Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Qupperneq 20
2) haf kaffihús
Kvarasí með nýtt lag
Quarashi-hópurinn er kom-
inn á fullt í upptökur og kemur
nýtt albúm út í haust. Á næstu
dögum kemur svo ný smáskífa
með laginu „Jivin’ about“.
Aukalögin eru ósungin útgáfa
af lag-
inu og
þrjú
gömul
Quaras
hi-lög.
Platan
verður ekki í almennri sölu því
símafyrirtæki hefur keypt upp
upplagið og á eflaust eftir að
nota það í einhverja kynningu.
Quarashi spilar með Skítamóral
á Ingólfstorgi á miðvikudaginn
kl. 17 og þar mætast stálin st-
inn þvi hingað til hefur sveit-
unum ekki verið neitt sérlega
vel til vina.
Tvíhöfði verður Þríhöfði
Tvíhöfði hefur flýtt útgáfu
disksins Komdi filing sem á,
samkvæmt nýjustu tölum, að
koma út um verslunarmanna-
helgi. Diskurinn verður alveg
örugglega þéttur og vonandi
jafn-
fyndinn
og sá
fyrri. En
það sem
er í
gangi
hjá Tvihöfða þessa dagana er að
hryðjuverkamaðurinn þeirra,
Jón Atli (Rödd Guðs) mun verða
með þeim á hverjum degi í sum-
ar. Það ætti því ekki að koma
neinum á óvart þótt fleiri ákær-
ur af hálfu hins opinbera berist
Tvíhöfða.
Daníel Ágúst = búddisti
Daníel Ágúst Haraldsson
GusGus-ari er nú á tónleikaferð-
um víðs vegar um veröldina.
Strákunum gengur vist sæmilega
og virðast bara hafa grætt á því
að reka Hafdisi
Huld - sem virð-
ist líka hafa
grætt á því og er
komin í Bang
Gang. Daníel
skrapp heim um
daginn til að
giftast Gabriellu
Friðriksdóttur
(Sófussonar) að
búddistasið. Það er örugglega
hræðilega andlegt jafnvægi þar á
bæ.
Hjólreiðakapparnir fá
sér pilsner eða bjór
Hver man ekki eftir henni
Maríu Björnsdóttur sem rak
kaffihúsið Café Au Lait í Hafnar-
strætinu fyrir nokkrum árum.
„Au-li“ var alltaf troðfullt af
ungu fólki og einhvers konar
andleg mamma Kaffi Thomsens
sem reis neðar í Hafnarstrætinu.
Á Au Lait var hægt að fá bestu
grill-samlokur bæjarins og þær
eru auðvitað komnar aftur á
Kaffi Nauthól sem María byrjaði
með fyrir tæpum þrem vikum í
Nauthólsvíkinni. Staðurinn er 45
sæta og auk þess er sólpallur fyr-
ir utan. Þar eru 40 stólar og því
ætti þessi staður að verða feiki-
vinsæll þegar R-listaströndin
verður opnuð.
En ertu komin meó sömu fasta-
gestina og á Café Au Lait?
„Þeir eru svona að slæðast inn,
einn og einn. Við erum ekkert
farin að auglýsa svo þeir vita
ekki af mér hérna. En þeir eru að
slæðast inn,“ segir María og ját-
ar að hafa ekki hugmynd um
hvert þessi fastakúnnahópur
Café Au Lait fór eiginlega.
„Kannski hefur fólkið bara
dreifst um bæinn og líklega hafa
einhverjir farið að eignast börn
og orðið að ráðsettu fjölskyldu-
fólki.“
Af hverju hœttiröu meö Café Au
Lait?
„Ég missti húsnæðið. Eigand-
inn vildi opna tískuvöruverslun
María Björnsdóttir rak einu sinni Café Au Lait í Hafnarstræti. Nú er hún komin með Kaffi Nauthól í Nauthólsvík.
og þá var ekkert að gera annað
en að hætta bara,“ svarar María,
en eftir Au Lait fór hún að vinna
á Lækjarbrekku og víðar.
Hvernig datt þér í hug aö opna
kaffihús í Nauthólsvík?
„Við erum með þennan stað
saman, fjölskyldan, en við feng-
um þessa hugmynd ekki. Það var
maður að undirbúa þetta og við
vorum svo heppin að taka við
þeirri hugmynd."
Veröur bara opiö á sumrin?
„Nei. Það verður opið milli 8
og 23 á vetuma jafnt sem á sumr-
in. Það er svo mikið af fostum
kúnnum héma sem skokka um
svæðið. Þetta er líka svo rólegt
og rómantískt kaffihús.
Reykleysið er líka munur frá þvi
á Café Au Lait og Bessastaðir eru
héma beint á móti.“
Er ekki meginþorri kúnnana
sveittir hjólreiöakappar, skokkar-
ar eóa línuskautaliö sem kemur
andstutt og heimtar vatn?
„Nei. Fólk fær sér frekar
pilsner eða bjór. Og ef það hefur
hreina samvisku fær það sér
súkkulaði eða tertu,“ segir María
Björnsdóttir, beint frá Nauthóls-
vík.
er opin alla daga nema mánudaga frá 14 -18.
Svanborg Matthíasdóttlr opnar klukkan 16
sýningu sína T Gryfjunnl, Llstasafnl ASÍ vlö
Freyjugötu, og verður hún opin til 25 júlí. Verk-
in eru unnin með olíu og blýi á striga. Svan-
borg útskrifaðist frá Myndlista- og handíða-
skólanum 1985.
Sýningin Vindurinn blæs hvar sem hann vlll
opnar í dag í Ráðhúsl Reykjavíkur, TJarnarsal.
Sýndar eru collage-myndir með blandaöri
tækni eftir 12 konur. Hópurinn sem þarna sýn-
ir á það sameiginlegt að hafa áhuga á sköpun
og myndlist og hafa verið á námskeiðum í
helgimyndagerð hjá Öldu Ármönu Sveinsdótt-
ur myndlistakennara. Konurnar starfa annars
við ýmislegt þarna úti í þjóðfélaginu, nokkrar
eru myndlistamenn, aðrar kennarar eða hjúkr-
unarfræðingar og svo má lengi telja. Sýningin
stendur tii 18. júlí.
•Fundir
Grænl herinn tekur Borgarnes meö áhlaupi í
dag og skilur bæinn eftir í rústum í mínus
fyrsta veldi. Það eru íþróttavöllurinn og bryggj-
an sem eru helstu skotmörk hersins. Grill-
veisla og ball í kvöld.
Hundasýnlng cavalier-deildar Hundaræktarfé-
lags íslands fer fram í Relðhöll Gusts og hefst
hún klukkan 10. Dómari er Fiona Bunce frá
Englandi. Um 60 hundar veröa til sýnis, allir af
cavalier-kyni. Ókeyþis aðgangur.
Sport
, Á skotsvæðl Skotfélags íslands hefst
klukkan 10 keppni á vegum Hlns íslenska
byssuvlnafélags keppni í skotfimi með herriffl-
um. Skotið verður í þremur greinum: 100
metra standandi með opnum sigtum, 300
metra liggjandi með opnum sigtum og 300
metra liggjandi með sjónauka. Öllum er heim-
il þáttaka og keppnisgjald er 1500 krónur. Á
sama tíma stendur yfir hermlnjasýnlng þar
sem berja má augum riffla, hriðskotabyssur,
byssustingi og einkennisbúninga. Aðeins kost-
ar 200 kall inn á hana. Tilvalið fyrir blanka
hernaðardýrkendur og nostalgíulið.
•Feröir
Landverðir á Þingvöllum verða með göngu-
ferölr í allt sumar. Þær eru við allra hæfi og er
fjallað um náttúrufar þjóðgarðsins og sögu
lands og lýðs. Auk þess er sérstök barna-
stund þar sem saman fara leikir og fræðsla.
Það er ókeyþis í þetta og allir velkomnir. Nán-
ari upplýsingar gefa landverðir.
Gengið verður um Vestureyna í Viðey að
þessu sinni. Klukkan 14.15 verður farið af
staö frá Viðeyjarhlaði, fram hjá Klausturhól,
um Klifið, yfir Eiöið og síðan um suðurströnd
Vestureyjar. Áfangar, sem er listaverk R.
Serra, verður skoðað og útskýrt, einnig tveir
steinar með áletrunum frá 1810 og 1842.
Margt fleira fallegt er að sjá á þessum slóö-
um.
Sunnudagu>j
4. júlil
•Krár
Rokkarinn og trú-
badorinn Siggi
BJörns er f Reykjavík-
inni þessa dagana. Ein-
myndlist
Nú standa yfir þrjár sýningar í Nýló . Verk Mich-
ael Milunovic og Igor Antlc munu standa fram
eftir sumri, en nýjasta viðbótin eru innsetningar
Hollendingsins Zeger Reyers og norræna sam-
sýningin Not Just for fun.
Svanborg Matthíasdóttlr sýnir í Gryfjunni,
Listasafni ASÍ. Verk hennar eru unnin með olíu
og blýi á striga.
Sýningin Vlndurlnn blæs hvar sem hann vlll er
! Ráöhúsi Reykjavíkur, TJarnarsal. Til sýnis eru
klippiverk eftir 12 konur sem hafa veriö í læri
hjá Öldu Ármönu Sveinsdóttur myndlistakenn-
ara.
I Englum og fólki, nýja kaffihúsinu og galleríinu
á Kjalarnesi, er sýning á eggjum sem Frakkinn
Jacques Robuchon hefur málað á. Það kostar
500 kall inn í þetta furöulega hús en það eru
auðvitað allsberir englar I loftinu.
í Safnasafnlnu á Svalbarösströnd standa nú yfir
níu sýningar. Sú nýjasta er sýning Hannesar
Lárussonar á 33 ausum og fleira spennandi.
í Hólum í Hjaltadal stendur yfir kirkjusýningin
Heyr himnasmiður.
Pétur Gautur er með sumarsýningu í Sparl-
sjóðnum í Garðabæ.
Hildur Sigurðardóttlr og Sigrún Axelsdóttlr
sýna verk úr hör og silki í Galleriinu Ash Keram-
Ik að Lundi, Varmahlíð. Opið alla daga frá 10-
18.
Sólrún Trausta Auðunsdóttlr heldur sína fyrstu
einkasýningu í Gallerí Geysl, Hinu Húsinu. Sýn-
ingin heitir undir Búkland hiö góða og fjallar um
orkustöðvar líkamans.
Guðrún Öyahals sýnir 6 ný olíumálverk I Gallerí
Fold í Kringlunni.
Rannvelg Jónsdóttlr sýnir ! Stöðlakotl, Bók-
hlöðustíg 6. Á sýningunni eru m.a. portrett af
sjö fyrirbærum sem eiga það skiliðl?
Fransk-íslenska sýningin Út úr kortlnu stendur
yfir í Gerðarsafnl í menningarlundi þeirra í
Kópavoginum. Þetta er hrikalega spennandi
samsýning og einn af stærstu listviðburðum
sumarsins. islendingarnir sex eru Blrgir Andr-
ésson, Daníel Magnússon, Hallgrímur Helga-
son, Hrafnkell Slgurðsson, Katrín Slguröar-
dóttlr og Slgurður Árnl Slgurösson. Frakkarnir
eru sjö. Héðan fer sýningin til Frakklands, en
hún er einmitt samstarfsverkefni Listasafns
Kópavogs og Listamiðstöðvar Languedoc-
Roussillon I Sete í S-Frakklandi.
Húbert Nói sýnir í tískubúðinni One 0 One að
Laugarvegi 48b.
Hrönn Eggertsdóttir sýnir olíumálverk i Llsta-
horninu að Kirkjubraut 3, Akranesi. Sýningin er
opin frá ellefu til sautján alla virka daga og
stendur til 13. júlf.
Á Byggöasafnl Hafnarfjaröar er verið að sýna
lelkföng frá því í gamla daga og sýninguna
„Þannig var".
Erla B. Axelsdóttir sýnir um þessar mundir
bæði olíumálverk og pastelmyndir í Edlnborgar-
húslnu á Isaflrði. Opiö er fimmtudaga til sunnu-
daga frá 16 -18 og sýningunni lýkur 4. júlí.
Töffarinn Gylfl Gislason sýnir 7 risamyndir í
Galleríi Sævars Karls. Þetta eru ollumálverk
með Þingvelli sem fyrirsætu. Sýningin stendur
fram í miðjan júlí.
Gamli SÚMarinn Hrelnn Frlðflnnsson sýnir
blönduö og bíræfin verk sfn ! 18 (Galleríinu Ing-
ólfsstræti 8).
Sýningin Gersemar - fornir kirkjumunir úr Eyja-
firði í vörslu Þjóðminjasafnsins - stendur yfir!
Minjasafninu á Akureyri og verður hún! gangi til
loka septembermánaðar. Sýndir verða 14
merkir gripir, þar á meðal silfurkaleikurinn frá
Grund sem er elsti gripurinn ! Þjóöminjasafninu
sem hefur ákveðið ártal, þ.e. 1489.
Sólvelg lllugadóttir sýnir olíumálverk, vetrar-
myndir, í Sellnu á Skútustöðum í Mývatnssveit.
Þetta er 11. einkasýning hennar en hún hefur
tekið þátt í mörgum samsýningum. Það er opiö
fram á haust hjá henni
Á listahátíöinni Á seyði sem fram fer á Seyðis-
firði eru eintómir meistarar: Bernd Koperling,
BJörn Roth, Daði Guðbjórnsson, Tolli, Eggert
Einarsson, Ómar Stefánsson, María Gaskell,
Þorkell Helgason, Rut Finnsdóttlr, Vilmundur
Þorgrímsson, Olga Kolbrún Vilmundardóttlr,
Guðlaug Sjöfn frá Hólma og auövitaö Stórval
sjálfur.
í Llstasafnl Akureyrar eru tvær sýningar. Ungur
Akureyringur, Aðalheiður Eystelnsdóttlr, sýnir
sín þrumuskot, og sýnd eru verk eftir abstrakt-
frumkvöðulinn Þorvald Skúlason af hans síö-
asta skeiði.
Friðrik Örn er að sýna fulla íslendinga á Mokka.
Fræg feis, dálítið þrútin og bjöguð. Sýningin
stendur í einn mánuð
Yfirlitssýning á verkum Sóleyjar Eiríksdóttur er!
boði í Hafnarborg. Sóley var húmoristi mikill og
munir hennar bera þessi glöggt vitni.
i Húslnu á Eyrarbakka er sýningin LJós yfir land
og eru þar sýnd Ijósfæri úr kirkjum á Árnes-
sýslu. Eyrarbakki er topp pleis og eftir luktirnar
er viö hæfi að fá sér feita rjómapönnsu á Kaffi
Lefolii.
Sýning um Eggert Ólafsson, sem nefnist Undir
bláum sólarsall stendur yfir i Þjóöarbókhlöö-
unni. Sýningin er opin mánudaga til föstudaga
frá 9-17 og frá 10-14 á laugardögum.
í Safnasafnlnu á Svalbarðsströnderu tréverk
Hálfdáns Björnssonar og verk Ragnheiðar
Ragnarsdóttur sem eru þrivlö.
Sigurlín Grímsdóttlr sýnir vatnslitamyndir í Nes-
búð á Nesjavöllum. Þetta er 6. einkasýning
listakonunnar og eru viðfangsefni hennar eink-
um haustlitir og fjallasýn.
Dagskrá Norræna hússins út árið ber yfirskrift-
ina Tll móts við árlð 2000 og hefst með opnun
Ijósmyndasýninga. Norski Ijósmyndarinn Kay
Berg riður á vaðiö með myndum af listafólki og
menningarfrömuðum sem koma frá menningar-
borgum Evrópu árið 2000. Sýningunni lýkur 22.
ágúst.
Sýning þriggja nýútskrifaðra listamanna úr MHÍ
stendur yfir i Llstakotl, Laugarvegi. Þórdís Að-
alstelnsdóttir sýnir bleksprautuprent á striga,
en Herborg Eðvaldsdóttir og Þóra Sigurgelrs-
dóttlr sýna keramík.
( húsgagnabúðinni Epal, Skeifunni 6, er sýning-
in Yflrlit. Þar ber að líta sýnishorn af flottustu
hönnun aldarinnar, að mati útlitsfyrirtækisins
Aftur, sem sá um uppsetninguna.
Menningarmálanefnd Reykjavíkur stendur fýrir
tveim sýningum á Kjarvalsstöðum. Sýninguna
Leikföng af loftlnu þar sem sýnd eru verk Kar-
el Appel og sumarsýningu á verkum í eigu
Listasafns Reykjavlkur. Karel fiessi er hollénsk-
ur og að sögn mikill meistari. Hann sýnir mál-
verk og höggmyndir og er grófur og litglaður.
í veitingaskúr veitingastaðarins Vlð fjöruborðið
á Stokkseyri sýnir Gerhard König tréskúlptúra
úr rekavið og málverk. Gerhard fílar fiskinn í
sjálfum sér og fiskurinn er hans aðalþema.
i Höfða á Ólafsvík sýnir Slgrún Hansdóttir 30
verk sem máluð eru með vatnslitum og flest
unnin í Bandarikjunum sl. vetur en listakonan
dvaldist þar.
Verk Ásmundar Svelnssonar eru sýnd í Ás-
mundarsafnl. Algjör snilld - allir þangað! Alltaf
opið milli 10 og 16.
í Gerðubergi er sýning á munum úr Nýsköpun-
arkeppni grunnskólanemenda. Þarna er alls
konar störskemmtilegir hlutir og krakkarnir eru
alveg að springa úr sköpunargleöi og frumleg-
heitum. Munina verður hægt að skoða í allt
sumar því sýningin stendur til 27. ágúst.
í Listasafnl íslands eru gömlu goðin upp um
alla veggi: Kjarval, Þorvaldur Skúlason og fleiri
slíkir. Fínt fyrir túrista og grunnskólanema.
Bandariski listamaðurinn Jlm Butler sýnir í
Ganglnum, Rekagranda 8.
20
f Ó k U S 2. júlí 1999