Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Qupperneq 2
20
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999
Sport
Hvaö fínnst þér?
Finnst þér búið að vera
gaman á Essó-mótinu í
knattspyrnu um
helgina á Akureyri?
Eiríkur Jónssort, HK:
„Já, það er búið að vera mjög
gaman hér á mótinu og ég hef
notið hverrar stundar."
Ingvar Ásmundsson, Fylki:
„Þetta er æðislegt mót í alla
staði. Við strákamir eru búnir
að skemmta okkar vel allan
tímann.“
Þórarinn Á. Benediktsson, Val:
„Já, mjög gaman. Það er búið
að vera mikið fjör og ég og
samherjar mínir í Val munumn
seint gleyma tímanum sem viö
áttum hér.“
Trausti Eiríksson, Þrótti:
„Já, mjög gaman og ég naut
þess í botn að leika á mótinu
meö félögum mínum í Þrótti."
Umdeild ákvörðun
Ákvörðun ensku deildar- og bikarmeistaranna í Manchester United að
taka ekki þátt í ensku bikarkeppninni á næstu leiktíð er umdeild.
Knattspyrnusamband Evrópu hefur gagnrýnt Alþjóða knattspyrnu-
sambandið harðlega fyrir að neyða United til að velja á milli þess að
leika í enska bikarnum og HM félagsliða í Brasilíu í janúar.
Enska knattspymusambandið hefm' einnig verið gagnrýnt harðlega
enda fór sambandið þess á leit við United að félagið hætti við þátttöku í
bikamum. Forráðamenn United hafa lfengið mikla gagnrýni frá fram-
kvæmdastjórum annarra liða undanfarið enda verður enski bikarinn
varla svipur hjá sjón þegar meistarana og besta lið Englands vantar í
keppnina. -SK
3Z>V
Tveir reknir í sturtu
Riðlakeppnin í Suður-Amerikubikamum er nú komin langt á veg.
Brasilíumenn og Perúmenn hafa þegar tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum.
Brasilía sigraði Mexíkó, 2-1, i fyrrinótt. Amoroso og Alex skoruðu fyrir
Brassa en tíu mínútum fyrir leikslok fékk Rivaldo að líta rauða spjaldið
en þetta er í annað skiptið sem það gerist í síðustu fjómm leikjum liðs-
ins.
Chile-búinn Marcelo Salas var einnig rekinn í bað þegar Chile sigraði
Venesúela, 3-0. Salas var húinn að eiga sannkallaðan stórleik og lagði
m.a. upp tvö marka liðsins. Zamarano, Sierra og Tortolero sáu hins veg-
ar um markaskorunina.
Úrslit í öðnun leikjum um helgina urðu þau að Perú sigraði Bólivíu,
1-0, og Paragvæ sigraði Japan, 4-0. -JKS
Katrín Jónsdóttir segist hafa það fínt hjá Kolbotn og það hafi hjálpað henni mikið að hún kunni málið þegar hún fór utan. DV-mynd IBE
Katrín Jónsdóttir, atvinnuknattspyrnukona í Noregi:
Ganga vel í skólanum
og stofna fjölskyldu
Katrín Jónsdóttir knattspymu-
kona hefúr um nokkurt skeið verið
eina islenska atvinnukonan í knatt-
spymu en hún leikur með Kolbotn í
Noregi. Fyrir stuttu hóf þó félagi
Katrínar úr Breiðabliki, Erla Hend-
riksdóttir, að leika í Danmörku og
því má segja að þær séu tvær at-
vinnukonumar okkar núna. Katrín
er stödd á íslandi i sumarfríi en hún
spilar einnig með sínu gamla liði,
Breiðabliki, í fríinu.
- Lifirðu vel af því að vera at-
vinnukona?
Nei, ég gæti ekki stundað þetta eitt
og sér, ég er á námslánum eins og
flestir námsmenn.
- Þú ert sem sagt í námi, hvað
ertu að læra?
Ég er í læknisfræði og er búin með
eitt ár. Fyrst var ég bara í fótboltan-
um en það er gott að hafa eitthvað
annað til að snúa sér að því þegar það
gekk illa í fótboltanum hjá mér var
allt lifið ömurlegt. Þetta er sex ára
nám og byggist mikið upp á hóp-
vinnu og mér finnst það mjög
skemmtilegt.
- Hvemig hefurðu það úti?
Ég hef það bara rosafint og mér lík-
ar mjög vel. Það hjálpaði að ég kunni
málið þegar ég fór út. Ég bjó þama
þegar ég var yngri því að pabbi var í
íþróttaskólanum. Ég bý í litlum bæ,
Kolbotn, sem er rétt fýrir utan Ósló,
og það er mjög gott að vera þama.
- Hvemig býrðu?
Ég bý í íbúð í blokk sem er við hlið
aðalleikvangsins. Við erum átta úr
liðinu sem búum þama. Það hjálpaði
mér að búa svona nálægt þeim. Ég
var fljót að komast inn í hlutina og
kynnast stelpunum. Ég bý ein. Mér
finnst voða gott að vera út af fyrir
mig en ef ég er einmana er stutt að
leita til stelpnanna í blokkinni.
- Hvaða draiuna hefurðu?
í sambandi við fótboltann langar
mig að spila í úrshtum Evrópu- eða
heimsmeistaramóts með landsliðinu.
Mér fmnst það raunhæft markmið.
Persónulega dreymir mig um að
ganga vel í skólanum og vinnu og
stofna fjölsyldu.
- Hvaða framtíðarmarkmið hef-
urðu í fótboltanum í Kolbotn?
Það er langtímamarkmið hjá
klúbbnum að verða Noregsmeistari
árið 2000. Við erum með svo ungt lið.
Við náum líklega öðru sætinu núna
og vinnum svo næst. Við höfúm æft
rosalega vel í vetur. Við erum að
vinna leiki núna þar sem við gerðum
jaftitefli í fyrra bara á þvi að vera í
betra formi.
- Hvemig er dagur í lífi at-
vinnukonunnar?
Ég mæti í skólann á morgnana og
lyfti svo og hleyp og geri kannski
áfangaþjálfún og mæti svo aftur i
skólann til svona fjögm'. Þá fer ég
heim og fer svo á æfingu með liðinu
og eftir það er engin orka eftir til að
læra. Þá bara horfi ég á sjónvarpið
eða geri eitthvað með stelpunum.
Tvisvar til þrisvar í viku æfi ég
tvisvar á dag, kannski sex daga vik-
unnar en ég tek mér frí á sunnudög-
um. Þetta er náttúrulega strembið en
mér fmnst ég ekkert vera að keyra
mig út. Ég ákvað það áður en ég byij-
aði að ég eiga líf fyrir utan fótboltann
og það hefúr tekist.
- Hver er munurinn á boltanum
hér heima og úti í Noregi?
Sérstaklega hraðinn, það er mun
hraðara spil úti. Það er vegna þess að
það eru miklu fleiri betri einstakling-
ar í hveiju liði þannig að það er hægt
að halda uppi miklu meira tempói á
æftngum.
- Hefúrðu fengið heimþrá?
Ég fékk smáheimþrá í febrúar í
fyrsta skipti. Það leið nú bara hjá því
það var nóg að gera hjá mér.
- Eitthvað að lokum?
Ég vil hvetja ungar stelpur til að
vera duglegar að æfa og þolinmóðar
og reyna að sinna skólanum með.
Kosturinn við það aö litlir peningar
eru í kvennaboltanum er að stelp-
umar mennta sig frekar.
-ÍBE