Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Blaðsíða 4
Umboðsskrifstofa Claudiu Schiffer leitar að módelum. lúkkið er úti „Þaö er bara um að gera að mæta í Loftkastalann í dag milli kl. 16 og 19,“ segir Sigrún Magnús- dóttir, umsjónarmaður Metropolit- an-keppninnar sem haldin verður hér á landi í Gamla bíói 3. septem- ber. í Loftkastalanum tekur Sigrún á móti stúlkum á aldrinum 14-20 ára í viðtal og myndatöku. Þær sem hafa rétta útlitið taka svo þátt í sjálfri keppninni og það er til mikils að vinna því Metropolitan er umboðs- og módelskrifstofa með stúlkur á borð við Claudiu Schif- fer og Evu Herzigova á samningi. „Sú sem vinnur fer til Parísar í aðalkeppnina. Þar verða um og yfir 30 aðrar stúlkur að keppa og því dágóðar v i n n - ingslík- ur því það er samning- ur í verðlaun f y r i r f y r s t u þrjú sæt- in,“ seg- ir Sigrún og út- skýrir að samning- u r i n n gildi í ár og upphæðimar sem verið sé að tala um séu tugir milljóna á hvert sæti eða 77 milljónir í heildina. En hvaóa lúkk af stelpum er inni í dag? „Ég var einmitt að tala við þau úti í gær og mér skilst að þetta sé svona einfaldleiki og stílhreint útlit sem hefur einhver mjög sterk sérkenni," segir Sigrún en sérkenni gæti verið fáeinar freknur, sérstök augu, fallegt bros eða nánast hvað sem er. Hvaö um stór brjóst, eru þau ekki úti? „Jú. En mér sýndist á tímabili að það væri að koma bylgja sem leyfði stúlkunum að hafa aðeins meira utan á sér. Það virðist samt vera að breyt- ast en það er samt alveg öruggt að heróínlúkkið er gjörsamlega úti.“ Þaó er enginn sérstakur háralitur í tísku eöa neitt svoleióis í þessum bransa? „Nei. Hann skiptir engu máli. í dag fjallar þetta aðallega um heilbrigði og hreysti," segir Sigrún og því væri ráð fyrir tiltölulega hraustar og auðvit- að sérstakar stelpur að koma sér niður í Loftkastala í dag. Sigrún Magnúsdóttir er að leita að sætum og sér- stökum stúlkum. Troðfullur skemmtistaður, hoppandi sveitt kjöt á gólfinu og sjö menn uppi á sviði: þrumuhljómsveitin Jagúar Börkur Hrafn Birgisson og Samúel J. Samúelsson eru 28.5% af Jagúar og þeir segja að allir fíli fönkið. Börkur gítarfress: „Maður getur ekki annað en gníst tönnum eins og am- fetamínsjúklingur.“ Af hverju fönk? „Það má finna alls kyns skýring- ar á þessu en helst er það að fónk- ið er stysta leiðin að hreinleika mannsins." Eru áhorfendur ykkar af ein- hverju ákveðnu sauöahúsi? „Það er ákveðinn fasti," segir Samúel með nýyrði á vör. „Mengið spannar Manson-gengið yfir í Lalla í 12 tónum,“ fullyrðir Börkur. „Alls konar lið lætur sjá sig í misgóðu ástandi: Pétur Krist- jáns, Stebbi Hilmars, Eyjólfur Kristjáns. Allir fila fönkið!" Bakaðar baunir Meðlimir Jagúar syngja ekki en gaula annað slagið með. Sveitin ætlar í plötuupptöku í ágúst og áætlar að tíu laga albúm komi út fyrir jólin. Það er enginn Hitler í bandinu og lýðræðið ægilegt. Hæfi- leikar allra fá að njóta sín þó Börk- ur og Samúel viðurkenni að menn séu misfrekir. Tónlistin er hobbí hjá strákunum þó Samúel sé að reyna að lifa á þessu. „Ég er alla vega ekki að gera neitt annað," við- urkennir hann. „Við stefnum allir að því að verða atvinnumenn," staðfestir Börkur. Sjáiöi þá fram á nokkuö annaö en aö flytja úr landi? „Ja, ísland er náttúrlega pínulít- ill markaður," segir Samúel, með þunga áherslu á „pínu“. „Það mætti kannski lifa á þessu ef maður væri einn og við- bjóðslega dug- legur í að mark- aðssetja sjálfan sig,“ segir Börkur, „en við viljum náttúrlega geta lifað á Jagúar eingöngu og til þess þurf- um við út. Við værum alveg til í að éta bara bakaðar baunir í tvö ár ef við fengjum bara að spila.“ „Mér finnst að vísu bakaðar baunir vondar en maður léti sig hafaða," klárar Samúel. Heilmikil víma Hljómsveitin byrjaði á því að leika annarra-manna-lög eingöngu en svo týndust eigin lög inn í prógrammið. „Við höfum það fyrir reglu að taka eitt annarra-manna-lag út fyr- ir hvert frumsamið sem fer inn,“ segir gítarleikarinn og bætir við: Strákarnir í Jagúar fara og fa ser vondar pylsur eftir erfiða og sveitta tónleika. „Þar sem frumsömdu lögin eru frekar kreíjandi, eða alla vega fyrir ofan meðallag flókin, þá er gaman að sjá hversu vel þau ganga í fólk. Við höfum spilað heilu skólaböllin og það er gaman að sjá krakkana grúfa í gegnum 5 eða 6 mínútna löng sóló eins og ekkert sé.“ Hvort eruöi meira ball-band eöa tónleika-band? „Við fílum okkur best sem tón- leikaband á tónleikum þar sem áhorfendurnir fara að dansa,“ seg- ir Sammi. Börkur: „Við gerum mikið í því að vera glaðir þegar við spilum og það er annað og meira en gæsahúð sem við fáum á sviði. Þetta er heil- mikil víma. Þegar við erum heitir getur maður ekki annað en gníst tönnum eins og amfetamínsjúkling- ur.“ „Maður er alveg búinn eftir tón- leika,“ lýsir Samúel yfir. Hvaó geriöi þá til aö slappa af eft- ir svitabaðið? „Það er nú bara farið upp í Sel- ect og étin vond pylsa," segir Börk- ur, „og svo sér maður eftir því að hafa ekki tekið vídeó fyrr um dag- inn því manni kemur ekki dúr á auga tímunum saman." -glh Eðalfönkhljómsveitin Jagúar hefur verið áberandi í skemmtana- lífi landsins síðustu misserin og ku það íjörug að æðahnútar, vörtur og önnur líkamslýti hreinlega hverfa eins og dögg fyrir sólu á ballgest- um. Jagúar var lengi vel sexmanna sveit en nú eru sjö karlmenni inn- anborðs því Samúel basúnuleikari er genginn til liðs við sveitina en hann er eins og alþjóð veit nýslopp- inn úr Casino-gleðibankanum. Strákarnir í Jagúar brosa sína breiðasta í hvert skipti sem þeir koma fram og þegar Sammi og Börkur (gítarbróðir og hressfress) mæta í viðtal birtir til eins og kveikt hafði verið á 100 kerta lúxorlampa. „Casino höfðu spilað saman í tvö ár og menn vildu fara í ýmis önnur verkefni," segir Samúel um enda- lok Casino. „Ég fór snemma að leita mér að einhverju nýju og rakst á þessa stráka." Á íslenska tónlistarmarkaðnum hefur alltaf verið verið pláss fyrir a.m.k. eina vitræna stuðgrúppu, allar götur síðan Júpiters lögðu lín- una fyrir nokkrum árum. „Það er alltaf pláss fyrir sniðugt stuðband,“ segir Samúel, „sem reynir aö fara aðeins nýjar leiðir." Berki finnst Jagúar vera annað og meira en bara stuðband. „Við erum frábrugðin öðrum stuðbönd- um í því að við semj- um lög sjálflr,“ segir hann. Samúel básúnublás- ari: „Mér finnst bakaó- ar baunir vondar." nnað og en HUH LYK.TIN FINNST NU ALUTAF... NEI, SOGUÞRAÐURINN EB. SVO MlKlÐ PRUM HVORT SEM ER... 'V ' ÞA.R ERU T. D. SVO HAVA.RAR. AÐ MAÐUR ÚETuR ALVE6 REKIÐ VlÐ I BÍÓ ÁN t»ESS AÐ NEINN TAKI EFTIR ... (/ í fl—rMk «1— I I 0Ú 3Ú, ÉG FÍLA ALVEG ACTlON- MYNDlR...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.