Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Qupperneq 11
Fugazi, Pavement, Wiseguys, Les Rythmes Digitales, Jon Spencer Blues Explosion
og Shellac eru allt stór bönd á sínu sviði í rokkinu. Þau eru öll á leiðinni til landsins
á næstu tveim mánuðum fyrir tilstilli eins manns: Kristins Sæmundssonar, Kidda kanínu.
Maður er að drukkna
í liði sem vi
koma
Þeir sem þekkja inn á rokkið
kannast við Kidda kanínu. Hann
hefur holað sér niður í kanínuholu
á Laugaveginum þar sem hann býr
og gerir út eina albestu plötubúð
landsins, Hljómalind. Kiddi ber
persónulega ábyrgð á nokkrum af
flottustu tónleikum sem hér hafa
verið haldnir en nú hefur kappinn
fyllst eldmóði og boðar lágmenn-
ingarveislu Hljómalindar; fimm
stórtónleika fram í byrjun júní.
Fjölmiðlar stútuðu Uxa
Kiddi er enginn aukvisi þegar
kemur að tónleikahaldi: „Fyrstu
tónleikana hélt ég þegar ég var 14
ára,“ segir hann og tottar King Al-
bert. „Það var Þursaflokkurinn í
Fellaskóla. Þá tónleika hélt ég al-
veg upp á mitt eindæmi. Bjó til
plakat sem ég
hjólaði með í all-
ar sjoppur í
Breiðholtinu. Það
seldust tveir mið-
ar fram yfir
kostnað. Maður
hélt svo áfram að
halda tónleika í
skólum og félags-
miðstöðvum. Þeg-
ar ég byrjaði með
búðina ‘91 fór ég
strax að hafa
samband við er-
lend útgáfufyrir-
tæki með það í
huga að verða
umboðsaðili á ís-
landi. Þá vildi
enginn eiga um-
boðsaðila hér og
enga hljómsveit langaði til að
koma hingað. Með því að kynnast
fólki smátt og smátt tókst mér
smám saman að plata bönd hingað,
sem er allt önnur staða en í dag
þegar maður er að drukkna í liði
sem vill koma.“
Kiddi byggði upp veldið, flutti
fyrst inn Freaky Realistic ‘93 en
svo komu m.a. St. Etienne, Drum
Club, Howie B., Bandulu og
Propellerheads, sem sagt allt
bönd í dansgeiranum. Sumarið
1995 var Kiddi innsti koppur í búri
þegar Uxa-hátíðin var sett upp. Þó
hugmyndin væri góð - að setja upp
alvöru sumarfestival með erlend-
um og íslenskum atriðum - gekk
hún ekki alls kostar upp.
„Uxi varð bitbein fjölmiðla og fá-
ránlegrar umræðu um eiturlyf og
æsku,“ segir Kiddi. „í staðinn fyrir
að fjölmiðlar og stjórnvöld bökk-
uðu þetta upp var allt gert til að
stúta okkur. Samt á Uxi stærstan
hlut í því hæpi á íslandi sem er i
gangi núna. Alveg sama hvað hver
segir um Björk. Hún ruddi bara
brautina en hún dregur engan til
landsins. Það þarf einhver að vera
á landinu til að taka við þessu fólki
og gera þetta þannig að orðsporið
berist út og eitt leiði af öðru.“
Næturklúbbar eru horn-
steinar menningarinnar
Kiddi hefur aldrei riðið spikfeit-
um hesti frá tónleikahaldinu, enda
það ekki takmarkið. Hann segist
hafa tapað mörgum milljónum á
þessu brasi, m.a.s. misst ofan af sér
íbúðina. Hann heldur þó ótrauður
áfram: „Ég var að flytja inn blaða-
menn og alls konar fólk til að búa til
hæp í kringum landið og fékk aldrei
neinn styrk. Öll list í landinu er
meira og minna styrkt og það sem
ég hef verið að gera er mesta auglýs-
ingin fyrir land-
ið því fólk segir:
allar hetjurnar
eru á íslandi,
hvað eru þær að
gera þar? Hvað
er þetta með ís-
land? Og það er
hvorki nætur-
klúbbur né
skemmtistaður
hérna. Og það
má skemmta sér
til kl. 3 á næt-
urnar og eftir
það er bara götu-
fyllirí. Og svo á
þetta að vera
menningarborg
árið 2000!“
Kiddi fussar
yfir vitleysunni:
„Við eigum ekki einu sinni nætur-
klúbb sem er einn af homsteinum
menningarinnar, hvort sem það er
há- eða lágmenning. Nætm-klúbbur
er algjört skilyrði fyrir því að ein-
hver menning geti þrifist héma.
Hér em einhverjir smástaðir þar
sem fólk verður að sitja - það er
engin alvöru lágmenning í þvi.“
Kiddi er ósáttur með aðstöðuna
og segjist þurfa að „búa eitthvað
til“ þegar hann leitar að heppilegu
húsnæði undir tónleika. Ekki er
komið á hreint hvar lágmenningar-
hátíðin verður haldin en það verð-
ur ekki á hefðbundnum tónleika-
stað enda er hann ekki til.
Sjopputryllingur
Nú er Kiddi dottinn úr dansgírn-
um, flutti síðast inn Fuck og Will
Oldman, sem bæði eru ljúfir rokk-
arar og það sem er fram undan er
allt saman rokk, nema Wiseguys
og Les Rythmes Digitales.
„Það má segja að núna sé ég á
rokktímabilinu," segir hann. „Ýms-
ir aðilar hafa komið inn í innflutn-
ing á plötusnúðum og þess háttar
og það er orðið algjört kraðak í
þeim geira. Það er ekkert vit í
þessu þegar það eru tvö, þrjú parti
á einhverjum pöbbum um hverja
helgi. Síðastliðna mánuði hefur
komið hálfgerður sjoppu- og video-
leigutryllingur í þennan innflutn-
ing. Það ætla allir að græða á þessu
eða vera töffarar, ég veit ekki hvort
heldur vakir fyrir fólki. Mér fannst
orðið alltof mikið af danstónlist að
koma hingað og skipti því um gír.“
Rokkkonfekt á línuna
Kostnaður vegna tónleika hefur
lækkað með því að taka böndin
hingað þegar þau eru á leiðinni
milli heimsálfa og semja við þau
beint. Það eru þvi sáralitlar likur á
að Kiddi missi kofann ofan af sér
núna, sérstaklega þar sem haft er í
huga hvers lags eðalbönd hann er
að fá hingað.
Frumkvöðlar hardkorsins, Was-
hington-sveitin Fugazi, ríður á
vaðið og spilar hér þriðjudaginn 27.
apríl. Föstudaginn 7. maí er komið
að lo-fi popprokki frá Pa-
vement. Tveim vikiun síðar
skellur á biggbít og danseð-
all frá Wiseguys og Les Ryt-
hmes Digitales. Laugardag-
inn 29. maí mæta á klakann
konungar suddarokksins,
Jon Spencer og félagar
hans í Blues Explosion og
síðasti konfektmolinn sem
Kiddi býður upp á í bili er
glerbrotarokksveitin
Shellac sem sjálfur Steve
Albini (pródúser fyrir m.a.
Nirvana og Pixies og áður í
Big Black og Rapeman) fer
fyrir. Þeir tónleikar verða þriðju-
daginn 8. júní. Rokkarar geta sem
sagt farið að sleikja út um.
En er Kiddi ekki hrœddur um aö
framboöiö veröi of mikiö og rokkar-
arnir fái rœpu af öllu saman?
„Mér er alveg sama,“ segir Kiddi.
„Þetta stendur til boða svona og ég
ætla bara að gera þetta svona. Þó að
Pavement komi t.d. í miðjum prófum
þá mæta þeir á Pavement sem hafa
áhuga á annað borð. Föstudagskvöld,
þúsund kall inn; fólk sem hefur
áhuga kemur þótt það sé í prófum og
hitt liðið skiptir hvort sem er engu
máli og hefði hvort sem er ekki kom-
ið. Þetta er bara þannig."
Fyrst þaö er ekki peninga-
grœögin, hvað er þaö þá eiginlega
sem heldur kanínunni gangandi í
þessu öllu saman. Hver er gulrótin?
„Fyrst og fremst er þetta bara
gaman. Ég hef verið með þessa
bakteríu síðan ég var stubbur og
virðist ekki ætla að losna undan
henni. Eina lækningin er að halda
eina og eina tónleika."
Eftir þessa törn ætti Kiddi að
ganga heill til (rokk)skógar. -glh
Séntilmenn í suddarokki. Jon Spencer Blues
Explosion í Reykjavík 29. maí.
Sætir strákar með huggulega
rokkpoppið á tæru: Pavement í
Reykjavík 7. maí.
Durgarnir í Fugazi tryllast yfirleitt á tónleikum og þruma þrýstnu
hardkorpönkinu á skrílinn. Hér verða þeir þriðjudaginn 27. apríl.
Manics
allt í öllu
Manic Street Preachers er með
stærstu rokkböndunum i dag eftir
sigurför síöustu plötu. Sveitin otar
sínum tota í sumar og verður á þrem
stærstu rokkhátiðunum i Englandi,
auk annarra festivala í Evrópu.
Glastonbury hátíðin verður haldin
25.-27. júní og þó stutt sé í skrallið
hefur ekki enn verið gefinn út listi
yfir böndin sem troða upp. Ýmsar
sögusagnir eru þó á kreiki og auk
Manics hafa Marilyn Manson, Und-
erworld, Hole, Roni Size og The Car-
digans verið nefndar.
V99 festivalið fer fram helgina
21.-22. ágúst á tjaldsvæði í nágrenni
við Wolverhampton. Auk Manics
hafa Suede, Beautiful South, Massive
Attack, hin endurvakta gleðisveit
Happy Mondays, Gomez og Cast ver-
ið nefndar.
T in the park hátíðin fer fram
helgina 10.-11 júli og hafa Blur, Fun
Lovin’ Criminals, Placebo, dEUS,
Massive Attack, Beautiful South og
gleðigosinn Tom Jones verið orðuð
við hátíðina ásamt Manic Street
Preachers, sem verður greinilega allt
í öllu í sumar.
Hróarskeldu-
hátíðin
minnkar
við sig
Sumarið er tími fyrir stórfengleg
rokkfestivöl og nú er allt að komast
á hreint með þau stærstu. Hró-
arskelduhátíðin verður haldin 1.-4.
júlí og þar verður gott úrval að
vanda. Stefnt er að þvi að minnka
umfang hátiðarinnar niður í 65.000
miða en stærst var hátiðin fyrir
tveim árum þegar um 90.000 manns
mættu. Komiö verður upp nýju
teknótjaldi en tjöldin tvö, sem stóðu
út frá miðsvæðinu, verða lögð niöur.
Það er sem sagt verið að þjappa há-
tíðarsvæðinu meira saman. Helstu
böndin i ár eru Metallica, R.E.M.,
Marilyn Manson (sem afboðaði i
fyrra - sjáum til hvað gerist í ár),
Skunk Anansie, Manic Street
Preachers, Robbie Williams og
sænsku rokkhundamir í Bob Hund.
Rjóminn á
Woodstock
Enn fieiri stjörnur stiga á svið á
Woodstock hátiðinni þó Manics séu
ekki bókaðir þar, enda veldi þeirra
sterkara í Evrópu. Woodstock verð-
ur haldin á svipuðum stað og gamla
hippahátíðin, í nágrenni við Rome í
New York riki helgina 23.-25. júli.
Þar verða Metallica aftur og nýbún-
ir ásamt Jewel, Alanis Morissette,
the Dave Matthews band, Sheryl
Crow, Red Hot Chili Peppers og
Willie Nelson. Ekki má svo gleyma
Aerosmith, Live, Collective Soul,
Counting Crows, The Offspring,
Creed og Fatboy Slim - sem sagt
rjóminn af amerisku vinsældalista-
rokki.
16. apríl 1999 f ÓkuS
11