Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Blaðsíða 6
m (gj)öjuraar: Vigdís Gunnarsdóttir *ttarté leíkltétarnema S>tórf)ertogaættín: jfrenjutnar: Margrét Vilhjálmsdóttir Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir Þrúður Vilhjálmsdóttir Edda Björg Eyjólfsdóttir I Nanna Kristín Magnúsdóttir I u Elma Lísa Gunnarsdóttir' ” I Tinna Hrafnsdóttir 2jáa og Ijættuíega fjöláfeplöan: Jóna Guðrún Jónsdóttir I Halla Margrét Jóhannesdóttir I Halldóra Geirharðsdóttir I Katla Margrét Þorgeirsdóttir ^ I Sjöfn Everts I Laufey Brá Jónsdóttir I Kristjana Skúladóttir I Vigdís Hrefna Pálsdóttir 'j Ingvar E. Sigurðsson I Dofri Hermannsson I Benedikt Erlingsson Kjartan Guðjónsson Gunnar Hansson I Guðmundur Ingi Þorvaldsson I Rúnar Freyr Gíslason I Víkingur Kristjánsson Baldur Trausti Hreinsson I Ólafur Darri Ólafsson I Hinrik Hoe Haraldsson I Gísli Öm Garðarsson Sigrún Sól Ólafsdóttir I Inga María Valdimarsdóttir I Helga Vala Helgadóttir I Jóhanna Vigdís Arnardóttir I Nína Dögg Filippusdóttir Unnur Ösp Stefánsdóttir Brynja Valdís Gísladóttir Ólafur Egill Egilsson Œútturaar: Edda Arnljótsdóttir I Björk Jakobsdóttir I Katrín Þorkelsdóttir I Hildigunnur Þráinsdóttir Linda Ásgeirsdóttir /j I María Pálsdóttir I Lára Sveinsdóttir I Arnbjörg Valsdóttir ^tallone Eofefeaættín: Ijamlet-fjöíökplöan: Hinrik (jílafsson ■ J t5°rtlallur <junnarsson Sveinn Þójir Geirsso Halldórpylfasonl .ijl Hilmar Jónsson Gunnar Gunnsteinsson f Agnar Jóp Egilsson Joji I Egill Heiðar yjnton Pálsson Björn Hlynur Haraldsson nuj I I Hilmir Snær Guðnason I J Bergur Þór Ingólfsson i I Atli Rafn Sigurðarson I Friðrik Friðriksson I Stefán Karl Stefánsson I Björgvin Franz Gíslason I Gísli Pétur Hinriksson Hilmir Snær Guðnason er faðir hans Bergs Þórs Ingólfssonar og Edda Björg Eyjólfsdóttir er dóttir Þrúðar Vilhjálmsdóttur. Rúnar Freyr Gíslason er bróðir Hinriks Hoe Haraldssonar en þeir eru synir Ólafs Darra Ólafssonar og Guðmundar Inga Þorvaldssonar og langafabörn Benedikts Erlingssonar sem er barnabarn Ingvars E. Sigurðssonar, ættföður Stór-hertogaættarinnar í Leiklistarskóla íslands. Þar skiptast nemendur í sjö fjölskyldur sem gæta ættartengslanna vel og styðja hver við annan þegar komið er út í hinn harða heim eftir útskrift. Einkennileg ættartré í skólanum er umhverfið skemmtilegt og vinirnir margir, alltaf eitthvað að gerast og áhyggj- urnar ekkert svo voðalega miklar. Fyrir vikið eiga margir sínar bestu minningar frá skólaárunum. En minningin um fyrstu dagana eftir skólalok er ekki síður eftirminni- leg. Þegar menn mæta á nýjan vinnustað, þekkja engan og eru allt í einu vinalausir og einir í stóra heiminum. Nýútskrifaðir leikarar þekkja til dæmis þessa tilfinningu en leikhúsasamfélagið er líklega með því erflðasta fyrir nýgræð- inga, að minnsta kosti ef marka má söguna frægu um að þar sé sam- keppnin hörð, óvægin og jafnvel ósanngjörn. Þess vegna tóku nokkrir nem- ehdur í Leiklistarskólanum sig til fyrir nokkrum árum og stofnuðu fjölskyldur. Þetta var árgangurinn sem útskrifaðist fyrir fimm árum en í honum voru meðal annars Margrét Vilhjálmsdóttir, Þór- hallur Gunnarsson, Hilmir Snær Guðnason og Björk Jakobsdóttir. Þau völdu sér foreldra úr árgangin- um fyrir ofan og böm úr árgangin- um fyrir neðan. Bömin tóku svo að sér krakkana í næsta árgangi fyrir neðan þau og svo koll af kolli, ár eftir ár. Þannig hafa myndast sjö fjölskyldur og nýjustu afkvæmin em í yngsta árgangi skólans. Til- gangurinn var að tengja imga leik- ara við leikhúsin. Gufuna út „Það er ómetanlegt að eiga ein- hvern að þegar maður útskrifast. Nýútskrifaður leikari er ofsalega einn og máttlaus ef hann þekkir eng- an,“ segir Gunnar Hansson en hann er í ætt sem nefnist Stórher- togaættin. Samkvæmt ættartrénu er Gunnar sonur Kjartans Guðjóns- sonar og barnabam Benedikts Er- lingssonar. Sjálfur er hann faðir Guðmundar Inga Þorvaldssonar og afi Rúnars Freys Gíslasonar. Ættfaðirinn er Ingvar E. Sigurðs- son og fjölskyldumeðlimirnir hittast reglulega og ræða málin. „Venjulega hittumst við heima hjá einhverjum og höldum fjöl- skyldukvöld. Þar er borðaður góð- ur matur og sagðar reynslusögur úr leikhúsunum. Sumir fá útrás vegna einhvers sem þeir gátu ekki deilt með neinum öðrum, til dæmis bekkjarfélögunum. Námið í Leik- listarskólanum byggist að miklu leyti á mjög náinni samvinnu bekkjarfélaganna og þá er stundum nauðsynlegt að hleypa gufunni út hjá einhverjum öðrum. Fjölskyldu- meðlimimir era einkar vel til þess fallnir enda vita þeir allir nákvæm- lega um hvað málið snýst," segir Gunnar. Stelpu- og strákafjölskyldur Hinrik Ólafsson, ættfaðir Stallone-Lokaættarinnar og faðir Þórhalls Gunnarssonar, er Gunn- ari sammála. Hann átti enga „for- eldra“ í bransanum en kveðst gjaman hefði viljað eiga slíka að þegar hann byrjaði. „Þetta er rosalega sniðugt fyrir- komulag. í þessari list er nauðsyn- legt að eiga einhverjar hækjur til að styðjast við. Reyndar hef ég alltaf getað leitað til Rúriks Haraldsson- ar og Gunnars Eyjólfssonar en Gunnar var einmitt aðalhvatamaður þess að svona fjölskyldur yrðu stofn- aðar,“ segir Hinrik. Þegar Gunnar lærði leiklist í Englandi á sínum tíma tíðkaðist að yngri leikarar færu í læri hjá þeim eldri og reyndari. Þeir aðstoðuðu þá við að læra texta og klæða sig í búninga og nutu svo hjálpar þeirra síðar. Fjölskyldurnar sem voru stofnaðar hér eiga sér hins vegar fyrirmynd í sænskum leiklistar- skóla sem eitt sinn var systurskóli Leiklistarskóla íslands. Sökum þess að í stofnárganginum vora þrír strákar og fimm stelpur urðu fjölskyldurnar sjö en ekki átta, þrjár stráka- og fjórar stelpufjöl- skyldur. Þannig myndast líka systkini úr sama bekknum en fyrstu systumar era Margrét Vil- hjálmsdóttir og Guðlaug Elisabet Ólafsdóttir. Saman eiga þær Pálínu Jónsdóttur, hversu undar- legt sem það má nú virðast. Afhverju eru stelpur og strákar í sínum hvorum fjölskyldunum? „Leikkonur berjast við aðra hluti en leikarar. Það er mjög flókið að skýra það frekar í stuttu máli en þannig er það bara. Þetta er einfold og sjarmerandi serimónía sem virk- ar vel. Þjóðfélagið okkar er hins veg- ar alveg að verða búið að losa sig við allt svona. Nú er alls konar réttinda krafist sem eyðileggur allar serimónur," segir Hinrik. Kynæsandi í inntökuprófi Nýjasti meðlimur fjöskyldunnar Túttnanna er Ambjörg Hlíf Vals- dóttir. Hún er á fyrsta ári í skólan- um núna en Linda Ásgeirsdóttir er langamma hennar og formóðirin Edda Arnljótsdóttir. Arnbjörgu finnst fjölskyldufyrirkomulagið bæði sniðugt og skemmtilegt og hópnum getur hún treyst fyrir hverju sem er. „Það er svo gott að geta borið sig saman við þær sem eldri era. Ég er líka mjög ánægð með ættina sem ég lenti í og fmn mig mjög vel með þeim,“ segir Arnbjörg og neitar því ekki að fjölskylduboðin minni um margt á saumaklúbb, þar sé hins vegar nær eingöngu rædd leiklist. Arnbjörg „lenti“ í Túttnaættinni (sem heitir þetta af því að meðlim- irnir koma flestir utan af landi) eft- ir inntökupróf þar sem ungviðið þurfti að sanna sig á ýmsum svið- um, til dæmis með því að vera kynæsandi, lesa ljóð, dansa og syngja. Karakter Ambjargar þótti falla best inn i sveitastúlkuættina. Reglulega halda nemendur Leik- listarskólans skemmtikvöld og þá er forfeðrum og -mæðram boðið. Eins stendur til að halda heljarinn- ar ættarmót um aldamótin þar sem allar fjölskyldurnar koma saman. Allt er þetta gert í þeim tilgangi að styrkja tengsl ungra leikara við þá eldri og auðvelda fyrstu skrefm á ferlinum. Hver var að tala um lé- legan móral á meðal leikara? 6 f Ó k U S 9. april 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.