Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 9
„Eg giska á að hún sé 27 ára, ! einstæð móðir með eitt barn. ' Hún kemur utan af landi og er ómenntuð, hætti eftir grunnskól- ann. Sennilega vinnur hún í fiski í dag. Hún reykir mikið og er á djamm- inu allar helgar, en er ekki mikið að veiða karlmenn. Aðallega að skemmta sjálfri sér. Hún á sinn eigin bíl og leig- ir íbúð með vinkonu sinni. Hún er ekki búin að móta neina framtíðar- stefnu, en er mjög ákveðin, jaðrar við i að vera frekja." „Þessi er húsmóðir. Þriggja i barna móðir, gift trésmiði. Hann er búinn að byggja handa þeim jf þræiflnt hús í Lindarhverfinu í Kópavogi. Á morgnana ber hún út póstinn en er annars heimavinnandi. Hún hlustar mikið á Diddú og fer oft í sund með bömin. Þá þykir henni yndislegt að fara í sumarbústaðinn sinn í Þrastarskógi á sumr- in. Maðurinn hennar byggði hann einmitt líka. Þessi kona er að nálgast fertugsaldur- inn og líf hennar snýst um börnin. Það elsta er fimmtán ára stelpa, þannig að hún er að díla við ungling núna og það tekur soldið á. Hún á fáa vini en góða og er í daglegu sam- bandi við bestu vinkonu sína. í þessi örfáu skipti sem hún fer út, fer hún á Kaffi Reykjavík og fllar það í tætlur.“ Margrét Ossurardóttir, 33 ára matreiðslumeist- ari. Ógift og barnlaus. |! „Það er augljóst að hún er utan af landi. Hún er hins vegar búin að eiga heima í bænum í nokkur ár. Hún er tæplega þrítug og á kærasta sem gæti verið hver sem er. Þau era barnlaus og eiga sér eitthvað sameiginlegt útivistaráhugamál, gætu til dæmis verið hesta- eða fjallgöngufólk. Hún vinnur á skrifstofu á einhverjum fjöl- miðli, fílar soldið fjölmiðlana og fylgist vel með fréttum. Hún er með stúdents- próf. Skötuhjúin búa í Breiðholti í blokkaríbúð og eiga einn bíl saman. Vinir þeirra koma úr útivistaráhugamálinu sem er mjög ríkjandi í lífi þeirra allra.“ Hið rétta um Margréti: i „Sambýlisfólk mitt era nú bara rykmaurarnir heima hjá mér. Ég leigi ibúð í Hlíðunum og keyri um á mínum eigin bíl, litlum hvít- um Daihatsu. Ég á marga vini en er vinnusjúklingur og hef því heldur lítinn tima fyrir vinina. Útivera er sérstakt áhugamál hjá mér og þá helst uppi á fjöll- um. Mér finnst líka gott að vera i góðra vina hópi. Ég er í góðri stöðu og er ánægð með það sem ég þéna. Ég er glaðvær, hress og ákveðin kona, en tel mig jafn- framt vera sanngjama. Þegar ég fer út að skemmta mér, fer ég á Sólon íslandus, La Café eða Kaffi Reykjavík, sem sumir kalla Kaffi klamydíu eða Aktu taktu. Ég les líka mikið og þá helst spennusögur." Kolbrún Anna Jónsdóttir, 35 ára flugfreyja og verslunareigandi. Gift og tveggja barna móðir. Hið rétta um Kolbrúnu: „Ætli ég sé ekki meðal- mennskan uppmáluð, því miður. Ég er öðravísi en fólk heldur og virka oft yngri en ég er. Ég fer mikið til út- landa og ætla til dæmis til New York um helgina. I maí fer ég svo til Spánar. Ég er alltaf á ferðinni og á erfitt með að vera kyrr. Er haldin einhverri þörf fyrir flæking. Mér finnst draslmatur og allt sem er óhollt gott. Allt sem er hollt finnst mér vont. Samt er ég ekki feit. Ég vil annast börnin mín vel en annars fer ekki mikið fyrir umönnunarþörf hjá mér. Ég bý í vesturbænum og er ekki glysgjörn en nota þessa skartgripi sem ég á. Mér finnst ég eiga allt of fá áhuga- mál og frítíminn er heldur lítill. Ég er ákveðin og kemst þangað sem ég vil.“ „Mig grunar að þessi sé barn- I laus og óbundin. Sennnilega er ' hún 22 ára nemi í Myndlista- og handíðaskólanum. Hún er lista- mannatýpa. Sækir kaffihúsin mikið, leigir íbúð í miðbænum og til að fram- fleyta sér vinnur hún aukavinnu tvö kvöld í viku, líklega á kaffihúsi. Hún á ekki bíl og er frekar óákveðin, flýtur með straumnum. Hún er svolítil, já“mann- eskja sem breytir aldrei tillögum sem eru bornar upp. Það er örugglega mikið af fólki í kringum hana, stór vinahópur, og j hún á eina eldri systur." , „Þessi kona er 26 ára. ' Hún er í skóla og er lík- lega að læra hjúkrun. Hún er ógift og barnlaus, býr í for- eldrahúsum og er bíllaus. Hún er lítið í félagsmálum en á fastan vinahóp, svona sterkan kjama. Gæti heitið Bima. Þetta er skap- góð og blíð stelpa, ekki mjög rót- tæk og fylgir oftast straumnum." „Hún á pottþétt fyrirtæki/ lik- j lega heildverslun og rekur það _ sjálf með bóndanum. Saman 'jjr eiga þau tvö böm og búa úti á Seltjarnarnesi í flottu húsi með heitum potti og notalegheitum í garðin- um. Hún elskar skartgripi og er alltaf snyrtileg til fara. Henni finnst slæmt hvað hún á lítinn fritíma. Helst vildi hún geta eytt fleiri stundum með börmmum en fyrirtækið tekur sinn tíma. Til að bæta upp glataðan tima með bömunum ætlar hún með fjölskyldunni til Portúgal þann 25. júní. Annars reynir hún að kom- ast á skíði um helgar. Hún er í sauma- klúbbi og hefur gaman af því að tala. Hún er ákveðinn karakter sem gefur fólki orð í eyra ef það gerir ekki það sem hún vill. Hún er 35 ára og gæti heitið Kristín.“ J „Þessi er rúmlega þrí- 'g tug, svona 33, en maður- 'f inn hennar er aðeins eldri. Vinnur í einhvers 1 konar markaðsdæmi. Gift en bam- laus, soldið framkoma. Hún býr í Grafarvogi, annaðhvort í einbýlis- húsi eða raðhúsi, ákveðin týpa. Hún er ágætlega stæð og hann er á jeppa en hún á minni bíl. Soldið snobbuð. Skemmtir sér talsvert, fer soldið með vinunum, enda barnlaus, fara soldið til útlanda, skoða heiminn. Hún telur sig hafa góðan matar- og vínsmekk.“ Hið rétta um Arndísi: „Ég er svona frekar róleg manngerð sem bý með manni mínum og tveimur sonum í falleg- asta bæ landsins, Hafnarfirði. Ég myndi aldrei vilja búa í Breiðholti, Smára- eða Lindahverfi. Ég er ekki þessi úthverfatýpa. Ég bý reyndar í hálfgerðu úthverfi núna og þjáist fyrir það. Ég fer allt of sjaldan út að skemmta mér en fjöl- skyldan kemur í staðinn. í þessi örfáu skipti sem ég dríf mig út á lífið þá enda ég alltaf á Grand Rokk. Mér er meinilla við ketti en ég gæti vel hugsað mér að eiga hund. Af umhverfisástæðum á ég ekki bíl. Það er hugsjón að eiga ekki bil.“ „Þetta er listakona sem f elskar Sólon íslandus. Henni þykir rammt rauð- vín gott og hún skrifar ljóð í frístundum sínum. Líklega er hún 28 ára og á eitt barn. Hún er einstæð og leigir í vesturbænum. Hún vinnur á leikskóla, er glað- lynd og hlær mikið. Nick Cave er í uppáhaldi en hún þolir ekki Toni Braxton og graðhestarokk. Þessi kona er ekki frek og hún á fáa en góða vini. Mér finnst eins og hún hafi lært á selló þegar hún var yngri.“ „Þessi er í heimspekideild Háskólans. Hún er 25 ára og barnlaus en á kærasta sem hefur lokið háskólanámi og vinnur fyrir þeim. Þau leigja í miðbænum, Norður- j mýrinni eða Hlíðunum. Það er eitthvað f við þessa stelpu, hún er svona fingerð týpa og það er smálistaspíra í henni. Framtíðarsýn hennar er ekki mjög mót- uð frekar en hjá flestum á hennar aldri. Hún djammar mikið og fer soldið á kaffihúsin, þau sem eru í efri hluta miðbæjarins, eins og Kaffibarinn, 22 og Vegamót, en fer aldrei á Astró og Skuggabar. Hún keyrir um á druslu." Hið rétta um Hönnu: „Ég fer ekki mikið út á lífið og hlusta eiginlega mest á klass- íska tónlist. Ég lærði á fiðlu þegar ég var yngri. Ég þoli ekki þessa nýjustu tónlist sem er svo mikið í tísku núna, sem sumir kalla eiturlyQatónlist. Ég slekk á útvarpinu þegar ég heyri hana. Ég er frekar listræn í mér og það nýtist mér vel sem ljósmyndara. Ég er ákveðin og veit hvað ég vil. Ég held að ég sé með ágæta og jafna skapgerð, er ekki óeðli- lega glaðlynd en samt langt frá því að vera þunglynd. Ég á fáa en góða vini og er mikil fjölskyldumanneskja. Fjjölskyld- an mín er er stór og samrýnd, Ég bý í Hafnarfirði í eigin íbúð og er í frii frá ljósmynduninni um þessar mundir af því að barnið fer brátt að koma í heiminn." Arndís Þorgeirsdóttir, 31 árs blaðamaður. Gift og á tvö börn. „Þessi gæti heitið hvað 1 sem er. Hún er tuttugu ára, ógift og barnlaus. Er á síðasta ári í framhalds- skóla og á kafi í félagslífinu í skólanum. Þetta er skýr og klár stelpa, gella með góðar einkunn- ir. Hún býr í foreldrahúsum og á ekki bíl. Líklega á hún kærasta, þetta er svona týpa sem á oft kærasta. Hún er alveg óákveðin með hvað hún á að leggja fyrir sig í framtíðinni. Virkar glaðvær, hamingjusöm og mjög ákveðin." „Hún er pottþétt kennari í barnaskóla. Gift og tveggja barna móðir. Hún elskar að leysa gáto og filar vinnuna í tætlur. Henni finnst gott að sofa, drekkur mikið kaffi en reykir ekki. Hún er 37 ára og kann ekki við sig í þröngum fótum. Hún er heimakær og finnst gott að fá sér Irish Cofiee á kvöldin með manninum sínum þegar börnin eru farin að sofa. Keyrir um á Suzuki Swift, árgerð ‘87, og á íbúð í Seljahverfinu.“ „Þessi er í grennd við þrítugt. Það er samt svo- lítið erfitt að sjá það. Vinnur á bæjarskrifstofum eða hjá Landssímanum. Keyr- ir um á 5 ára gömlum Dai- hatsu og býr í nýlegri íbúð í Smára- eða Lindarhverfinu í Kópavogi. Hún er einstæð og á ekki barn en hún á kött sem henni þykir mjög vænt um. Hún djammar ekki mikið og er ekki mikið að vesenast í karlmönnum en hún á mjög góðar vinkonur. Þetta er ró- leg týpa en hún pælir ekki al- veg nógu mikið í í hverju hún gengur." Hanna Kristín Gunnarsdóttir, 27 ára Ijósmynd- ari. Gift, á eitt barn og gengur meö annaö. 9. apríl 1999 f ÓkUS 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.