Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1999, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 10. JUNI 1999
15
Guðbergur Bergsson rithöfundur:
Guðbergur
velur íslensk-
ar vörur gæð-
anna vegna.
DV-mynd
Hilmar Þór
Látið ekki
leika á ykkur
Guðberg Bergsson þarf vart að
kynna fyrir lesendum enda hafa
bækur hans og þýðingar verið bæti-
efni og andlegt orkufóður megin-
þorra þjóðarinnar í gegnum tíðina.
Hagsýni lék hugur á að vita hvern-
ig mataræði og almennum neyslu-
venjum Guðbergs væri háttað;
hvort ske kynni að hann lumaði á
einhverjum góðum spamaðarlausn-
um sem hann vildi deila með hag-
sýnum lesendum, þeim að kostnað-
arlausu, og varð Guðbergur ljúf-
mannlega við þeirri beiðni.
„Mér fmnst að fólk ætti ekki
alltaf að vera að hugsa um það eitt
að spara,“ segir Guðbergur með
áherslu. „Mér finnst að það ætti
frekar að hugsa um að lifa sam-
kvæmt eðlilegum þörfum sínum;
ekki einhverjum aukaþörfum eða
þörfum auglýsenda."
Hvað áttu við með aukaþörf-
um?
„Það er alltaf viss þáttur í okkur
sem vill fá meira,“ segir Guðbergur
til útskýringar. „Það er barnið í
okkur sem fær aldrei nóg. Tilfmn-
ingar bamsins eru hins vegar mjög
óhagsýnar og þess vegna er hverj-
um manni nauðsynlegt að átta sig á
því að honum era takmörk sett
hvað varðar lífsins þægindi. Maður
getur hvorki borðað úti á öllum
veitingahúsum borgarinnar né orð-
ið brúnn á 50 sólarströndum, svo að
ég nefni dæmi. Við þurfum því að
fullorðnast sem fyrst og læra að
nota heilann til að vinsa úr það sem
við þurfum nauðsynlega á að halda.
Við þurfum að læra að temja okkur
hófsemi."
Hófsemi, segirðu. Er það þá
eitthvað sérstakt sem þú leitar
eftir eða athugar þegar þú gerir
þín innkaup?
„Ég vel alltaf íslenskar vörar
fremur en erlendar," svarar Guð-
bergur án umhugsunar. „Ef ég ætla
til dæmis að hreinsa hjá mér kló-
settið gæti ég valið úr ótal vörum
frá Danmörku eða öðrum löndum ef
mér hugnaðist svo en mér finnst
einfaldast og best að nota íslenskan
klór til að hreinsa mitt klósett.
Þannig er það með aðra hluti líka.
Ég vel fremur íslenskar vörur en er-
lendcir."
En veltirðu eitthvað fyrir þér
verði eða tilboðum sem eru í
gangi þegar þú verslar?
„Það eru alltaf einhver kostakjör
í boði en mér finnst óeðlilegt að
vera alltaf að hugsa um hagsýni.
Það er viss auglýsingamennska sem
tengist því og á vissan hátt er verið
að neyða mann til að vera meðvitað-
ur um alla skapaða hluti. Áður en
fólk veit af er það orðið að þrælum
ef það gætir ekki að sér.“
Hvað áttu við?
„Mér finnst til dæmis lítil hag-
sýni vera fólgin í því að hamstra
ódýrar vörur eins og hendir menn
stundum. Menn halda að þeir séu
hagsýnir ef þeir eyða miklu í sparn-
aðarskyni en það er mjög misskilin
hagsýni, að mínu mati,“ svarar
Guðbergur og bætir við eftir nokkra
umhugsun: „Og svo get ég líka nefnt
þetta fyrirbrigði „síðasta neyslu-
dag“ sem fólk lætur gjarnan stjórna
sér. Þessi stimpill er einungis notað-
ur til þess hræða fólk og fá það til
að éta vöruna áður en hún fellur úr
gildi. í versta falli ónýtir það vör-
una og hendir henni og hleypur síð-
an til og kaupir nýja, sem er hvorki
skynsamlegt né eðlilegt að minu
áliti," segir Guðbergur og bætir við
til útskýringar: „Við megum ekki
gleyma því að fólk héðan borðaði
áður fyrr mat sem var jafnvel árs-
gamall eða
svo en
lifði
Það er eina hagsýnin
sem til er,“ segir Guðberg-
ur Bergsson rithöfundur að
lokum.
.
iJi LV/UÍU.
engu að síður góðu lífi.“
Það var og. En hefurðu einhver
góð ráð sem þú vilt miðla lesendum
Hagsýni?
„Ég vil beina þeim til-
mælum til fólks að það
noti skynsemina
og láti ekki
leika á
sig.
Verð á hlaupaskóm:
skokka
Air-skór sem era í sama gæðaflokki,
sömuleiðis á 3.990 krónur. Ódýrastu
skórnir í versluninni Intersport eru
af gerðinni Air Rollin og kosta þeir
4.890 krónur og á svipuðu verði, eða
á 4.990 krónur, fást Nike-skór í versl-
uninni Sportkringlunni í Kringl-
unni. í versluninni Deres í Borgar-
^(jðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir — tónleikar—sýningar—kynningar og fi. og fl. og fl.
?
Risotjðld - ve8glcjfii«o
..og ýmsir fylgihlutir
1
^i&Íaht
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald ó
staðinn - það marg borgar sig.
T|öld af öllum stœrðum
fró 20 - 700 m2.
Leigjum einnig borð
og stóla í tjöldin.
laflctea skáta
..meo skótum ó heimavelli
sími 562 1390 • fax 552 6377 • bis@scout.is
Nú er sumarið komið með tilheyr-
andi birtu og blíðviðri og er þvi ekki
seinna vænna fyrir fólk að fara út og
skokka. Ekki er ólíklegt að suma
vanti viðeigandi skó til þess arna en
úrval af hlaupaskóm er mikið og fjöl-
skrúðugt og því úr vöndu að ráða fyr-
ir viðvaninga í greininni. Hagsýni
kannaði verð á „ódýrum hlaupaskóm
fyrir byrjanda, nánar tiltekið karl-
mann, sem væri jafnvel að hugsa um
að taka þátt í skemmtiskokkinu í
sumar" tU að fá hugmynd um start-
kostnað framtíðarhlaupara. Verslan-
irnar sem heimsóttar voru eru: Útilíf
í Glæsibæ, Sparsport, Nóatúni 17,
Maraþoni í Kringlunni, Sparta á
Laugavegi 49, Boltamaðurinn á
Laugavegi 23, Intersport á Bíldshöfða
20, Sportkringlan í Kringlunni, versl-
unin Deres í Borgarkringlunni og
Skóverslun Steinars Waage í Kringl-
unni.
Skýrt skal tekið fram að ekki er
lagt mat á þjónustu, úrval og gæði í
verslununum því hér er einungis um
verðkönnun að ræða.
Ódýrast í Útilífi
Samkvæmt könnuninni er ódýr-
Verð á hlaupaskóm
5.600
ast að kaupa hlaupaskóna í verslun-
inni Útilífi í Glæsibæ en þó er verð-
munur ekki mikill á milli verslan-
anna ef á heildina er litið. Ódýrastu
skórnir eru af gerðinni Puma
Tornado og kosta þeir hjá Útilífi
3.890 krónur. Næstódýrast er að
kaupa sams konar skó, þ.e. Puma
Tomado, í verslununum Maraþoni i
Kringlunni, Sparsporti, Nóatúni 17,
og Spörtu, Laugavegi 49, þar sem
skórnir kosta 3.990 krónur. í Bolta-
manninum, Laugavegi 23, fást Nike
kringlunni kosta ódýrastu skórnir,
sem eru af gerðinni Adidas Adi
prene, 5.600 krónur, en dýrustu
hlaupaskómir að þessu sinni, sem
eru frá Nike, fengust í verslun Stein-
ars Waage í Kringlunni á 6.495 krón-
ur.
Ljóst er að verð skónna er mis-
munandi en vert er að geta þess að
það er margt annað en verðið sem
skiptir máli þegar velja skal hentuga
skó. Þarfir hvers og eins era ólíkar
og smekkur sömuleiðis og er því
betra að íhuga málið vel frá öllum
hliðum áður en endanleg ákvörðun
er tekin. -esig
Útilíf Sparsport Maraþon Sparta Bolta- Intersport Sport-
maðurinn kringlan
Deres
Steinar
Waage