Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 10
plötudómur _ DEUS — The Ideal Crash: ★★ NR. 31 vikuna 9.4-16.4. 1999 Eftir aö hafa andaö í hnakkann á Lennv Kravitz í tvær vikur náði Gus gus fyrsta sætinu eftir páskahelgina. Sæti Vikur LAG FLYTJANDI 26/3 19/3 1 9 LADYSHAVE...............................GUS GUS 2 2 2 18 FLYAWAY...........................LENNY KRAVITZ 1 1 3 8 STRONG ENOUGH ............................CHER 4 20 4 7 TENDER.....................................BLUR 10 10 5 5 CHARLIE BIG POTATO................SKUNK ANANSIE 3 3 6 3 PROMISES.........................THE CRANBERRIES 19 30 7 3 STRONG...........................ROBBIE WILLIAMS 7 18 8 5 BIRTIR TIL........................LAND OG SYNIR 6 6 9 3 YOU GOTTA BE............................DES’REE 9 11 10 13 PRAISEYOU...........................FATBOY SLIM 5 5 11 4 WHY DON’T YOU GET A JOB..............OFFSPRING 11 15 12 6 YOU STOLE THE SUN FROM ME .MANIC STREET PREACHERS 12 8 13 12 LOTUS...................................R.E.M. 8 4 14 4 SLIDE............................GOO GOO DOLLS 14 32 15 1 FREAK ON A LEASH.............................KORN KMl'M 16 12 ERASE/REWIND .....................THE CERDIGANS 13 9 17 3 SHEEP GO TO HEAVEN...........................CAKE 20 24 18 3 CHANGES...................................2PAC 18 21 19 7 NOTHING REALLY MATTERS....................MADONNA 17 12 20 6 MARIA...................................BLONDIE 24 27 21 8 BOY YOU KNOCK ME OUT....TATYANA ALI & WILL SMITH 15 7 22 9 HEARTBREAK HOTEL................WHITNEY HOUSTON 22 26 23 5 NO SCRUBS...................................TLC 28 34 24 25 SWEETEST ...................................U2 16 14 25 3 MY NAMEIS................................EMINEM 30 40 26 2 INOURLIFE.................................TEXAS 27 - 27 4 TUNGLIÐ ................................S.S. SÓL 26 31 28 4 WHEN GOING GETS TOUGH...................BOYZONE 33 25 29 5 THE ANIMAL SONG ... .SAVAGE GARDEN (THE OTHER SIDE) 23 23 30 1 EINNMEÐÞÉR..........................SKÍTAMÓRALL 31 4 YOU GET WHAT YOU GIVE ............WEW RADICALS 31 37 32 10 EXFACTOR ...........................LAURYN HILL 21 17 33 2 REMAKE MY FIRE ...................HOUSEBUILDERS 35 - 34 2 THAT DON’T IMPRESS ME MUCH........SHANIA TWAIN 38 - 35 1 TEQUILA ............................TERROVISION MIÍJ 36 6 MEÐ FULLRI REISN ... .FJÖLBRAUTASKÓLINN í BREIÐHOLTI 25 13 „ The Ideal Crash er ágœt plata en engan veginn meistaraverkiö sem setur DEUS endanlega á kortiö“ inn að stinga þá af í hljómdeild- inni. Og hvað er þá eftir? Jú, þeir eru vissulega Belgar og verða vis- ast frægasta bandið þaðan lengi. En fyrir hlustendur sem heilluðust af kraftinum á fyrri plötum DEUS hrekkur það skammt; The Ideal Crash er ágæt plata en engan veg- inn meistaraverkið sem setur DEUS endanlega á kortið, hún er meðalmennska frá bandi sem getur miklu betur. Ari Eldon Sebadoh er loksins að skríða upp á yfirborðið eftir alit of langan tíma í undirheirmum Seattle, þar sem ekkert hefur gengið upp hjá þeim félögum: Það var einmitt Sebadoh sem átti að upp fyrir Nir- vana á tónleikaferð þeirra 1994, en Kurt Cobain var þá búinn fá nóg af sviðs- Ijósinu og framdi sjálfsmorð, eins og frægt er orðið. Það er alveg í takt við feril Sebadoh, þeir félag- arnir Lou Barlow, Jason Lowenstein og RusseU PoUard hafa ekki haft miklar áhyggjur af vinsæld- um hingað tU og á stundum virst sem þeir uni sér best sem einhvers konar leyni- hljómsveit þeirra sem vita betur. Barlow er lagasmiður hljómsveit- arinnar og minnir tónlist hans og söngstUl stundum á Paul Wester- berg, söngvara Replacements, sem er einmitt frægust fyrir að vera ekki fræg. Svo það má segja að hefð sé fyrir þessu i amerísku rokki. Ástæðan fyrir að Sebadoh hefur gengið svona illa í múginn er ekki bara skortur á framagirnd og markaðssetningu. Þeim félögum hefur einnig gengið Ula að njörva sig niður við einn ákveðinn stU og slíkt er ekki vel séð í tónlistargeiranum, enda miklu auðveldara að selja hljómsveitir með ímynd og fyrir- fram ákveðna tónlistarstefnu. Með- limir Sebadoh eru heldur ekki ein- ir um að hafa farið fyrir brjóstið á rokkspekúlöntum með því að gera það sem þeir vilja. Faith No More var einhverju sinni valin ólíkleg- asta hljómsveitin tU að slá í gegn í Bandaríkjunum af tímaritinu RoU- ing Stone og launaði það með því að tyUa sér í efsta sæti bandaríska smáskifulistans nokkrum mánuð- um síðar. Svo að ekki sé minnst á þegar hljómplötufyrirtæki NeUs Young fór í mál við hann fyrir að breyta um tónlistarstefnu á hverri plötu á áttunda áratugnum. Sebadoh er nú að gefa út sína ní- undu plötu. Hún ber nafnið The Sebadoh og telja margir að hún eigi eftir að vinna þeim félögum meira fylgi en þeir hafa áður fagn- að. Víst er hún í hinum klassíska Sebadoh-stU, gítarrokk þar sem áherslan er lögð á góð lög umfram góðan hljóm. En þar sem áður voru óljósar hugmyndir og draum- kenndar stemning- ar eru nú full- la ■ M MT þetta leng sebadoh- sköpuð popplög sem vinna á við hverja hlustun. Ljóst er að Barlow hefur haft gríðarleg áhrif á David Grohl og ættu aðdáendur Foo Fighters ekki að verða sviknir af gripnum. Smáskífan Flame hefur þegar hlotið náð fyrir augum plötusnúða víða um heim og útlit fyrir að Sebadoh verði ekki leynd- armál mikið lengur. Barlow er þó ekkert farinn að æfa eiginhandaráritunina, segir þá félaga hæstánægða þar sem þeir eru og honum liggi ekkert á að selja milljón plötur. Auk Sebadoh starfrækir hann hobbihljómsveit- ina Lou Barlow’s Folk Implosion og hefur honum gengið bærilega þar; lagið Natural One var notað í kvikmyndina Kids og komst á vin- sældalista í Bandaríkjunum upp úr því. Það er því nánast tíma- spursmál hvenær Sebadoh öðlast þá viðurkenningu sem hún á skil- ið og fer hver að verða síðastur að „uppgötva” hana á undan öllum öðrum. Það er stórmerkilegt að hljóm- sveit í sama gæðaflokki og Sebadoh geti verið til lengi og gefið út heilar níu plöt- ur án þess að vekja teljandi at- hygli, en það segir kannski sitt um ástandið á poppmarkaðnum í dag. Það var Jello heillakarlinn Biafra sem sagði að ef Doors eða John Lennon væru að byrja í dag kæmust þeir aldrei á plötusamn- ing og miðað við Sebadoh-dæmið gæti hann haft nokkuð til síns máls. Poppunnendur geta þó glaðst yfir þolinmæði Barlows og co. því fátt er skemmtilegra en að kynnast „nýrri“ hljómsveit með níu plötur í farteskinu. -Aej 37 2 GOOD RHYMES...............................DA CLICK 38 5 ELDUR (DIRTY DANCING) . .VERSLÓ (AÐALHEIÐUR ÓLAFSD.) 39 1 HOW LONG’S A TEAR TAKE TO DRY.......BEAUTIFUL SOUTH 40 1 REALLIFE ...................................BONJOVI Sumarsveitin Skíta- * jF . jl mórall skýst meö y * Elnn með þér í 30. « sæti. Þaö er vorboði. Freak on a Leash með Korn fer beint í 15. sætið. Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 40 29 íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu. Einnig getur fólk hringt i síma 550 0044 og tekið þátt í vali listans. Islenski listinn er frumfluttur á flmmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og birtur á hverjum föstudegi í DV. Listinn er jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er birtur, aö hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar. íslenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaöinu Music & Media sem er rekiö af bandaríska tónlistarblaöinu Billboard. Yrirumsjón meö skoöanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar Markaösdelld DV • Tölvuvinnsla: Dódó Handrit. heimlldaröflun og yfirumsjón meö framleiöslu: Ivar Guömundsson • Tæknistjóm og framleiðsla: Þorstelnn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson Otsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll ólafsson • Kynnir l útvarpi: ívar Guömundsson Belglsk lognmoila DEUS hefur náð allra Belga lengst á poppmarkaðnum. Þeir vöktu fyrst athygli með laginu Suds and Soda sem hlaut mikla spilun á MTV-sjónvarpsstöðinni og þó þeir hafi ekki tröllriðið vin- sældalistum neins staðar annars staðar en í Belgíu hafa þeir jafnan hlotið lof gagnrýnenda og verið vinsælir á tónieikum. Þeir spila enda fína tónlist, poppmelódíur blandaðar tilraunakenndu listrokki og kryddað með fiðlu og sterkum bakröddum. Þriðja plata DEUS nefnist The Ideal Crash og er ekki ýkja frá- brugðin fyrri afurðum sveitarinn- ar. Áherslan er á sterkar lagasmíð- ar og Tom Barman greinilega með Nick Cave á fóninum öðru hvoru. Að minnsta kosti hefur hann, eins og Cave, dálæti á rólegum lögum og þungum textum um dapurlegar aðstæður og skuggahliðar lífsins almennt. Það er allt mjög uppbyggj- andi og gott með morgunkaffinu. Það er eins og merkja megi þreytu í bandinu, þeir félagar voru að enda við að klára tónleikaferð þar sem þeir komu 160 sinnum fram á einu ári þegar þeir tóku plötima upp og ekki að undra að lögin séu í rólegri kantinum eftir svoleiðis töm. Hreinræktað popp var ekki oft á matseðlinum á fyrri plötum DEUS en nú er eins og menn hyggi á vin- sældaklifur og verður að segjast að þó lögin séu mörg prýðileg er sér- staða bandsins í rokkheiminum eiginlega horfin með tilraunastarf- seminni. Það er urmull af hljóm- sveitum í baliöðudeildinni að gera svipaða hluti og Beck er löngu bú- 10 f Ó k U S 9. apríl 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.