laxa- og lúðuþynn- ur á japanska vísu með krydd- legnu grænmeti voru vel heppn- aðar. SkelfLettur humar á spínat- beði með eplabitum í trjónu- berjagljáa og jarðsveppaolíu var glæsifegur réttur með humri, sem bráðnaði á tungu. Andabringukjöt var rautt, meyrt og gott, með ljúflega rjómasoðnu byggi, kumquat sítrusávaxtasósu og andapylsu, skemmtilegt og nútímalegt frá- vik frá hefðbundinni og hun- angsgljáðri andakjötsmatreiðslu staðarins frá fyrri árrnn, sem ekki fyrir neinu undir stígvélinu og loks þegar eitthvað lint er und- ir reynist það bara olíutvistur, en rétt á eftir finn ég grisling, hálf- gerða mús, en það er þó á henni skotgat eftir tuttugu og tveggja kalibera, ekki loftriffifinn hans. Þær skríða líka svo mikið niður áður en þær drepast.“ Maðurinn „Fyrir utan að skrifa bækur þá sé ég fyrir mér með því að leggja járn í nýbyggingar," segir Sigfús Bjartmarsson skáld aðspurður um hvað maðurinn geri. Hvernig virkar þaö starf & höf- undinn? Nœrðu aö hugsa um skriftir d meöan þú vinnur? „Það fer nú eftir stressinu. En þetta er nú aðallega bara gjörólíkt. Maður reynir á sig líkamlega og hreinsar á sér hug- ann. Það er mikil einangrun sem fylgir því að vera skáld og ég held ég væri orðinn þreyttur á þessu ef ég væri i þessu alveg að at- vinnu.“ Hvaöan kemur hugmyndin aó því aö skrifa eitt stykki Vargatal? „Ég var náttúrlega alin upp norður í Aðaldal og þar var part- ur af verkunum að skjóta niður þá varga sem sóttu i varpið. í seinni tið fór ég síðan að hafa meiri áhuga á öllum þessum rán- dýrum sem lifa hér á norðurhjara veraldar. Þetta er hörð lífsb- arrátta sem þau lifa og ég fór að dunda mér við að skrifa um nokkrar þessara tegunda og það þróaðist síðan bara út í það að verða að heildstæðu verki.“ Hvernig vargur er maöurinn? „Nú vandast málið. HugtEikið vargur hefur svo margar hliðar i þessari bók. En í bókinni er aðal- áherslan á veiðimanninn. Ég er líka mjög heillaður af veiðisagn- fræði og hún kemur lítillega við sögu. En maðurinn er kannski að- allega snarbrjálað dýr.“ -MT Grillið hefur árum saman verið í sama hefðarhamnum, glæsilegur útsýnissalur milliklassahótels með virðulegri og alúðlegri þjónustu, samfara einum allra dýrasta matseðli landsins. hafði náð fullkomnun, en var orðin þreytt. Gott linsubaunamauk ofan á pönnusteiktum kartöfluþráðum fylgdi rauðri, mildri og mjúkri villibráðarþrennu staðarins, gæs, rjúpu og hreindýri. Þetta var mun betri þrenna en sú, sem ég fékk hér fyrir tveimur árum, en samt ekki bezta villibráð bæjarins. Sítrónuterta minnti á sítrónu- búðing með brenndri sykur- skorpu, nánast créme brúlée, bragðsterk, létt í maga og frísk- andi, borin fram með ískrapi og laufum úr þremur sítrusávöxt- um, fyrirtaks endir á góðri og traustri máltíð, sem var hófleg að metnaði og sigldi með lönd- um. Kaffl var gott, en espresso þunnt. Jónas Kristjánsson 6 f ÓkllS 18. desember 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.