Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Page 15
Einhverra hluta vegna kemur hellingur af stórfurðulegri tónlist frá útgáfufyrirtækjum í Þýskalandi. Hjá hinum þýsku eðalmerkjum, Bungalow og Q.D.K., má alltaf búast við að athyglisverðir hlutir séu að gerast. Merkin sérhæfa sig í „skrýtinni" tónlist og koma listamenn fyrirtækjanna frá flestum heimshornum. Hljómalind er með þýsku útgáfuna Bungalow á sínum snærum og á því merki er gefið út mikið af danstónlist og poppi, en kryddið er alltaf framandi og angar langar leiðir af kokkteildrykkjum, dýrum ilmvötnum og listrænu „flippi". Besti staðurinn til að byrja er að fá sér safnplötuna „Suite 98“, þar sem helstu trompin sína listir sínar. Þar má nefna framúrstefnupopp Skotans Momus, gallsúrt pönk- popp þýska kvennabandsins The Pop Tarts og ægisykrað popp hinnar fransk-taílensku Leilu France. Pizzicato 5, Saint Etienne og Serge Gainsbourg eru goð flestra sem gefa út hjá Bungalow og poppuð tónlistin er kjörin til að koma fólki í gott skap og til að diila sér við. Önnur tilvalin plata í safnið frá Bungalow er safhplatan „Sushi 4004“, sem er stútfull af göldróttu klúbbapoppi frá Japan, enda hafa Japanir löngum verið duglegir að matreiða skemmtilega froðu í flottum umbúðum. Þá er fyrsta Leila France spilar ægisykrað og skemmtilegt popp. plötudómur albúm Pop Tarts, „Wom- an is the fu- ehrer of the world“ þræl- gott, og kokk- teilkóngamir í Combustable Edison hafa nýverið gefið út á frábæran disk hjá Bunga- low, hina svellköldu og sjarmerandi „The Impossible World“. Mottó Bungalow er „skrýtin tónlist með skrýtnum böndum frá skrýtnum löndum á skrýtnu merki“ og í framtlðinni má búast við enn skrýtnari tónlist og af öll- um gerðum, því eigendum fyrir- tækisins finnst það „ómögulegur stæll að halda sig bara við einn stíl“. Brjóst og Bítlar Plötubúðin 12 Tónar flytur inn plötur frá Q.D.K. og þar kveður við nokkurn annan tón en hjá Bungolow, þótt skemmtilegheitin séu í jafnmiklum hávegum höfð. Fyrsta stoppistöðin að tónaveröld merkisins er safnplatan „Music for gracious living". Þar er boðið upp á sýnishom af plötum útgáf- unnar; tónlist úr kvikmyndum Russ Mayer, sem er þekktur fyrir sínar brjóstgóðu leikkonur, tón- list úr kvikmyndum Ný-sjálend- ingsins Peters Jackson (“Braindead", „Bad Taste“ og „Meet the Feebles"), tónlist sem „pin-up“-prinsessan Betty Page dillaði sér við í denn, og kexrugl- aða „sækadelíu“-tónlist, sem kem- ur af sjaldgæfum vinylplötum frá ‘68-72. Sýrurokkið má flnna á tveimur safnplötum, „Love, Peace and Poetry". Fyrri diskurinn er tileinkaður óþekktum böndum frá Norður-Ameríku, en sá seinni hef- ur að geyma ekki síður frikað sýrurokk frá Suður-Ameríku. Fram undan em útgáfur af sams konar tónlist frá Bretlandi og Asíu. Q.D.K. býður upp á margt fleira, t.d. stórfurðulega tónlist sem samin var á fyrstu hljóðgervl- ana og safnplötuna „Pepperism", þar sem safnað er saman gömlum bílskúrsböndum víðs vegar Meikdolla Af þeim fjölmörgu íslensku listamönnum sem reynt hafa fyr- ir sér á erlendum vettvangi hafa fæstir haft erindi sem erfiði. Enda ekki beint skortur á tónlist- arfólki í Englandi eða Bandaríkj- unum, en þangað liggur leiðin oftast hjá vongóðum poppurum. Ef marka má fregnir hefur gengið ágætlega hjá Móu í meik- inu. Hún hefur fengið góða dóma bæði í Englandi og Noregi og þó litlum sögum fari af sölu á „Uni- versal" þýðir það ekki að hún gangi illa. Ónei. Öll lögin á plötunni eru eftir Móu og hún nýtur auk þess fulltingis Eyþórs Arn- alds, hann semur með h e n n i nokkur lög og er auk þess t i t 1 a ð u r „excutive prod ucer“, hvað sem þ annars þýðir. Fjölhæf- ur maður, Eyþór og sannkallaður Ámi John- sen X-kynslóðarinnar. Eða X-D kynslóðarinnar. „Ef marka má fregnir hefur gengið ágætlega hjá Móu í meikinu. Hún hefur fengið góða dóma bæði í Englandi og Noregi og þó litlum sögum fari af sölu á „Universal“ þýðir það ekki að hún gangi illa. Ónei.“ að, sem eiga það sameigin- legt að vera undir geigvæn- legum áhrifum af Bítlaplöt- unni „Sgt. Peppers". Velflest plötuumslögin frá Q.D.K. eru skreytt með fáklæddum konum og segja útgefendurnir að það sé gert með ráðnum hug, því þeir , telja að flestir sem nenna að fylgjast með svona skrýtinni tónlist séu piprandi öfugugg ar. Fullt til viðbótar Þótt útgáfur þessara tveggja fyr- irtækja nægi tíl að halda leitandi músikáhugafólki brosandi svo mánuðum skiptir eru mörg önnur þýsk merki að gefa út skrýtna og sniðuga tónlist. Útgáfufyrirtækið Crippled Dick hefur ýtt stórund- arlegri tónlist fyrri áratuga upp á yfirborðið, t.d. með útgáfu á gleymdri klámmyndamúsik frá Evrópu. Þá má nefna útgáfufyrir- tækin Marina, sem sérhæfir sig í sætsúru poppi, og Monika, sem er skírt eftir Moniku Lewinsky og gefur út snarklikkað nútímarokk. Það er því ljóst að margt fleira en októberfest og fótbolti eru uppi á pallborðinu í Þýskalandi þessa dagana, enda hafa Þjóðverjar löngum verið „afbrigðilegir" þeg- ar kemur að tónlist, klámi og póli- tík. -glh lce Cu Lögreglan bjargaði nýlega græj- um í eigu rapparans Ice Cubes að verðmæti 1,5 milljónir dala. Með Niggers with Attitude söng Ice lag- ið „Fuck the Police", en nú er löggan að spá í því hvort Ice Cube muni rappa nýtt lag, „Thank the Police". Löggan handtók þjófinn þegar hann var að brjótast inn í geymslu í eigu O’Shea Jackson (fæðingarnafn Ice Cubes) og ísmol- inn fékk græjumar sínar allar aft- ur. Nýjasta plata rapparans heitir „War and Peace Vol. 1“ og kemur seinni hlutinn út á næsta ári. Hann hefur lítinn tíma til að leika sér á tónlistargræjumar sínar í augnablikinu því hann er að leika í nýrri kvikmynd, „Three Kings“, þar sem hann leikur á móti Geor- ge Clooney og Mark Wahlberg. Tom Morello geimvera Tom Morello úr Rage Against The Machine leikur í nýju Star Trek-myndinni, sem frumsýnd var í vikunni. Myndin heitir „Star Trek: Insurrections" og er Tom ekki auðþekkjanlegur því hann leikur mjög farðaða geimveru og býst ekki við að nokkur maður þekki sig í myndinni nema hann sjálfur. Þriðja plata RATM er langt kom- in í vinnslu og á að koma út snemma á næsta ári. Auk þess er Tom með í endurvinnslu á Pink Floyd-myndinni „Another Brick in The Wall“, sem mikil leynd hefur hvílt yfir. Móa - Universal: ★★ „Universal" er heilsteypt plata. Öll lög- in á henni flokkast undir raf- rænt popp, textamir eru á ensku og ekkert sérstak- lega frumlegir, frekar en tónlistin. Eiginlega bara miðjumoð og lítið um marktækifæri, svo ég vitni í Bjarna Fel. Tæknilega er platan öll mjög vel unnin og ef um væri að ræða eitt- hvað annað en tónlist æri það nóg. Fag- mennska er bara ekki allt. Hvað um frumleika, dirfsku, einlægni, tjáningarþörf, bara allt annað en hungur í frægð og frama? Það er þessi innantóma fagmennska sem er einkenn- ismerki „Universal". Portis- head virðast vera í uppáhaldi hjá Móu, einnig bregður fyr- ir jungletöktum og heföi mátt fara lengra með þá pælingu. Eða bara einhverja pælingu aðra en þennan skandinavíska misskilning á hvernig raftón- list á að hljóma. Maður getur cdtént huggað sig við að Puff Daddy var ekki útgangspunkt- urinn. I þetta skipti. Móa er ágæt söngkona, „Uni- versal" er frekar slöpp plata og lífið er tilgangslaust. Ari Eldon (móa) Tæknilega er platan öll mjög vel unnin og ef um væri að ræða eitthvað annað en tónlist væri það nóg. Fagmennska er bara ekki allt. Hvað um frum- leika, dirfsku, einlægni, tján- ingarþörf bara allt annað en hungur í frægð og frama? 18. desember 1998 f Ó k U 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.