Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Síða 4
Hver q-*
skallann/
Skallar eru kynæsandi, slall-
ar eru hallærislegir, skallar eru
hitt og þetta en aðallega afleið-
ing of mikillar hormónafram-
leiðslu. Nú gefst þér tækifæri til
að athuga hversu vel þú ert að
þér í sköllum fræga fólksins.
Hér eru átta skallar. Þekkir þú
einhvem af frægustu sköllum
landsins? Svörin eru á hvolfi
hérna fyrir neðan.
Hallgrímur
Helgason.
:
Ómar Ragnarsson.
Arnar Gunnlaugsson.
Kristján
Ragnarsson.
dubbi
Morthens.
Olafsson.
LAUSN
T= M '8= 3 ‘L= i '£= 3
‘g='P ‘V= 3 ‘9 = q ‘Z = e
6
Megatöffarinn Þorsteinn Egg-
ertsson er nýkominn heim frá
Ankara í Tyrklandi þar sem hann
sýndi á teiknimyndasamsýningu
og fékk m.a.s. verðlaun. Þorsteinn
er félagi í Alheimssambandi hug-
vitsmanna sem sérhæfir sig í
gagnslausum hugmyndum og hef-
ur verið að sýna úti um allan
heim.
„Þetta voru eintómar veislur frá
morgni til kvölds," segir Þorsteinn
og bætir við að fyrir Stef-greiðsl-
urnar sínar gæti hann lifað kónga-
lífi i Ankara. Hann var hirðskáld
poppara fyrr á öldinni, stórvirkur
og eftir hann liggur hreinasta
snilld eins og „Harðsnúna
Hanna“, „Gvendur á Eyrinni" og
„Þrjú tonn af sandi“. Nú sýslar
hann við ýmislegt, er með nám-
skeið hjá Námsflokkunum á vet-
urna og er núna að leggja parket
heima hjá sér.
„Ég held ég hafi verið með eigin
stú í textagerðinni," segir Þor-
steinn. „Ég var allavega að hlusta
á útvarpið um daginn og heyrði
leiðinlegt lag með lummulegum
texta í mínum stil. Ég sagði við
konuna: „þetta finnst mér slappt.
Þama er einhver að reyna að
semja texta í mínum stíl en nær
því ekki.“ Svo þegar lagið var búið
sagði þulurinn: „Þetta var lagið „Á
eyðieyju" með Brimkló með texta
eftir Þorstein Eggertsson!"
Heim í Búðardal á 10
mínútum
Textar Þorsteins eru upp til hópa
kátir, hnyttnir og auðlærðir.
„Skáldin mega vera þunglynd,"
segir hann, „en ekki finnst mér það
hæfa í poppinu, nema þá í ein-
hverju þungapoppi."
Auðvitað var menningarelítan
ekki ánægð með textana hjá Þor-
steini og hnýtti ákaft í hann.
„Það þótti ekki sniðugt að nota
óheflað orðbragð eins og t.d. í text-
anum „Slappaðu af‘. Svo vildu
menn að textar væm bragfræðilega
rétt ortir sem er algjör vitleysa því
popp- og rokkmúsík er bara tónlist
götunnar.“
Hvaöa texta varstu fljótastur
meö?
„„Heim í Búðardal“. Hann tók
innan við tíu mínútur. Það sem
maður er fljótur með kemur oft
best út, því ef maður er fljótur þá
er maður innblásinn. Það sem mað-
ur þarf að eyða tíma í og velta sér
upp úr er stífara. Ég var t.d. rosa-
lega lengi með fyrsta textann minn
- „Ást í meinum“ með Savanna
Glatað að hlusta á Bing
og Doris
Þorsteinn segir það dálítið skrýt-
ið þegar krakkar í dag hlusta á tón-
list sem var vinsæl í hans tíð.
„Á mínum ungdómsárum datt
a.m.k. engum í hug að hlusta á
Bing Crosby, Doris Day og þetta
lið. Það bara gekk ekki.“
Það er staðreynd að ákveðið þrot
er komið í tónlistarheiminn. Bæði
eru tónlistarmenn sífellt að endur-
taka gamlan fíling og áhugi fólks á
tónlist hefur minnkað. Þorsteinn er
með skýringu: „Sko, tónlist er ekki
eins mikils virði núna og þegar ég
var strákur. Þá kom rokkið eins og
bjargvættur í einlitu stritinu. í dag
hafa krakkar miklu meiri fjöl-
breytni og fleiri möguleika til að
lífga upp á tilveruna. En samt,
músikin hefur alltaf eitt-
hvað sem ekkert ann-
að hefur.“ -glh
tríóinu - og það man
enginn eftir honum í
dag.“
Við höfðum
Glaumbæ
Þorsteinn er nokkurs
konar Austin Powers
íslands þó hann hafi
ekki stundað spæjara-
störf. Hann var „swing-
ing bachelor" fram eft-
ir öllu og var 35 ára
þegar fyrsta barnið
hans kom.
„Nei, ég get ekki
samþykkt að ég sé ei-
lífðarunglingur," segir
hann, „en ég var svo
heppinn að vera af
bítlakynslóðinni og það
voru milljónir unglinga
sem voru að hugsa
svipað og Bítlarnir,
Rolling Stones og þess-
ar hljómsveitir. Þetta
var þessi svokallaða
„Beat Generation" og
ég mun aldrei vaxa upp
úr þeim fíling sem þá
var í gangi.“
Þorsteinn segir aðal-
stuðið hafa verið í
Glaumbæ á sjöunda
áratugnum.
„Ungt fólk i dag get-
ur öfundað okkur af
Glaumbæ. Við höfðum
Glaumbæ og það var
sérstakur staður. í
kringum dansgólfið
voru svalir og út frá
hljómsveitarpallinum
var stigi upp í eins kon-
ar helli. Þaðan voru
ranghalar upp á þriðju
hæð þar sem var róleg
stemning og kannski
karl að spila á píanó
úti í homi. Það var því
allt á sama staðnum,
bæði stuðið og róleg-
heitin.“
En svo brann Glaum-
bær og Þorsteinn segir
engan stað síðan hafa
slegið þessari goðsögn
við.
Töffarfnn og
séntilmaðurinn
Þorsteinn
Eggertsson hefur
samið dægurlagatexta
sem hvert mannsbarn
kann. Hann var hirð-
skáld poppara fýrr á
öldinni og aðalpipar-
sveinninn í Glaumbæ.
4
f Ó k U S 2. júlí 1999