Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Side 14
Gagnrýn-
endur reiðir
Dómar um svanasöng Stanleys
Kubricks, Eyes Wide Shut eru
nú farnir aö birtast og sýnist sitt
hverjum, yfirleitt eru gagn-
rýnendur hrifnir af myndinni en
þaö sem hefur fariö fyrir brjóst-
iö á mörgum þeirra er 65 sek-
úndna stytting sem gerð var á
myndinni fyrir bandarískan
markað svo hún fengi stimpilinn
R en yrði ekki bönnuð börnum
innan 17 ára. Flestir þeir gagn-
rýnendur sem nú hefja upp raust
sína til varnar útgáfu Kubricks
hafa séö báðar útgáfurnar og eru
sammála um aö sú óstytta segi
mun meira. Þetta umdeilda at-
riöi er ástarsena Toms Cruise og
Nicole Kidman. Þegar það var
tekið upp rak Kubrick alla af
leiksviöinu og tók atriðið upp
sjálfur. Evrópubúar þurfa ekki
að hafa áhyggjur af þessari stytt-
ingu því óstytta útgáfan verður
sýnd í öllum Evrópulöndum að
því er best er vitað.
Er tækni nútímans að gefa oröum Platons fyrir 2000 árum gildi en þá sagði hann
að „raunverulegur" heimur okkar væri aðeins til í huga okkar. í Matrix er gengið
út frá þessu og í The Thirteenth Floor, sem Stjömubíó frumsýnir í dag, er einnig
eitthvert óljóst bil milli raunveruleika og ímyndunar
Kapphlaupið
unt Mars
Eins og kunnugt er hefjast
tökur á stórmyndinni Mars hér
á landi i ágústmánuði. Víst er að
allt verður reynt til að hlutirair
gangi á sinn eðlilega hátt þvi nú
er hafíð mikið
kapphiaup milli
stórfyrirtækj-
anna í
Hollywood um
það hvor verður
fyrr frumsýnd,
Mars eða
Mission to
Mars, sem er
leikstýrt af Brian De Palma.
Leikarar eru Tim Robbins, Gary
Sinese, Don Cheadle og Connie
Nielsen. Myndirnar fjalla nánast
um sama efnið, það er þegar
geimferð til Mars fer úrskeiðis. í
Mars verður geimfarinn
strandaglópur á rauðu plánet-
unni og Qallar myndin að hluta
til um afdrif hans, en í Mission
to Mars er fjallað meira um
björgunarleiðangurinn. Þegar
litið er á leikaralistann virðist
Mars vera liklegri til meiri af-
reka með Val Kilmer, Gary Old-
man, Carrie Ann-Moss (Matrix)
og Tom Sizemore innanborðs, en
enginn skyldi vanmeta Brian De
Palma, sem er við stjómvölinn á
Mission to Mars, en leikstjóri
Mars, Anthony Hoffman, hefur
litla reynslu.
Matríx
framhald
Hin frábæra The Matrix, sem
sýnd hefur verið við miklar vin-
sældir, býður upp á framhald
og nú á ekki að bíða með gerð
framhaldsmyndanna því ákveð-
ið hefur verið að gera tvær
framhaldsmyndir samtímis og
hefur Keanu Reeves samþykkt
að leika i þeim báðum. Það
eina sem
látið hefur
verið uppi
er að fram-
haldið
hefst þar
sem fyrsta
myndin endaði. Líklegt er talið
að myndimar heiti Matrix 2 og
Matrix 3, en þó er það ekki
^ frágengið. Tökur munu fara
fram í Ástralíu og munu Wam-
er-bræður framleiða inyndina.
Ekki er enn vitað hvort þeir
Wachowski-bræður leikstýra,
en þykir þó líklegt.
Stjörnubíó frumsýnir i dag vís-
indatryllinn The Thirteenth Floor
þar sem fjallað er um leik á mörk-
um raunveruleikans. Á þrettándu
hæð í stórhýsi í miðri stórborg
hafa Douglas Hall og Hannon
Fuller hreiðrað um sig og eru að
búa til, með fullkomnustu tölvu-
tækni, eftirlíkingu af Los Angeles
árið 1937. Eitthvað fer úr böndun-
um og þegar Hall vaknar aftur til
lífsins er hann i blóðugri skyrtu
og fljótt finnur hann Fuller myrt-
an. Hail er sá sem grunaður er
inn morðið. í örvæntingarfuUri
leit að skýringu fer Hail óvart að
lifa tvöfoldu lífi, einu í nútíman-
um og öðru í Los Angeles árið
1937.
1 helstu hlutverkum eru Craig
Bierko, Vincent D’Onofrio,
Gretchen Mol, Dennis Haysbert
og Armin Mueller-Stahl. Leik-
stjóri er Josef Rusnak, sem einnig
skrifaði handritið ásamt Ravel
Centeno-Rodriguez.
Ruznak er þýskur leikstjóri
sem lengi hefur gert úrvalsmynd-
ir í Þýskalandi, myndir sem hafa
unnið til verðlauna. Framleiðend-
ur myndarinnar eru mun þekkt-
ari en þeir eru bræðurnir Roland
og Ute Emmerich. Roland hefur
leikstýrt stórmyndunum Stargate,
Independence Day og Godzilla og
það var hann sem bauð Rusnak
til Hollywood til að vera aðstoðar-
leikstjóri sinn við gerð Godzilla.
The Thirteenth Floor er byggð
á vísindaskáldsögunni Simula-
cron-3 eftir Daniel F. Galouye.
Rusnak segir að með allri nútíma-
kvikmyndatækni myndi bókin í
raun aðeins bakgnmninn. Marg-
ar persónur voru skrifaðar út úr
handritinu á kostnað tækninnar.
rko teikur Douglas Hall
lendir í ímynduöum veru-
a í'leit aö moröingja.
Sá sem á heiðurinn af kvik-
myndatökunni í The Thirteenth
Floor er Michael Ballaus, enn
einn Þjóðverjinn sem lengi hefur
starfað í Hollywood en var á
árum áður samstarfsmaður
Rainer Wemer Fassbinder. Hann
hefur tvisvar verið tilnefndur til
óskarsverðlauna, fyrir The Fabu-
lous Baker Boys og Broadcast
News. Aðrar kvikmyndir sem
hann hefur stjórnað tökum á eru
t.d. Primary Colors, Air Force
One, Outbreak, Sleepers og Quiz
Show. Hann er einnig kvik-
myndatökumaður í Wild Wild
West sem sýnd verður bráðlega í
Sam-bíóum.
-HK
Strákarnir í American Pie eru
ákveönir í aö láta afsveina sig eftir
skólaballiö.
Bræðurnir Paul og Chris Weitz slá í gegn með American Pie:
Náði inn tvöföldum
kostnaöi á einni heigi
* ■■■■ ‘.'■■B.ik Xi
Leikararar í myndinni eru nánast allir tiltölulega óþekktir.
Þeir sem fylgst hafa grannt með
bandarískum kvikmyndaiðnaði
undanfarin misseri hafa tekið eftir
því að mikið bræðralag hefur ríkt í
kvikmyndaheiminum. Tvær af vin-
sælustu kvikmyndum þessa og sið-
asta árs, Something About Mary og
The Matrix, eru gerðar af bræðr-
um, Mary af Peter og Bobby
Farrelly (Dumb and Dumber) og
The Matrix af Larry og Andy
Wachowski (Bound). Nú bætast
enn einir bræður í hópinn, Chris
og Paul Weitz, sem skrifa handritið
og leikstýra American Pie sem sló
rækilega í gegn um síðustu helgi í
Bandaríkjunum. Á einni helgi hal-
aði hún inn um nítján milljónir
dollara sem er nærri tvöfalt það
sem hún kostaði og auk þess hefur
hún fengið góða gagnrýni, svo þeir
bræður virðast vera í góðum mál-
um. Þetta hefur gerst þrátt fyrir að
enginn þekktur leikari er i mynd-
inni.
Það eru ekki aðeins þessir
þrennir bræður sem hafa vakið at-
hygli. Frægasta bræðragengið er
tvímælalaust Ethan og Joel Coen,
sem eru verðlaunaðir í bak og fyr-
ir fyrir kvikmyndir sínar og er
skemmst að minnast Fargo og The
Big Lebowski. Þá hafa þeir Hughes-
bræður Albert og Alan ekki vakið
minni athygli fyrir myndir sínar
Menace II Society og Dead Pres-
idents sem báðar ollu umtali og
deilum.
Svo vikið sé aftur að American
Pie þá er um að ræða svarta
kómedíu um fjóra unga og graða
skólastráka sem aldrei „hafa fengið
það“. Þeir heita hver öðrum því að
komast yfir stelpur á síðasta skóla-
ballinu. í margar vikur hefur
American Pie verið eitt „heitasta"
umræðuefnið vestanhafs og er það
vegna vel heppnaðs sýnishorns
sem sýnir ýmislegt sem vekur for-
vitni, svo ekki sé meira sagt, og er
mest umtalaða „kökuatriðið" sem
ekki verður farið nánar í útskýr-
ingar á.
Bræðumir Paul og Chris Weitz,
sem eru 33 og 29 ára, eru engir ný-
liðar í faginu. Þeir hafa skrifað
handrit að tveimur kvikmyndum,
Antz og Madeline, og leikið sér í
gerð stuttmynda. Þeir skiptu vinn-
unni við American Pie á sama hátt
og Coen-bræður gera, Paul er leik-
stjórinn en Chris framleiðandi og
báðir skrifa þeir handritið. Móðir
þeirra er leikkona, Susan Kohner,
sem lék í nokkrum kvikmyndum á
sjötta og sjöunda ártugnum, og fað-
ir þeirra, John Weitz, er þekktur
tískufréttaritari. Þessa dagana eru
Weitz-bræður að skrifa handritiö
að The Nutty Professor H.
-HK
14
f Ó k U S 16. júlí 1999