Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Page 6
v44
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
: bíla r___________________
„Viö byrjuðum árið með því að
auka mjög breiddina hvað varðar
LandCruiser 90,“ sagði Skúli Skúla-
son, sölustjóri Toyotaumboðsins P.
Samúelssonar ehf., þegar við rædd-
um við hann fyrir nokkru. „Við
.bjóðum hann nú í fleiri útfærslum
og mætum þannig óskum markað-
arins betur hvað varöar breyting-
ar.“
„Litli Cruiserinn", eins og 90-bíll-
inn er oftast kallaður, hefur átt vin-
sældum að fagna á markaðnum og
tók vel við sér eftir breytingar á
búnaði og verði i ársbyrjun.
„LX-bíllinn lækkaði í verði, jafn-
framt því að við bjóðum hann nú
betur búinn. Þar á meðal má nefna
gangbretti og rafdrifna spegla," seg-
ir Skúli. „Þetta er bíll sem hentar
vel til breytinga en hér geta menn
eignast bil á 33 tomma dekkjum á
góðu verði, eða fyrir um 3,4 milljón-
ir fyrir fullbreyttan bíl, en óbreytt-
ur LX kostar 2.985.000.
GX-bílinn fluttum við áður inn
með aukasætum aftast en bjóðum
þau í dag sem aukabúnað og á lægra
verði, eða kr. 85.000. Sú breyting er
líka að GX er nú með svipaðan bún-
að og best búni bíllinn, VX, var með
áður, brettaköntum og plastklæðn-
ingum á hliðum, en á óbreyttu verði
sem er raunlækkun.
VX-bíllinn er nú með leðurinn-
réttingu og rafdrifm sæti sem stað-
albúnað.
Þessar breytingar á valkostum á
LandCruiser 90 hafa skilað sér vel
og mælst vel fyrir," segir Skúli.
Leðurklædd sæti með rafstýringum auka á þægindin.
milli framsæta með lokuðu hólfi og
veltisetu á bílstjórasæti, svo eitt-
hvað sé tínt til af staðalbúnaði.
GX-bíllinn er kominn með ABS-
læsivörn hemla sem staðalbúnað til
viðbótar, álfelgur, brettakanta og
klæðningar á hliðum, hituð fram-
sæti og sprautu á ökuljós.
VX-bíllinn, sem er sá best búni, er
kominn með krómaða húna og
útispegla, krómað grill, toppgrind-
arboga og leðurinnréttingu með raf-
stilltum sætum.
Lipur bíll
Langt er nú síðan við gerðum
Land Cruiser 90 skil hér í DV-bílum
og því er ekki úr vegi að endumýja
kynnin við þennan vinsæla jeppa.
Þetta er lipur bíll í akstri og gild-
ir þá litlu hvort verið er að bera
saman jeppa eða fólksbíla. Ökumað-
ur situr hátt f þessum bíl, hefur
góða yfirsýn fram á veginn og fjöðr-
unin tekur vel við hvaða ójöfnum
sem er.
Þetta er fjöðrun sem stenst allar
þær kröfur sem hægt er að gera til
fjöðrunabúnaðar í svona bíl. Tvö-
föld, sjálfstæð gormafjöðrun, með
efri og neðri spymum að framan og
fjögurra liða gormafjöðrun að aftan,
gefur góða svörun í akstri og trygg-
ir jafna og góða fjöðrun, hvort sem
ekið er á góðum þjóðvegi eða gróf-
um vegarslóða.
Tannstangarstýrið svarar vel og
ökumaðurinn nýtur þeirra þæginda
að hafa um sex mismunandi still-
ingar að velja á veltistýri.
Vel búinn
Með þeim breytingum sem búið
er að gera á búnaðarstigum Land
Cmiser 90 er þetta vel búinn bíll.
Allar gerðir eru með 100% rafstýrða
driflæsingu að aftan, rafstýrða og
upphitaða hliðarspegla, aksturs-
tölvu, aurhlífar framan og aftan,
fjarstýröar hurðalæsingar, höfuð-
púða framan og aftan, loftpúða fyrir
ökumann og farþega, miðstöð aftur
í, rafdrifnar rúðuvindur, stokk á
VX-bíllinn, sem hér sést, er sá best búni en LX-bíllinn, sem er frumgerðin, er líka korninn með gangbretti og rafstýrða
og upphitaða spegla.
Land Cruiser 90 er nú betur búinn en áður og á betra verði.
Skemmtilegur
Við fengum þann best búna, VX-
bílinn, til reynsluaksturs að þessu
sinni og það verður að segja eins og
er að þetta er sérlega ljúfur bíll og
þægilegur. Hann fer ekki síður vel
með ökmann og farþega en bestu
fólksbílar í venjulegum akstri og
þegar komið er á grófari vegarslóða
gefur hann lítið eftir í þægindunum.
3ja lftra túrbódísOvélin malar létt
og liðlega og það er nægt afl tO stað-
ar, enda er hún 126 hestöfl við 3.600
snúninga og snúningsvægið er 295
Nm við 2400 snúninga. Tölvustýrða
olíuverkið sér líka tO þess að aflið
skili sér án hiks eða hiksta.
Sjálfskiptingin, sem er 4ra þrepa,
hæfir þessum bíl vel og hann er
verulega skemmtOegur með þessari
skiptingu. Með handskiptingu er
hægt að toga fram enn meiri snerpu
en ég held að það sé aðeins i undan-
tekningartilfeOum sem þörf er á
slíku viðbragði eða afli.
Margir breytimöguleikar
AukahlutadeOd Toyota býður upp
á marga breytimöguleika á Land
Cruiser 90, aOt eftir þörf og buddu
hvers og eins.
Minnsta breytingin er á LX í 32
tomma dekk á 16 tomma álfelgum.
Hér er bætt við brettaköntum, og
þeir og stuðarar málaðir. Verð á
þessum „pakka" er kr. 157.388.
Næsta þrep er á GX og VX í 33
tomma dekk á 16 tomma álfelgum.
Hér er bOlinn hækkaður, klippt úr
brettum, hjól stiOt, upprunaleg dekk
og felgur tekið upp í. Verð: 176.000.
33 tomma breyting á 15 tomma
álfelgum kaOar á aðeins meiri
vinnu. Þá er til viðbótar um að
ræða 40 mm hækkun og breytingu á
hemlum. Verðið er 445.000 á LX en
398.000 á GX og VX.
í 35 tomma breytingu með 15
tomma álfelgum er hægt að veljá á
miOi gormahækkunar eða hækkun-
ar á yfirbyggingu. BOlinn er hækk-
aður um 60 mm og hér bætist við
fyrri upptalningar slökkvitæki,
sjúkrakassi, hraðamælabreyting og
kostnaður vegna sérskoðunar. Dekk
eru Dick Cepek. Kostnaður við LX
er 578.000 en á GX og VX kr. 529.000.
Loks er um að ræða 38 tomma
breytingarpakka. BUlinn er hækk-
aður um 100 mm, afturhásing færð
um 12 sentímetra og sett í ný drif-
hlutfoll (4:88).
Kostnaður vegna LX er kr. 938.000
en GX og VX er kr. 898.000.
Breitt verðbil
Land Cruiser 90 er fáanlegur á
nokkuð breiðu verðbOi því grunn-
gerðin, LX, með túrbídísilvél, hand-
skiptur, kostar kr. 2.985.000 en sá
best búni, VX með 180 hestafla bens-
ínvél og sjálfskiptingu, kostar kr.
4.194.000.
Hægt er að velja úr löngum lista
aukabúnaðar. Margt af því er á til
þess að gera hagstæðu verði. Þar á
meðal má nefna viðarklæðningu í
mælaborð upp á kr. 39.725, en annað
er dýrara, eins og tO dæmis milli-
kælir tO að auka vélaraflið, en hann
kostar kr, 129.500, 100% driflæsing
að framan kostar kr. 238.000 og
vindskeið að áftan kr. 39.900.
Af framansögðu er ljóst að
LandCruiser 90 er ekki ódýr biO en
það fæst mikið fyrir peningana,
meira en áður miðað við sama eða
jafnvel lægra verð, og auðvelt er að
láta breyta bílnum að óskum hvers
og eins. -JR
Mælaborðið er einfait en skilar sínu
vel. Stjórntæki eru líka vel innan
seilingar.
Reynsluakstur Land Cruiser 90 VX:
Betur búinn og á betra verði