Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 14
Komdu heim: Mamma av flanAwAwa^ “i UCIIIUVUS BCIb One Trae Thing fjallar um fjöl- skyldu sem hefur aldrei komið sin- um málum á hreint og sundrast í fyllingu tímans. Þegar dóttirin Ellen (Renee Zellweger), sem er orðin harðprúttin ung kona búsett í New York, fréttir af alvarlegum veikindum móður sinnar (Meryl Streep) ákveður hún að gefa kærastann sinn upp á bátinn sem og vinnuna og halda aftur til heimabæjarins Langhome. Þegar hún flytur aftur inn á gamla heim- ilið sitt virkar það um stund eins og hún sé aftur komin á byrjunar- reit og orðin litla bamið. Um siðir kemur i ljós að það er ýmislegt sem hún veit ekki um foreldra sína og um leið líf sitt fram að þessu. í fyrstu upplifir hún nokkurn veginn æskuna upp á nýtt; ailt sem hún gerir er eins og uppreisn gegn for- eldrunum. Henni finnst móðir sín vera of þolinmóð, velviljuð og um- fram allt of móðurleg og veit ekkert betra en að lifa jarðbundnu lífi og vera heima hjá sér að prjóna og dunda sér eitthvað. George faðir hennar (William Hurt) er meira henni að skapi og finnst henni sem hún eigi margt sameiginlegt með hinum stórsnjalla en fjarræna pró- fessor. Fyrr en varir kemst Ellen að því að hún líkist meir fóður sín- um en móður á meðan bróðir henn- ar Brian (Tom Everett Scott) er andstæða hennar. Þegar allir þess- ir einstaklingar koma saman undir einu þaki eiga alls konar skondnar umræður og atburðir sér stað. En nú þegar dauðinn vofir yfir er Ellen neydd til að kynnast foreldr- um sínum á fullorðinsbasís en þannig hefur hún aldrei þekkt þau áður. Fljótlega kemst hún að því að í gegnum alla saumaklúhbana og húsmæðrastörfin býr gáfuð, ástríðufull og sterk kona en hún kemst einnig að einu og öðru um fóður sinn sem er öllu hjákátlegra. Meryl Streep er mikið verðlaun- uð leikkona og nægir að nefna myndir eins og Kramer vs. Kramer og Sophie’s Choice til að fólk kann- ist við hana. Að sögn tók hún mjög vel í að fá að leika móðurina. Sam- kvæmt henni hafði hana alltaf langað til þess að fá að spreyta sig í hlutverki einnar slíkrar. Renee Zellweger lék kærustu Jerry Maguire í samnefndri mynd og hlaut mikið lof fyrir. Hún hefur einnig leikið í Reality Bites, Dazed and Confused og The Return of the Texas Chainsaw Massacre. William Hurt hefur leikið í mörgum mynd- um, t.a.m. Broadcast News, Accidental Tourist, Kiss of the Spider Woman, The Big Chill, I Love You to Death og ótal fleiri myndum. Leikstjórinn Carl Franklin leikstýrði Devil in a Blue Dress og þótti það hin besta mynd. Hann hefur einnig áður leikstýrt glæpadramanu One False Move með Bill Paxton, Cindy Williams og Billy Bob Thornton í aðalhlut- verkum. Það þótti nokkuð djörf ákvörðun að ráða hann til að leik- stýra þessari mynd þar sem hann hefur aldrei leikstýrt mynd á borð við þessa áður. 2,6 # ft 1 * f Ijóna rríi sonnun góð- mennsku ir A Civil Action er sannsöguleg mynd um fræg réttarhöld. Hún er bæöi lögfræðitryllir þar sem mikiö er í húfl og einnig dramatísk mynd sem færir okkur frá menguðum bökkum Aberjona árinnar i Nýja- Englandi til lagafyrirtækja og rétt- arsala Bostonborgar. Atburðirnir sem myndin byggir á áttu sér stað fyrir rúmum áratug þegar rithöfundurinn Jonathan Harr ákvað að skrifa bók um málið, verk sem tók hann níu ár að klára. Á þeim tíma var lögfræðingurinn Jan Schlichtmann að græða á tá og flngri með því að vinna hvert einkaskaðabótamálið á fætur öðru. Það sem hann langaöi samt mest til að gera var að verða frægur á því að gera góðverk. Þegar hann tók sig svo til og fór í mál við stórfyrir- tæki sem voru grunuð um að hafa valdið stórtjóni með mengun á drykkjarvatni bauð hann Harr að fylgjast með innan frá og gaf hon- um grænt ljós á að fylgjast með öilu sem viðkom málinu. Harr kveður málið hafa byrjað óhemju vel en það fór á annan veg. Leit Schlichtmanns að sannleikanum gekk svo langt að það jaðraði við hreinustu geðveiki. Hann lagði á sig ómælt erflði til þess að hafa bet- ur og reiddi fram allan kostnað úr eigin vasa. Að lokum var Schlicht- mann búinn að eyða 2,6 miiijónum dollara í málið. Þegar honum var boðin sátt upp á margar milljónir dollara neitaði hann og var á þeim tíma ekki aðeins búinn að missa stjórn á málinu heldur einnig lífi sinu. En það sem Schlichtmann seg- ir hafa verið heiilandi við máliö var það að það sýndi hvaða mann hver einasti aðili sem kom að því hafði að geyma. leikstióra Nú er á döflnni að gera nýja Superman-mynd og hefur Nicolas Cage einhverra hluta vegna verið orð- aður við aðalhlutverkið. Myndverið sem á fram- leiðsluréttinn hefur ákveðnar hugmyndir um hvaða leikstjóra þeir viiji fá til að gera myndimar og sóttust þeir upprunalega eftir að fá Tim Burton, sem leikstýrði Batman 1 & 2, til aö taka verkið að sér. Nú hefur það víst dottið upp fyrir en eftir á óskalista myndversins eru m.a. Simon West sem gerði Con Air, Steve Norrington sem leikstýrði Blade og Shekhar Kapur sem gerði Eliza- beth. Clooney sltar George Clooney, sem sást fyrir skemmstu í Out of Sight, hefur ekki aideilis setið auðum höndum undan- farið. Hann hefur veriö i skrifa handrit að _ þáttum fyrir HBO kapalsjónvarps- i stöðina i Banda- I ríkjunum. Þætt- imir em með gam- ' ansömu ívafi og fjalla þeir um leikara í L.A. sem heitir Kilroy. Kilroy þessi á ekki sjö dagana sæla og ganga þættimir út á vandamál hans. Litlar líkur era á þvi að Clooney muni koma til með að leika Batman aftur ef það er eitthvað að marka þaö sem hann segir, en að sama skapi er ekki vist hvort það kemur nokkuð önnur framhaldsmynd. \**»*t*i Rokki mem Rokkbransinn á áttunda áratugn- um var fjölskrúðugur og ýktur. Alls konar smástirni sem komust á topp- inn í smástund með einu lagi vilja í dag frekar deyja en kannast við fortíð sína. Margar gamlar hljómsveitir hafa þó sameinast að nýju og kýlt á endurkomu. Strákamir i Sex Pistols eru kannski besta dæmið um þetta og svo hafa ýmsar hljómsveitir frá byrj- un níunda áratugarins reynt eitthvað svipað. Still Crazy segir svipaða sögu, nema hvað hljómsveitin i henni var aldrei vinsæl: Drengirnir í rokkband- inu Strange Fruit reyndu að slá í gegn á sínum tíma en tókst það ekki og leystist hljómsveitin því upp. Nú, rúmum tuttugu árum síðar, ætla þeir sem eftir standa að reyna að púsla saman gömlu grúppunni og komast inn í rokksenuna. Tony (Stephen Rea) er einn þeirra. Eftir að hafa orð- ið illa úti fjárhagslega vegna veitinga- húsabrasks á Ibiza ákveður hann að taka af skarið og hringja í Karen (Juliet Aubrey), fyrrum umboðs- mann Strange Fruit. Af ýmsum per- sónulegum ástæðum tekur hún starf- ið að sér og fyrr en varir er trommari hljómsveitarinnar kominn í spilið. Sá heitir Beano (Timothy Spall) og býr í bakgarði móður sinnar þar sem hann felur sig fyrir skattinum. Annar söngvarinn, Les (Jimmy Nail), ákveður einnig að taka þátt í ævin- hann verið að leika sér í einkahljóð- veri sínu og tekur hann því tilboði gömlu félaganna fegins hendi. Rót- arinn, Hughie (Bill Connolly), fær einnig sitt gamla starf aftur og við upprunalegu mannaskipanina bæt- ist ungur gítaristi, Luke (Hans Matheson). Hins vegar vantar aðal- gitarleikara hljómsveitarinnar, Bri- an (Bruce Robinson), en til hans hefur ekkert spurst síðan Strange Fruit dró sig í hlé. Svo hefst tón- leikaferðalag hið mesta og hver veit hvaða viðtökur hljómsveitin hlýtur? Drengirnir í rokk- bandinu Strange Fruit reyndu að slá í gegn á áttunda áratugnum en tókst það ekki og leystist hljómsveitin því upp. Tuttugu árum síðar koma þeir saman á ný - líklega til að minnast ófaranna. Og eins og alltaf í bíó fer ýmislegt öðruvísi en ætlað er. Um þetta fjallar bíómyndin Still Crazy. Stephen Rea ætti að vera flestum góðkunnugur fyrir hlutverk sitt í myndinni The Crying Game. Hann hefur einnig leikið í myndum á borð við Interview with a Vampire, Mich- ael Collins og The Butcher Boy. Jim- my Nail er vel þekktur hérlendis enda lék hann í sjónvarpsþáttunum Crocodile Shoes sem voru nokkuð vinsæfir. Einnig brá honum fyrir í Evitu Alans Parkers. Timothy Spall lék í Secrets and Lies eftir Mike Leigh og var tilnefndur til BAFTA- verðlaunanna fyrir þann leik. Auk hennar hefur hann leikið í myndun- um White Hunter Black Heart, Got- hic, Hamlet, To Kill a Priest og Home Sweet Home, svo fátt eitt sé nefnt. Brian Gibson leikstjóri leikstýrði What’s Love Got to Do with It sem fjallaði einmitt um Tinu Tumer og einnig The Juror sem fjallaði ekki um Tinu Turner. Sem sagt: Rútíneraðir menn á ferð. týrinu þrátt fyrir að hann lifl frekar kyrrlátu og öraggu lífl með konu sinni og bömum. Hann leggur þak- plötulagninguna á hilluna og slæst í för með hinum krökkun'im Aðal- söngvari hljómsveitariiuiar, Ray (Bill Nighty), hefur það nokkuð gott á herragarðinum sínum þar sem hann og sænska eiginkonan hans búa saman. Árum saman hefur 14 f Ó k U S 9. apríl 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.