Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Blaðsíða 7
)
TEIKNING: PÓRARINN LEIFSSON
Það er liðin tíð að pabbar andvarpi upp frá búðalabbi vegna þess að þeir eru svo blankir að þeir geta
ekki gefið mömmu kjól. Nú eru jólaáhyggjurnar aðrar eins og Eiríkur Jónsson komst að.
Leitin að
í myrkrinu
Innflutningur á jólaskrauti
hefur aukist um 40 prósent á síð-
ustu fimm árum að mati kaup-
manna. Ástæðan er aukinn
áhugi íslendinga á að skreyta
fyrir jólin og liggur fyrrnefnd
) aukning að stærstum hluta í raf-
magnsskrauti alls konar. Manna
á meðal er gjaman rætt um jóla-
| skrautsæði.
Sálfræðingar eru ekki á einu
máli um skýringar þessa æðis.
Sérstaklega vegna þess að und-
antekningarlítið er það hús-
bóndinn á heimilinu, fjölskyldu-
faðirinn, sem gengur harðast
framm í skreytingunum. Skiptir
þá engu þó viðkomandi sinni
cddrei öðrum húsverkum. Þegar
líður að jólum umturnast hann.
Ýmsir byggingavörumarkaðir
eru uppáhaldsstaðir þeirra fyrir
jólin. Þar hittast þeir, ráða ráð-
um sínum og gera stórinnkaup.
Flestir byggingavörumarkaðir
eru komnir með sérdeildir fyrir
rafknúið jólaskraut og er salan
nær því stöðug frá miðjum októ-
ber.
„Þetta er leit mannsins að
barninu í sjálfum sér,“ segir sál-
fræðingur sem sérstaklega hefur
kynnt sér jólaskrautsæðið.
„Þetta er leitin að ljósinu í
myrkrinu," segir annar. „Þetta
er keppni þeirra sem hafa orðið
undir í keppni lífsins," segir sá
þriðji.
Leitin að barninu í sjálfu sér
endurspeglast í því nostri sem
fylgir því að skreyta. Það er mik-
ill vandi og nákvæmnisverk að
setja upp jólalýsingu svo vel
fari. Þegar best lætur er óhætt
að tala um list f þvi sambandi
þar sem tvinnast saman litir,
lýsing, ljós og skuggar. Kenning-
in um ljósið í myrkrinu skýrir
sig sjálf og liggur reyndar í aug-
um uppi. Aukabirtan sem hlýst
af jólaskrautinu er veruleg og
skiptir þá ekki minnstu að jóla-
lýsingin er látin loga allan sólar-
hringinn og útrýmir því myrkr-
inu endanlega í ákveðnum skiln-
ingi. Keppni milli manna í
skreytingum kemur síðan best
fram í magni frekar en gæðum.
Algengt er að menn yfirskreyti
og þá er stutt í smekkleysuna.
Hins vegar getur yfirskreyting
verið ákaflega vel heppnuð ef
smekkvísi og vandaðar jóla-
skreytingar fara saman. Hafa
menn jafnvel gengið svo langt að
skreyta hús sín jafnt að utan
sem innan og bætt síðan götunni
við að auki. Verða ijósastaurar
þá oft fyrir valinu.
Góð skreyting á sér langan
aðdraganda. Algengt er að menn
kaupi rafskraut erlendis í sum-
arleyfum sínum og þykir Flórída
besti staðurinn til að fjárfesta í
skrauti. Bandaríkjamenn hafa
þróað jólaskraut á mjög
skemmtilegan hátt og kennir
ýmissa grasa í sérverslununum
erlendis. Til dæmis er hægt að fá
Mjállhvíti og dvergana sjö í jóla-
búningum ytra svo og Prins
Valiant og Mark Twain. Mjall-
hvít og dvergarnir sjö eru
einmitt til sem utanhússskraut í
þremur görðum í Reykjavík og á
einum stað á Norðurlandi.
Það er stór stund í lífi skreyt-
ingamanns þegar kveikt er á
skrautinu, yfirleitt snemma í
desember. Er gestum jafnvel
boðið í heimsókn bæði fyrir og
eftir. Ánægjan er þó mest þegar
heimilisfaðirinn fer að taka eftir
þvi að umferð fyrir utan hús
hans hefur aukist. Algengt er að
borgarbúar geri sér ferð að
kvöldlagi til að skoða og bera
saman skemmtilegar skreyting-
ar og eru jafnvel farnar hópferð-
ir í þvi skyni.
„Vel heppnuð jólaskreyting
getur aukið sjálfstraust eig-
enda,“ segir bandaríski sálfræð-
ingurinn Claus Nöel. „Karlmenn
með lágt sjálfsmat fá það á til-
finninguna að þeir hafi endur-
fæðst í ákveðnum skilningi.
Upplifa sig sem nýja menn, hafa
fundið barnið í sjálfum sér -
fundið ljósið." -EIR
I
i
upphitun, svo ljóst
er að bæði Botn-
leðja og Papar eiga
möguleika á að
spila í Sundahöfn.
Það er þó ekkert
réttlæti I heimin-
um ef Rúnar Júlí-
usson fær ekki að
stíga fæti á svið,
því hann er einn af
eldheitustu Roll-
ingum landsins og
sótti á sínum tíma
um að sæti Bills
Wyman bassaleik-
ara. Þá báru Stóns-
arar ekki gæfu til
að velja réttan
mann, en nú er
bara að sjá hvort
þeir velja rétt. Upphitarar fá oft
að djamma með Stóns, t.d. fékk
Sheryl Crow að taka með þeim
„Honky Tonk Woman“ og Dave
Matthews söng „Memory Mot-
el“. Fókus mælir því með að
GCD verði endurlífgaðir af
þessu tilefni og þá gætu Bubbi
og Rúnar stokkið á svið með
Jagger, Richards og kó og til
dæmis tekið „Satisfacion" með
goðunum.
Nú fyllast popparar
landsins miklum
spenningi eftir að fá
að vita hvaða band
Rolling Stones kýs til
að hita upp fyrir sig í
Sundahöfn. Þetta er
mikið happdrætti, en
þegar hafa bæði
Lhooq og Anna Hall-
dórsdóttir dottið í
upphitunarlukkupott- j
inn þegar David j
Bowie og Sting völdu i
þau úr fjölda umsækj-
enda. Rollingarnir >
fara eftir áramót til I
Bandaríkjana og þar I
sjá Green day, Goo I
Goo Dolls, The Corrs I
og Johnny Lang um I
i
rjjiU-lU
1 DrJ
Í/I#
'-> J J’
KRAFTMESTA OG HRAÐVI
h|9 NINTEffPO.64
LEIKJATÚLUAIHEIMI
• EínfÖld í notkun (Barnavæn)
• Aflmikil - 64 bita
• Rauntíma - þrívídd
• Enginn biðtími.
(Allt að 15 mín í öðrum leikjatölvum)
• Allt að 4 spilarar í einu
• Besta leikjatölvan ‘98
• Golden Eye 007, hæst dæmdi
leikurinn 1998(98%)
• Margföld ending leikja
• Um 80 leikjatitlar
SÖLUSTAÐIR
Reykjavik: Hagkaup, Elko, Hljómco, BT-tölvur, Bræðurnir Ormsson, Heimskringlan, Heimislistæki, SAM-tónlist, Japis, Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga Borganesi. Vestfirðir:
Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, Isafirði. Norðurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. Bókval, Akureyri. Hagkaup Akureyri. Öryggi, Húsavik. Suðurland:
Árvirkinn, Selfossi. Kf. Árnesinga, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Reykjanes: Hagkaup, Keflavík. Ljósboginn, Keflavlk. Samkaup, Keflavík.
:
18. desember 1998 f Ó k U S
7