Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1999, Blaðsíða 1
Einstein:
„Ég vil vita
hvernig Guö
hugsar"
-bls. 20
I
Kári um erfðaiækningar:
Lítið varið í
fullkomleikann
-bls. 21
iBook fartölvan:
Apple
endurtekur
galdurinn
-bls. 22
PlayStation
Getnaðarvarna-
plástur
Heilsuvörurisinn
Johnson & Johnson
er nú að þróa getnað-
arvarnaplástur sem
hægt verður að nota í
heila viku í einu. Fyrirtækið áætlar
að fá markaðsleyfi á næsta ári.
Evra-plásturinn, sem þetta þarfa-
þing kemur tO með að heita, verður
svipaður þeim sem eru notaðir við
hormónaskiptameðferðir og mun
innihalda sömu virku efni og sumar
getnaðarvarnapillur J&J.
Hægt verður að setja plásturinn
hvar sem er á kroppinn og er hann nú
á lokastigi tilrauna á mönnum. Plástur-
inn er hugsaður fyrir konur sem ann-
aðhvort geta eða nenna ekki að muna
eftir að taka piiluna sina daglega.
Heitir strákar og
kaldar stelpur
Ef fólk sem hyggur á
bameignir hefur sér-
stakar óskir um það
af hvaða kyni krakk-
inn skal vera þá
benda þýskar rannsóknir til að til séu
öruggari aðferðir en að krossleggja
flngur og óska sér. Að-
ferðin: Ef það er strák-
ur sem óskað er eftir
skal framk\
getnaðinn um þc
mánuð eftir
bylgju. Ef stDa
upp á stúlku
hins vegar bíða
kuldakasti.
Rannsóknir
Þýskalandi gefa
kynna að kyn barna fari að einhverju
leyti eftir árstíðum. Bornar voru sam-
an þýskar fæðingarskýrslur og veður-
farsskýrslur á árabilinu 1946 til 1995
og þá komu þessi tengsl í ljós. Jafnvel
smæstu sveiflur í hita voru merkjan-
legar á hlutfalli milli kynjanna. Spurn-
ingin sem vaknar óneitanlega fyrir
okkur íslendinga, sé eitthvað til í
þessu, er náttúrlega hvernig staðið
geti á því að íslenskir karlmenn séu
ekki löngu útdauð tegund í okkar rysj-
óttu veðráttu. Nema þá náttúrlega að
fólk sé iðnara við kolann á sumrin...
Skilnaður á Netinu
Fyrirtæki í Bret-
landi, Desktop
Lawyer, býður nú
hjónum í skilnaðar-
hugleiðingum upp á
skilnað á Netinu. Síðan farið var af
stað með þjónustuna fyrr í þessum
mánuði hafa meira en 300 pör nýtt
sér hana til að sækja skilnaðar-
skjölin.
Þjónustan kostar 80 pund, eða rétt
rúmar 9 þúsund krónur, og er miklu
ódýrari kostur en að fara í gegnum
hefðbundna lögmannsskrifstofu, sem
kostar 5 sinnum meira, eða í kring
um 400 pund, um 46 þúsund krónur,
í Bretlandi.
Trúarhópar hafa mótmælt þessari
nýjung harðlega og segja hana úti-
loka með öllu möguleikann á að sætt-
ir náist þrátt fyrir allt. Þjónustan sé
ópersónuleg og þetta geti jafnvel orð-
ið til þess að fólk leiti frekar skilnað-
ar vegna þess hve auðvelt það sé orð-
ið. Fyrirtækið segist aðeins hafa gert
erfiða raun léttari.
Vélmennasmið-
urinn Mark
Makies sést hér
stjórna einni af-
urð sinni við
tuðruspark á
meðan nemendur Konunglegu
vísindastofnunarinnar í Melbour-
ne í Ástralíu fylgjast með.
Vélmenni af þessu tagi notast
við rafsegulbylgjur við að sparka
boltanum og eru byggð á sérsmíð-
uðum vélbúnaði sem leggur
áherslu á hraða, stjórn og snerpu.
Sérstakur hugbúnaður sér svo um
ákvarðanatöku fyrir hin sjálf-
stýrðu vélmenni og gerir þeim
kleift að vita hvar þau, boltinn og
önnur vélmenni eru stödd á vell-
inum.
Fimm vélmenni munu keppa í
Heimsmeistarakeppni vélmenna
(World RoboCup 2000) sem verður
haldin í borginni á næsta ári.
Stórlið Evrópu hafa, eins og gef-
ur að skilja, ekki sýnt þessum
knattspyrnu-“mönnum“ áhuga og
þykir sumum auðséð að ef þessi
tækni verður þróuð frekar á fátt
eftir að standa í vegi fyrir vélræn-
um fótboltamönnum framtíðar-
innar. Eða hver leggur svo sem í
að skriðtækla stálklump?
GAGNABANKIÍSLANDS
Netlausnir fyrir fyrirtæki
Ráögjöf og þjónusta
Ráögjöfvegna 2000 vandans
Námskeið fyrir fyrirtæki
Þjónustusamningar
ÍL.NET.IS
INTERNETÞJÓNUSTA
5 500 200
Síðumúla 3-5 108 Reykjavík
5 500 250