Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Page 6
22
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999
UagBWggy
■ ■ %# ■ ■ ■ ■ M ■
Fótspor eftir
risaeðlur
Fótspor eftir ;
risaeðlur sem i
uppi voru á
krítartímabil-
inu hafa fund-
ist nærri bænum Altamura á
Ítalíu suðaustanverðri. Það
voru jarðfræðingar, undir for- |
ystu prófessors Massimos j
Sartis, frá háskólanum í
Ancona, sem uppgötvuðu
sporin þegar þeir voru að und-
irbúa olíuleit.
Umberto Nicosia, prófessor
við La Sapienza-háskóla i
Róm, segir að eftir fyrstu
skoðun sé hægt að fullyrða að
sporin séu eftir fjórar tegund-
ir risaeðla, bæði grasætur og
kjötætur.
Forstöðumaður fornminja í
héraðinu segir uppgötvun
jarðfræðinganna hafa verið
óvænta og hún gefi aðra mynd
af fornri sögu héraðsins.
Kaffiþamb
kemur í veg
fyrir gallsteina
Kaffiþamb er
ekki svo vit-
laust. Rann-
sóknir banda-
rískra vísinda-
manna við
Harvard-háskóla hafa leitt í
ljós að fullorðnir karlar sem
drekka venjulegt kaffi, með
koffini, eru ekki í eins mikilli
hættu á að fá gallsteina og i
kynbræður þeirra sem drekka
tii dæmis te, gosdrykki eða :
koffínlaust kaffi.
Þeir sem drekka tvo eða '■
þrjá kaffiboUa á dag eru í 40
prósent minni hættu á að fá
gaUsteina og þeir sem drekka
fjóra bolla eða fleiri eru í 45
prósent minni hættu. Ekki
ganga vísindamennirnir þó
svo langt að mæla með auk-
inni kafFidrykkju.
Frá rannsókninni er sagt í
tímariti bandarisku lækna-
samtakanna.
Mars er í laginu
eins og pera
Vísindamenn
bandarísku
geimferða-
stofnunarinnar
NASA hafa
gert þá merki-
legu uppgötvun að reikistjarn-
an Mars er í laginu eins og
pera. Þetta kom í ljós þegar
þeir teiknuðu þrívíddarkort af
plánetunni með aðstoð ley- j
sigeisla.
Hvorki fleiri né færri en 27 j
milljón mælingar þurfti til að '
teikna flókið þrívíddarkort. |
Mælitækið sem vísindamenn-
imir notuðu var í geimfari á
sporbaug umhverfis plánetuna
rauðu.
Mælingamar vom liður í
undirbúningi lendingar ró-
bótastýrðs geimfars á Mars, j
hugsanega árið 2003.
Dým Jj/
Arnold Schwarzenegger í vondum málum:
Vindlareykingar óhollar
Bandarískir vís-
indamenn
hvetja vindla-
reykingamenn
nú af gefnu til-
efni til að drepa
í drjólunum.
Langtímarannsókn þeirra á tæplega
átján þúsund körlum á aldrinu 30 til
85 ára sýnir að vindlareykingamenn
em í meiri hættu á að fá alvarlega
sjúkdóma, svo sem hjarta- og æða-
sjúkdóma og ýmsar tegundir
krabbameins, en þeir sem ekki
reykja. Greint er frá þessu í New
England-læknablaðinu.
Vinsældir vindla hafa aukist
mjög hin síðari ár og þeir gjaman
umvafðir dulúð hóglífls og hrað-
Amold
Schwarzenegger er
unglingunum ekki góð
fyrirmynd. Ekki vegna
þess að hann á það til
að lemja vonda kalla í
klessu á hvíta tjaldinu,
heldur hins að hann
púar fína vindla í gríð
og erg. Það er nefni-
lega óholl iðja.
Kínverskur verkamaður gengur framhjá veggspjaldi með mynd af stórleikaranum, vöðvabúntinu og vindlaáhuga-
manninum Arnoldi Schwarzenegger með stóran drjóla í munninum.
skreiðra bíla. Sérstakir vindlabarir
hafa sprottið upp eins og gorkúlur i
helstu borgum Bandaríkjanna og
vindlasalan aukist í samræmi við
það.
Gestir þessara vindlabara em
„fremur vel menntað fólk sem hefur
alla jafna sneitt hjá sígarettum,"
segir i ritstjórnargrein eftir banda-
riska landlækninn, David Satcher, í
áðurnefndu læknablaði.
Vísindamennimir, undir forystu
Carlosar Iribarrens, lýsa þungum
áhyggjum sínrnn af auknum
vindlareykingum síðustu ára.
Vindlasala í Bandaríkjunum
jókst um nærri Fimmtíu prósent
milli áranna 1993 og 1997. Salan á
úrvalsvindlum jókst hins vegar um
68 prósent. Á sama tíma dró úr sí-
garettureykingum um þrjú prósent.
Talsmaður samtaka vindlakaup-
manna og skyldra fyrirtækja segir
að þrátt fyrir aukninguna síðustu
Fnnm árin séu vindlareykingar enn
minna en helmingur af því sem þær
vora árið 1964.
Vindlareykingamönnunum var
skipt upp í hópa eftir því hvað þeir
reyktu marga á dag. Flestir, eða 76
prósent, reyndust reykja minna en
flmm vindla á dag. í ljós kom að eft-
ir því sem menn reyktu fleiri
vindla, þeim mun meiri var áhætt-
an á að fá einhvern hinna hættu-
legu sjúkdóma.
Bandaríski landlæknirinn vill
að opinberar álögur á vindla verði
hækkaðar. Þá hvetur hann til þess
að vindlum fylgi sams konar við-
varanir og eru á sígarettupökk-
um.
Barn rann til í leðju í helli sínum:
Elstu þekktu förin eftir mannslíkamann
I^0IM(M9PPVMI Michel Garcia,
i I , , , sem starfar við
JjJíUJjJ-1 CNRS, rann-
if' SVlÍ sóknarstofur
franska ríkisins,
segir aö 21 senti-
meters langt
fótsporið í Chauvet-hellinum í
Ardéche-héraði sé eftir átta til tíu
ára gamalt bam. Hellirinn fannst
fyrir Fimm árum.
„Það rann til,“ segir steingerv-
ingafræðingurinn Jean-Luc Gu-
adelli. „Fótsporið í leimum er mjög
greinilegt. Tæmar Fimm sjást vel,
svo og ilin og farið sem myndaðist
þegar barnið rann til.“
Að sögn franskra yfirvalda em
fótsporin tuttugu til þrjátiu þúsund
ára gömul og eftir manntegundina
homo sapiens sapiens. Sú tegund er
talin eiga uppruna sinn í Afríku,
Mið-Austurlöndum og Evrópu og
var einhver helsti forfaðir nútima-
mannsins.
Garcia segir að fótspor sem fund-
ust áður í Lascaux-hellinum í suð-
vesturhluta Frakklands séu fimmt-
án þúsund ára gömul.
Hann telur næsta líklegt að barn-
ið sem rann til í leðjunni hafi tO-
heyrt hópi sem málaði myndir af
loðfilum, vísundum, hreindýrum,
nashyrningum, hlébörðum, uglum,
híenum, bjömum, ljónum og öðrum
dýrum á hellisveggina. Alls hafa
fundist 447 málaðar myndir af
fjórtán mismunandi
undum.
Gu-
adelli
segir
mörg
spor eftir dýr hafi einnig
fundist í leirniun í hellin-
tun, þar á meðal eftir stór-
an úlf og björn
sem ráf- —
uðu um V—
víðáttumikla hvelfinguna.
Hellir þessi er aðeins opinn vís-
indamönnum til aö koma í veg fyrir
að forsögulegar myndirnar í honum
verði fyrir skemmdum. Vísinda-
mennirnir segja að myndirnar í
Chauvet séu að minnsta kosti jafn-
góðar og myndirnar í
hinum frægu
hellum
Myndir af loðfílum og öðrum skepnum eru á veggjum nýlega uppgötvaðs
hellis í sunnanverðu Frakklandi þar sem barnl skrikaði fótur í leirnum.
Barn, sem skrikaði fót-
urí leðjunni í helli ein-
um í sunnanverðu
Frakklandi fyrir allt að
þrjátíu þúsund árum,
skildi eftir sig það sem
talið er vera elsta farið
eftir mannslíkama sem
þekkist f heiminum, að
því er franskir vísinda-
menn halda fram.
Altamira á Spáni og áðumefndum
Lascaux.
„Við erum rétt að byrja. Við
emm að því komin að gera uppgötv-
anir sem munu fræða okkur mikið
um fólkið sem bjó þarna,“ segir
Jean-Luc Guadelli.
Áhyggjuminna líf óeirðalögreglunnar:
Byssukúlur láta að stjórn
Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa þróað nýja tegund sprengiefnis sem
veldur því að hægt er að hafa stjórn á hraða byssukúlna, til hagsbóta fyrlr
óeirðalögreglulið víða um heim. Nú þarf löggan ekki að hafa eins miklar
áhyggjur af því að drepa fólk.
Hvem dreymir
ekki um að geta
fangað fljúgandi
byssukúlu með
berum höndun-
um eða jafnvel
tönnunum, eins
og teiknimyndahetjumar? Sennilega
fjarlægur draumur en hitt er víst að
bandarískir vísindamenn hafa þróað
nýja tegund sprengiefnis, byggt á
áli, sem gerir þeim, og öðrum, kleift
að stjóma hraða byssukúlunnar út
úr hlaupi frethólksins. Lögreglulið
heimsins munu því í framtíðinni
eiga auðveldar með að stjóma stór-
um hópi óeirðaseggja án þess að
eiga á hættu að stórslasa fólk eða
jafnvel drepa með gúmmikúlum sín-
um.
„Þó svo að gúmmíkúlur eigi ekki
að vera banvænar af stuttu færi geta
þær verið það engu að síður," segir
Carl Pocratsky, vísindamaður hjá
bandaríska orkumálaráðuneytinu, í
viðtali við tímaritið New Scientist.
„En ef maður getur ráðið hraðanum
kemur maður í veg fyrir það.“
Hópur vísindamanna við Oak
Ridge, tilraunastofur bandaríska
ríkisins í Tennessee, undir forystu
Rusis Taleyarkhans, fann upp nýja
sprengiefnið sem losar fjórum sinn-
um meiri orku en brennandi
byssupúður.
„Þegar álið hvarfast við vatn við
hátt hitastig oxast álið og losar við
það orku og vetni," segir í tímarit-
inu.
Vísindamennirnir geta breytt
hraða kúlunnar af því að sprengiefn-
ið er svo létt. Þeir setja fjórar hleðsl-
ur í haglabyssuhylki og geta
ráðskast meö hraða kúlunnar með
því að stjórna hversu margar hleðsl-
ur springa og hvenær.
Sprengiefnið getur einnig aukið
hraða kúlunnar eða hvers svo sem
það er sem menn skjóta.
„Við höfum skotið litlum vökva-
kúlum, baðkúlum með ilmvatni,
málningarkúlum. Ég nota allt sem
ég kem höndum yfir,“ segir Rusi
Taleyarkhan.