Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Qupperneq 4
38
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
LAUGARDAGUR 29. MAI 1999
#7ar
+
miar
43'
Könnun ADAC í Þýskalandi á bilanatíðni 1998:
Japönsku bílamir
standa sig enn best
Þeir bílar, sem bílaframleiðendur
í Evrópu senda frá sér, eru margir
hverjir mjög vel búnir, hlaðnir
tækni og þægindum, en þegar röðin
kemur að bilanatíðni í raunveruleg-
um akstri standa bílarnir frá
japönsku framleiðendunum þeim
framar. Þetta sýnir töluleg saman-
tekt þýsku bíleigendasamtakanna
ADAC, systurfélags FÍB í Þýska-
landi, en þeir standa fyrir mjög um-
fangsmiklu hjálparstarfi meðal veg-
farenda í Þýskalandi og geta því
haft góða yfirsýn yfir hvað fer
aflaga.
Alls fóru gulu bílamir frá ADAC
til aðstoðar í einni og hálfri milljón
bilanatilfella af einu eða öðru tagi á
síðasta ári. Þessi aðstoð er öll skráð
og er grunnurinn að þessari könn-
un hjá ADAC.
Þegar röðin kom að úrvinnslunni
voru aðeins teknar með þær bílateg-
undir sem eru skráðar í meira en
10.000 eintökum á Þýskalandsmark-
aði, til þess að skekkja ekki grunn-
inn.
Japanskir bila minna
Það er sama niðurstaða og síð-
ustu ár þegar þessi samantekt er
skoðuð nánar. Japönsku bilamir
bila almennt minna og em á toppn-
um. í flokki smábíla er Mitsubishi
Colt á toppnum og Suzuki Swift í
öðm sæti, VW Polo er sá sem kemst
hæst af evrópsku bílunum, er í
þriðja sæti.
í flokki minni millistærðarbíla
raða japanskir bílar sér í efstu fjög-
ur sætin, Toyota Corolla á toppnum,
næstir koma Honda Civic, Mazda
323 og Nissan Sunny.
Aftur er það bíll frá VW sem er
efstur meðal evrópsku bílanna, VW
Golf og Vento.
í flokki millistórra bíla er það C-
klasinn frá Mercedes Benz sem rétt
mer fram fyrir Toyota Carina, og
það er aðeins í flokki stóru lúxusbíl-
anna sem þeir evrópsku eru á
toppnum, sjöan frá BMW er þar
fremst meðal jafningja.
Oft smáatriði sem
stoppa
Það kemur fram í skýrslum
ADAC að það eru oftar en ekki ein-
hver smáatriði sem verða til þess að
bílar stoppa og kalla þarf eftir að-
stoð. Oftast er um að kenna lélegu
viðhaldi. Mest er um bilanir í raf-
eindatækni eða rafkerfi, en almenn-
ar vélarbilanir og bilun á kælikerfi
vélarinnar koma næst í röðinni.
En ekki eru tæknimenn ADAC
alltaf að fást viö bilanir í þessum út-
köllum því á síðasta ári hjálpuðu
þeir 89.000 bíleigendum af því að
þeir höfðu læst lyklana inni í bíln-
um og næstum 62.000 ökumenn
höfðu lent í því sem helst enginn
vill gera, að klára bensínið á tankn-
um.
-JR
Bilanatíðni 1998
á 4-6 ára bílum
■■■
Bilanir pr. 1000 bíla Lág tíöni Miölungs Há tíðni
Skráningarár 1993 1994 1995
Akstur á hraðbrautum Þýskalands, þar sem hraði er meiri, leggur annað álag á bíla en hér á landi, þannig að ekki er
fyllilega hægt að bera saman niðurstöður ADAC í Þýskalandi við aðstæður hér á landi.
Nýtt og gamalt sýnt á Selfossi
1955 Chevrolet Bel Air.
1969 Cadillac sedan de Ville, ekinn 22.000 mílur.
Það er ekki bara í Reykjavík sem
haldnar eru sýningar á eftirtektar-
verðum bílum. Nú um helgina
stendur IB innflutningsmiðlun fyrir
sýningu á Selfossi þar sem gefur að
líta nokkra aldna höfðingja í flokki
bíla en þar er líka frumsýndur á Is-
landi GMC Sierra SLT-skúffubíll-
inn, árgerð 1999.
I lýsingu á GMC Sierra-skúffu-
bílnum segir að þetta sé nýr bíll frá
grunni, með meira innanrými og
lúxus en áður hefur þekkst í Extra-
Cab skúffubíl, en Extra-Cab eru þeir
skúffubílar gjarnan kallaðir sem
eru með einu og hálfu húsi. í tilviki
GMC-skúffubílsins er innanrými
Extra-Cab sennilega fullt eins mikið
og í algengustu japönsku skúffubíl-
unum með tvöföldu húsi - hálf-
kassabílunum. GMC Sierra er
þriggja hurða.
Frá framleiðanda er val um
nokkrar vélar í GMC Sierra-bílinn
en sýningarbíllinn á Selfossi er með
4,6 lítra V6 bensínvél. Frá framleið-
anda er bíllinn sagður eyða 11 til 14
1966 Pontiac GTO.
lítrum á hundraðið en starfsmenn
IB innflutningsmiðlunar eyðslu-
mældu bílinn hér við dæmigerðar
íslenskar aðstæður, rok og rign-
ingu, og fengu út 12 I meðaleyðslu i
langkeyrslu. Hingaðkominn kostar
sýningarbíllinn 3,8 milljónir en
hægt er að fá ódýrari útfærslur af
þessum bil.
Sem fyrr segir verða einnig nokkr-
ir áhugaverðir fornbílar á þessari
sýningu en samkvæmt almennri skil-
greiningu er fornbíll „bíllinn sem var
nýr þegar þú varst lítil/l“. Þessir forn-
bílar eru frá sjötta og sjöunda ára-
tugnum og er ekki að efa að margur
sér þar bílinn sem hann dreymdi um
forðum í bílaleikjum sínum með pott-
hlemm frá mömmu fyrir stýri. Sumir
þessara bíla eru svo lítið eknir þeir
eru sem nýir.
Sýningin er á Eyrarvegi 25 á Sel-
fossi og stendur í dag, kl. 13-22, og á
morgun, sunnudag, kl. 13-18.
-SHH
Frumsýndur á Islandi: GMC Sierra SLT-skúffubíll, árgerð 1999.
1956 Ford Fairlane, ekinn 6.170 mílur.
1958 Oldsmobile Ninety Eight.
í þessari samantekt er
að finna niðurstöður úr
þeirri liðlega einni og
hálfri milljón útkalla sem
tæknimenn ADAC sinntu
á síðasta ári. Aðeins eru
teknir með bílar þar sem
fleiri en 10.000 voru skráð-
ir á Þýskalandsmarkaði og
á meðfylgjandi töflu má sjá
það hlutfall bíla sem bilaði, fjölda miða
við hverja 1000 bíla. Þeir sem eru efstir,
bæði í upptalningunni hér á eftir og í
töflunni, stóðu sig best, þeir sem eru
neðstir stóðu sig verr.
Nokkrir bílar eru á þessum listum
sem ekki eru á markaði hér á landi en
við leyfum þeim að fljóta með engu að
síður til fróðleiks.
Taflan sýnir útkomu 4ra til 6 ára
bíla, eða bíla sem voru skráðir á árun-
um 1993 til 1995.
Smábílar
Mitsubishi Colt:
Gallar í eftiráísettri ræsivörn (þjófa-
vöm). Galli í kveikjuloki (breytt í októ-
ber 93). Púströr brotið eða sundurryðg-
að.
Suzuki Swift
Gallar í kertaþráðum (breytt 97).
Gallar í eftiráísettri ræsivöm. Kúpling
snuðar.
VWPolo:
Rafall gallaður og slitin viftureim
(endurbætt frá 95). Púlsgjafi gallaður
(breytt 93) Brot á púströri (styrkt eftir
95).
Peugeot 106:
Púströr brotið (styrkt 94). Gallar á
hljóðkút. Rafall gallaður. Slitin viftu-
reim.
Nissan Micra:
Erfiður í gang í kulda. Frá 95 önnur
kerti og hitamælir f. kælivatn. Galli í
eftiráísettri ræsivörn (endurbætt
95-96).
Ójafn gangur eftir gangsetningu í
kulda. Breytt um hitagildi kertanna.
Brotin púströr.
Ford Fiesta:
Brotin festing fyrir rafal (styrkt
93-95). Erfiður í gang í kulda. Endur-
bætt rafeindatækni 94-95. Erfiður
kveikjulás.
Citroen AX (ekki á markaði hér):
Rafall gallaður. Slitin viftureim. Sót
á kertum. Fram að 94 gallar á kúplings-
armi. Púströr gegnumryðgað vegna
rakasöfnunar.
Fiat Cinquecento:
Rafall gallaður og slitin viftureim.
Stengur í gírskiptingu í ólagi. Galli í
jarðsambandi á stýribúnaði vélar.
Seat Cordoba (ekki á markaði hér):
Bæði staðalbúin ræsivöm og eftirái-
sett ræsivöm gölluð. Blaut kerti. Slit-
inn kúplingsbarki. Gallar í drifi fyrir
rúðuþurrkur.
Seat Ibiza (ekki lengur á markaði hér):
Slitin viftureim. Blaut kerti. Slitinn
kúplingsbarki.
Renault Twingo:
Slitin viftureim vegna vatnsgangs
(rafall fluttur 96). Raki í kveikjuloki.
Brotið púströr.
Fiat Punto:
Rafall gallaður. Slitin viftureim.
Púströr brotið og ryðgað. (frá 94/95 úr
ryðfriu stáli). Slitin tímareim.
Renault Clio:
Rafall gallaður. Slitin viftureim.
Gallar í staðalbúinni ræsivöm.
Tímareim slitin. Startari gallaður.
Minni millistærð
Toyota Corolla:
Gallar í kertaþráöum og vatnshos-
Toyota Corolla.
um. Eftiráísett ræsivörn gölluð.
Óhreinindi í startara.
Honda Civic:
Púströr á 92-93 ryðguð. Gallar á eft-
iráísettri ræsivörn. Raki á kertum og í
kveikjuloki. Gallar í kveikjubúnaði.
Mazda 323:
Aðalljósaperur sprungnar (erfitt að
lagfæra á böum með felliljósum). Slitin
tímareim. Eftiráísett ræsivöm gölluð.
Nissan Sunny:
Truflanir í staðalbúinni ræsivörn
(endurbætt í lok 95). Kúpling snuðar
(endurbætt frá 95). Rafall gallaður.
VW Golf/Vento:
Startari gallaður (frá apríl 94 ný
gerð). Galli í eftiráísettri ræsivörn.
Kúpling snuðar.
Sprungur í tímareim (frá september
94 endurbætt gerð). Slitin viftureim.
Nýr rafall frá mars 93. Óþétt olíudæla.
SeatToledo (ekki á markaði hér):
Eftiráísett ræsivöm gölluð. Rúðu-
þurrkur bilaðar, tengiarmur datt af.
Slitin viftureim. Slitin timareim, eink-
um á dísilgerðum.
Ford Escort/Orion:
Rafall gallaður. Slitin viftureim (sér-
staklega á dísilbílum). Erfiður
kveikjulás. Tímreim slitnar vegna
óhreininda (betur lokuð af frá maí 95).
Peugeot 309:
Brotin og tærð pústlögn. Rafall gall-
aður. Slitin viftureim. Startari situr
fastur.
Citroén ZX (ekki á markaði hér):
Pústkerfi ryðgað vegna rakasöfnun-
ar. Rafall gallaður. Slitin viftureim.
Truflanir í bensíndælu.
Renault 19:
Ekki nægt samband í kveikju vegna
ryðs (endurbætt í mars 97). Rafall með
slitin kol. Gallar i eftiráísettri ræsi-
vörn.
Millistárir bílar
C-klassi Mercedes Benz:
Ræsivöm gölluð. Stýrislás fastur.
Rafall gallaður. Galli í rúðuþurrkum.
Vatnsdæla festist.
Toyota Carina:
Galli í eftiráísettri ræsivöm. Óhrein-
indi í startara (endurbættur startari
frá 95). Truflun í spennustillingu rafals.
C-klassi Mercedes Benz.
Mazda 626:
Galli í eftiráísettri ræsivörn. Raki í
kertum, kertahettur gallaðar. Hand-
bremsubarkar festast. Slitin viftureim.
Audi 80/A4:
Kælivatnsslöngur óþéttar. Galli í
hitastilli. Rafall og viftureim gölluð.
3-lína BMW:
Slitin tímareim og skemmdir á 4ra
strokka bílum. Rafall gallaður. Slitin
viftureim. Vatnsdæla óþétt.
Opel Vectra:
Tímareim slitin. Styrktur strekkjari
frá júlí 95. Rafall gallaður, slitin viftur-
reim.
Ford Mondeo:
Slitin tímareim. Óþétt topploks-
pakkning. Truflun á rafal. Púströr
ryðgað.
Citroén Xantia (ekki á markaði hér):
Vélarskemmdir vegna slits á
timareim. Rafall gallaður. Slitin viftu-
reim. Púströr brotið eða gegnum-
ryðgað.
Nissan Primera:
Rafall gallaður. Sprungur i
viftureim (endurbætt 92-95). Galli
í ræsivöm. Gallar á startara.
VW Passat
Rafall gallaður. Slitin viftureim
(frá 97 nýr rafall). Óþéttar kæli-
vatnsslöngur. Slitin tímareim.
Opel Frontera:
Útfellingar í bensíndælu, lagfært frá
93. Slitin tímareim.
Stórir bílar
7-línan frá BMW:
Galli í eldsneytisdælu. Óþétt vatns-
dæla. Raki á kertum.
Audi 100/A6:
Kælivatnsslöngur óþéttar. Endur-
bætt frá apríl 94. Rafaldíóður gallaðar.
Slitin viftureim. Vélarskemmdir á V6
vélum (frá febrúar 94 endurbætt
smurkerfi).
E-klassinn frá Mercedes Benr.
Galli í ræsivörn. Rafall eða
spennustillir gallaður. Slitin viftureim.
Fimman frá BMW:
Rafall gallaður. Slitin viftureim.
Raki í kertum. Vatnsdæla óþétt. Kæli-
vatnsslöngur óþéttar. Óþétt strokkloks-
pakkning.
Volvo 850:
Rafall gallaður. Rúðuþurrkur bUað-
ar. Rök eða brunnin kerti. Ræsivörn
gölluð. Slitin tímareim.
Opel Omega:
Rifin tímareim, styrkt gerð frá 96.
Viftureim rifin. Kælivatnsslöngur
óþéttar eða vatnsdæla. Betra kælikerfi
frá mars 95.
Ford Scorpio:
Rafall gaUaður, sérstaklega 95-ár-
gerðin. Yfirhitun á vél, skemmdir á vél.
Startari festist.
7-línan frá BMW.
Stýrislás festist. Startari festist.
Púströr brotið eða ryðgað.