Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Qupperneq 10
Japönsk tónlist er yfirleitt frísk. Pizzicato 5 og Cornelius
eru í framlínu frískleikans og voru að gefa út nýjar plötur:
poppfið
með stíl í Ja
Þeir sem hafa nef fyrir ferskleika
vita að heppilegt er að þefa af japönsk-
um tónlistarmönnum, því af þeim er
ósjaldan frískleg lykt. Nýlega komu út
tvær plötur sem vert er að mæla með
og báðar eru þær gefnar út af Matador
Records í New York, sem hefur auk
þess á sínum snærum bönd eins og
Jon Spencer Blues Explosion, Yo La
Tengo og Pavement.
Apadrengurinn blandar
Hann heitir Keigo Oyamada en
tók sér upp listamannanafnið Com-
NR. 319
vikuna 16.4-23.4. 1999
Hástökkvarar vikunnar eru
Skitamóralsplltarnlr. Þelr þykja líka
Ifðtækir f pottasundl.
1 10 LADYSHAVE GUS GUS 1 2
2 5 WHY DON'T Y0U GET A JOB OFFSPRING 11 11
3 9 STRONG EN0UGH CHER 3 4
4 19 FLY AWAY LENNY KRAVITZ 2 1
5 8 TENDER BLUR 4 10
6 4 PROMISES ... .THE CRANBERRIES 6 19
7 6 CHARLIE BIG POTATO SKUNK ANANSIE 5 3
8 4 STRONG ... .ROBBIE WILLIAMS 7 7
9 4 SHEEP GO TO HEAVEN CAKE 17 20
10 7 MARIA BL0ND1E 20 24
11 6 NO SCRUBS TLC 23 28
12 6 BIRTIR TIL LAND 0G SYNIR 8 6
13 7 YOU STOLE THE SUN FROM ME . .MANIC STREET PR.... 12 12
14 2 EINN MEÐ ÞÉR SKÍTAMÓRALL 30 -
15 4 CHANGES 2PAC 18 18
16 2 FREAK ON A LEASH KORN 15 -
17 1 IF Y0U BELIEVE SASHA lit’UJ
18 5 TUNGLIÐ S.S. SÓL 27 26
19 4 YOU GOTTA BE 9 9
20 13 ERASE/REWIND THE CERDIGANS 16 13
21 1 EVERY YOU, EVERY ME PLACEBO
22 15 PRAISE YOU .. .FATBOY SLIMY0U STOLE THE SUN FROM ME 18 10
23 5 WHEN GOING GETS T0UGH BOYZONE 28 33
24 4 MY NAME IS EMINEM 25 30
25 1 MY STRONGEST SUIT SPICE GIRLS BQX3
26 3 IN OUR LIFE TEXAS 26 27
27 5 SLIDE GOO GOO DOLLS 14 14
28 3 REMAKE MY FIRE HOUSEBUILDERS 33 35
29 5 YOU GET WHAT YOU GIVE WEW RADICALS 31 31
30 8 NOTHING REALLY MATTERS MADONNA 19 17
31 2 REALLIFE BON JOVI 40 -
32 2 TEQUILA TERR0VISI0N 35 -
33 2 HOW LONG’S A TEAR TAKE TO DRY . ... .BEAUTIFUL SOUTH 39 -
34 3 THAT DON’T IMPRESS ME MUCH .... SHANIA TWAIN 34 38
35 9 BOY YOU KNOCK ME 0UT TATYANA ALI & WILL SMITH 21 15
36 6 THE ANIMAL SONG SAVAGE GARDEN 29 23
37 3 GOOD RHYMES DA CLICK 37 40
38 10 HEARTBREAK HOTEL .. .WHITNEY HOUSTON 22 22
39 14 L0TUS R.E.M. 19 13
Cher hangir enn
saman og á listanum,
þrátt fyrir allar
fegrunaraðgerðirnar.
Kynóðir og krelsí:
Placebo dúkka upp
númer 21.
Taktu þátt í vali
listans í síma 550 0044
989
PBPpnan
íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV.
Hringt er í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af
öllu landinu. Einnig getur fólk hringt í síma 550 0044 og
tekiö þátt í vali listans. íslenski listinn er frumfluttur á
fímmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og birtur á
hverjum föstudegi í DV. Listinn er jafnframt endurfluttur
á Bylgjunni á hverjum laugardcgi kl. 16.00. Listinn er
birtur, aö hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar.
Islenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem
framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig
hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í
tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekiö af bandariska
tónlistarblaðinu Billboard.
Yfimmsjón meö skoöanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - FYamkvæmd könnunar Markaösdeild DV • Tölvuvinnsla: Dódó
Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón með framleiöslu: Ivar Guömundsson - Tæknistjóm og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn
Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll ólafsson - Kynnir í útvarpi: lvar Guömundsson
elius eftir góða apanum í Planet of
the Apes myndunum. Áður en sóló-
ferillinn hófst söng hann og spilaði
með bandinu Flipper’s Guitar.
Fyrsta sólóplatan hét 69/96 og var
heldur súr. í fyrra kom út önnur
platan, „Fantasma", og hlaut verð-
skuldaða athygli, var aðgengileg og
torræð í senn. Blanda Corneliusar
jer einstæð en kannski er hann jafn
geðklofinn og Beck því hann blandar
'saman brimrokki a la Brian Wilson,
i teiknimyndatónlist, hipphopptöktum,
í jungletöktum og ryksugurokki í anda
My Bloody Valentine. Þetta er þó eng-
|in blöndun blöndunnar vegna, heldur
jer undirstaðan, grípandi melódían og
lagauppbyggingin, á sínum stað og
skín í gegnum hræringinn. Ofan á er
svo dembt fyndnum vísunum í popp-
söguna, t.d. heita sum lögin eftir fræg-
um popplögum.
Það sem japanski apadrengurinn
færir oss núna er „rímix“ platan
FM/CM. Hún er tviskipt. Annars
vegar endurblanda aðrir lög af
Fantasma, hins vegar blandar Com-
elius lög annarra. Þarna er ágætis
lið á ferðinni, t.d. Money Mark,
Damon Albarn, U.N.K.L.E. og
Coldcut, auk japönsku rokkpíanna í
Buffalo Daughter og Konishi Yasu-
haru úr Pizzicato 5. Rímixplatan er
ágætis viöbót fyrir aðdáendur
Fantasma, en þeir sem hafa ekki
heyrt þá plötu og langar í eitthvað
gott ættu að hlaupa út í búð.
Tónleikar eins og
tískusýning
Pizzicato 5 er orðin þekkt stærð
hjá þeim sem fíla eðalpopp. Á ís-
landi eru m.a.s. aðdáendur, t.d. Páll
Óskar og Emilíana Torríní, sem
söng lag eftir sveitina inn á plötu.
Hljómsveitin er frá Tokyo og má
rekja ættir hennar aftur í mús-
íkklúbb þar sem nokkrir strákar
hittust 1979. Fyrsta platan kom út
1985 og fyrstu árin voru manna-
breytingar tíðar og ýmsar söngkon-
ur við hljóðnemann. Nú er
Maki og Konishi í Pizzicato 5 með hundana sína.
Corneliusslapparafheima.
plötudómur
bandið dúó; Konishi Yasuharu ber
ábyrgð á tónlistinni, Maki Nomiya
syngur og er andlit sveitarinnar út
á við.
Fáar sveitir eru jafn tískulega
þenkjandi og Pizzicato 5. Oft eru
tónleikamir eins og tískusýning,
Maki breytir um búning fyrir hvert
lag og gengur um eins og sýningar-
stúlka á milli þess sem hún er í
stuði við hljóðnemann. Myndræna
hliðin er alltaf áberandi hjá band-
inu, á tónleikum varpa þau mynd-
um á marga skjái og leika sér með
ljós, glingur og sviðsmuni.
Pizzicato 5 er nútímaleg sveit en
nútími þeirra er kyrfilega bundinn
í fortíðinni. Þau eru hrifin af tísku
og tíðaranda áranna 1960-65, helst
minnir „lúkkið" á það sem þótti
fínast í París á þessum áram. Allt í
kringum sveitina er smart og kúl.
Nánast er lögð sama alúð í mynd-
bönd, plötuumslög og auglýsingar
og í sjálfa tónlistina. Þetta fólk sæ-
ist seint í jogginggalla, nema hann
væri aðsniðinn og silfurlit-
aður.
Rjómablíðupopp
En allt þetta tískubrölt
væri frekar innantómt ef í
grunninn væri Pizzicato 5
ekki æpandi fínt popp-
band. Þau voru reyndar
frekar lengi að finna sig
og ekki er hægt að mæla
með fyrstu plötunum -
nema fólk vilji lélegt
diskó. Allan þennan
áratug hefur hins vegar
‘ verið að færast líf í popptuskuna.
Hjá Matador hafa komið út fjórar
stórar plötur. Tvær þær fyrstu,
„Made in USA“ og „The Sound of
Music“, voru safn laga af plötum
sem þegar höfðu komið út í Japan.
Sú næsta, „Happy End of the World“
(1997), kom út samtímis um allan
heim, en var sungin á japönsku. Á
nýju plötunni, „The International
Playboy & Playgirl Record", sem
kom út í vikunni, er enn sungið á
japönsku en textamir hafðir með á
ensku. Platan kollvarpar þeirri full-
yrðingu að popp þurfi að vera á
ensku, því japanskan gerir tónlistina
bara meira spennandi og framandi.
Líkt og hjá Corneliusi er poppið
hrært saman úr öllum áttum. Diskó,
sjöunda áratugar popp, exotíka og
sígilt japanskt popp tjútta saman á
nýju plötunni, sem verður að teljast
með því allra besta sem sveitin hef-
ur gert. Inni á milli era svo torræð-
ari bitar, t.d. langur kafli þar sem
einhver Japani flytur ræðu. Á
„Happy End of the World" vora
drum and bass taktar í fyrirrúmi, en
nú þykir Pizzicato 5 greinilega d&b-
ið hafa rannið sitt skeið á enda. Leit-
að er aftur í sjöunda áratuginn, t.d.
hljómar „Magic Twin Candle Tale“,
frábærasta lag plötunnar, eins og
Bitlarnir séu afturgengnir og fluttir
til Tokyo. Mörg önnur rjómablíðu-
popplög má fínna á þessari plötu og
ef eitthvert vit er heiminum verður
þetta platan sem hljómar úr útvarp-
inu í sumar. Ekki búast við því
samt.
__________ Alda
- Out of Alda: sc
Vont versnar
Litla álfaprinsessan okkar, hún
Alda, náði þeim fáheyrða árangri
að koma lagi sinu „Real Good
Time“ í sjöunda sæti breska smá-
skífulistans hér um árið og urðu
margir hvumsa. Enda hafa ekki
margir samstarfsmenn Sverris
Stormskers ratað þangað.
Alda fylgir nú þessum ágæta ár-
angri sínum eftir með breiðskíf-
unni „Out of Alda“ og ætlar greini-
lega að láta kné fylgja kviði. Platan
er að minnsta kosti full af lögum
sem minna á hittið góða, auk þess
sem tvær útgáfur af „Real Good
Time“ fylgja með, fyrir ég veit ekki
hvem.
Það hefur ýmislegt gerst í tón-
listarheiminum síðan Alda átti
smell og ekki síst eru Spice Girls
og viðlíka óþverri dottinn úr tísku.
Alda er samt á fullu í görlpáverinu
og kallar alla fram á gólfið til að
taka þátt í endalausu stuðinu. Allir
eru bara búnir að fá leið á þessari
fjöldaframleiddu gervimúsík sem
Simon „Satan" Fuller var svo góð-
ur að markaðssetja fyrir
Krydddruslurnar og því kemur
ekki á óvart að „Out of Alda“ virð-
ist ætla að floppa um allan heim.
Ég held svei mér þá að þetta gangi
tæplega í Japana og gerðu þeir þó
Shampoo að tekjuhæstu konum
Bretlands fyrir nokkrum árum.
Hugtakið „One Hit Wonder“ á
sérlega vel við um Öldu. Þótt það
sé alltaf gaman þagar íslendingum
gengur vel erlendis sé ég enga
ástæðu til að mæla með þessari
Það hefur ýmislegt gerst í
tónlistarheiminum síðan
Alda átti smell og ekki síst
eru Spice Girls og viðlíka
óþverri dottinn úr tísku.
plötu sem einkennist af þreyttum
eftirlíkingum af tónlist sem var
ekki merkileg til að byrja með,
splæst við texta sem benda ekki til
að það sé skemmtilegra að vera
poppstjarna en kaupfélagsstjóri á
Hellu.
Lélegasta plata sem ég hef heyrt
lengi. Ari Eldon
10
f Ó k U S 16. april 1999