Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1999, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1999, Síða 2
18 ÞRIÐJUfDAGUR 6. APRÍL 1999 íþróttir DV David Duval, efsti maður heimslist- ans í golfl, sigraði um helgina á sínu íjórða PGA-móti á tímabil- inu, BellSouth-mótinu í Duluth i Georgiu- ríki. Hann er fyrsti kylfingurinn i aldar- fjórðung til að ná fjór- um slíkum sigrum áður en kemur að bandaríska meistaramótinu. Duval lék á 270 höggum, Stewart Cink á 272 og þeir John Huston og Rory Sabbatini á 273 höggum. Slóvakar komu á óvart um helgina með því að sigra Svía, 3-2, á útivelli i Davis-bikarnum í tennis og slá þá þar með út úr keppninni. Svíar höfðu ekki tapað leik i keppninni frá 1996 og unnið hana tvisvar í röð. Meðal annarra úrslita má nefna að Banda- ríkin unnu Bretland, 3-2, Rússland vann Þýskaland, 3-2, og Brasilía vann Spán, 3-2. Jaap Stam, hollenski vamarjaxiinn hjá Manchester United, segist klár í slaginn gegn Juventus en liöin eigast við i fyrri leiknum i undanúrslitum Evrópukeppni meistaraliða á Old Trafford annað kvöld. Stam meiddist á ökkla á æfmgu hollenska landsliðs- ins i síðustu viku og óttast var að hann yrði lengi frá en læknar United- liðsins hafa nú náð að tjasla honum saman. Aron Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir Skjern þegar liðið sigraði Esbjerg, 29-28, og tryggði sér þar meö sæti í undanúrslitunum um danska meistaratitilinn i handknattleik. Meistararnir í GOG sigruðu Kolding, 25-22, en höfðu áður tapað fyrri leikn- um, 25-21, og eru þar með úr leik. Július Jónasson skoraði 2 mörk fyr- ir St. Gallen þegar liöið sigraði Pfadi Winterthur, 26-25, á heimavelli í und- anúrslitum um svissneska meistara- titilinn i handknattleik um helgina. Liðin mætast öðru sinni á heimavelli Winterthur annað kvöld en tvo sigra þarf til að komat í úrslitin. í hinni viöureigninni tapaði Suhr, lið Kóreu- mannsins Suk-Hyung Lee, á heima- velli fyrir Kadetten, 22-25. Norsku knattspyrnuliöin eru þessa dagana að leggja lokahönd á undir- búning fyrir tímabilið sem hefst fyrir alvöru siðar i þessum mánuði. í gær áttust við í æfingaleik Islendingaliðin Stabæk og Stromsgodset þar sem síð- amefnda liöiö sigraði, 1-3. Pétur Marteinsson lék síðustu 10 mínút- umar fyrir Stabæk og Helgi Sigurðs- son fyrsta hálftímann. Stefán Gisla- son lék allan tímann fyrir Stromsgod- set og bróðir hans Valur Fannar lék síðari hálfleikinn. Þá tapaði Lille- ström fyrir Molde, 1-3. Rúnar Krist- insson og Heiöar Helguson léku báð- ir allan tímann fyrir Lilleström. Griska knattspyrnufélagiö AEK er á förum til Belgrad í Júgóslavíu þar sem það mætir Partizan á morgun. Þar er um að ræða ágóöaleik fyrir serbneskt fólk sem hefur orðið illa úti í loftárásum NATO síðustu daga. Grikkir hafa alla tíö verið miklir bandamenn Serba og em andvígir loftárásunum þó þeir séu aðilar að NATO. Arnar Grétarsson fer ekki með AEK i þessa ferð. Ástralar og Japanar höfðu talsverða yfirburöi á heimsmeistaramótinu i sundi í 25 metra laug sem fram fór í Hong Kong um páskana. Karlasveit Ástrala og kvennasveit Japans settu heimsmet í 4x100 metra boðsundum og Japanar náðu tveimur öðmm heimsmetum á mótinu. Ástralar fengu 9 gullverðlaun og Japanar 6. Eydís Konráösdóttir var eini ís- lenski keppandinn á mótinu 1 Hong ■vMpigMMH Kong. Hún varð í 24. I sæti í 100 metra '3 flugsundi á 1:03,66 ''r^ss-. mínútu, í 24. sæti i 50 £■ ••53 m ílugsundi á 28,85 I sekúndum, í 27. sæti í B 100 m baksundi á I M 1:06,21 minútu og i 21. sæti í 200 m baksundi á 2:18,40 minútum. AGF lék tvo leiki í dönsku A-deild- inni í knattspymu um helgina. Fyrri ieiknum tapaði AGF fyrir Bröndby, 4-1. Ólafur H. Kristjánsson var skipt út af á 78. mínútu fyrir landa sinn Tómas Inga Tómasson. I gær vann svo AGF 2-1 sigur á Vejle. Tómas Ingi, sem kom inn á sem vara- maður, lagði upp sigurmarkið á lokamínútunni.. Páll Þóróifsson, handknattleiksmað- ur með Essen, varð fyrir því óláni að slíta liðbönd í ökkla í leik Essen og Nettelstedt um helgina og er talið að hann verði frá í 6-8 vikur. -VS/GH Undanúrslit íslandsmótsins í körfuknattleik: Framlengt þrisvar - Keflavík knúði fram sigur, 122-119, og er 2-1 yfir gegn Grindavík DV, Reykjanesbæ: Keflavík og Grindavík mættust í þriðja sinn í undanúrslitum íslands- mótsins á fostudaginn langa. Leik- urinn var svo sannarlega í anda þessa merka dags, því það þurfti þrjár framlengingar til að fá úrslit og fór svo að heimamenn í Keflavík höfðu betur, 122-119. Grindvíkingar voru með 5 stiga forustu þegar rúm mínúta var eftir af venjulegum leiktíma og útlitið ekki gott hjá Keflavík. Falur Harð- arson minnkaði muninn í aðeins 1 stig með frábærri 3ja stiga körfu og Grindvíkingar lögðu af stað í sókn þegar aðeins 35 sekúndur voru eftir. Þeir nýttu ekki sóknina og Keflavík fékk boltann þegar 7 sekúndur voru eftir. Grindvíkingar voru aðeins búnir að fá á sig 5 villur og áttu 2 villur til að stoppa sókn Keflavíkur án þess að þeir fengju vítaskot. Pétur Guð- mundsson braut á Damon Johnson á vallarhelmingi Keflavíkur þegar Dómarar í vináttuieik á milli Rauðu stjörnunnar og Hajduk Split sem fram fór í Belgrad um helgina, sleppa friðardúfum á loft til að mótmæla loftárásum NATO á Júgóslavíu. Reuter Skíðamót íslands: Ólafsfirðingar unnu gönguna Ólafsfirðingar sigruðu í lokagrein skíðamóts íslands á ísafirði á fimmtudaginn þegar þeir urðu fyrstir í 3x10 km boðgöngu karla. Sigur- sveitina skipuðu Steinþór Þorsteinsson, Ólafur Bjömsson og Ámi Gunn- arsson. Þá fóru einnig fram á fimmtudag tvö FlS-mót í stórsvigi. Dagný L. Kristjánsdóttir sigraði í kvennaflokki og Björgvin Björgvinsson í karla- flokki. ' -VS aðeins 5 sekúndur voru eftir. Kristinn Alberts- son dæmdi ekki aðeins villu á Pétur heldur óíþróttamannslega villu sem þýddi að Damon fékk 2 vítaskot og svo boltann að auki. Damon hitti einungis úr öðm skotinu og jafnaði þar með leikinn, 86-86. Síð- asta skot Keflavíkur fór forgörðum. Því þurfti að grípa til framlengingar. Pétur Guðmundsson jafnaði fyrir Grindavík, 96-96, þegar nokkrar sekúndur y xr voru eftir og Guðjón Skúlason gat tryggt sigur heimamanna á síðustu sekúndunni en hann hitti ekki sem þýddi að framlengja þurfti aftur. Grindvíkingar virtust aftur vera með leikinn í hendi sér og leiddu 102-107 þegar 2 mínútur voru eftir. Þá fékk Pétur sína 5, viilu og í kjölfarið losn- aði aðeins um Damon aftur og setti hann nið- ur 4 stig strax og mun- urinn því aðeins 1 stig, 108-109. Páll Axel skor- aði eftir mikið harð- fylgi og munurinn orð- inn 3 stig og 15 sekúnd- ur eftir. Guðjón Skúla- son fékk annað frítt 3ja stiga skot á sama tima og lokaflautið gall og honum brást ekki boga- listin í þetta sinn og jafnaði 111-111. Þá hófst 3. framleng- ingin og leikmenn orðn- ir vel þreyttir margir. Unndór Sig- urðsson skoraði 2 stig fyrir Grinda- vík og kom þeim yfir en þá skoraði Damon 7 stig í röð og kom Keflavík Keflavík (51) (86) (98) (111) 122 Grmdavík (43) (86) (98) (111) 119 Guðjón Skúlason bjargaöi Keflavík í annarri framlengingu og tryggði liðinu sig- urinn í þeirri þriðju. 0-7, 14-9, 20-15, 25-24, 33-31, 42-32, 46-41, (5H3), 55-42, 59-58, 67-58, 70-69, 78-83, 82-85, (86-86), 91-88, 96-96, (98-98), 100-104, 102-107, 108-111, (111-111), 111-113, 118-113, 122-119. Stig Keflavíkur: Damon John- son 51, Gunnar Einarsson 19, Falur Harðarson 18, Guðjón Skúlason 10, Birgir Birgisson 8, Fannar Ólafsson 8, Sæmundur Oddsson 5, Kristján Guðlaugsson 2. Stig Grindavíkur: Herbert Arn- arson 35, Warren Peebles 31, Páll Vilbergsson 25, Bergur Hinriksson 13, Pétur Guðmundsson 11, Unndór Sigurðsson 2, Guðlaugur Eyjólfsson 2. Vítanýting: Keflavík 21/27, Grindavik 20/24. 3ja stiga nýting: Keflavík 11/28, Grindavík 17/40. Fráköst: Keflavik 37, Grindavík 43. Áhorfendur: Um 750. Dómarar: Rögnvaldur Hreiðars- son og Kristinn Albertsson - góðir í heildina en slógu nokkrar feilnótur á mikilvægum augnablikum. Maður leiksins: Damon John- son, Keflavík. 5 stigum yfir. Herbert Amarson setti niður tvær 3ja stiga körfur og munurinn bara 1 stig, 120-119. Brot- ið var á Guðjóni og skoraði hann úr báðum vítunum og kom sínum mönnum 3 stigum yfir, 122-119. Her- bert var næstum búinn að jafna með erfiðu 3ja stiga skoti en ekki vildi boltinn ofan í og þar með sigr- aði Keflavík í þessum frábæra spennuleik. „Þetta era mjög jöfh lið og því kemur þessi dramatík ekki á óvart. Við tökum einn leik fyrir í einu og stefnum á að klára þetta í næsta leik,“ sagði Sigurður Ingimundar- son, þjálfari Keflavikur, við DV eft- ir leikinn, en Pétur Guðmundsson, fyrirliði Grindavíkur, var ekki sömu skoðunar um næstu viður- eign, sem fraln fer í Grindavík í kvöld. „Við ætlum að taka næsta leik í Grindavík og helst í venjulegum leiktíma. Síð- an mætum við aftur hing- að,“ sagði Pétur. -BG Heiðmar til Þýskalands? Heiðmar Felixson, handknattleiks- maðurinn öflugi úr Stjörnunni, hefur vakið áhuga nokkurra þýskra félaga. Eitt þeirra liða sem hefur fylgst með Heiðmari er í A-deildinni og þá eru nokkur lið í B-deildinni sem hafa spurst fyrir um leikmanninn, þar á meðal er lið Göppingen, lið Rúnars Sigtryggssonar, samkvæmt heimild- um DV. Ekki þarf að koma á óvart að Heið- mari sé sýndur áhugi erlendis enda átti hann mjög gott tímabil með Stjömunni, sem hann er samnings- bundinn eitt ár til viðbótar, í vetur. Hann var jafnan markahæsti leik- maður liðsins og þá var frammistaða hans i vöminni ekki síðri. -GH Þorbergur hættlir í Eyjum Þorbergur Aöalsteinsson hefur til- kynnt Eyja- mönnum að hann verði ekki þjálfari handknatt- leiksliðs ÍBV á næsta tíma- bili en hann hefur stýrt Eyjaliðinu undanfarin 3 ár. Þorbergur mun flytja aft- ur til Reykjavíkur en hann starfaöi hjá Vinnslustöð- inni í Eyjum samhliða þjálfuninni. í spjalli við DV í gær sagði Þorbergur óvíst hvað tæki við hjá sér á hand- boltasviðinu en það væri vel inni í myndinni að halda áfram að þjálfa. -GH Brynjar fer vel af stað Brynjar Gunnarsson átti góðan leik í gær með hinu nýja liði sínu, Örgryte, þegar það vann Umeá, 4-0, í 16-liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Brynjar var aftasti maður í vöm liðsins og þjálfari og for- ráðamenn Örgryte eru mjög ánægðir með frammistöðu hans til þessa. Einar Brekkan lék með Örebro sem tapaði fyrir Malmö í vítaspymukeppni eftir 0-0 jafntefli. Sverrir Sverrisson lék ekki með Malmö vegna meiðsla. Enginn annar íslendingur lék með liði sínu í umferðinni. Önnur úrslit: Helsingborg-Hammar- by 1-0, Halmstad-AIK 0-1, Frö- lunda-Trelleborg 0-2, Gautaborg-Elfs- borg 2-1, Sundsvall-Norrköping 1-2, Ludvika-Spárvágen 6-4 (2-2). -EH/VS Þjóðverji í stað Sverris „Ég er ekki búinn að skrifa und- ir en þetta er nánast að verða ffá- gengið,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari 1. deildarliðs KA í hand- knattleik, í samtali við DV í gær. Þrír leikmenn yflrgefa herbúðir KA en það eru Sverrir Bjömsson, Þórir Sigmundsson og Kári Jóns- son sem allir eru á suðurleið til náms. Sverrir hefur verið orðaður við Aftureldingu en hann hefúr ekki gert upp hug sinn. Flest ef ekki öll liðin af höfúborgarsvæðinu hafa sett sig i samband við Sverri og vilja fá hann í sínar raðir. Lars Walther verður áfram hjá KA og þá eru norðanmenn aö þreifa fyrir sér í Þýskalandi um leikmann tfl aö fylia skarð Sverris. Samkvæmt heimildum DV er KA með 2 metra háa rétthenta skyttu í sigtinu og ekki er ólíklegt að Alfreð Gíslason sé sínum gömlu félögum innanhandar í þessu máli. -GH Fylkismenn í 1. deildina Fylkir tryggði sér sæti í 1. deild karla í handknattleik síð- asta miðvikudagskvöld með stór- sigri á Völsungi, 33-18. Fylkir lék siðast i 1. deildinni fyrir 20 árum. Víkingur tryggði sér sigur í 2. deild með sigri á Breiðabliki, 36-23. Fjölnir vann Völsung á fímmtudag, 33-19. Staðan í 2. deild þegar tveimur leikjum Harðar og Þórs er ólok- ið: Víkingur 21 17 3 1 616409 37 Fylkir 21 16 3 2 592^07 35 Þór A. 19 14 Breiðablik 21 11 Fjölnir 21 8 Völsungur 21 5 Höröur 19 4 Ögri 21 0 2 3 507-366 30 1 9 551-190 23 2 11 516496 18 1 15 447-607 11 1 14 356496 9 1 20 359-672 1 -vs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.