Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1999, Side 3
■
Nýjung í fundahöldum:
Tafla sem skráir allt
sem á hana er skrifað
Um þessar
mundir er J.
Ástvaldsson hf.
að kynna nýjung
fyrir fundahöld,
ráðstefnur, fjar-
fundi, námskeið
og hvers kyns kennslu. Þetta er
tölvutengjanleg tússtafla frá Quar-
tet-fyrirtækinu, sem með einfóldum
hætti er tengd við PC-tölvu.
Taflan virkar þannig að þegar
skrifað er á hana nemur hún það og
sendir til þar til gerðs hugbúnaðar
sem færir það sem skrifað er á töfl-
una á tölvutækt form. Allt sem not-
andinn þarf að athuga er að velja lit
tússpennans sem hann notar hverju
sinni. Frá töflunni er hægt að strika
út, skrifa annaðhvort grannt eða
breitt, prenta og vista.
Þegar fundi eða kennslu er lokið
er síðan hægt að prenta það sem
fram fór og dreifa á meðal fundar-
manna, senda það sem fram fór á
fundinum með tölvupósti eða setja
gögnin upp á heimasíðu þar sem
fundarmenn eða nemendur geta
nálgast gögnin síðar. Einnig nýtist
taflan mjög vel við fjarfundi eða
fjarkennslu.
Allir á fundum
Jóhannes Ástvaldsson, forstjóri J.
Ástvaldssonar hf„ segir að kynning
á töflunni hafi farið mjög vel af stað.
„Hvert sem við fórum þá eru viðtök-
urnar gríðarlega góðar og greinilegt
að töflur af þessu tagi eru framtíðin
Microsoft eykur enn umsvifin:
Kaupir 350
milljarða í AT&T
Microsoft, hug-
búnaðarfram-
leiðandinn al-
þekkti, hefur
fest kaup á 5
milljarða doll-
ara (um 350 milljarða króna) hlut í
fjarskiptafyrirtækinu AT&T. í
raun eru Microsoftmenn að kaupa
aðgengi fyrir Windows CE-stýri-
kerfi sitt í stafrænum tækjum
AT&T. Þessi tæki AT&T eru notuð
til að starfrækja fjölnota net, síma
og upplýsingaþjónustu. Áður en
kaup Microsoft á hlutabréfunum í
AT&T urðu höfðu AT&T samþykkt
að nota CE-stýrikerfið í 5 milljón
tækjum. Eftir hlutabréfakaup
Microsoft munu AT&T hins vegar
nota stýrikerfið í 50-100% fleiri
tækjum.
Einnig skulbundu AT&T sig til að
nota hugbúnað sem Microsoft er að
þróa sem sér um tölvupóst og ýmsa
gagnvirkni í kapalsjónvörpum.
Bill Gates og félagar hjá Microsoft
standa í stórræðum þessa dagana,
en í sfðustu viku gerðu þeir risa-
samning við bandaríska fjarskiptar-
isann AT&T.
/ raun eru Microsoft-
menn að kaupa
aðgengi fyrir
Windows
CE-stýrikerfi sitt í
stafrænum
tækjum AT&T.
Hlutabréfakaup Microsoft hjálpuðu
AT&T við kaup þeirra á kapalfyrir-
tækinu Media One Group Inc. Eftir
að AT&T hafa innlimað Media One
Group Inc. mun fýrirtækið ná til
allt að 25 milljóna heimila með þjón-
ustu sína. Inn í þetta samningaferli
allt bætist við að Microsoft mun
kaupa hlut Media One Group Inc. í
breska kapalfyrirtækinu Telwest
Communications Inc.
Það lítur allt út fyrir það að
Microsoft haldi áfram að stækka og
auka völd sín í tölvu- og fjarskipta-
heiminum. Ekki er t.d. langt síðan
það keypti hlut í Apple-fyrirtækinu
og gerði þá að skilyrði að Microsoft
Internet Explorer fylgdi öllum nýj-
um Apple Macintosh-tölvum.
Starfsmenn J. Astvaldssonar hf. við fundatöfluna sem nýverið var sett á
markað hérlendis. Frá vinstri eru á myndinni Jóhannes Ástvaldsson, Óskar
Jóhannesson og Arnór Már Másson. DV-mynd Hilmar Þór
í fundahöldum," segir hann. „Mað-
ur er alltaf að lenda í þvi þegar mað-
ur er að reyna að ná í fólk úti í bæ
að það er á fundum og því sé ég ekki
betur en að notagildi fundatöflunn-
ar sé mjög mikið í dag.“
Quartet-fyrirtækið, sem framleið-
ir töfluna, er með 95% markaðshlut-
deild í Bandaríkjunum á fundatöflu-
markaðnum.
Taflan virkar þannig að
þegar skrifað er á hana
nemur hún það og send-
ir til þar til gerðs hug-
búnaðar sem færir það
sem skrifað er á töfluna
á tölvutækt form.
Tölvubankinn hf. kynnir:
símþjóninn sem er öflugt stjórn-tæki og
upplysingamiðill