Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Qupperneq 4
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999
NASA spyr stórra spurninga:
Upprunans leitað
- vísindamenn rýna 12 milljarða ára aftur í tímann
NGST sér fyrstu stjörnurnar
og sólkerfin
12 milljaröar
^ 5 milljaröar
1 milljarður
100 miiljónir
300,000
Mikli- .
hvellur
Nútíminn
Stjörnukíkjar á jörðu
Það hefur ætíð
verið mannin-
um hugstætt að
veita fyrir sér
hvernig standi
á því að hann sé
yfirleitt til,
hvaða kraftar hafi skapað allt sem
er og hvemig. Nú loksins lítur út
fyrir að svarið sé innan seilingar.
Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, setti fyrir nokkrum
áram af stað áætlunina „Origins",
sem nefna mætti „Uppruni" á ís-
lensku. Áætlunin miðar að því að
tengja uppruna og þróun lífs á
jörðinni við uppnnia og þróun
heimsins, vetrarbrauta, sólstjarna
og reikistjarna.
Segja má að fyrsta skrefið hafi
verið tekið þegar Hubble-geim-
sjónaukanum var komið fyrir á
braut um jörðu árið 1989 og olli
hann strax straumhvörfum í
stjörnufræðirannsóknum, vegna
góðrar greinigetu og mikils lang-
drægis. Mikilvægi staðsetningar-
innar ofar lofthjúpnum grundvaU-
ast meðal annars á því að þá er
komist hjá brenglandi áhrifum
lofthjúpsins á mynd þess sem
skoðað er.
Síðasta fimmtudag komst annar
liður áætlunarinnar í gagnið, þeg-
ar FUSE (Far Ultraviolet Spectro-
scopic Explorer) sjónaukanum var
skotið á loft.
Sjónaukinn er hannaður til að
greina útfjólublátt ljós og er hinn
fullkomnasti sinnar tegundar.
Honum er fyrst og fremst ætlað að
rannsaka magn og niðurbrot vetn-
is og efnasambanda þess í alheim-
inum. Með þeim rannsóknum von-
ast vísindamenn til að geta betur
skilið myndun og þróun stjarna og
sólkerfa, til dæmis okkar eigin.
Fyrir þá sem átta sig ekki alveg
á þýðingu þessa verkefnis má
segja að vísindamenn geti nú
„horft“ um það bil 12 milljarða ára
aftur í timann, allt til þess er
Miklihvellur var nýafstaðinn,
heimurinn nýorðinn til og allt
öðruvísi en við þekkjum hann.
Það sem gerir þetta kleift er að
ljósið sem sfjörnur þessar geisl-
uðu frá sér er enn til staðar þó það
hafi veikst mikið í tímans rás. Það
er enn að berast til okkar, úr sí-
fellt meiri fjarlægð aftan úr grárri
forneskju á orkulægstu sviðum lit-
rófsins, til dæmis því innrauða, og
með réttum tækjum má greina
það og bókstaftega sjá aftur í tím-
ann.
Á næstu áram verður svo enn
fleiri græjum skotið á loft, sem
hver um sig markar tímamót á
sínu sviði og eru hluti af því sem
NASA kallar „precursor
missions" eða undanfara megin-
leiðangranna. Þetta era lítil og
ódýr tilraunagervitungl, miðuð að
því að prófa nýja tækni sem kom-
ið getur að notum við stærri verk-
efni síðar, til dæmis í mannaðri
geimferð til Mars.
Fyrstu stjörnurnar
skoðaðar
Sá leiðangur sem beðið er með
hvað mestri eftirvæntingu, aö
minnsta kosti i nánustu framtið,
er án efa NGST-sjónaukinn, Next
Generation Space Telescope eða
Geimsjónauki næstu kynslóðar.
Áætlað er að skjóta sjónaukanum
á loft árið 2007 eða þar um bil.
Sjónaukinn er hannaður til þess
að greina innrautt ljós frá fyrstu
stjörnunum og vetrarbrautunum
sem mynduðust eftir að heimur-
inn hafði kólnað nægilega mikið
til þess að þær gætu myndast,
nánar tiltekið tímabilið frá um
það bil 100 miUj-
ónum til 1 millj-
arðs ára eftir
Miklahvell.
Sjónaukinn
verður mun
stærri og full-
komnari en
Hubble-sjónauk-
inn (hér eftir
nefndur HS).
Þvermál spegils-
ins, sem notaður
er til að safna
ljósinu, verður
að minnsta kosti
tvöfalt, jafnvel
ferfalt, meira en
á HS og því
verður ljóssöfn-
unin a.m.k. fjór-
um sinnum
meiri en hún
vex sem annað
veldið af þver-
málinu.
NGST verður
einnig einfald-
ari í notkun þar
sem hann verð-
ur mun lengra
frá jörðinni en
HS. Ekki er enn
búið að ákveða
fjarlægðina ná-
kvæmlega og stendur valið milli
tveggja brauta, annars vegar 1,5
milljón kílómetra frá jörðu á
svokölluðum L2 Lagrange punkti
eða í um það til þriggja stjarn-
fræðieininga fjarlægð, en ein
stjarnfræðieining er vegalengdin
frá jörðu til sólar, um það til 150
milljón kílómetrar.
Það er athyglisvert að sjónauk-
inn verður ekki á braut um jörðu
heldur sólu og er það alger nýjung.
Fjarlægðin skiptir sköpum
Þessi mikla fjarlægð er nauð-
synleg fýrir ýmissa hluta sakir.
Þar sem NSGT er hannaður fyrir
innrautt Ijós er mikilvægt að við-
kvæmur tæknibúnaður hans sé
ávallt vel kældur og í þeim fimb-
ulkulda sem ríkir í geimnum er
því markmiði auðveldlega náð.
Einnig er komist hjá snertingu
sjónaukans við ystu lög lofthjúps
jarðar, sem teygja sig mörg hundr-
uð kílómetra út í geiminn og gætu
skekkt mælingar og haft skaðleg
áhrif á viðkvæman búnað sjón-
aukans. Engin hætta er á að jörð-
in og lofthjúpurinn hindri sjón-
svið sjónaukans og lofthjúpurinn
endurkasti sólarljósi á hann og
skemmi myndirnar.
Ekki þarf sífellt að gæta þess að
sjónlína sjónaukans beinist hvorki
að sólu né jörðu, auk þess sem
sjónaukinn verður ekki fýrir þeim
miklu hitabreytingum sem fylgja
því að fara sífellt inn í og út úr
skugga jarðar.
Lausnin á lífsgátunni?
NSGT-sjónaukinn er liður í því
sem NASA kallar fyrstu kynslóðar
leiðangra. Á teikniborðinu eru
líka annarrar og þriðju kynslóðar
leiðangrar en þeir munu krefjast
gífurlega flókinnar og mikillar
tæknikunnáttu sem er ekki einu
Fyrir þá sem átta sig
ekki alveg á þýðingu
þessa verkefnis má
segja að vísindamenn
geti nú „horft“ um það
bil 12 milljarða ára aft-
ur í tímann, allt til þess
er Miklihvellur var ný-
afstaðinn og heimur-
inn eins og við þekkj-
um hann ekki einu
sinni orðinn til. Það
sem gerirþetta kleift
er að Ijósið sem stjörn-
ur þessar geisluðu frá
sér er enn til staðar
þótt það hafi veikst
mikið í tímans rás. Það
er enn að berast til
okkar, úr sífellt meiri
fjariægð aftan úr grárri
fomeskju á orku-
lægstu sviðum litrófs-
ins, til dæmis því inn-
rauða, og með réttum
tækjum má greina það
og bókstaflega sjá aft-
ur i tímann.
sinni fyrir hendi í dag en unnið er
hörðum höndum við að þróa.
Heimur mun á næstu vikum fjalla
meira um þessa og aðrar stórhuga
áætlanir NASA sem kannski
munu einhvern tímann færa okk-
ur lausnina á sjálfri lífsgátunni.
-fin
Könnunarfarið Cassini:
Long leið fýrir hon
Cassini, geimfar
NASA, lauk við
annan hring
sinn í kringum
plánetuna Ven-
us síðasta föstu-
dag og þaut svo út í geim á leið til
Satúrnusar. Ástæða hringsólsins er
sú að geimfarinu er nauðsynlegt að
ná upp nægilegum hraða til þess að
hann endist hina eins milljarðs
kílómetra löngu leiö sem geimfarið
á fyrir höndum.
Föstudagurinn var 681. dagur
geimfarsins á lofti en áætlað er að
ferðin taki um það bil 7 ár. Geim-
farið var minnst í tæplega 600 kíló-
metra hæð yfir Venusi en svipaðar
valslönguferðir eru fyrirhugaðar í
kringum jörðina og Júpíter áður en
hraðinn verður nægilegur. Cassini
flýgur fram hjá jörðinni 17. ágúst
næstkomandi, þaðan er ferðinni
heitið til Júpíters þar sem hringsól
hefst 30. desember árið 2000. Hið
- fer á braut um Satúrnus áriö 2004