Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1999, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1999
2c
rféSiiMÍr
■ ■%#■■■■ wiB
Star Wars
toppnum
Leikir tengdir
nýju stjörnu-
stríðsmyndinni
eru að slá öll
sölumet. Tveir
leikir hafa kom-
ið út. Annars vegar kappakst-
ursleikur sem svipar til
Wipeout og hins vegar Star
Wars Episode 1: The Phantom
Menace, sem er hlutverka- og
ævintýraleikur byggður á
kvikmyndinni. Hann hefur
verið á toppnum á sölulistum
þar til í síðustu
viku að honum
var ýtt af
stalli af
framhalds-
leik. Sá heitir
MechWarri-
t or 3 og
er vél-
menna-
og skot-
leikur.
Leikur-
inn,
sem
fram-
leidd-
ur er af
MicroProse, hefur
verið vinsæll í síðustu tveimur
útgáfum og virðist framhalds-
lífið ekki fara illa með hann.
Squaresoft
gerir samning
við Nintendo
Leikjafyrirtæk-
ið Squaresoft,
sem gert hefur
leiki eins og
Final Fantasy
og Bushido Blade, hefur gert
samkomulag við Nintendo um
að framleiða leiki fyrir Dolp-
hin, nýju tölvuna frá Nintendo.
Þykja þessi tíðindi vera happ
fyrir Nintendo þar sem Squ-
aresoft hefur gert marga af vin-
sælustu leikjunum fyrir
PlayStation. Ekki er þar með
sagt að Squaresoft geri ekki
leiki fyrir PlayStation 2. Segj-
ast Squaresoft-menn ekki vera
bundnir neinum og að þeir
muni koma framleiða leiki fyr-
ir báðar leikjatölvurnar.
Nýjar tölvur á markaðinn:
Margt að gerast hjá Apple
- vandræði við framleiðslu seinka fartölvum
; Komið hefur í
ljós alvarlegur
\f 11galli í nýju Pl-
' fartölvunum
1 sem Apple er að
íNÉMaittiy setja í fram-
leiðslu. Fartölvan sem koma átti út
um mitt ár 1999 í Bandaríkjunum og
átti að vera í ódýrari kantinum,
kemur jafnvel aldrei á markað. Far-
tölvan, sem er hluti af nýrri mark-
aðsherferð hjá Apple, var miðuð við
kaupendur með minni fjárráð og
var búist við að hún myndi slá í
gegn. P1 átti að verða IMac far-
tölvanna, sæt og þægileg en samt
kraftmikil. Útlit er fyrir að gallinn
sé of viðamikill til þess að svari
kostnaði að laga hann. Hvort sem
Pl-fartölvunni verði seinkað eða
bara sleppt á alveg eftir að koma í
ljós.
G3 á leiðinni
Þó svo að P1 fartölvan sé í hættu
þá er G3-Fartölvan að koma á mark-
að í Bandaríkjunum um þessar
mundir. Nýja G3-Fartölvan sem er
20 prósent þynnri og kílói léttari en
fyrirrennarar hennar, verður ótrú-
lega hraðvirk. Hún kemur á markað
vopnuð 333 mhz og 400 Mhz G3 ör-
gjörvinn.
Ásamt G3-fartölvunni er ný kyn-
slóð G3-tumtölvanna að koma á
markað en þessi kynslóð skartar 450
Mhz örgjörva. Ekki er þó auðvelt að
verða sér úti um eintak af þessum
nýju gerðum núna, þar sem fyrir-
fram pantanir eru allnokkrar.
Vírusar á Mac
Apple hefur alltaf hreykt sér af
því að Makkinn sé næstum laus við
vírusa. Satt og rétt, en þegar Mac er
á einhvem hátt settur í samband
við PC-tölvur þá fer allt í vitleysu.
Tölvuspekúlantar hafa komist að
þeirri niðurstöðu að Makkcir geta
smitast af PC-vírusum ef notuð em
PC-Hermiforrit eða ef PC og Makki
eru tengdir saman. Vírusinn sem
smitast á milli er svokallaður
Worm.ExploreZip vírus. Ekki er þó
algengt að Makkar smitist af þess-
um virus. Fyrirtækið Symantec
Corp., sem framleiðir vírusvarnar-
forrit fyrir Makka, hefur þegar gert
ráðstafanir í næstu uppfærslu
vírusvamarforrits þeirra.
Apple hefur alltaf
hreykt sér af því að
Makkinn sé næstum
laus við vírusa. Satt og
rétt, en þegar Mac er á
einhvern hátt settur
samband við PC-tölvur
þá fer allt í vitleysu.
Final Fantasy á hvíta tjaldið
- höfundur Appollo 13 skrifar handritið
Einn af vinsælli
leikjinn á
Playstation-
leikjatölvunni
og PC-tölvum
er Final Fanta-
sy-serían sem
hefur selst í meira en 18 milljón-
um eintaka um allan heim. Final
Fantasy kemur á þessu ári út í átt-
undu útgáfunni og er nú í þokka-
bót á leið á hvíta tjaldið.
Myndin verður tölvuteikni-
mynd og Ijá margir frægir leikar-
ar persónum hennar raddir stnar.
Ekki hefúr verið gefið upp hvaða
persónu hver leikari les fyrir. Þeir
sem vitað er að verði með eru
Alec Baldwin, James Woods, Don-
ald Sutherland, Steve Buschemi
og Ving Rhames, en hinn síðast-
Miðað við reynslu
hópsins sem að mynd-
inni stendur ætti Final
Fantasy: The Movie að
verða hin áhugaverð-
asta upplifun.
Steve Buschemi stal senunni í
hetjumyndinni Armageddon og
hver veit nema sama verði uppi á
teningnum í Final Fantasy.
nefndi er einna helst þekktur fyr-
ir sannfærandi túlkun sína á hin-
um óheppna glæpaforingja í Pulp
Fiction. Myndin er í framleiðslu
og kemur út árið 2001. Handrits-
höfundurinn, A1 Reinert, er vel
þekktur í kvikmyndaiðnaðinum.
Hann skrifaði meðal annars hand-
ritið af Appollo 13 og var tilnefnd-
ur til Óskarsverðlauna fyrir vikið.
Miðað við reynslu hópsins sem að
myndinni stendur ætti Final,
Fantasy: The Movie að verða hin
áhugaverðasta upplifun.
Dreamcast á markaö í haust:
Bætt úr leikjafæð
Dreamcast
- Activision býr til tvo nýja leiki
Dreamcast-
leikjatölvan
frá Sega er
ekki enn
komin á
markaðinn í
Evrópu en
von er á henni í haust. Mikiö hef-
ur verið talað um að leikjafæð
Dreamcast eigi eftir að draga úr
sölu á henni. Nú hefur hinn vel
þekkti leikjaframleiðandi Acti-
vision tilkynnt að þeir séu að
framleiða tvo nýja leiki fyrir
Dreamcast. Þar er um að ræða
leikina Toy Story og Space
Invaders. Toy Story er byggður á
alþekktri teiknimynd sem alfarið
var unnin í tölvu og ætti að njóta
sín vel á Dreamcast. Hann er
miðaður við yngri kynslóðina.
Dreamcast tölvunnar er beðiö
með mikilli eftirvæntingu.
Space Invaders er svo gamall
jálkur í uppfærðri útgáfú fyrir
Dreamcast.
Vitnaleiöslum lokiö í Microsoft-réttarhöldunum:
Tölvurisinn í vandræðum
í síðustu viku
lauk vitnaleiðsl-
um í réttarhöld-
unum yfir
Microsoft sem
staðið hafa yfn í
rúmar 20 vikur.
Réttarhöldin hafa hingað til boðið upp
á talsverða dramatík þar sem skoðað-
ur hefur verið í kjöliim heimur hinna
ört vaxandi hátækniviðskipta.
Upphaflega var búist við að vitna-
leiðslurnar myndu aðeins taka um 6
vikur, en þegar upp er staðið urðu
þær 20. Síðasta vitni Microsoft var
Richard Schmalensee hagfræðingur
sem hélt til þrautar þeirri skoðun
Boies hefur öll réttar-
höldin reynst
Microsoft gríðarlega
óþægur Ijár í þúfu og
hefur málflutningur
hans oftar en ekki tætt
vamir Microsoft í
sundur.
sinni að Microsoft væri ekki í ein-
okunaraðstöðu á tölvumarkaðnum.
Þegar David Boies, aðalsaksókn-
ari hins opinbera, hóf hins vegar að
spyrja Schmalensee spjörunum úr
komu i ljós ýmsir veikleikar í fram-
burði hans. Boies hefur öll réttar-
höldin reynst Microsoft gríðarlega
óþægxn ljár í þúfu og hefur mál-
flutningur hans oftar en ekki tætt
vamir Microsofts í sundur.
Gates erfiöur
Meðal þess sem Boies sýndi réttin-
um nú síðast voru handskrifuð minn-
isblöð frá Bill Gates, forstjóra
Microsoft, þar sem hann segir að
America Online „hafi það ekki í gen-
unum“ að skora Microsoft á hólm.
Það hefur einmitt verið ein af aðal-
röksemdum lögfræðinga Microsoft að
America Online sé orðinn mjög
skæður keppinautur Microsoft eftir
að fyrirtækið keypti Netscape í vet-
ur. Þama virðist forstjórinn enn og
aftur hafa viðrað skoðanir sem koma
málsvöm fyrirtækisins illa í réttar-
höldunum.
Þó svo vitnaleiðslum sé lokið er
þar með ekki sagt að niðurstaða fáist
í málinu á næstu dögum. Nú tekur
við mánaðar frí og siðan þarf dómar-
inn að taka saman þau málsgögn sem
fram hafa komið, en þau eru gríðar-
lega umfangsmikil. Búist er við að
jafnvel fáist ekki úrskurður fyrr en í
byrjun næsta árs. Og þá getur málið
haldið áfram að velkjast í áfrýjunum
á báða bóga í nokkur ár til viðbótar.
Lögmaðurinn David Boies er
ábyggilega ekki á jólagjafalistanum
hjá Bill Gates. Boies hefur hvað eft-
ir annað leikið Microsoft grátt i rétt-
arhöldunum.