Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Síða 19
f og inn í eldhús að narta í jólamatinn." Sigurjón: „Skaupið á ekkert erindi lengur. Það hefur ekkert að segja okkur. Spaugstof- an er búin að blóð- mjólka Keikó-brandar- ana.“ Jón: „Þegar skaup- ið kemur núna með Móniku Lewin- 5 sky-brandarana eru þeir ekki fyndnir lengur. Þetta verður bara dauði. Og Keikó. Það er öll- um nákvæmlega sama um þenn- an Keikó.“ Eruö þiö ekkert aö gera grín að „samtímalegum" þáttum í ykkar áramótaþœtti? Jón: „Við erum að tala um sí- gilda samfélagslega hluti.“ Sigurjón: „Það er ofsa auðvelt að afgreiða okkur - eins og ein- hver gerði - sem skoðunarlausa grínista, sem er alveg sama um það sem er að gerast i þjóðfélag- inu. Það er okkur ekki. Við ger- um þetta bara á annan hátt, nálgumst þjóðfélagið á annan hátt en t.d. Spaugstofan og skaupið." Jón: „Þetta er eins og munur- inn á popptónlist og klassískri tónlist. Poppið tekur mið af líð- andi atburðum; ástinni og ástandinu í heiminum. Til dæmis eins og lagið „Ekvador“, sem tekur fyrir ástandið í Ekvador. En klassísk tónlist tekst á við mannlegar tilfínning- ar á öllum öldum. Við erum því kannski klassíska tónlist gríns- ins. Við erum með beinharðan sósíal-realisma, vegsömum og gerum grín að hegðun, atferli og framkomu hjá fólki.“ Angist og kvíði Fyllist þiö tómleikatilfinningu í janúar þegar jólin eru búin? Jón: „Já, og gleymum því ekki að ég á afmæli 2. janúar, sem er ömurlegasti dagur ársins - vörutalningadagur. Það gleyma allir að kaupa afmælisgjöfina mína fyrir jólin svo ég fæ alltaf bensínstöðvagjafir. Á einu af- mælinu fékk ég þrjá plastbíla með olíutunnum." „Mér líður nú bara vel með karimennsku mfna. Ég þarf ekki að skjóta upp flugeldum til að sanna að ég sé karlmaður. Sem er eitthvað annað en Jón. Hann er alttaf gangandi um í leðurbuxum og kaupandi eínhverja kagga, bara vegna þess að þú er óöruggur með karfmennskuna. Þér liggur hátt rómur og talar eins og keriing. Þarf að segja meir?“ Sigurjón: „Janúar er dauðasti mánuður ársins og sá lengsti. Það þarf að framlengja jólin og þau eru framlengd fram í nóv- ember. Það er ömurlegt að taka jólaskrautið niður. Það ætti að hanga uppi þar til í febrúar." Jón: „Það er hryllilega leiðin- legt að setja upp jólaskraut og helmingi leiðinlegra að taka það niður. Ég get ekki lýst þeirri angist og kviða sem ég fyllist alltaf á gamlárskvöld. Allt sem maður sér eftir á árinu sem er að líða og allt sem maður kvíðir fyrir á nýju ári. „Nú árið er lið- ið í aldanna skaut og ALDREI það kemur til baka“ - þetta er svo kalt og endanlegt. Af hverju er ekki hægt að segja, „Nú árið er liðið í aldanna skaut og LÍK- LEGA kemur það ekki til baka“? Hitt er svo mikið kjaftshögg." Sigurjón: „Með hverjum degi ertu 24 timum nær dauðanum og hvað þá þegar heilt ár er búið. Eftir fimmtíu ár verður maður orðinn áttræður." Jón: „Hugsaðu þér! Ég hugsa mikið um dauðann, enda alinn upp með gömlu fólki og það var alltaf einhver að deyja í kring- um mig. Ég fer í læknisskoðun á tveggja mánaða fresti, fylgist mjög vel með heilsu minni, reyki og svona. í lokin óskum við landsmönnum öllum gleði- legra jóla, lands og friðar." Sigurjón: „Lands og friðar, já.“ -glh I » » I I 1 I i> h 18. desember 1998 f ÓkUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.