Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1998, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1998, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 Fréttir 200 milljóna króna titringur á fasteignamarkaðnum: Nettó vill Umferð- armiðstöðina „Við fáuxn tilboð um tíu hús á viku að meðaltali," segir Sigmund- ur Ófeigsson hjá verslunardeild KEA varðandi útþenslu Nettó- verslunarkeðjunnar suður yfir heiðar. „Reykvískir fasteignasalar hafa mikinn áhuga á okkur eftir að okkur var neitað um hús Jóns Ás- björnssonar við Reykjavíkurhöfn." Kea-Nettó var tilbúið til að borga 200 milljónir fyrir verslunar- húsnæði við Reykjavíkurhöfn en var hafnað af borgaryfirvöldum á þeim forsendum að starfsemi við höfnina ætti að vera hafnsækin. Þó er vitað að svepparækt er stunduð við höfnina: „Hvað þá með væntanlegt tón- listarhús og elliheimilið við Tryggvagötu?" spyr Þórarinn Egill Sveinsson, aðstoðarkaupfélags- stjóri KEA. „Eru það hafnsækin fyrirbæri?" Hús Jóns Ásbjörnssonar - stöðvað af. Tvö hundruð milljónimar, sem KEA-menn eru tilbúnir að reiða fram fyrir gott verslunarhúsnæði í Reykjavík, hafa hleypt fjöri í fast- eignamarkaðinn. Samkvæmt ör- uggum heimildum keppast menn í fasteignaviðskiptum við að fjár- festa í stærri húseignum og Umferðarmiðstöðin - vænlegur kostur. skemmum alls konar sem hentað gætu fyrir Nettó. Eignir í mið- og vesturbæ Reykjavíkur, sem áður voru illseljanlegar, rjúka nú út eins og heitar lummur. „Við höfum tekið eftir miklum áhuga,“ segir Sigmundur Ófeigs- son. „Sérstaklega hafa Hafnfirðing- ar verið duglegir við að hringja í okkur og boðið okkur ótrúlegustu eignir. En við erum að leita að hús- næði við öflugar umferðaræðar og ég neita því ekki að við vitum af Umferðarmiðstöðinni í Vatnsmýr- inni.“ Umferðarmiðstöðin þykir nú vænlegasti kosturinn fyrir Nettómenn og þá sérstaklega eftir að Hringbrautin verður færð niður í Vatnsmýrina. Gallinn við það húsnæði er hins vegar sá að lang- an tíma tekur að losa þá starfsemi sem þar er fyrir. „Við stefnum að því að vera með þrjár til fimm Nettó-búðir á höfuð- borgarsvæðinu innan skamms og þvi takmarki ætlum við okkur að ná,“ segir Þórarinn Egill aðstoðar- kaupfélagsstjóri. „Við erum þegar komnir með eina í Mjóddinni og hún gengur vel.“ -EIR Eftirförin endaði í Hraunbæ þar sem stolni bílinn lenti aftan á kyrrstæðum bíl. DV-mynd HH ^ Eftirför í Reykjavík í gærmorgun: A hundrað á stolnum bíl Geir Jón Þórisson: Ekki undir áhrifum frek- ar en við Geir Jón Þórisson að- stoðaryfirlög- regluþjónn segir það rangt hjá Ást- þóri Magnús- syni að Hall- dór Ásgríms- son utanríkis- ráðherra hafi ekið undir áhrifum áfengis á að- fangadag eins og Ástþór hefúr haldið fram opinberlega. Lögregl- an ákvað upp á sitt eindæmi að fylgjast með húsi Halldórs á að- fangadag. „Við fylgdumst með umhverfinu í kringum heimili Halldórs eftir þær fréttir aö Ást- þór hefði farið heim til hans á aö- fangadag og þá talaði fyrst ég og svo lögreglumaður við Halldór. Hann var ekkert undir áhrifum frekar en við,“ sagði Geir Jón í samtali við DV í gær. -hb Lögreglan í Reykjavík veitti stol- inni bifreið eftirfór langa leið um austurbæ Reykjavíkur í gærmorgun og upp í Árbæ. Bíllinn er af gerð- inni Grand Cherokee og hafði verið stolið af bílasölu i fyrradag ásamt númeraplötum annarrar bifreiðar. Lögregla varð vör við bifreiðina á Flugvallarvegi á tólfta tímanum í gærmorgun. Þá sinnti ökumaður bifreiðarinnar ekki stöðvunar- merkjum lögreglunnar og hófst þá eftirförin. í eftirförinni voru um 3-4 lögreglubílar þegar mest var. Öku- maður bifreiðarinnar ók á miklum hraða um margar götur og náði hann rúmlega hundrað kílómetrum á klukkustund þegar hann var mest- ur. Bílinn ók utan í bíl á Höfða- bakka en við Hraunbæ 1 Árbæ ók bíllinn svo inn lokaða götu og lenti aftan á kyrrstæðri bifreið. Þá reyndi kona, sem var farþegi í bíln- um, aö hlaupa í burtu en lögregla náði henni og var hún ásamt öku- manni bifreiðarinnar handtekin. Þau voru vistuð i fangageymslu lög- reglunnar í gær og lögregla beið þess að yfirheyra þau. -hb Geir Jón Þórisson. Tafir á jólagjafasendingum Friðar 2000: Ekki afgreiddar á löglegan hátt - segir sýslumannsembættið á Keflavíkurflugvelli Jólagjafir Friðar 2000, sem fara-áttu til Bagdad í írak, höfðu hvorki verið tollskoðaðar né tollafgreiddar þegar þær fóru um borð í Flugleiðavél sem síðan var snúið við á aðfangadag, að því er fram kemur í tilkynningu frá sýslumannsembættinu á Keflavíkur- flugvelli. „Aldrei kemur tO álita að toll- gæsla heimili flutning á farmi sem ekki hefur verið afgreiddur á löglegan hátt,“ segir enn fremur í tilkynningunni. Þá kemur fram, aö sýslumaður óskaöi eftir því að vélin biði þar til tollskoðun gæti farið fram. „Það var ákvörðun flutningsaðilans að taka sendinguna úr vélinni, þar sem seink- un var orðin á flugi FI452,“ segir i til- kynningunni. „Plöggin sem lögð voru fram af Friði 2000 voru ekki þess eðl- is að af þeim mætti ráða að heimild væri til þessa flutnings. Haft var sam- band við utanríkisráðuneytið kl. 9.30 og voru af þess hálfú ekki gerðar at- hugasemdir við að þessi sending færi úr landi, enda væri sendingin toll- skoðuð og afgreidd. Alls liðu því tvær klukkustundir frá því að Ástþór Magnússon fyrst birtist um morgun- inn þangað til sendingin var fullaf- greidd," segir í tilkynningu sýslu- mannsembættisins. Loks segir að lík- lega hefði mátt komast hjá umrædd- um töfum ef farið hefði verið að til- mælum tollgæslu og forsvarsmenn Friðar 2000 komið á imisömdum tíma. I greinargerðum starfsmanna Toll- gæslunnar á Keflavíkurflugvelli, sem fylgja tiikyrmingu sýslumanns, kem- ur fram að Ástþór hafi sýnt þeim tvö blöð um að hann hefði leyfi Samein- uðu þjóðanna til Qutninganna til íraks en af þeim hafi ekki verið hægt að ráða að umræddur útflutningur væri heimill. -JSS Lögðum ekki stein í götu hans - segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráöherra „Við höfum lýst því yfir að við séum ekki tilbúnir til að bera ábyrgð á ferðum Ástþórs Magnússonar og treystum okkur ekki til að hafa sam- starf við hann um mál sem þessi. En við höfúm á engan hátt reynt að leggja stein í götu hans,“ sagði Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra við DV um tafir þær sem orðnar eru á jólagjafasendingum Friðar 2000 til íraks. Halldór kvaðst hafa ákveðið i fyrra að ráðuneytiö tæki ábyrgð á flugi Friðar 2000 til Bagdad þá þrátt fyrir að ýmsir starfsmenn ráðuneytisins hefðu lagt annað til. „Ýmis atvik og samstarfserfiðleikar urðu þess vald- andi að við treystum okkur ekki til að bera ábyrgð á sams konar leiðangri i ár,“ sagði hann. „Það liggur hins veg- ar fyrir að hann hafði heimild til að senda þennan vaming til íraks og við höfðum ekkert á móti því.“ Halidór sagði ráðuneytið hafa bent á að það væri tilbúið að vinna með öðrum samtökmn að mannúðarmál- um og væri slík samvinna í gangi. Mætti þar nefna Rauða kross íslands og Hjálparstofnun kirkjunnar. Hvað ummæli Ástþórs um „ölvun- arakstur" utanríkisráðherra varðaði sagði Halldór að það væri ekki skemmtilegt að sitja undir stórfelldum ósannindum, allra síst yfir sjálfa jóla- hátíðtna. Þaö væri ekki mikill friðar- boðskapur sem birtist í því. „Ég hef ekki ákveðið hvemig ég bregst við í þessum efhum en það vill svo einkenni- lega til að vegna hótana í garð minn og fjölskyldu minnar ákvað lögreglan í Reykjavík að vakta mig og hús mitt á aðfangadag. Það var ekki samkvæmt minni beiðni. Þeir em í bestum færum að lýsa háttalagi mínu þann dag.“-JSS Stuttar fréttir i>v Vantar forstjóra Stjóm íslenskra sjávarafurða hefur ekki enn ráðið nýj- an forstjóra í stað Benedikts Sveins- sonar sem er tek- inn við dótturfyrir- tæki ÍS í Bandaríkj- unum. Að minnsta kosti fimm menn úr viðskiptalífinu era taldir koma til greina en þeir skoða málið af mikflli varúð, samkvæmt heimildum frétta- stofu Bylgjunnar. Keikó merkilegur Koma hvalsins Keikós til íslands í september síðastliðnum er einn af helstu heimsviðburðum ársins, að mati kanadísku sjónvarpsstöðvar- innar Discovery Chamiel. Bylgjan sagði frá. Gosið að réna Gosið í Grímsvötnum virðist vera í rénun og ekki hefur orðið vart við sprengingar síðan klukkan flögur í nótt, að sögn Bylgjunnar. Bankahlutur seldur Nýstofnað eignarhaldsfélag í Lúx- emborg, í eigu nokkurra sparisjóða og Kaupþings, keypti í gær 16,9% hlut í Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins af Sparisjóðunum. Um er að ræða eignarhluta sem sparisjóðirnir keyptu af Búnaðarbankanum í síð- ustu viku. Verðið var einnig það sama, eða 2,2 miiljarðar. Síminn á brott? Stjóm Landssímans ákveður á næstunni hvort höfuðstöðvar fyrir- tækisins við Austurvöll verði endur- nýjaðar eða fluttar annað. Bæjaryf- irvöld í Kópavogi hafa lýst yfir áhuga á að fá þær í bæinn verði ákveðið að flytja. RÚV greindi frá. Dómsdegi mótmæit Davíð Sch. Thor- steinsson segir i Morgunblaðinu að kvikmyndin Dóms- dagur sem sýnd var í Sjónvarpinu ann- an í jólum svivirði minningu látinna heiðurshjóna, prestshjóna á Sval- barði í Þistilfirði. Skáldverk Egifl Eðvarösson.höfundur sjón- varpsmyndarinnar Dómsdagur, seg- ir i Morgunblaðinu að myndin sé skáldverk. Lögmál skáldskaparins ríki í myndinni þótt að nokkru sé vísað til raunverulegra atburða. Virkjað án leyfis Hitaveita Suðumesja er að reisa gufúraforkuvirkjun i Svartsengi án þess að hafa fengið virkjunarleyfi. Engar viðræður hafa átt sér stað um málið við IðnaðaiTáöuneytið í hálft ár að sögn Morgunblaðsins. Harðar boltakonur Niðurstöður rannsókna á þétt- leika beina í handknattleikskonum í meistaraflokki benda til þess að þeim verðu mun síður hætt við bein- brotum á efri áram en öðrum kon- um. Dagur sagði frá. Bæjarstjóri hættir Bæjarstjóri Hornafjarðar, Stur- laugur Þorsteinsson, hefur sagt starfi sínu lausu. Hann hættir starfi 1. febrúar næstkomandi. í fréttatfl- kynningu segir að ástæður uppsagn- arinnar séu persónulegs eðlis. Efstur og neðstur Davíð Oddsson forsætisráðherra er langvinsælasti stjómmálamaður landsins og einnig sá óvinsælasti sam- kvæmt könnun Stöðvar 2. Halldór Ásgrímsson er næstvinsælastur. Þá koma þær Jóhanna Sigurðardóttir, Margrét Frímannsdóttir og Ingi- björg Sólrún Gísladóttir. Stöð 2 greindi frá. Mesta aflaverðmæti Aflaverðmæti Baldvins Þor- steinssonar EA, frystitogara Sam- heija hf., var um 775 milljónir króna á þessu ári og afli upp úr sjó um 7.100 tonn. Þetta er mesta aflaverð- mæti íslensks fiskiskips á árinu. Morgunblaðið sagði frá. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.