Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1998, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1998, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 7 Fréttir Hlutabréfakaup fyrir áramótin: Til mikils að vinna - skattaafslátturinn mjög áhugaverö gulrót Ávöxtun hlutabréfasjóða 20% 15 10 5 0 15,76% TJ 3 c c 11.81% 12,68% ■ «o 3 -C iO 'O ‘Z 3 «o 9,86% 10,42% Hlutabréfasjóður Norðurlands H- -c c < c c 2 ’£= «o g <S c 'O 5 5m -O arútvegsí íslands 'O ‘3* s ** X íslenski lutabréfasjóðurinn C c ■c 3 — «o C 'O SgT c *c 3 xO '_° "35* cz 1 =* c «o a> o> <2 ' IC* .d ■“ ■s'S oú > <7T 1,00% 2,99% c £ '0> <■£ tz sz '2 -O tz 3 x 18 0,00% -5 5,94% Nú eru að verða síðustu forvöð fyrir einstaklinga að festa kaup á hlutabréfum fyrir áramótin og nýta sér þannig þann möguleika sem gefst til að fá góðan afslátt af skött- um, auk þess að festa fé sitt skyn- samlega - vonandi. Hvað varðar skattaafsláttinn er til talsvert mikils að vinna því að heimilt er að draga frá tekjuskattsstofni 60% af verð- mæti þeirra hlutabréfa sem keypt eru umfram seld hlutabréf, en þó aldrei meira en 80 þúsund krónur og 160 þúsund krónur hjá hjónum. Þetta þýðir að einstaklingur þarf að kaupa hlutabréf fyrir 133 þúsund krónur til að fá fullan skattaafslátt og hjón fyrir 267 þúsund. Eins og margir minnast var þessi skattaafsláttur veittur í tiltekinn fjölda ára á sínum tíma og til stóð að hætta honum á þessu ári. Ríkis- stjórnin ákvað hins vegar að fram- lengja afsláttinn og gildir hann því áfram, að því tilskildu að viðkom- andi eigi bréfin yfir fnnm áramót. Þrátt fyrir þá kvöð er ljóst að vart gefast betri fjárfestingarkostir en að kaupa hlutabréf, vegna hins ríflega skattaafsláttar, eins og skýrist á grafinu. Á því er reiknað með að- eins 5% ávöxtun á bréfunum en varla telst líklegt að hún verði öllu minni; trúlegra er að hún verði nokkru betri. Hvernig á að kaupa hlutabréf? Hlutabréf er hægt að kaupa hjá öllum verðbréfafyrirtækjum og bönkum og sparisjóðum. Þá er einnig hægt að gera hlutabréfainn- kaupin á heimasiðum peningastofn- ananna og í gegnum heimabanka á Netinu. Þessir aðilar bjóða allir til sölu hlutabréf í einstökum fyrir- tækjum en einnig í hlutabréfasjóð- um og hægt er að komast að margs koncir greiðslukjörum og áskriftar- fyrirkomulagi. Fólki er ráðlagt að ræða við ráðgjafa fjármálastofnana um þau mál og fá nánari upplýsing- ar hið fyrsta, hyggi það á hluta- bréfakaup á annað borð. Ávöxtun hlutabréfasjóða hefur á árinu sem er að líða ekki verið eins góð og hún hefur verið á siðustu árum. Þannig hefur ávöxtun sjóða sem sérhæfa sig í sjávarútvegsfyrir- tækjum verið slök, sem má að nokkru rekja til óvissu sem upp kom á árinu um lögmæti kvótakerf- isins. Jafet Ólafsson, forstjóri Verð- bréfastofunnar, segir það hlutlægt mat sitt að engu að síður sé sjálfsagt fyrir fólk að nýta sér þennan mögu- leika til hlutafjárkaupa og skattaaf- sláttar. Ávöxtun bréfa í stærstu fyr- irtækjum landsins hafl verið traust og fólk skuli gaumgæfa það að kaupa bréf í Eimskip, íslandsbanka og Flugleiðum frekar en hlutabréfa- sjóðum. Mismunandi áhætta Samkvæmt upplýsingum sem Jaf- et Ólafsson hefur tekið saman fyrir DV og viðskiptavini sína er almennt séð betra fyrir einstaklinga að fjár- festa í hlutabréfasjóðum en einstök- um félögum. Fjárfesting í hluta- bréfasjóðum gefur góða eigna- og áhættudreifingu sem einstaklingar með takmarkað fjármagn og tak- Hlutabréfakaup Hjón Keypt hlutabréf 267.000 Skattaafsláttur 160.000 5% ávöxtun 13.350 Hagnaður á ári 173.350 irrre markaðan tíma til að fylgjast náið með gengi bréfa dag frá degi eiga oft erfitt með að ná með eigin fjárfest- ingum. Eignadreifing hlutabréfa- sjóða gerir það að verkum að gengi þeirra verður jafnara og stöðugra en gengi einstakra hlutafélaga og tapsáhættan því mun minni. Engu að síður bendir Jafet á að áhætta sjóðanna er mjög mismunandi og áhættan að jafnaði meiri í sjóðum sem fjárfesta í einni tegund at- vinnurekstrar eða ákveðinni tegund fyrirtækja umfram aðrar. Jafet segir að reynslan á verð- bréfamarkaði sýni að fjárfestingar í hlutabréfum hafi almennt skilað eigendum þeirra betri ávöxtun en eigendum skuldabréfa. Á síðustu misserum hafi verið talsverðar sviptingar á innlendum hlutabréfa- markaði. Hlutabréf í einstökum fé- lögum hafa hækkað og lækkað á víxl og erfitt verið að spá um geng- ið og þróun markaðarins. Samantekt yfir ávöxtun í þeim hlutabréfasjóðum sem bjóða upp á skattaafslátt sýnir vel hve gengi þeirra hefur verið misjafnt. Hafa ber þó í huga að þótt ávöxtunin hafi verið litillega neikvæð á því tíma- bili sem meðfylgjandi graf nær til þá vegur skattaafslátturinn þó það þungt að eigendur bréfa hafa í raun engu tapað á tímabilinu. Á tímabil- inu hefur ávöxtun verið best í Hlutabréfasjóði Búnaðarbankans, eða 14,63%, en síst í íslenska fjár- sjóðnum, -6,37% -SÁ I tilefni af auglýsingu sem birtist í Fókus 18. desember s.l. vill Síminn Internet árétta eftirfarandi Att þú Bíódiskinn og vilt gerast áskrifandi að Símanum Internet? Komdu með Bíódiskinn til Símans Internet, Grensásvegi 3, eða næsta þjónustustaðar Símans utan höfuðborgarsvæðisins og nýttu þér 3ja mánaða fría áskrift Símans Internet. Tilboðið gildir aðeins fyrir þá sem gerast áskrifendur eÍMIM., ... . . , , . , 'f , , SIMINNinternet hja Simanum Internet fyrir 1. februar 1999.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.