Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1999, Side 5
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999
39
bflaframleiðslu Opel-
1 á markað árið 1909.
„Trjáfroskurinn", eða
4/12 „Laubfrosch“, frá
árinu 1924 var fyrsti bíll-
inn sem kom á markað
eftir að færibandatæknin
var tekin í notkun og
náði mikilli hylli kaup-
enda vegna gæða og
góðs verðs.
Sportlegir bflar hafa
verið ofarlega á
baugi hjá Opel í ár-
anna rás, einkum þó
hin síðari ár, og hér
má sjá ýmsar gerðir
coupé-bíla.
Opel Olympia Cabrio, blæjugerð Olympia-bílsins frá árinu 1935. Endurbætt
gerð Olympia var fyrsti bfllinn sem kom á markað frá Opel eftir seinni heims-
styrjöldina.
Opel Kadett kom á markað árið 1962. Alls seldust 11 milijónir af Kadett fram til þess að Astra
var frumsýnd á árinu 1991.
var framleiðslu fólksbíla að tilskip-
an nasistastjómarinnar, rúllaði
milljónasti Opel-bíllinn af færiband-
inu, af Kapitán-gerð.
Á stríðsánmum sem þá fóm í
hönd var framleiðslan einkum
bundin við ýmsar gerðir Blitz-vöm-
bíla en einnig ýmsa hluti fyrir
þýsku hergagnaframleiðsluna: lend-
ingarbúnað, stýrishús, vélarhluta
og skothelda eldsneytisgeyma fyrir
flugvélar.
Strax þann 8. maí 1945, þegar frið-
ur komst á, var hafist handa við
endurbyggingu verksmiðjanna í
Russelsheim en þær höfðu nánast
verið lagðar í rúst á stríðsárunum.
Verksmiðjurnar í Brandenburg
höfðu á hinn bóginn orðið svo illa
úti að ekki þótti svara kostnaði að
endurbyggja þær.
Það kom líka illa við starfsfólkið
í verksmiðjunum í Rússelsheim að
öfl framleiðslulínan sem framleiddi
Opel Kadett var flutt í heilu lagi til
Sovétríkjanna sem hluti af greiðslu
stríðsskaðabóta. Þessi framleiðslu-
lína framleiddi síðan þessa sömu
bíla áfram undir Moskvitch-nafninu
í Rússlandi.
Því einbeittu menn sér að því í
verksmiðjunum í Rússelsheim að
framleiða vörubíla og fyrsti Opel-
bíllinn sem kom frá verksmiðjunum
eftir stríðið var 1,5 tonna Blitz-vöru-
bífl.
Framleiðsla fólksbíla hófst árið
1947 en þá kom endumýjuð gerð af
Olympia-bílnum, sem hafði verið
framleiddur fyrir stríðið, á markað.
Árið 1950 hafði verið lokið endan-
lega við endurreisn verksmiðjanna
í Rússelsheim og þremur árum síð-
ar var framleiðslan komin í 100.000
bíla á ári.
1956 seldust alls 207.010 Opel-bílar
og markaðshlutdefldin var orðin
17,6 prósent. Á því sama ári rúllaði
2 mifljónasti bíllinn af færiböndun-
um í Rússelsheim. Þessi tímamóta-
bíll, Kapitan, með stærri yfirbygg-
ingu en áður, var með gullhúðuðum
listum og vakti mikla athygli á bíla-
sýningum.
Nýr Kadett
Arið 1962 voru opnaðar nýjar
verksmiður í Bochum og þar var
hafin framleiðsla á nýjum Opel
Kadett. Tilkoma þessa nýja Kadett-
bíls hafði tvíþættan tilgang af hálfu
Opel. í fyrsta lagi gátu verksmiðj-
urnar aftur boðið minni bíl sem
höfðaði til stærri kaupendahóps og í
öðru lagi var staðsetning verksmiðj-
anna vel valin af hálfu Opel. Með
því að reisa verksmiðjurnar i miðju
Ruhr-héraðinu vildu þeir koma til
móts við fókið sem þar bjó en hérað-
ið hafði orðið illa úti vegna sam-
dráttar í kolavinnslu og iðnaði á
svæðinu. AUs fengu 11.000 manns
vinnu í þessum nýju verksmiðjum
Opel og Kadettinn varð strax met-
sölubíll. Afls seldust 11 mifljónir af
Kadett fram til þess að Astra var
frumsýnd árið 1991.
Enn nýjar verksmiðjur
Enn vantaði á að verksmiðjur
Opel gætu annað eftirspum fjórum
árum síðar. Þrátt fyrir að verk-
smiðjumar tvær í Rússelsheim og
Bochum væru starfræktar með full-
um afköstum gátu þær ekki annað
eftirspum. Nýjar verksmiðjur voru
reistar í Kaiserslautem, en þar voru
einkum framleiddir vélarhlutir.
Enn vora nýjar verksmiðjur
reistar á árinu 1982, nú í Saragossa
á Spáni þar sem smábíllinn Corsa
varð strax metsölubíll.
Ári síðar var enn komið að merk-
um áfanga hjá Opel því þá rúflaði 20
mflljónasti bíllinn af færiböndunum
í Rússelsheim, Opel Senator.
Strax eftir sameiningu þýsku
ríkjanna árið 1990 var farið að huga
að verksmiðjum í gamla austurhlut-
anum og Opel valdi Eisenach sem
stað fyrir fjórðu verksmiðjumar í
Þýskalandi. Sú borg er einkum
þekkt fyrir Wartburg-kastala en þar
sat Marteinn Lúter og þýddi Nýja
testamentið á sínum tíma. Borgin á
líka merka sögu i bílaheiminum en
það voru síðast framleiddir
Trabant- og Wartburg-bílar fyrir fall
múrsins.
Allt frá opnun 1992 hefur
Eisenach-verksmiðjan verið í farar-
broddi í framleiðslu og tækni en
nýjar ffamleiðsluaðferðir vom fyrst
teknar í notkun þar af hálfu Opel-
verksmiðjanna sem hafa síðar mtt
sér til rúms í öðrum verksmiðjum
Opel um heim allan.
Nú vinna um 44.000 manns í fjór-
um verksmiðjum Opel í Þýskalandi
og þar með er Adam Opel AG einn
af stærstu vinnuveitendum lands-
ins. Fyrirtækið tekur einnig þátt í
þróun bíla fyrir GM á heimsvísu því
8.500 manna starfslið í alþjóðlegu
tækniþróuncU'deildinni í Rússels-
heim ber ábyrgð á þróun allra bíla
General Motors sem framleiddir em
utan Norður-Ameríku -JR
Motaðip bílar á góðu verði
BiMd
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLDSHÖFÐA 8 • SÍMI 577 2B00
Range Rover Vouge 3500 '87
Grænn, sjálfskiptur, bein innspýting.
Verð: 850.000.
Tilboð: 590.000.
Toyota Carina E 2000 Alcantara '98
Ek. 41 þ. km, Blár, 5 gíra, spoiler.
Verð: 1.600.000.
Tilboð: 1.420.000.
Musso E-23 Bensin '98
Ek. 32 þ. km, silfurgrár, sjálfskiptur,
31" dekk.
Verð: 2.800.000.
Tilboð: 2.590.000.
Toyota Landcruiser '87
Mikið breyttur bíll. Vél 302 high output,
5 gíra, 38“ dekk, læsingar ofl. ofl.
Verð: 1.400.000.
Tilboð: 1.090.000.
Volvo 460 GL 1800 '96
Ek. 22 þ. km, rauður, 5 gíra,
toppeintak.
Verð: 1.200.000.
Tilboð: 1.090.000.
Musso EL602 TDI 2900 '97
Ek. 47 þ. km, blár/beige, sjálfskiptur,
31“ dekk.
Verð: 2.650.000.
Tilboð: 2.490.000.
Volvo 850 GL 2000 st. '96
Ek. 74 þ. km, d-grænn, sjálfskiptur.
Verð: 2.250.000.
Tilboð: 1.990.000.
Subaru Outback 2500 '97
Ek. 22 þ. km, vínrauður, sjálfskiptur.
Verð: 2.350.000.
Tilboð: 2.090.000.