Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 11
Rmmtán mínútna frægö Hlekkja í Stundinni Hvar eru þeir nú? «76: 6n„„SMn„, l6lam ^ ^ Og Þrostur Þórisson á góöri stund. Hlekkir Hver man ekki eftir unglinga- hljómsveitinni Hlekkjum? Þeir voru heitustu táningastj örnurnar í Kópavogi á áttunda áratugnum allt þar til Fræbbblamir komu til sögunnar. Hljómsveitina skipuðu fimm piltar á táningsaldri; Birgir Baldursson trommari, Jóhann Morávek á bassa, Gunnsteinn Ólafsson á hljómborð og Þrest- irnir Þorbjömsson og Þórisson á gítara. Þeir sungu allir, en Þröstiu- Þorbjörnsson mest. Stelpurnar slógust um myndir „Hlekkir var stofnuð 5. septem- ber 1975 og starfaði í tvö ár,“ segir Birgir. „Ég, Jóhann og Þröstur Þor- björnsson stofnuðum bandið í her- berginu hjá mér. Þá vorum við 11 til 13 ára. Skömmu síðar bættust Gunnsteinn og Þröstur Þórisson við. Við spiluðum bara lög eftir aðra, t.d. Wings-lög, Creedence, Bachman Turner Overdrive og Bítlalög. Fyrsta lagið sem við æfð- um var „Muhamed Ali“ og við spil- uðum það og önnur í fyrsta skipti í sunnudagaskóla hjá Árna Páls- syni presti í Kársnesskóla. Fljót- lega fórum við að spila á böllum í bama- og gagnfræðaskólum í Kópa- vogi og barst frægð okkar alla leið upp í Breiðholt. Við vorum mjög vinsælir í Fellaskóla og stelpurnar slógust um myndir af Þresti Þor- björns, enda þótti hann yfirgengi- lega sætur.“ Aðdáendabréf frá Höfn „Við hituðum upp fyrir Fress á 17. júní balli 1976 upp á þaki við Kópavogsskóla. Árið eftir hituð- um við aftur upp við sama tæki- færi en þá hét hitt bandið Fresh. Við lentum í þriðja sæti i Hæfi- leikakeppni Kópavogs 1976 en há- punktur Hlekkja má segja að hafi verið þegar Sigríður Guðmunds- dóttir gerði dagskrárlið í Stund- inni okkar um okkur. Hún fylgdi okkur eftir á æfingu og tók viðtöl. í kjöifarið urðum við frægir um allt land og persónulega barst mér aðdáendabréf frá Höfn í Horna- firði." Þrátt fyrir frægðina voru óveð- ursský á himni. „Það urðu mannabreytingar," segir Birgir, „Gunnsteinn hætti og við tók Ævar Einarsson. Hann dró með sér rígfúllorðinn og skeggjaðann söngvara sem ég lenti upp á kant við. Ég gekk því úr bandinu og Hlekkir lögðu skömmu síðar upp laupana." Hvar eru þeir nú? Birgir lék með ýmsum sveitum, m.a. S.H. Draum, Sálinni hans Jóns míns og Kombóinu, en leikur í dag með Eddu Borg og Þóri Baldurssyni. Hann starfar auk þess sem blaðamaður. Gunnsteinn var fiðlari að upp- lagi og fór til Vínar í hljómsveitar- stjóranám. Eftir nám hefur hann stjórnað kórum og hljómsveitum á íslandi og var dómari í spum- ingakeppninni Gettu betur í fyrra, eins og frægt varð. í dag er Jóhann Morávek tón- skáld og skólastjóri tónlistarskól- ans á Höfn í Hornafirði. Hann heldur úti ballhljómsveit á þvi svæði við góðan orðstír. Þröstur Þorbjömsson lærði á klassískan gítar og kennir á slík- an í dag. Hann leikur í hljómsveit- inni Saga Klass. Þröstur Þórisson starfar sem leigubílstjóri í Svíþjóð. Hann hafði áður reynt fyrir sér í flug- og tölvunámi. Fjögur tilraunaeldhús sett upp á Kaffi Thomsen: Reykurínn af réttunum Tónlistarunnendur geta hugsað sér gott til glóðarinnar í sumar því tónleikahald er í góðum gír þessa dagana og eru það jafnt úfnir þung- arokkarar af yngri kynslóðinni og settlegri félagar þeirra úr tölvu- geiranum sem sjá eyrnadeild Land- spítalans fyrir viðskiptavinum þessi misserin. „Tilraunaeldhúsið" nefnist tón- leikaröð sem haldin verður í kjall- ara Kaffi Thomsens næstu vikurn- ar og mun þar leiða saman magn- ara sína tónlistarfólk úr ólíkum hljómsveitum og freista þess að kreista úr þeim ný og spennandi óhljóð. „Spuni“ er ekki skammar- yrði innan þessa hóps enda færir spilarar á ferð og þeir sem em orðnir leiðir á að hlusta á Stairway to Heaven era hvattir til að mæta og gæða sér á nýmetinu. Plötu- snúðar verða og af óreyndari gerð- inni og spila sín uppáhaldslög á miili atriða. Fyrsta kvöldið verður 12. aprO og þá koma saman tölvumeistarinn Andrew McKensie og Pétur Hall- grímsson (Lhooq). Hilmar Jens- son djassgítarleikari raglar saman reytum við hljómsveitina Biogen og Steina Plastic og plötusnúður er Lalli úr 12 tónum. Viku síðar, þann 19., heldur fjör- ið áfram með íslenska hljóðmúm- um sem er byggður úr þeim Jó- hanni Jóhannssyni (Lhooq) og Óskari Guðjónssyni saxófónleik- ara. Hitt atriði kvöldsins er fundur þeirra Bibba Curvers og Helga Svavars úr Funkmaster 2000. Skífuþeytir er Jói Ág., kenndur við 12 tóna. Enn líður vika og við mætum prúðbúin þann 26. apríl til að hlýða á rytmaparið Vidda og Dodda (Unun) og með þeim er kanadíska djasssöngkonan Tina Palmer. Jó- hann Jóhannsson blæs til stór- sóknar sama kvöld og fær til liðs við sig Matthías Hemstokk trommara, Jónsa (Sigurrós) og strengjakvar- tettinn Anímu. Paul Lydon heldur uppi stuðinu við fóninn. Lokahnykkurinn er svo 3. maí en þá mætir hljómsveitin Spúnk og leikur við Böðvar og trommusnill- inginn Óbó. Vindva Mei heitir hljómsveit og hrærist saman við Múm og Músighvat og Dj Bíbí Blöndal leikur létt lög af snilld. Ef sum þessara nafna hljóma ókunnuglega gætir þú verið að missa af lestinni og þá er ráð að bregða sér á einhverja þessara tón- leika. Dr. Puff, geri ég ráð fyrir Howard-háskóli heiðraði nýlega, öllum til mikillar furðu, Puff Daddy með doktorsnafnbót. Puff hafði nýlega gefið skólanum hálfa milljón dala en það hafði engin áhrif á ákvörðuna, samkvæmt áreiðanlegum heimildum. Dr. Puff Daddy er að undirhúa næstu plötu en hæpið er aö hún liti dagsins ljós fyrir aldamót. Spice QMrfs veríHaunaðar Spice Girls hlutu enn ein verðlaimin nýlega en hæpið að þær veiti þeim viðtöku. Þetta voru nefnilega „Golden Raspberry" verðlaunin sem veitt eru árlega fyrir verstu frammistöðu í kvikmyndabransan- um. Stúlkurnar hlutu verðlaun fyrir versta leik i aðalhlut- verki og ummæli dómnefndar voru eitthvað á þá leið að þær byggju yfir hæfi- leikum einnar slæmrar leikkonu og deildu þeim á milli sín. Bruce Will- is hreppti svo hnossið fyrir versta karlhlutverkið fyrir leik sinn f Armageddon. Gamli skítugur iðinnvið kolann Skátadrengurinn og rappdruslan Ol’Dirty Bastard var handtekinn enn eina ferðina f Brooklynhverf- inu f New York á þriðjudag. Hann var sem betur fer óvopnaður í þetta skipti en bætti það upp með því að vera með svolítið magn af krakki innanklæöa. Hann hefur birst í fleiri réttarsölum en tónleikum það sem af er árinu og ijóst að hann kemur til með að eiga náðugar stundir i bandarísku fangelsi bráð- lega. Guði gleymdur Atvinnulaus iðnaðarmaður í New York-ríki hefur höfðað mál á hendur Guði. Megininntak stefnunnar er að fyrst bæði Duane Allman og Jimi Hendrix séu látnir beri Guði að leyfa einhverjum að njóta hæflleika þeirra og krefst maðurinn þess að honum verði látnir þeir í té. Guð hefur ekkert tjáð sig um málið. 9. apríl 1999 f ÓkUS 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.