Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1999, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1999
19
íþróttir
3. undanúrslitaleikur Njarðvíkur og KFÍ:
- sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga
son átti frábæran leik og setti niður
sjö 3ja stiga körfur, þar af 5 í fyrri
háifleik. Brenton Birmingham var
mjög góður og gladdi oft augað með
mýkt og lipurð sinni. Þá kom Örvar
Kristjánsson með skemmtilega inn-
komu og kom með ákveðna ógnun í
sóknina sem Njarðvík þurfti frá
bekknum. Páll Kristinsson var
drjúgur og þá sérstaklega í fráköst-
unum og Friðrik Ragnarsson stjóm-
aði liðinum vel að vanda.
ísfirðingar létu dómarana
fara í taugarnar á sér
ísfirðingar náðu sér aldrei al-
mennlega á strik og er óhætt að
segja að þeir hafi verið verulega
óhressir með dómarana og vora að
láta þá fara of mikið í taugamar á
sér. James Cason var þeirra besti
maður og hinir tveir útlendingam-
ir, Ray Carter og Mark Quashi, áttu
góðan fyrri hálfleik en fór lítið fyrir
þeim í seinni hálfleik. Ray Carter er
mjög góður leikstjómandi en mætti
minnka dripplið hjá sér stundum.
Hrafn Kristjánsson og Tómas Her-
mannsson skiluðu sinu en Ólafur
Ormsson og Ósvaldur Knudsen eiga
nóg inni.
Náðum ekki að stjórna hrað-
anum nógu vel
„Við náðum ekki að stjóma hrað-
anum nógu vel og þeir vom að hitta
mjög vel meðan skotin okkar vora
ekki að detta. Við ætlum að taka
leikinn fyrir vestan og koma hingað
aftur og gera hetur en í dag,“ sagði
Ósvaldur Knudsen, leikmaður KFÍ,
eftir leikinn við DV.
-BG
DV, Reykjanesbæ:
„Það er mjög erfitt að spila við
KFÍ og það þarf mikið til að sigra
þá. Ray Carter hefur styrkt þá mjög
mikið og komið þeim úr hópi 6-7
bestu í deildinni í hóp þeirra 4
bestu. Þeir hafa verið að spila mjög
stíft á móti okkur og það hefur kom-
ið okkur í opna skjöldu, en núna
tókum við á móti þeim. Þessi leikur
var mjög mikilvægur fyrir okkur
því það hefði verið erfitt að fara á
ísafjörð í stöðunni 1-2,“ sagði Frið-
rik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkur,
eftir að hans menn höfðu sigrað
KFÍ, 90-77, í Ljónagryfjunni í Njarð-
vík í þriðja leik þessara liða í und-
anúrslitum Islandmótsins og leiða
Njarðvíkingar einvigið 2-1.
Grófur leikur
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu allan tímann og greinilegt
að bæði lið ætluðu að selja sig dýrt.
Bæði lið spiluðu mjög stífan vamar-
leik og nánast grófan sem leiddi til
þess að oft var tæpt á því að sjóða
upp úr hjá leikmönnum. Heima-
menn tóku frumkvæðið í leiknum
strax í byrjun og höfðu undirtökin
allan leikinn og í hvert sinn sem ís-
firðingar þóttu líklegir að ógna tóku
Njarðvíkingar sprett og náðu þægi-
legri forastu aftur.
Teitur setti niður sjö 3ja
stiga körfur
Sigur Njarðvíkur verður að telj-
ast mjög sanngjam að þessu sinni
og spiluðu þeir betur en í fyrri
viðureignum þessara liða og þá sér-
staklega í vöm þar sem þeir era
famir að spila fastar. Teitur Örlygs-
Ray Carter, leikstjórnandi KFÍ, og Teitur Örlygsson taka hér á hvor öðrum í leik liðanna í Njarðvík á laugardaginn.
Teitur fór á kostum í lelknum og skoraði 32 stig, þar af setti hann niður sjö 3ja stiga körfur. DV-myndir ÞÖK
Njarövík (47)90
KFÍ (37) 77
10-2, 16-11, 21-19, 28-19, 36-22, 41-29,
42-35, (47-37), 52^40, 59-47, 67-49,
71-58, 81-70, 85-74, 90-77.
Stig Njarðvlkur: Teitur Örlygs-
son 32, Brenton Birmingham 25, Örv-
ar Kristjánsson 12, Páll Kristinsson 8,
Friðrik Stefánsson 8, Friðrik Ragn-
arsson 3, Hermann Hauksson 2.
Stig KFÍ: James Cason 29, Ray
Carter 11, Mark Quashi 9, Ólafur
Ormsson 8, Tómas Hermannsson 8,
Hrafn Kristjánsson 6, Pétur Sigurðs-
son 3, Baldur Jónasson 3.
Vítanýting: Njarðvik 22/34, KFÍ
21/36.
3ja stiga skot: Njarðvík 14/34, KFÍ
5/17.
Fráköst: Njarðvík 33, KFÍ 40.
Dómarar: Einar Einarsson og
Leifur Garðarsson.
Áhorfendur: Um 350.
Maður leiksins: Teitur Örlygs-
son, Njarðvík.
Fjórói leikur liðanna fer fram á ísa-
firði í kvöld. Vinni Njarðvíkingar sig-
ur tryggja þeir sér sæti i úrslitunum
en fari Isfirðingar með sigur af hólmi
mætast liðin í fimmta leiknum í
Njarðvík á fimmtudaginn.
U-21 árs lið karla í handknattleik:
Einu marki frá
lokakeppni HM
íslenska U-21 árs landsliði karla í
handknattleik tókst ekki að tryggja
sér sæti í úrslitakeppni heimsmeist-
aramótsins sem fram fer í Qatar í
vor en ekki munaði nema einu
marki að það tækist.
Riðillinn sem íslendingar vora í
var leikinn í Slóvakíu um helgina.
ísland sigraði Kýpur, 25-19, þar sem
Ragnar Óskarsson var markahæst-
ur með 6 mörk. Þá lögðu íslensku
strákamir lið Slóvaka, 25-21. Róbert
Gunnarsson var markahæstur í ís-
lenska liðinu með 9 mörk. Grikkir
höfðu svo betur gegn íslendingum,
20-17.1 þeim leik vora Ragnar Ósk-
arsson og Guðjón Valur Sigurðsson
markahæstir með 5 mörk.
Grikkir, Slóvakar og íslendingar
hlutu öll 4 stig i riðlinum en Grikk-
ir tryggðu sér sæti í úrslitakeppn-
inni þar sem þeir vora með bestu
markatöluna í innbyrðis viðureign-
um þjóðanna. Ef íslenska liðið hefði
tapað með tveggja marka mun fyrir
Grikkjum hefði Island orðið efst í
riðlinum.
„Þetta var auðvitað mjög sorg-
legt. Við áttum síðustu sóknina
gegn Grikkjum en tókst ekki að
skora og í leiknum gegn Slóvökum
náðum við mest 9 marka forskoti í
seinni hálfleik. Þá gerðist það sem
oft vill gerast í alþjóðlegum hand-
knattleik. Dómararnir dæmdu
heimaliðinu mjög í vil og þeir tíndu
okkur út af fyrir smávægilegt brot.
Strákamir öðluðust reynslu sem
verður þeim vonandi dýrmæt með
tímanum," sagöi Einar Þorvarðar-
son, þjálfari íslenska liðsins, við DV
í gær.
Vamarleikur og markvarsla góð
Einar sagði að vamarleikur ís-
lenska Uðsins hefði verið mjög góð-
ur allt mótið og Sigurgeir Höskulds-
son hefði staðið sig vel í markinu.
Af útileikmönnunum sagði Einar að
KA-maðurinn Guðjón Valur Sig-
urðsson hefði átt jöfnustu leikina en
Róbert Gunnarsson úr Fram hefði
verið mjög góður í leiknum gegn
Slóvökum. -GH
Reykjavíkupmótið:
í knattspyrnu |
Lelkip í kvöld: [
■ Leiknisvöllur kl. 18.30 !
KR — Fjölnir
■
i Leiknisvöllur kl. 20.30
Leiknir, R. - ÍR
i
Gervigrasið Laugardal kl. 18.30
Fram-Víkingur, R.
! Gervigrasið Laugardal kl. 20.30
Valur — Léttir [
■ -
i Knattspyrnuráð Reykjavíkur