Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1999, Qupperneq 16
A
hvar eru þeir núf
kynlíf
Þorír ekki 8
upp
Dr. Love svarar bréfum
frá örvæntingarfullum
netverjum á Fókus-
vefnum (www.visir.is).
Dular-
fullur
skjálfti
Band nútímans / TWilight Toys
„Við vorum tvímælalaust Duran-
menn,“ segir Magnús. „Það voru
goðin okkar þó að önnur bönd
læddust inn þegar líða tók á feril-
inn, bönd eins U2, Simple Minds og
Big Country. Wham þoldum við
hins vegar aldrei."
Fullir bjartsýni létu þeir taka
hljómsveitarmyndir af Twilight
Toys sem þeir komu á fjölmiðla
landsins. En Adam var ekki lengi í
paradís og eftir tvenna tónleika
fannst strákunum enskan orðin
lummuleg og svissuðu aftur yfir í
islenskuna. Skömmu síðar var
hljómsveitin öll.
Duran
Band nútímans spilar sig í annað sæti
íktilrauna 1983.
Hvar eru þeir nú?
Magnús Árni var í 4. sæti á lista
Alþýðuflokksins í næstsíðustu
kosningum og örlögin höguðu því
þannig að hann þurfti að koma
heim frá hagfræðinámi í San
Francisco og setjast á þing frá
síðustu áramótum. Hann pass-
aði sig svo á því að vera neðar-
lega á framboðslista Samfylk-
ingarinnar i kosningunum í
maí enda stefnir hann á nám i
Cambridge í haust. Hann ætl-
ar að leggja Evrópufræði fyrir
sig.
iyiús. Finnur Pálmason - sem
samkvæmt hárgreiðslu og
meik-öppi á mynd var hve
ákveðnastur í að meika það - rek-
ur í dag Fiskbúðina okkar ásamt
foður sínum. Fiskbúðin okkar er
með útibú á þremur stöðum á höf-
uðborgarsvæðinu og gengur að
sögn vel.
Hinn gítarleikarinn, Ævar
Sveinsson, er sá eini af gömlu fé-
lögunum sem spilar enn í hljóm-
sveit og hann notar enn þá bláa
Fenderinn sem á Músíktiiraunum
‘83. Ævar er í hljómsveitinni Uzz
sem var með á safnplötu í fyrra-
sumar og verður líklega aftur á
ferð með lag í haust. íþróttavörur
hafa átt hug Ævars allan þvi hann
var um tíma sölustjóri fyrir Nike-
vörur á vegum Austurbakka, en
skipti yfir og er í dag sölustjóri
fyrir Fila-vörur hjá NTC.
Bassaleikarinn Gunnar
„Gógó“ Ólafsson vinnur nú hjá
prentsmiðjunni Gutenberg en fór
til Þýskalands skömmu eftir enda-
lok Bands nútímans til að læra
þýsku.
Þá er aðeins eftir að telja
trommarann Pétur Jónsson.
Hann rekur í dag palla- og véla-
leiguna Himnastigann og er fjöl-
skyldumaður eins og aðrir úr
hópnum.
Innihátíðin Skjálfti var haldin í
Ráðhúskaffi á Akureyri um versl-
unarmannahelgina í fyrra og tókst
æðislega í alla staði. Nú á að end-
urtaka leikinn en
alger leynd hvílir
enn yfir hvar fjör-
ið fer fram. Allir
helstu plötusnúð-
ar landsins verða
með sinn besta
vínil á spilurun-
um. Árni E og
Rampage munu
Skjálfta. blanda saman
ólíkum menning-
arkimum á fjögurra platna vett-
vangi en aðrir sem hafa boðað
komu sína eru
Margeir, Frí-
mann, Grétar,
Arnar, Snorri,
Andrés,
Jón
Guðs“
Atli, Þossi, Herb
Legovitz og Al-
fred Moore.
Hljómsveitin Qu-"
arashi mun einnig láta sjá sig.
Heyrst hefur að þrjú erlend nöfn
séu bókuð á hátíðina en hverjir
þar eru á ferðinni er enn þá
leyndó.
Kári,
Reynir,
„Rödd
Þossi líka.
Ferill Bands nútímans:
Band nútímans var stofnað árið
1982 í bílskúr í Kópavogi. Bandið
tók þátt í Músiktilraunum árið eft-
ir en þá var verið að halda tilraun-
imar í annað skipti. Þar náði sveit-
in þeim frábæra árangri að verða í
öðru sæti, aðeins Dúkkulísurnar
þóttu betri það árið. Hljómsveitin
vann sér inn hljóðverstíma og tók
m.a. upp lagið „Frankfurt ‘45“ sem
er á safnplötunni „Satt“, sem kom
út 1983. Þetta var eina afrek sveit-
arinnar á útgáfusviðinu.
Þó að sveitin yrði sífellt betri og
betri var áhugi hljómplötuútgef-
enda lítill og Magnús Árni Magn-
ússon, söngvari sveitarinnar og
hljómborðsleikari, segir að annað
sætið í Músíktilraunum ‘83 hafi í
raun verið hápunktur sveitarinn-
ar.
„Við vorum líka svo ungir, þetta
14-15 ára, og um 18 ára aldurinn
fór annað að verða mikilvægara í
líflnu og sveitin flosnaði upp. Náð-
arhöggið var líklega þegar Ævar
gítarleikari sá fyrir sér bjarta
framtíð í fótboltanum og fór að
æfa.“
Fyrir endalokin breytti Band nú-
tímans þó um nafn, kallaði sig
Twilight Toys og fór að syngja á
ensku til að líkjast goðunum sínum
meira.
Toys 1985. Efri röð frá vinstri: Gunnar „Gógó“ Olafsson, Finnur Pálrnason. Neðri röð: Pétur Jónsson, Magnús
Árni Magnússon og Ævar Sveinsson.
Kœri dr. Love!!!
Það er nefnilega þannig hjá mér
aö ég þori ekki aö segja kœrastan-
um mínum upp. Hann er ógeðslega
góður vió mig og allt þaó en ég held
að viö verðum miklu hetri saman
sem vinir. En það er þannig aö
hann er svo hrifinn af mér og ég er
svo hrœdd um aö sœra hann og aö
það slitni upp úr vinsambandinu.
Ég fór frá öðrum strák til þess að
vera með kœrastanum mínum og
svo œtla ég aö segja honum upp. Ég
bara þori þaö ekki.
Plís, viltu segja mér hvað ég á aö
gera?
M
Hæ there Divine Miss M!
Ef tilfinningalegt samband (já,
köllum það bara ástarsamband)
milli tveggja manneskja á að ganga
upp verða báðir aðilar að vera jafn-
mikið til í tuskið! Ekki satt?
Ef áhuginn fyrir sambandinu er
bara öðrum megin (í þessu tilviki
hjá stráknum) þá er hvorki honum
né þér nokkur greiði gerður með
því að reyna að rembast þetta
áfram. Þú hefur auðséð allt aðrar
hugmyndir um
hvernig mál-
um á að vera
háttað milli
ykkar - og það
eitt réttlætir
það að þú segir
honum núna
strax hvað þér
býr í brjósti.
Það skiptir
engu máli
hvort þú hættir
með öðrum
strák fyrir
þennan. Hverj-
um þú ert búin
að vera með í
fortíðinni kem-
ur núverandi
kærasta þínum
nákvæmlega ekkert við! Þú segir
að vísu ekki hvað þú ert gömul, en
mig grunar að þú sért frekar ung
að árum, og þá er allt í lagi að mis-
stíga sig aðeins á vegi ástarinnar,
svona þegar maður er að æfa sig.
Þetta er svo mikið á tilraunastig-
inu enn þá, og margt sem maður á
eftir að fatta betur!
Vinasambönd ganga út á það að
skanna sjálfan sig tilfinningalega,
vera stöðugt að gefa „skýrslu“ um
það sem er i gangi hjá manni - því
ef það gleymist, kannski af því að
sambandið verður of vanafast eða
eitthvað, er hætt við að besta sam-
band í heimi breytist í frostpinna.
En á ég að segja þér eitt fríkað?
Það er miklu miklu
miklu ERFIÐARA að
finna góða trausta vini,
heldur en að finna hinn
eina rétta kærasta! Mað-
ur getur nefnilega sagt
raunverulegum vinum
sínum allan sannleikann,
líka sannleikann sem er
sár og erfiður. Auðvitað
á kærastinn manns líka
að meika allan sannleik-
ann, en þá kemur bara
þetta þama með kynlífið.
Það breytir svo helvíti
miklu í samskiptum
manns við kærastann.
Kærastinn manns ein-
hvern veginn meikar það
ekki þegar maður þarf
t.d. að fara í burt til
lengri tíma, að maður tali nú ekki
um ef maður þarf kannski að fara
til útlanda án hans. En aftur á
móti, vinir manns, þú skilur, mað-
ur getur hitt þá aftur eftir margra
mánaða ijarveru og maður tekur
upp þráðinn eins og það hafi verið
i gær! Þetta finnst mér vera frábær
eiginleiki hjá sönnum vinum.
Let’s face it! Þessi gæi sem þú ert
að pæla i að segja upp og segja við
um leið: „Eigum-við-ekki-bara-að-
vera-vinir?“ Sorrí, það á ekki eftir
að gerast svoleiðis! Hann vill ekki
og getur í rauninni ekki verið vin-
ur þinn nema hann sé þeim mun
betur gefinn! Sambandið milli ykk-
ar er komið á allt annan LEVEL úr
því sem komið er.
Ég giska á að strákgreyið verði
kannski soldið hissa fyrst á þessari
nýju hlið á þér, fríki svo út, fari
kannski í ástarsorg og syngi sinn
blús í einhvern ákveðinn tíma.
Hvort hann verður skilyrðislaus og
afslappaður vinur þinn eftir það
má Guð vita. Þú segist vera tilbúin
til að vera „bara“ vinkona hans en
hvort hann er það líka, well, let’s
see!
Ég vona að þessar pælingar
hjálpi þér eitthvað áleiðis, því ég
vil fyrir alla muni að þetta endi far-
sællega hjá ykkur báðum. Það á
enginn það skilið að vera með grjót
í maganum, í nafni ástarinnar!
GANGI ÞÉR VEL, BEIBÍ!
DR. LOVE!
16
f Ó k U S 16. júlí 1999