Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1999, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1999, Blaðsíða 5
J-lV LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 Land Rover Freelander. Mercedes Benz S-class. kemur Audi A6 með 34.487 bíla sem er 19,3% aukning svo nú mega þeir fara að vara sig í Múnchen og Stutt- gart. Þriðja sæti skipar Volvo Sog V 70 með -17.5%, en Volvo S80 kemur inn nýr í 5. sæti með um 9.500 bíla. Saab 9-5 er þar næstur með 12,9% aukningu. Stærri lúxusflokkur Þar kemur Mercedes Benz S-class inn mjög sterkur með 206,1% aukningu sem BMW 7-línan með sína 5,2% aukn- ingu ræður eng- an veginn við. Aðrir stærstu lúxusbílar eru allir með mínustölur, og Lexus LS400 þó hæsta, -70%, en þessir tveir risar verða þess valdandi að flokk- urinn í heild bætir sig um 12,6% milli ára. Lúxus sportbílar Þama hallar nú undan fæti um heila 25%. Aston Marin kemur þama inn nýr með 124 bíla .og Ma- serati bætir sig um 27,5% með 88 bílum. Á toppnum er Ferrari með 328 bíla, sem er fækkun um 38,8% þar á eftir meö 79 bílum minna en Audi-inn sem er -21,1%. Ford Cougar kemur nýr inn með 6.592 bíla en síðar er allt í mínus nema Mazda MX-5 sem bætir sig um 124,1%. Fjölnotabílar Þá em aðeins hefðbundnir fjöl- notabílar eftir, því litlu fjölnotabíl- amir eru almennt skráðir undir millistærð. Hér varð heildarminnk- un upp á -5,2%. Renault Espace er á toppnum sem löngum fyrr með rétt um 16.800 bíla sem er fækkun um 4%, þá Ford Galaxy með tæplega 15 þúsund bíla og 13% minnkun. Að- eins þrjár tegundir bíla bæta við sig í Coupé og Roadster-flokkur Bætir sig aöeins, 1,7%. Mercedes Benz CLK er klárlega í fararbroddi með 13.493 bíla, 53,5% aukningu. Audi TT kemur þar næst og losar rétt 9000 bíla (liklega framleiðsluget- una alla). MB SLK kem- ur Ferrari 355. þessum flokki: Volkswagen Sharan - sem er sami bíll og Ford Galaxy - og hækkar um 6,4%, Peugeot 806 um 5,5% og Citroen Evasion - sem er sami bíll og Peugeot 806 - um 2,6%. Hlutur Fiat Ulysse - sem er sami bíll og Peugeot 806 og Citroen Evasion - dalaði um 15,4%. Heimild: ANE Hyundai Sonata. BMW 3-lína. Rafbílar Honda, einkum Honda EV, hafa ekki fengið hljómgrunn meðal al- mennings í Bandaríkjunum sem raunverulegur valkostur í bflakaupum. Til þess hafa þeir reynst of þungir og of dýrir. Hér má sjá Honda CUV-4 á sýn- ingu í Tokyo. Þetta er 1680 kílóa rafbíll sem kemst 100 kílómetra á einni hleðslu og hefur 130 kilómetra hámarkshraða. Það tekur um átta klukkutíma að endurhlaða rafgeymana. Símamynd Reuter Honda í Bandaríkjunum: Hættir smíði rafbíla sem fá raforku frá rafgeymum Honda í Bandaríkjunum hefur til- kynnt að fyrirtækið sé hætt fram- leiðslu á bílum sem knúnir eru raf- orku frá rafgeymum. Þar með er það fyrst stóru bílaframleiðendanna til að tilkynna að það sé hætt að smíða slíka bíla sem reynst hafa of dýrir í framleiðslu. Að sögn talsmanna Honda-verk- smiðjanna i Bandaríkjunum, sem eru með aðalstöðvar sínar í Torrance i Kalifomíu, er Honda EV Plus-rafbíll- inn búinn að þjóna tilgangi sínum sem tiiraunabíll en hafði ekki náð hljómgranni meðal almennings. Stærsti hluti EV Plus-bílanna var seldur til opinberra aðila sem verða vegna umhverfislaga í Kalifomíu að nota bíla með lítilli eða engri meng- un. Það kemur fram í fréttum í banda- riskum fjölmiðlum að þessi tilkynn- ing Honda muni hafa víðtæk áhrif. „Þeir eru einfaldlega heiðarlegri en margir aðrir hvað varðar framtíð bíla sem knúnir eru raforku frá raf- geymum," segir einn sérfræðing- anna. En þetta er ekki eina áfallið sem rafbílamir hafa orðið fyrir að undan- fömu í Bandaríkjunum. Raforkufyr- irtækið Edison International til- kynnti fyrir nokkm að það mundi loka hleðslustöðvum Edison EV en fyrirtækið hafði komið upp 250 slík- um stöðvum fyrir rafbila í Kaliforníu og Arizona. Það kom fram í frétt i Los Angeles Times að jafnvel Toyota í Bandaríkj- unum, sem hefði þegar ákveðið að halda áfram þróun RAV4-rafbílanna, hefði viðurkennt aö bílamir hefðu ekki náð hylli kaupenda vegna þess að þeir væru of dýrir og að þeir kæmust ekki nægilega langt á hverri hleðslu. Lítil sala Það kom fram í þessari frétt að færri en 2.400 rafbílar, sem fá orku frá rafgeymum, hefðu selst í Banda- ríkjunum á síðustu þremur áram og flestir þeirra í Kaliforníu. Það er einkum vegna rafgeymanna sjálfra sem sala bílanna er lítil. Geymamir bæta nokkur hundruð kílóum við venjulega þyngd bílanna og er mjög hár viðbótarkostnaður þegar röðin kemur að endurnýjun þeirra. Flestir rafbilar, sem fá ork- una frá rafgeymum, aka stutt á hverri hleðslu, eða um 120 kílómetra. Snúa sér að orkusellum Honda mun hafa eytt sem nemur hundraðum milljóna dollara í þessa þróun rafbíla en mun i framtíðinni snúa sér að þróun nýrra valkosta, eins og til dæmis orkusella sem fram- leiða raforkuna beint og þurfa ekki stóra, þunga og dýra rafgeyma. Með því að Honda-bílasmiðjurnar era hættar smíði rafbíla með raf- geymum er eins líklegt að þær séu að undirbúa nýjar áherslur í vélbúnaði bíla sinna. Þær munu eiga nýja vél í handraðanum sem er nánast meng- unarlaus, svonefnd VV-fjölorkuvél, sem væntanleg er á Bandaríkjamark- að á næsta ári. Þessi vél notar lítinn rafmótor til að auka afl og minnka eyðslu vélarinnar sem eyðir aðeins 3,3 lítram af eldsneyti á hundraðið og mengar nánast ekkert. Hinir halda áfram En hinir stóra bíiframleiðendurn- ir, Toyota, General Motors, Ford, DaimlerChrysler og Nissan, hafa til- kynnt að þeir muni halda áfram þró- un bíla sem fá raforku frá rafgeym- um ásamt því að leita nýrra orku- gjafa. Það er greinilegt að fyrirhuguð áætlun um minnkun mengunar frá umferðinni i Bandaríkunum gengur ekki eins vel og og ætla mátti. Það er einkum í Kalifomíu þar sem settar hafa verið harðar reglur um mengun frá ökutækjum og gerðar hafa verið áætlanir um verulega fjölgun meng- unarlausra ökutækja en stefnt hafði verið að því að um tíu af hundraði nýrra bíla sem seldir væru í Kali- fomíu á næstu árum væru mengun- arlausir. -JR/Reuter Hagstœtt verð, Loftfjöðrun að aftan er staðalbúnaður. Lágur rekstrarkostnaður. Frábœrlega mjúkur og lipur í akstri. EuroCargo er mest selái millistœrðar vörubíll í Evrópu. Kojuhús, árif á öllum og margt fleira er fáanlegt. Verð frá kr. 2.551.000 án VSK. SrvllÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SÍMI 5 400 800 Vörubílar Sendibílar Grindarbílar Istraktor BÍLAR FVRIR ALLA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.