Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1998, Page 28
3íóborgin
ioldier ★ Enn fljúga til okkar jólasteikur alla
leió frá Amriku. Soldier
er ein ^f þessum flötu
eftirlíkirigum sem yfir-
leitt ratár rétta boöleiö
á víde,ó. Þaö er ekkert
sem ' nær aö lyfta
þessari mynd upp í
meöalmennskuna,
sagan og allar persón-
í ur eru fullkomnar klisj-
ur án þess aö nokkurs
| staðar sjáist örla á
| íróníu, æ æ. -úd
Mulan irkirk Mulan er uppfull af skemmti-
iegum hugmyndum ogflottum senum, handrit-
ð vel skrifaö og sagan ánægjulega laus viö þá
yfirdrifnu væmni sem oft einkennir Disney.
Mikil natni er lögð í smáatriöi eins og er viö
hæfi t teiknimyndum, og aukakarakterar eins
og drekinn og litla (lukku)engisprettan eru svo
^skemmtileg aö þau hefðu ein og sér verið efni
í heila mynd. Gó st. -úd
The Horse Whlsperer kki Bók Nlcholas
Evans hlaut misjafnar viötökur og var annars
vegar lofuð sem glæsilegt meistaraverk og
hins vegar gagnrýnd sem innihaldslaus loft-
bóla. Myndin brúar að mínu mati bilið og
kannski má kalla hana fallega loftbólu. -ge
Bíóhöllin/Saga-bíó
The Negotlator kki Samuel L. Jakson og
Kevin Spacey eru í ftnu formi t The Negotiator
sem er ágætlega skrifuð sakamálamynd en
ekki nógu heilsteypt. Þeir dreifa athyglinni frá
brotalömum í uppbyggingu myndarinnar og þvt
að aldrei næst að skapa almennilega spennu
í kringum þá dramattsku atburði sem eru að
gerast. -HK
Perfect Murder Andrew Davis, leikstjóri
A Perfect Murder,
. ræðst ekki á garð-1
inn þar sem hann
er hæstur því að |
fyrirmyndin, Dial M
for Murder (1954),
telst ekki til bestu
mynda Alfreds1
Hitchcocks. Útkoman er þó ágætis afþreying
sem kemur stundum skemmtilega á óvart.-ge
FJölskylduglldran **i Sumar sögur eru svo
vel byggðar upp og skemmtilegar að ekki er
hægt að eyðileggja þær og þessi ágæta út-
gáfa af tvíburunum sem skipta um hlutverk er
skemmtileg og notaleg þó búið sé aö troða
inn á hana misgóðum rokklögum sem ekkert
hafa með myndina að gera, hún stendur alveg
fýrir sínu án þeirra. -HK
Töfrasverðlð kk -HK
Háskólabíó
Taxl ★★ Taxi er farsakennd spennumynd þar
sem tekst að ná upp jafn skemmtilegri stemn-
ingu með góðum
húmor, sérstaklega
fýrri hluta myndarinn-
ar, og þótt samtöl
virki stundum sem
eintómur ruglingur
þá er Taxi skemmti-
leg tilbreyting frá am-
erisku hasarmynda-
flórunni sem við
þurfum að lifa við.
-HK
Out of Slght ★★★ Þetta er svona hasarmynd
á yfirborðinu en undir niðri litill blús um tvær
manneskjur sem hefðu sameinast á öðrum
stað og öðrum tíma en heimurinn er stundum
vondur og svo sem ekkert um það að segja
nema að þetta jafnast allt hjá guði. Steven
Soderbergh stýrir þeim Clooney og Lopez
þeina leið í höfn. -ÁS
Stelpukvöld ★★ Persónur allar dregnar skýr-
um, einföldum dráttum og lifna ágætlega á
tjaldinu. En þetta er ekki merkileg kvikmynda-
gerð, hér er málað á tjaldið eftir númerum og
satt að segja tilheyrir þessi mynd síðdegisdag-
skrám sjónvarpsstöðvanna. -ÁS
Maurar ★★★ Vel heppnuð og skemmtileg
tölvugrafísk teiknimynd með rómantísku ívafi
sem öll fjölskyldan getur sameinast um að
sjá. Woody Allen talar fyrir aðalpersónuna Z og
fer á kostum í hlutverki sem skrifað var fýrir
hann. Af öðrum frægum röddum er vert að
geta hlutverka Sylvesters Stallones og Genes
Hackmans sem báðir komast vel frá sínu,-HK
Kringlubíó
l’ll Be Home for Chrlstmas ki Er þó ekki
alslæm því inn á milli eru skemmtilegar
persónur sem ágætir leikara gera sér mat úr.
Jonathan Taylor Thomas (Handlaginn
heimilisfaðir) er ekki mjög jólasveinslegur í
jólasveinabúningi en er ágætur leikari en
vantar kannski þá persónutöfra til að geta
haldið einn uppi heilli kvikmynd. -HK
The Avengers ★ Herra Steed og frú Peel eru
leyniþjónustumenn sem eiga í höggi við veður-
spámann sem hefur tekið að sér veðurstjórn-
un svo það er allra veðra von. En skrautlegt
veðurfar er ekki nóg til
að halda uppi heilli
mynd og vandamálið hér
er að þegar svona mikið
hangir á stílnum þá
veröur sá að ganga upp;
virka smart og kúl en
ekki vandræðalega til-
gerðarlegur. -úd
Laugarásbíó frumsýnir í dag The
Odd Couple II, sem er framhald
geysivinsællar kvikmyndar sem
gerð var fyrir nákvæmlega þrjátíu
árum. Sú kvikmynd var gerð eftir
samnefndu leikriti eftir Neil
Simon, eitt vinsælasta leikskáld
Bandaríkjanna, og Simon skrifar
handritið að framhaldinu. Jack
Lemmon og Walter Matthau fóru
á kostum í Odd Couple (eins og þeir
hafa raunar gert í langflestum
þeirra ellefu kvikmynda sem þeir
hafa leikið saman í) og eru mættir
aftur til leiks í hlutverkum hinna
ólíku félaga Felix Ungar og Oscar
Madison.
í fyrri myndinni deildu þeir Fel-
ix og Oscar saman íbúð i New York
en hafa verið aðskildir í langan
tíma. Þeir verða þó að sætta sig
hvor við annars samneyti í bíl eftir
endilangri Kaliforníu þar sem þeir
eru á leið í sama brúðkaupið. Það
vill nefnilega svo til að sonur
Oscars og dóttir Felix hafa fundið
ástina hvort í fangi annars og eru
að fara að gifta sig. Ferð þeirra fé-
laga i bílaleigubíl gengur ekki eins
og til var ætlast og villast þeir oftar
en einu sinni og lenda í ýmsum æv-
intýrum.
Neil Simon segir að það séu um
ekki gáfaðri
Jack Lemmon og Walter
Matthau eru meðal vin-
sælustu og virtustu kvik-
myndaleikara á þessari
öld, Þeir eiga að baki
langt .samstarf sem borið
hefur ríkulegan ávöxt, en
eiga einnig að baki glæsi-
legan feril hvor í sínu lagi,
Þeir hafa unnið saman við
gerð ellefu kvikmynda,
leikið saman í tíu þeirra,
en sú ellefta er Kotch
sem Jack Lemmon leik-
stýrði en Walter Matthau
lék aðalhlutverkið í, með
þeim árangri að hann var
tilnefndur tit óskars-
verðlauna.
það bil níu ár síðan hann fór að
huga að framhaldi af The Odd
Couple og láta þá félaga hittast á ný
í kringum brúðkaup bama þeirra.
„Þegar ég hugsaði um það hvað
þeir væru að gera í dag fannst mér
eðlilegast að Felix byggi enn í New
York en Oscar hefði ílutt sig í sól-
ina i Florida. Þeir eru báðir komn-
ir á eftirlaun og hafa ekki hist í
mörg ár. Þeir eru sömu tveir menn-
irnir sem við kynntumst einu sinni
en eru eins og fiskar á þurru landi
í Kaliforníu þar sem hvorugur
þeirra hefur dvalið. Þegar ég var
búinn að skrifa handritið lét ég það
ekki frá mér fyrr en ég var viss um
að Jack Lemmon og Walter Matt-
hau væru tilbúnir að leika Felix og
Oscar, aðrir komu ekki til greina."
Auk þeirra Jacks Lemmons og
Walters Matthau leika i The Odd
Couple II Christine Baranski,
Barnard Hughes, Jonathan Sil-
verman og Jean Smart. Leikstjóri
er Howard Deutch, en hann leik-
stýrði Lemmon og Matthau í
Grumpier Old Men.
Kvikmyndir sem Jack Lemmon og
Walter Matthau hafa unnið saman við:
The Fortune Cookie 1966 The Odd Coupie 1968
• Kotch 1971 © The Front Page 1974 • Buddy,
Buddy 1981 JFK 1991 Grumpy Old Men 1993
• Grumpier Old Men 1995 • The Grass Harp 1996
OutToSea 1997 The Odd Couple I11998
Sagan á bak við Felix
og Oscar
Leikritið The Odd Couple var
frumsýnt á Broadway árið 1965 og
fyrir það fékk Neil Simon sín
fyrstu Tonyverðlaun af mörgum.
Walter Matthau lék Oscar á Broa-
dway, en mótleikari hans þar var
Art Camey. Matthau fékk einnig
Tony verðlaunin ásamt leikstjór-
anum Mike Nichols. Leikritið
var sýnt í 966 skipti. Kvikmyndin
var síðan gerð 1968 og þá hafði
Jack Lemmon leyst Art Camey af
hólmi og leikstjóri var Gene
Saks. Myndin náði ekki síður vin-
sældum en leikritið og varð vin-
sælasta kvikmyndin það árið.
Snemma á áttunda áratugnum
var síðan farið út í að gera sjón-
varpsseríu og gekk hún í sex ár.
Þar léku Felix og Oscar þeir Tony
Randall og Jack Klugman.
Allt frá því leikritið var frum-
sýnt á Broad-
way hefur
það farið sig-
urför um
heiminn og
er enn í dag
eitt mest
sýnda leikrit
Neils Simons.
Bíódómur
Bíóhöllin /Kringluhíó - FU Be Home for Christmas irk
J6fciiírtynd fíiiing ins
Leikstjórl: Arlene Sanford. Handrit: Harris
Goldberg og Tom Nursall. Kvikmyndataka:
Hiro Nirita. Tónllst: John Debney. Aðalhlut-
verk: Jonathan Taylor Thomas, Gary Cole,
Jessica Biel, Adam Lavorgna og Eve Gordon.
Jólin eru margslungið fyrirbæri
í nútímaþjóðfélagi. Boðskapur
kristinnar trúar um fæðingu frels-
arans gerir jólin hátíðleg, en í aug-
um margra eru jólin fyrst og fremst
fjölskylduhátíð þar sem fjölskyldan
sameinast, gefur gjafir og fær gjafir
og það er undirstaðan í I’U Be
Home for Christmas, þar sem
aldrei er minnst einu orði á trú eða
trúarlegan tilgang með jólahátíð-
inni, heldur er hvert atriðið af öðru
ofhlaðið skrauti og yfirborðs-
mennsku. Undir niðri örlar þó á
því að jólin séu meira en kaup-
stefna og kærkomið frí.
Aðalpersónan er Jake, sjálfsör-
uggur og montinn menntaskóla-
nemi sem er við nám í Kaliforníu
vegna þess að lengra gat hann ekki
komist frá fjölskyldunni. Jólin
nálgast og hann er ekkert á því að
láta eftir þrábeiðni föður síns um
að eyða jólunum í faðmi fjölskyld-
unnar, það er að segja ekki fyrr en
faðirinn lofar honum forláta
Porsche verði hann kominn heim
fyrir kl. 18 á jóladag. Allt í einu er
það vel þess virði að eyða jólunum
heima. Áður en hann kemst af stað
gera nokkrir félagar hans, sem eiga
harma að hefna, honum örlagarík-
an grikk, þeir klæða hann í jóla-
sveinabúning, líma á hann hvítt
skegg og skilja hann eftir í miðri
eyðimörk. Eftir áfallið gerir Jake
sér grein fyrir því að ef Porscheinn
á að vera hans þarf hann á allri
sinni greind að halda til að komast
heim í tæka tíð. Við fylgjum honum
svo eftir þegar hann fer á puttanum
þvert yflr Bandaríkin.
Nærtækast væri að flokka I’ll Be
Home for Christmas sem vega-
mynd, hún gerist að mestu á þjóð-
vegum, en aðall góðra vegamynda
er raunsæi og það er víðs fjarri hér.
I staðinn er myndin klisjukennt
léttmeti ætlað unglingum og sker
hún sig lítið frá slíkum meðal-
mennskumyndum nema ef vera
skyldi að aðalpersónan er í jóla-
sveinabúningi. Þaö sem bjargar
Þaö sem bjargar myndinni frá því að vera algjört fíaskó eru
margar skondnar persónur sem Jake hittir á heimleiðinni,
persónur sem hægt er að hafa gaman af vegna þess að
þær koma mátulega lítið við sögu.
myndinni frá því að vera algjört
fiaskó eru margar skondnar per-
sónur sem Jake hittir á heimleið-
inni, persónur sem hægt er að hafa
gaman af vegna þess að þær koma
mátulega litið við sögu. Jonathan
Taylor Thomas, sem leikur Jake,
hefur sýnt i nokkrum kvikmyndum
og sjónvarpsþáttunum Handlaginn
heimilisfaðir að hann er ágætum
hæfileikum búinn sem leikari, en
nú kemur í ljós að hann hefur ekki
burði til að halda uppi heilli mynd.
Það hefði þurft leikara á borð við
Jim Ccirrey eða Robin Williams á
góðum degi til að ná myndinni upp
yfir meðalmennskuna.
Hilmar Karlsson
28
f Ó k U S 18. desember 1998